Morgunblaðið - 04.05.1989, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAI 1989
31
Deilt um skattlagningu
til umhverfisverndunar
Hollenska sljórmn fallin:
Haag. Reuter.
Samsteypustjórn Hollands undir forystu Ruud Lubbers úr flokki
kristilegra demókrata (CDA) féll í gær eftir að þingmenn hins stjórn-
arflokksins, Fijálslynda flokksins (WD), sem er hægrisinnaður,
höfðu risið gegn þeirri ákvörðun stjórnarinnar að aftiema skatta-
fríðindi vegna notkunar einkabila. Stjórnin vildi láta féð renna til
stórátaks í umhverfisvernd en markmiðið þess er að minnka mengun
í landinu um 70% fyrir árið 2010. Ráðherrar frjálslyndra klofhuðu
í málinu en flokkurinn hefiir barist gegn aukinni skattheimtu.
Talið er að Lubbers, sem baðst
lausnar í gær, veiti starfsstjórn for-
ystu um hríð og kosningar verði
síðan í september. Mengunaráætlun
sú sem nú var látið bijóta á mun
kosta stórfé sem ætlunin er að
sækja með auknum sköttum á ein-
staklinga og fyrirtæki. Áðurnefnd
skattafríðindi og fyrirhugaður solu-
skattur á dísilolíu, sem Fijálslyndir
voru einnig andvígir, voru aðeins
brot af því dæmi. Meðal Fijáls-
lyndra hefur hins vegar gætt vax-
andi gagnrýni á meint ráðríki Lub-
bers og vildu sumir þeirra að for-
sætisráðherrann sannaði að þessu
sinni að hann tæki tillit til sam-
starfsflokksins með því að láta und-
an.
Ýmsir stjórnmálaskýrendur velta
fyrir sér þeim möguleika að Lub-
bers hafi viljað ljúka samstarfinu
við Fijálslynda þar sem skoðana-
kannanir hafa sýnt vaxandi vin-
sældir stjórnarandstæðinga, eink-
um Verkamannaflokksins. Að-
haldsaðgerðir ríkisstjórnar Lubbers
eru taldar helsta orsök þessarar
þróunar. „CDA hefur færst nær
miðju... Tími harkalegs niðurskurð-
ar á útgjöldum og aðhaldssemi er
greinilega liðinn,“ sagði blaðið
Volkskrant um stefnu krístilegra
demókrata. Líklegt er að Lubbers
gæti myndað nýja samsteypustjórn
að loknum kosningum með Verka-
mannaflokknum.
Kosið í Bretlandi
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Aukakosningar eru í dag í lgördæminu Vale of Glamorgan og
sveitarstjórnarkosningar í Englandi og Wales.
Skoðanakannanir benda eindreg-
ið til þess að Verkamannaflokkur-
inn vinni Vale-kjördæmi af íhalds-
flokknum, sem yrði þá í fjórða sinn
á síðustu 25 árum, sem hann ynni
þingsæti af íhaldsflokknum í auka-
kosningum. Meirihluti Howers í
síðustu kosningum var ríflega 6
þúsund atkvæði.
í dag verður einnig kosið um
3.650 sæti í sveitarstjórnum
víðsvegar um England og Wales.
Síðast var kosið um þau 1985. Þá
tapaði íhaldsflokkurinn illa. Búizt
er við að hann rétti hlut sinn veru-
lega nú og sömuleiðis Verkamanna-
flokkurinn, en Fijálslyndi lýðræðis-
flokkurinn og Jafnaðarmannaflokk-
urinn tapi miklu fylgi. Þeir flokkar
nutu mikils gengis á miðju síðasta
kjörtímabili.
PáfííZambíu
Jóhannes Páll páfi II, sem er í heimsókn til Qögurra Afríku-
ríkja, snertir hér uppstoppað ljón í stjórnarráðinu í Lusaka, höfuð-
borg Zambiu. Páfi fer til Malawi í dag og snýr þaðan til Rómar
á laugardag. •
Sjávarútvegsráðherra Vestur-Þýskalands:
Óráðlegt að stilla íslend-
ingum upp við vegg
í LESENDABREFI sem birtist í þýska blaðinu Welt am Sonntag
um síðustu helgi skýrir Dr. Wolfgang von Geldem, sjávarútvegs-
ráðherra Vestur-Þýskalands, sjónarmið íslendinga í hvalamálinu.
Bréfið er skrifað vegna fréttar um hvalkjötsát í Japan sem birst
hafði 2. apríl þar sem meðal annars kom ranglega fram að Islend-
ingar hygðust ekki veiða hvali á þessu ári og lesendabréfs 16.
apríl frá Peter Pueschel, frammámanni í Greenpeace. Pueschel
þakkaði Welt am Sonntag skrifin um hvalveiðar Islendinga en
tók meðal annars fram að því væri ekki að heilsa að íslendingar
hefðu ákveðið að hætta hvalveiðunum. Bréf von Geldems fer hér
á eftir í íslenskri þýðingu:
„Háttvirtu dömur og herrar,
nokkrar athugasemdir um Gre-
enpeace-herferðina gegn Islandi.
Sambandslýðveldið Þýskaland
hefur um áraraðir unnið af krafti
innan Alþjóðahvalveiðiráðsins að
vemdun hvalastofna í útrýming-
arhættu. í samstarfí við Banda-
ríkin og aðrar þjóðir, sem hafa
skuldbundið sig verndunarsjónar-
miðum, tókst okkur að stöðva all-
ar hvalveiðar í ágóðaskyni árið
1982 og búum nú Alþjóðahval-
veiðiráðið undir að taka ákvörðun
um framtíð hvalveiða árið 1990 á
grundvelli vísindarannsókna.
ísland hefur fallist á samþykkt-
ir ráðsins og hefur ekki stundað
hvalveiðar í ábataskyni síðan
1983. íslendingar hafa vandlega
tekið þátt i undirbúningi að
ákvörðun ráðsins áríð 1990, með-
al annars með umfangsmiklum
vísindarannsóknum, sem ná til
yfir 300 einstakra verkefna, og
eru vísindaveiðar aðeins lítill þátt-
ur þeirra. (Vísindaveiðar verða
stundaðar í síðasta sinn árið 1989
og þá verða veiddar 68 langreyðar
og 10 sandreyðar; á árinu 1990
munu engar hvalveiðar eiga sér
stað).
Hin fámenna, en hugrakka
þjóð, íslendingar, með aðeins
250.000 íbúa, sem býr á lands-
svæði, sem er jafnstórt Bæjaral-
andi og Baden-Wiirttemberg-
fylki, hefur lífsviðurværi sitt úr
hafinu og náttúruauðlindum þess.
Hún hefur nýtt náttúruauðlindir
sínar af gætni og forsjá. Það er
ódýr og óskammfeilinn sigur, þeg-
ar forystumaður Greenpeace-
herferðarinnar skrifar í Welt am
Sonntag, að fram til þessa hafi
tekist að valda íslandi 80 milljóna
marka tjóni með viðskiptaþving-
unum í Vestur-Þýskalandi (miðað
við Vestur-Þýskaland væri hér um
að ræða þjóðhagslegt tap, sem
aus ko| c
zu verzj Í“-W°w.í,c.p
Japaner wollen in der Antarktis mehr als 1000 Meeressauger harpunieren
Walfleisch-P^ctys fiir Geld
^ajiang —Auch Island nutzt die Liicke
'*~*«rnationalen Úberein-
Seh?zZiGJ°"' Hpw *“• *> weit llfar,8er der AUantik-
>e£%sDieÆf«ere
teemrted’ation^“jaÍdn0rÍert
“'“1 rend ■ a den WaifanÍ fdverb<>-
BeT,i iandeÆfi1 í88s.'r°Ue?2S:
cc Hambur?
Japanische Walfanger haben
in der letzten Fangsaison in
antarktischen Gewássem 273
Zwergwale getötet
Das japanische „Institut zur
Erforschung der Waleu hat jetzt
öffentlich Griinde fiir den Wal-
lang durch japanische Schiffe
genannt. Der Direktor des In-
stituts, Fukuzo Nagasaki, sag-
:e, daC Wale getötet werden
nuBten, um wissenschaftliche
punierten in der letz-
n zehn Seiwale und 68
e. Das Fleisch wurde
n Blöcken tiefgefroren
jan exportiert.
.•sem Jahr wollen die
• auf die Waljagd ver-
Sie befurchten eir
t ihrer Fischex
lie Amerikaner.
Ippunnnpn
Fréttin í Welt am Sonntag og
lesendabréfið frá forsvars-
manni Greenpeace, sem urðu
sjávarútvegsráðherra Vestur-
Þýskalands tilefni til við-
bragða.
næmi 20 milljörðum marka).
Einmitt þetta markmið, að
vernda sjávarspendýr til frambúð-
ar, gerir þær kröfur, að við vinn-
um innan Alþjóðahvalveiðiráðsins
með rökum en ekki tilfinninga-
semi. íslendingar verða þar mikil-
vægir bandamenn, ef þeim verður
ekki stillt upp við vegg með að-
gerðum á borð við herferð Gre-
enpeace gegn vísindaveiðum. Það
myndi stofna Alþjóðahvalveiðiráð-
inu I hættu, en við þurfum á því
að halda til að hafa umsjón með
vemd hvalastofnanna.“
Dr. Wolfgang von Geldern.
Suður-Kórea:
Sex lögreglu-
menn farast
eftir íkveikju
Seoul. Reuter.
SEX lögreglumenn, allir á
þrítugsaldri, létust er róttækir
námsmenn kveiktu í níu hæða
bókasafiisbyggingu í Pusan í
Suður-Kóreu eftir að lögreglan
hafði ráðist til inngöngu í bygg-
inguna.
\
Roh Tae-woo, forseti landsins,
sagðist myndu grípa til neyðarað-
gerða yrði ekkert lát á óöldinni í
landinu. „Það er alveg ljóst að þeir
sem kveiktu eldinn, sem varð þess-
um ungu mönnum að bana, hneigj-
ast til blóðugrar byltingar og trúa
á morð, íkveikjur, mannrán og eyði-
leggingu," sagði forsetinn.
VEGN4 SOLU MH>A 06 ENDURNYJUNAR
ARSHWA 06 flOKKSMm IR
AÐAUimODID ..
TJARNAR60TU W
OPW ÍDAG FRÁ HL. 13 TIL17. ____
HAPPORÆW DVAUUIHtlMIUS ALDRAÐRA SJÓMANHA
Eflum stuöning viö aidraða. Miði á mann fyrír hvern aldraðan.
fttóá VÍÐSJÁ