Morgunblaðið - 30.05.1989, Side 7
7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989
Frá slysstað á Hringbraut. Morgunbiaðið/Júiíus
Barn fyrir bíl
SEX árá drengur varð fyrir bíl við gangbrautarljos á Hringbraut
á sunnudagskvöld og fótbrotnaði.
Drengurinn var á leið suðuryfir Hringbraut, kom að gangbrautarljós-
unum, ýtti á takkann sem skiptir ljósunum og gekk svo rakleiðis út
á götuna, áður en hann hafði fengið grænt ljós. í sama mund var
fólksbíl ekið yfir gangbrautina og skall drengurinn á hlið hennar og
síðan í götuna. Hann var fluttur á sjúkrahús.
Námsmannaátakið ’89
Reynt að skapa 1000-
1200 störf í sumar
í MEGINDRÁTTUM voru tillög-
ur nefndar þeirrar sem unnið
heftir að undanförnu að því að
ftnna leiðir með hvaða hætti
megi tryggja sem flestum náms-
mönnum störf í sumar, sam-
þykktar á fúndi ríkisstjómarinn-
Kókaínsmygl:
Þriðji maður-
inn í gæslu
Að kröfu fíkniefhalögreglunn-
ar hefúr maður um tvítugt verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald í
10 daga, gmnaður um aðild að
umfangsmiklu kókaínsmygli.
Fyrir sitja tveir menn á líkum
aldri í gæsluvarðhaldi vegna máls-
ins, en upplýst er að mennirnir
hafi smyglað til landsins um 430
grömmum af kókaíni frá Banda-
ríkjunum.
ar sl. laugardag, en ákvæðið um
að veija í þetta átak um 200
milljónum króna var fellt út, þar
sem ríkisstjórnin taldi ekki rétt
að njörfa niður ákveðna upphæð
í þessu sambandi. Halldór As-
grímsson, sjávarútvegsráðherra,
sem nú gegnir störfúm forsætis-
ráðherra í Qarveru hans sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær
að frekari útfærslu þyrfti á mál-
inu, en það væri í vinnslu.
„Það er reiknað með því að reyna
að nokkru leyti að skapa þessi nýju
störf á því sviði sem heyrir undir
mín ráðuneyti," sagði Steingrímur
J. Sigfússon, landbúnaðar- og sam-
gönguráðherra og því kæmi hann
að áframhaldandi undirbúningi
þessa máls. Hann sagði að reynt
yrði að vetja meiri peningum en
áætlað hefði verið í að skapa störf
fyrir námsmennina á sviði land-
græðslu-, skógræktar- og umhverf-
ismál. Endanleg upphæð sem yrði
varið í þetta verkefni myndi ráðast
af aðstæðum sem yrðu og þörfmni.
hreppar“:
F egrunarátak í sveitum
NOKKRIR aðilar hafa sameinast
um fegrunarátak í sveitum lands-
ins á sumri komanda, en átakið,
sem hlotið hefúr nafnið „Hreinir
hreppar", beinist einkum að því
að flarlægja af jörðum bænda
óþarfa og ónæýta hluti, hreinsa
strendur og útivistarsvæði og
fegra heimreiðir, auk þess að mála
býggingar og vélar.
I framkvæmdanefnd fegrunará-
taksins hafa verið tilnefndir fulltrúart
frá Búnaðarfélagi íslands, Stéttar-
sambandi bænda, Kvenfélagasam-
bandi íslands, Sambandi íslenskra
sveitarfélaga og landbúnaðarráðu-
neytinu. Leitað hefur verið til sveitar-
félaga og landshlutasamtaka þeirra
um skipulag og framkvæmd söfnunar
og útvegun urðunar- og geymslu-
staða, og óskað hefur verið eftir því
við hreppabúnaðarfélögin að þau
annist ráðgjöf og framkvæmd, en
kvenfélög hafa verið beðin um að
annast samræmingu á framlagi ann-
arra samtaka. Framkvæmdanefnd
fegrunarátaksins mun beita sér fyrir
magninnkaupum á málningarvörum
þar sem þess er óskað, en átakið
byggist á þátttöku bænda og jarðeig-
enda, og verður starfið að mestu sjálf-
boðaliðastarf.
„Tökum á - tökum til“:
Hreinsun á rusli meðfram
þjóðvegum landsins
UNGMENNAFÉLÖG um allt land
undirbúa nú hreinsun á rusli með-
fram þjóðvegum landsins, sem
fram fer dagana 10. og 11. júní
næstkomandi. Um átta þúsund fé-
lagar úr 233 ungmennafélögum
munu taka þátt í hreinsuninni und-
ir kjörorðinu „Tökum á - tökum
til“.
Fyrirhugað er að hreinsað verði
um fimm þúsund km. svæði við þjóð-
vegi landsins, og ér reiknað með um
100 tonnum af rusli. Gert er ráð fyr-
ir að hvert ungmennafélag sjái um
hreinsun á sínu svæði, að minnsta
kosti 15-20 km vegalengd, en flest
félögin munu þó hreinsa lengra
svæði. Víða verða ýmsar uppákomur
tengdar hreinsunarátakinu, til dæmis
grillveislur síðari hluta dagsins. Ýmis
fyrirtæki styðja við hreinsunarátakið,
og meðal annars mun Vegagerð ríkis-
ins útvega ruslapoka og jafnframt
sjá um að safna þeim saman á mörg-
um'stöðum.
STORHOSmó,
VEKÐLÆKKUNtt
v ÁVEfWLÆmíN!
Sfórkostlee verihMm tíljúnúma
á wUrutn trilwn afár&ri 198$
Gríptu gctt iœkíjkrijýrir wnknUýftr hzkkanir.
Góigníiuluigör riajóóír nctaóir bítarlehmr
upp í vérá.
BiLVANGUR Sf?
HÓFÐABAKKA 9 SÍMI 687BOO