Morgunblaðið - 30.05.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989
21
Reuter
Leiðtogar ríkja Atlantshafs-
bandalagsins í Brussel. í efri
röðinni eru (f.v.): Steingrímur
Hermaiinsson forsætisráðherra;
Gro Harlem Brundtland, forsæt-
isráðherra Noregs; Brian Mulro-
ney, forsætisráðherra Kanada;
Turgut Ozal, forsætisráðherra
Tyrklands; Ruud Lubbers, for-
sætisráðherra Hollands; Felipe
Gonzalez, forsætisráðherra
Spánar; Jacques Santer, forsæt-
isráðherra Lúxemborgar; Anibal
Cavaco Silva, forsætisráðherra
Portúgals, og Ciriaco DeMita,
forsætisráðherra Ítalíu. í neðri
röð: Poul Schliiter, forsætisráð-
herra Danmerkur; Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands; Manfred Wörner,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins; Francois Mitter-
rand, forseti Frakklands; Bald-
vin Belgíukonungur; George
Bush Bandaríkjaforseti; Wilfried
Martens, forsætisráðherra
Belgíu; Andreas Papandreou,
forsætisráðherra Grikklands, og
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands.
Tillaga Bandaríkjastjórnar um niðurskurð hefðbundins herafla í Evrópu:
Vilja að samkomulag liggi
fyrir eftir sex til tólf máiiuði
Brussel. Reuter.
FUNDUR leiðtoga aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins hófst í gær-
morgun í Brussel og gerði George Bush, Bandaríkjaforseti, þá grein
fyrir tillögu Bandaríkjastjórnar. Forsetinn sagði á blaðamannafundi í
gærdag að Mltrúar allra aðildarríkjanna væru sammála um að Atlants-
hafsbandalagið hefði tryggt frið í Evrópu í 40 ár. Nú þyrfti bandalag-
ið að bregðast við sögulegum umbreytingum sem átt hefðu sér stað í
Evrópu. Markmiðið væri það að gera skiptingu Evrópu að engu og
hefði nýja tillagan um róttækan niðurskurð á sviði hins hefðbundna
herafla í álfunni verið kynnt með þetta í huga.
Bush sagði ríki Varsjárbandalags-
ins hafa færst nær afstöðu lýðræð-
isríkjanna varðandi tilgang og um-
fang Vínarviðræðnanna en þær taka
til hefðbundins herafla á landi allt
frá Atlantshafi til Úralfjalla. Sagði
hann þetta eiga við þá kröfu NATO
að dregið yrði úr getu herafla Var-
sjárbandalagsríkjanna til að hefja
skyndiárás eða stórárás til vesturs.
Þá hefði einnig náðst umtalsverður
árangur í viðræðum um eftirlits-
ákvæði samkomulags í þessa veru.
Forsetinn sagði nýju tillöguna vera
í flórum liðum. í fyrsta lagi þyrfti
að fá fram staðfestingu á því að ríki
Varsjárbandalagsins samþykktu með
formlegum hætti tillögur NATO
varðandi þann hámarksfjölda skrið-
dreka og brynvarinna liðsflutninga-
vagna sem eftir mætti standa í Evr-
ópu. NATO-ríkin hafa lagt til að
samið verði um fækkun skriðdreka
þannig að hámarksfjöldi þeirra verði
20.000 hjá hvoru bandalaginu um
sig. Á sama hátt vilja NATO-ríkin
að hámarksfjöldi brynvarinna liðs-
flutningavagna verði 28.000 og að
samið verði um fækkun stórskota-
liðsvopna þannig að fjöldi þeirra verði
á bilinu 16.500 til 24.000. Bush lagði
áherslu á að gert væri ráð fyrir því
að vopn þessi yrðu öll eyðilögð.
í öðru lagi lagði forsetinn til að
viðræður um niðurskurð hefðbundins
vígbúnaðar tækju einnig til orrustu-
flugvéla og þyrlna í eigu bandalag-
anna tveggja. í erindisbréfi Vínarvið-
ræðnanna er kveðið á um undan-
skilja beri flugvélar og þyrlur í við-
ræðunum. í tillögu Bandaríkjamanna
er gert ráð fyrir að þeim verði fækk-
að þannig að hvort bandalagið um
sig ráði yfir 85 af hundraði núver-
andi fjölda þyrlna og orrustuþotna
NATO í Evrópu.
í þriðja lagi segir í tillögunni að
Bandaríkjamenn séu reiðubúnir til
að fækka hermönnum í Vestur-
Evrópu um 20 prósent og markmiðið
sé það að ná fram jöfnuði hvað varð-
ar fjölda hermanna í Evrópu bæði í
landher og flugher risaveldanna
tveggja. Gert er ráð fyrir að hám-
arksfjöldi sovéskra hermanna utan
iandamæra Sovétríkjanna verði
275.000 menn og að jafnmargir
bandarískir hermenn verði undir
vopnum í Vestur-Evrópu. George
Bush sagði að Sovétmenn myndu,
samkvæmt tillögu þessari, þurfa að
kalla heim um 325.000 hermenn og
tók fram að hersveitir þessar yrðu
leystar upp.
Fjórða lið tillögunnar lýsti Bush
Bandaríkjaforseti þannig að gert
væri ráð fyrir því að Vínarviðræðun-
um um niðurskurð hefðbundins her-
afla yrði hraðað. Sovétmenn hafa
sagt að markmið þeirra sé það að
samkomulag liggi fyrir árið 1997.
Bush kvaðst hins vegar vilja að sam-
komulag á grundvelli tillögu Banda-
ríkjamanna lægi fyrir eftir sex mán-
uði til eitt ár þannig að unnt væri
að ljúka niðurskurði heraflans árið
1992 eða 1993.
Reuter
Svíinn Christer Petterson,
sem hefur verið ákærður fyr-
ir morðið á Olof Palme, for-
sætisráðherra Svíþjóðar. Til
vinstri er mynd sem teiknuð
var eftir morðið.
Ákærður
fyrir morð-
ið á Palme
Stokkhólmi. Reuter.
42 ARA gamall Svíi, Christer
Pettersson, var í gær ákærður
fyrir morð af ásettu ráði á
Olof Palme, forsætisráðherra
Svíþjóðar, og verður hann
leiddur fyrir rétt 5. júní.
Pettersson hefur verið í gæslu-
varðhaldi frá 14. desember og
hefur neitað sakargiftum. 32
vitnum er stefnt fyrir réttinn, en
beinar sannanir skortir og engir
sjónarvottar eru að morðinu.
Pettersson var einnig ákærður
fyrir að hafa reynt að myrða
eiginkonu forsætisráðherrans,
Lisbet Palme, og er talið að hún
verði aðalvitnið. Lögreglan segir
að Lisbet Palme hafi séð Petter-
son á morðstaðnum, en viður-
kennir hins vegar að enginn hafi
séð hann með byssu í hendi.
Jörgen Almblad saksóknari
sagði að vitni hefðu séð Petter-
son bíða eftir forsætisráðherra-
hjónunum fyrir utan kvikmynda-
hús og veita þeim síðan eftirför.
Vitni héldu því einnig fram að
Petterssons stæðist ekki, en
hann hefur sagt lögreglunni að
hann hafi verið skemmtistað
kvöldið sem morðið var framið.
Danska sjónvarpið:
Matador í þriðja sinn
DANSKI sjónvarpsmyndaflokkurinn Matador var fyrst sýndur á árun-
um 1978-81 í Danmörku. Þættimir vom endurteknir árið 1985 og
verða sýndir í þriðja sinn frá og með næstu jólum, að því er segir í
frétt Jyllandsposten.
Að sögn Henriks Antonsens, þegar þeir voru sýndir í Noregi og
dagskrárstjóra hjá Danska sjón- Svíþjóð í vetur. Sænska sjónvarpið
varpinu, varð vart mikils áhuga ætlar að endursýna þættina síðar á
Dana á endurtekningu þáttanna þessu ári.
BOSCH
STARTARAR—RAFALAR
viðgerðarþjónusta
BRÆÐURNIR
(©) ORMSSON HF
Lágmúla 9, sími: 38820
NYTTHIA
OÐRUVISI KENNSLUTAFLA
DANS-DANS-DANS-DANS
JAZZ - BALLET - PÚL - TEYGJUR
Nú verður fjör í jazzballet.
12 ára og eldri - Byrjendur - framhald.
BOLHOLT-83730
MANUD.:
ÞRIÐJUD.:
MIÐVIKUD.
FIMMTUD.:
FÖSTUD.:
Bára með Irma með Anna með Magga með Bára með
danstíma. teygjur ballet - púl - svitinn jazzballet.
Bara dansað sem víkka. ' jazztíma lekur. Tima með öliu.
og úr horni. Jazz á eftir. (ekki leiðinlegt). Jazz á eftir. IVsklst
V/z klst 1 '/2 klst V/2 klst V/zklst
Svona verða næstu 5 vikurnar hjá J.S.B. Taktu eina viku
eða allar - Byrjum 5/6 - Gjald per viku kr. 1.500.- (magnafsláttur)
SUÐURVER - HRAUNBERG
83730 79988
9-11 ára 2ja vikna námskeió. Tímar 4x í viku.
Framhald —'Lærum mikið á stuttum tíma (danstímar)
Byrjendur - Upplagt tækifæri til að kynnast jazzballet.
Tímar fyrri hluta dags. — Kennari: Bára Magnúsdóttir.
Námskeiðl 5/6— 15/6. -Námskeiðll 19/6- 29/6.
\<vtvt
Suðurveri, sími 83730 liraunbergi, sími 79988