Morgunblaðið - 30.05.1989, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989
Frá hugmyndaþingi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll.
Hugmyndaþing Sjálfstæðisflokksins:
Athaftiafrelsi einstaklinga með
aðlögun að nýjum ytri aðstæðum
í TILEFNI af sextíu ára af-
mæli Sjálfstæðisflokksins var á
laugardag efiit til hugmynda-
þings á vegum framtíðarnefiid-
ar miðstjórnar flokksins. Þar
var rætt um frelsi og framtak
einstaklinga; þjóð, tungu og
sögu; velferðarþjóðfélagið; ís-
land og umheiminn og atvinn-
ulífið og aldamótin. Síðan voru
pallborðsumræður og að lok-
um tók Þorsteinn Pálsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
saman þræði og komst þannig
að orði, að það væri auðvelt,
þar sem umræður hefðu allar
hnigið í sama farveg, að
tryggja bæri athafnafrelsi ein-
staklinga með aðlögun að nýj-
um ytri aðstæðum. Davíð
Oddsson, formaður framtíðar-
nefhdarinnar, tók í sama
Framsögumenn á hugmyndaþingi Sjálfstæðisflokksins. Tómas Ingi Olrich flytur ræðu, næst ræðu-
stól er Friðrik Sohpusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem stjómaði þinginu, Árdís Þórðar-
dóttir, Katrtín Fjeldsted, Björn Bjamason og Ólafur Davíðsson.
streng og sagði athyglisvert,
hve allir ræðumenn hefðu ver-
ið samstiga, þótt um ólík við-
fangsefhi hefði verið að ræða.
Tilhögun þingsins var sú, að
sex framsögumenn fluttu erindi
um sérgreind efni en síðan tóku
jafnmargir ræðumenn til máls
og sögðu álit sítt á erindum, við
svo búið svöruðu framsögumenn
fyrirspurnum. Síðan voru pall-
borðsumræður og loks sleit Þor-
steinn Pálsson flokksformaður
þinginu með ræðu.
Þijú meginstef settu svip sinn
á umræðumar. í fyrsta lagi
hvernig best sé að tryggja ein-
staklingum og fyrirtækjum
þeirra nægilegt svigrúm og at-
hafnafrelsi án íhlutunar ríkisins.
í öðru lagi hvernig bregðast skuli
við aukinni samvinnu Evró-
purikja og staðið að málum gagn-
vart Evrópubandalaginu. í þriðja
lagi hvernig sætta megi hags-
muni og sjónarmið þeirra sem
búa í þéttbýli annars vegar og
hinna sem búa í dreifbýli hins
vegar, það er hvernig staðið skuli
að byggðamálum.
Minnt var á að hvarvetna á
Vesturlöndum væri verið að gera
breytingar á hagkerfmu í þá átt
að öll viðskipti yrðu fijálsari og
samkeppni ykist. Félli þetta vel
að þeirri stefnu sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði ávallt fylgt. Á
hinn bóginn væri stefna núver-
andi ríkisstjórnar í hróplegri and-
stöðu við þessa þróun. Talið var
nauðsynlegt að kanna til þrautar
með tiltækum ráðum, hvaða kosti
íslendingar hefðu um að velja til
að treysta sambandið við Evró-
puríki og Evrópubandalagið. Yrði
að gera það af opnum huga og
kynna öðrum sérstöðu íslands.
Mikil áhersla var lögð á nauðsyn
þess að brúa gjána milli lands-
byggðarinnar og höfuðborgar-
svæðisins. Væri það í raun lykill-
inn að því að unnt yrði að koma
á viðunandi jafnvægi í efnahags-
stjórn í landinu.
í lok þingsins fögnuðu forystu-
menn flokksins þeirri eindrægni
sem ríkt hefði á því og töldu að
þar hefði fengist gott vegarnesti
fyrir framtíðamefndina til að
vinna starf sitt fram að lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins næsta
haust.
• BREYTT SÍMAHÚMER • BREYTT SÍMANÚMER • BREYTT SlMANÚMER •