Morgunblaðið - 30.05.1989, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989
„Albert snýr aftur“
BRESKA fjármálablaöið The Financial Times heldur úti daglega
dálki á leiðaraopnu sinni sem kallast Observer. Þar eru tíndir
til ýmsir molar, sem taldir eru forvitnilegir en ekki beinharðar
fréttir og einatt íjallað um þá í léttum tón. í síðasta fímmtudags-
blaði FT segir til að mynda frá því í Observer-dálkinum að
Albert Guðmundsson sé kominn til Frakklands undir fyrirsögn-
inni „Albert snýr aftur“.
Þar segir: „Frægur knatt-
spymumaður hefur snúið aftur
til Frakklands í nýju gervi. Al-
bert Guðmundsson — þekktast-
ur sem bara Albert — lék á
sínum tíma fyrir Glasgow Rang-
ers, Arsenal, FC Nancy, AC
Milan, Racing Club de Paris og
OGC Nice. Þar sem hann varð
síðar fjármálaráðherra íslands á
ámnum 1983 til 1986 kemur
hið nýja hlutverk hans ekki jafn-
mikið á óvart.
Þessi fyrrum innherji, sem nú
er 65 ára að aldri, hefur verið
skipaður sendiherra lands síns í
Frakklandi sem og hjá OECD
sem aðsetur hefur í París. Hann
verður í forsæti á fundi fjár-
málaráðherra OECD landanna í
næstu viku en hingað til hefur
Albert’s back
■ A famous footballer has
returned to France in a new
guise. Albert Gudmundsson
- known usually as plain
Albert - has played for Glas-
gow Rangers, Arsenal, FC
Nancy, AC Milan, Racing Club
de Paris and OGC Nice in his
time. Since he went on to
become Iceland’s Finance Min-
ister from 1983 to 1986, his new
role is less of a surprise.
The former inside forward,
now 65, has been appointed
his country’s ambassador to
■^■■■■MaáUiwUUwUtaálMkfiHÍSa
mestur tími hans farið í að fagna
gömlum knattspymufélögum
sem komið hafa til að bjóða
hann velkominn."
Ráðherrafundi OECD stýrir
reyndar Jón Sigurðsson, við-
skiptarðaherra.
Gúmmíbáturinn, sem pilturinn tók til handargagns, kominn á þurrt
land og i vörslu yfirvalda.
Olvun á Viðeyjarsundi
HAFNSOGUMENN sáu bát eða
rekald á floti við Viðey á tíunda
tímanum í gærmorgun og var
dráttarbáturinn Jötunn sendur til
kanna hvað væri á ferð. í ljós kom
að um yfirbyggðan björgunarbát
var að ræða og um borð svaf 19
ára piltur ölvunarsvefni. Þá var í
gær tilkynnt um stolna smátrillu
og staðfesti lögreglan að samband
virtist vera þarna á milli, pilturinn
hefði stolið trillunni og hefði hún
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 30. MAI
YFIRLIT í GÆR: Yfir íslandi er 1030 mb hæð sem þokast suð-
austur en vaxandi lægðardrag fyrir norðan land hreyfist austur. Á
morgun fer að hlýna í veðri, einkum norðanlands og austan.
SPÁ: Hæg vestlæg átt og víða léttskýjað. Hiti 3—7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Hæg vestlæg átt
og heldur hlýnandi. Lítilsháttar súld vestan til á landinu en þurrt
og bjart um allt austanvert landið.
/, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / # Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■\ o Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
Súld
•> •>
OO Mistur
—|* Skafrenningur
[y Þrumuveður
* Ifcr 1%
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 2 léttskýjað
Reykjavik 6 léttskýjað
Bergen 8 skýjað
Helsinki 17 skýjað
Kaupmannah. 14 skýjað
Narssarssuaq 9 þoka
Nuuk 5 rigning
Osló 15 skýjað
Stokkhóimur 15 skýjað
Þórshöfn 4 haglél
Algarve 21 skýjað
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 20 þokumóða
Berlín 22 skýjað
Chicago 13 þrumuveður
Feneyjar 24 þokumóða
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg 16 skýjað
Las Palmas 22 skýjað
London 21 léttskýjað
Los Angeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 22 léttskýjað
Madríd 20 skýjað
Malaga 18 rignlng
Mallorca 22 skýjað
Montreal 13 skýjað
New York 17 skýjað
Orlando 23 þoka
París 23 léttskýjað
Róm 23 heiðskírt
Vín 23 léttskýjað
Washington 16 léttskýjað
Winnipeg vantar
sokkið, en hann með einhverjum
hætti komist i gúmbátinn.
Hreinn Sveinsson hafnsögumaður,
sem var einn á Jötni, kom að þegar
gúmíbátinn var að reka á land norð-
antil í Viðey. „Ég sneri bátnum þann-
ig að ég sæi inn í hann og sá þá
manninn liggjandi þama. Ég kallaði
til hans en fékk ekkert svar og hélt
að hann væri látinn," sagði Hreinn.
Þegar til hafnar kom var trossa
sett í gúmmíbátinn og hann hífður
upp á bryggjuna. „Þá heyrðist þetta
skerandi öskur og þá kom í ljós að
drengurinn hafði verið meðvitundar-
laus vegna ölvunar. Þegar við reynd-
um að tala við hann gat hann ekki
einu sinni sagt til nafns,“ sagði
Hreinn.
Reykingar
bannaðar í
Mallorcaflugi
TVÆR flugvélar á vegum Sam-
vinnuferða- Landsýnar fara fiill-
ar af farþegum til Mallorca í
dag. Það sem er óvenjulegt við
þessar ferðir er að reykingar eru
bannaðar.
„Við erum að gera tilraun með
þetta og ég veit ekki til að reykinga-
bann hafi áður gilt í millilanda-
flugi,“ sagði Helgi Jóhannsson
framkvæmdastjóri Samvinnuferða
í samtali við Morgunblaðið. „Það
var tilkynnt með góðum fyrirvara
um þetta bann, m.a. í sumarbækl-
ingi okkar, svo þetta á ekki að koma
neinum á óvart. Fjöldi bama verður
í báðum þessum ferðum og þetta
er ekki síst gert fyrir þau. Við ætl-
um að gera skoðankönnun meðal
farþega þegar fluginu lýkur hvort
reykingabann er það sem koma
skal í leiguflugi okkar,“ sagði Helgi.
Eldur í Domus
ELDUR kom upp í verslanahús-
inu Domus við Laugaveg 91
síðdegis á laugardag. Upptökin
voru í ruslageymslu. Talið er að
kveikt hafi verið í.
Reyk lagði um allar hæðir og
þurfti slökkvilið að reyklosa húsið
með búnaði sínum.
Guðmundur Jón
Hjaltason látinn
Guðmundur Jón Hjaltason lést í
gær á sextugasta og sjötta aldurs-
ári. Hann sat meðal annars í sjó-
dómi og tók mikinn þátt í félags-
málum. Hann gengdi einnig for-
mennsku í Sjálfstæðisfélagi Selt-
jarnarness um nokkurra ára
skeið, var í stjórn styrktarsjóðs
SKFÍ og í stjórn Stangaveiðifélags
Reykjavíkur.
Guðmundur fæddist í Reykjavík
1923 og var sonur hjónanna Hjalta
Jónssonar (Eldeyjar-Hjalta) og
Sigríðar Guðmundsdóttur. Guð-
mundur var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Sigríður Jóhanna Sveins-
dóttir og áttu þau tvö böm. Síðari
kona hans var Unnur Ingibjörg Guð-
jónsdóttir.
Guðmundur lauk gagnfræðaprófi
1936, farmannaprófi 1944 og í skip-
stjórafélagið fór hann 1954. Hann
var meðal annars í stjóm þess fé-
lags. Hann varð háseti á togurum
14 ára og háseti 'og stýrimaður á
ýmsum skipum til 1954. Skipstjóri á
MS Hvassafelli frá 1954 til 1961.
Guðmundur Jón Hjaltason
Frá 1962 til ,1970 var hann yfirverk-
stjóri hjá Slippfélaginu og síðan vann
hann meðal annars við fiskirækt og
hjá embættum Borgarverkfræðings
og Byggingarfulltrúa.
Jón Haraldsson
arkitekt látinn
LÁTINN er í Reykjavík Jón Har-
aldsson arkltekt, 58 ára að aldri.
Hann fæddist í Reykjavík, 17.
október, 1930, sonur hjónanna
Haralds Björnssonar leikara og
Júlíönu Friðriksdóttur hjúkrun-
arkonu.
Jón lauk stúdentsprófi í
Reykjavík 1950 og tannlæknaprófi
frá Háskóla íslands 1956. Hann
vann við tannlækningar hérlendis
1956 en síðan stundaði hann nám
í húsagerðarlist við Norges Tekn-
iske Hogskole í Þrándheimi og lauk
þaðan prófi 1960. Næstu ár stund-
aði Jón framhaldsnám og starfaði
í Finnlandi, Kaupmannahöfn og ít-
alíu en hefur starfrækt eigin teikni-
stofu í Reykjavík frá 1962. Jón
Haraldsson teiknaði fjölda húsa fyr-
ir einstaklinga, fyrirtæki og stofn-
anir, bæði hér á landi og erlendis.
Einng vann hann að skipulagi fyrir
sveitarfélög, meðal annars Hafnar-
fjörð og Seltjamames.
Jón Haraldsson.
Jón Haraldsson kvæntist Ás-
laugu Stephensen árið 1956. Hún
lifír mann sinn ásamt fjórum upp-
komnum börnum þeirra.