Morgunblaðið - 30.05.1989, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAI 1989
19
Sýningargestir virða fyrir sér gamlar myndir frá landsfundum Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn;
Sögusýning- vel sótt
Á sunnudag var opnuð í Sjálfstæðishúsinu Valhöll sögusýning Sjálf-
stæðisflokksins. Þar eru til sýnis á annað hundrað stækkaðar mynd-
ir úr sögu flokksins siðastliðin 60 ár og hafa margar þeirra aldrei
birzt opinberlega áður. Þá liggja frammi bækur og blöð úr útgáfu
flokksins og myndamöppur með nokkur hundruð myndum úr flokks-
starfi og stjórnmálasögu.
Að sögn Guðmundar Magnússon- ins, var mjög góð aðsókn að sögu-
ar, starfsmanns Sjálfstæðisflokks- sýningunni fyrsta daginn og nálg-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Boðið var upp á kaffiveitingar í Valhöll á sunnudaginn.
aðist vandræðaástand í Valhöll
vegna manníjölda. Sýningin verður
opin á skrifstofutíma næstu vikur.
Hópur fólks hefur undirbúið sýn-
inguna. Gunnar Geir Vigfússon ljós-
myndari sá um eftirtökur og stækk-
anir og tók einnig mikið af myndun-
um. Margar myndir tóku Vigfús
Sigurgeirsson, faðir Gunnars, og
Pétur Thomsen. Már Jóhannsson,
skrifstofustjóri Sj álfstæðisflokks-
ins, hefur haft forystu um flokkun
og öflun mynda og aflað upplýsinga
um atburðina, sem myndirnar sýna.
Með honum unnu Þórdís K. Péturs-
dóttir og Valgerður Anna Jónas-
dóttir. Tryggvi Árnason myndlista-
maður hafði svo veg og vanda af
skipulagi og uppsetningu sýningar-
innar.
í tilefni sextugsafmælis flokksins
verður síðar á þessu ári gefinn út
á bók annáll baráttumála hans, sem
Hannes H. Gissurarson tekur sam-
an. Þá er unnið að gerð myndbanda
um flokkinn, annars vegar sögulegs
yfirlits, sem tekið verður saman úr
gömlum filmum og myndböndum,
og hins vegar nútímalegrar kynn-
ingar.
Aðalfiindur sláturleyfishafa;
Ahyggjur af auknu kjötsmygli
SLÁTURLEYFISHAFAR hafa áhyggjur af vaxandi kjötsmygli og í
ályktun aðalfundar Landssamtaka sláturleyfishafa sem haldinn var
fyrir skömmu er bent á að eftirlit tolla- og heilbrigðisyfirvalda virð-
ist hafa minnkað á síðustu mánuðum. Telur fundurinn óhjákvæmi-
legt að svipta verslanir, hótel og veitingastaði starfsleyfi þegar þeir
verða uppvísir af sölu smyglvarnings.
Félögum í Landssamtökum slát-
urleyfishafa er héðan í frá bannað
að gefa magnafslátt af heildsölu-
verði nautgripakjöts, segir í frétt
um aðalfund LS. Heimilt er að gefa
3% afslátt af skráðu verði við stað-
greiðslu. Hámarksgreiðslufrestur
án vaxta er 45 dagar frá afhend-
ingu. Á fundinum voru einnig gerð-
ar ályktanir um ákvörðun slátur-
kostnaðar, birgðavanda kindalqöts-
framleiðslunnar og fleira.
Fram komu áhyggjur fundar-
manna af fjárhagsvanda sláturleyf-
ishafa, áhrif hans á framtíð _þeirra
vegna mikils tapreksturs. Áætlað
er að tap sláturleyfishafa hafi verið
170—180 milljónir kr. á síðasta ári.
í stjóm Landssamtaka slátur-
leyfishafa voru kosnir: Hreiðar
Karlsson formaður, Steinþór Skúla-
son varaformaður, Kristófer Kristj-
ánsson ritari, Pétur Hjartarson fjár-
málaritari og Hermann Hansson,
Sigurður Jónsson og Árni Jóhanns-
son meðstjórnendur.
Ný sending af
gólf- og yeggflísum
m.a. 10 x 20 — margir litir
KÁRSNESBRAUT106 - KÓPAVOGI - SÍMI46044
• BREYTT SÍMANÚMER • BREYTT SÍMANÚMER • BREYTT SÍMANÚMER •