Morgunblaðið - 30.05.1989, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989
Haemers og kona hans.
Brasilía:
Mannræningi
handtekinn
Ríó de Janeiro. Reuter.
BRASILÍSKA lögreglan hand-
tók á laugardag Belgann
Patrick Haemers, sem viður-
kennt hefur að hafa rænt Paul
Vanden Boeynants, fyrrum for-
sætisráðherra Belgíu. Kona
Haemers og félagi hans voru
einnig tekin höndum, en
tveggja Belga, sem viðriðnir eru
mannránið, er enn leitað og er
talið að þeir hafi flúið frá Bras-
ilíu. Haemers sagði fréttaritara
Reuters á sunnudag að hann
hefði ákveðið að ræna Boeyn-
ants eftir að hafa lesið greinar
í dagblöðum, þar sem fram
hefði komið að forsætisráð-
herrann fyrrverandi væri vell-
auðugur. Mannránið hefði ekki
verið framið af stjórnmálaá-
stæðum.
Bretland:
Kröfu um lög-
bann á verk-
fall hafiiað
Lundúnum. Keuter.
HÆSTIRÉTTUR Bretlands
hafnaði í gær kröfu atvinnurek-
enda um að lögbann yrði sett
á verkfall í höfnum landsins.
Stéttarfélag hafnaryerka-
manna hafði áður boðað verk-
fali vegna áforma breskra
stjómvalda um að nema úr gildi
lög, sem tryggja 9.400 hafnar-
verkamönnum æviráðningu, en
því var frestað er atvinnurek-
endur kröfðust lögbanns.
Suður-Afríka:
Níu manns
falla 1 átökum
blökkumanna
Jóhannesarborg. Reuter.
NÍU manns féllu í átökum
stríðandi fylkinga blökkumanna
í Natal-héraði í Suður-Afríku
um helgina. Lögregluyfirvöld
sögðu að fórnarlömbin hefðu
annaðhvort orðið fyrir byssu-
kúlum eða hnífstungum. Um
350 manns voru handteknir í
helstu borgum héraðsins um
helgina í aðgerðum, sem að
sögn lögreglu miðuðu að því
að „koma í veg fyrir glæpa-
starfsemi". Mikil valdabarátta
hefur átt sér stað í Natal-
héraði undanfarin fjögur ár
milli tveggja stjómmálahreyf-
inga blökkumanna, Sameinuðu
lýðræðisfylkingarinnar (UDF)
og Inkatha-hreyfmgarinnar.
Rúmlega 1.000 manns hafa
fallið í átökunum undanfarin
tvö ár.
Pólland:
Áttunda geng-
isfellingin á ár-
inu
Varsjá. Reuter.
PÓLSKA stjómin felldi gengi
zlotysins um 6% í gær og var
það áttunda gengisfellingin í
Póllandi á árinu. Stjómin hefur
gripið til gengisfellinga reglu-
lega frá ársbytjun vegna óða-
verðbólgu í landinu, en talið er
að hún verði um 100% á þessu
ári.
Anatólíj Lúkjanov kjörinn varaforseti á sovéska fiilltrúaþinginu:
Gagnrýndur fyrir störf
sín í stj órnmálaráðinu
Moskvu.^Reuter.
MIKHAIL Gorbatsjov, Sovétleiðtoga, tókst að tryggja frambjóðanda
sínum, Anatólíj Lúkjanov, embætti varaforseta á sovéska fúlltrúaþing-
inu í gær. Fresta varð kosningu varaforsetans á laugardag vegna
harkalegrar gagnrýni á störf Lúkjanovs. Deilurnar um varaforsetaef-
nið héldu áfram í gærmorgun áður en gengið var til kosninga með-
al 2.250 fúlltrúa á þinginu. Lúkjanov var einn í framboði og hlaut
179 mótatkvæði en 137 sátu hjá.
Mikil ólga var á fulltrúaþinginu
á laugardag vegna þess að helstu
talsmenn róttækra umbóta náðu
ekki kjöri til Æðsta ráðsins. Það
kom Sovétleiðtoganum einnig aug-
ljóslega á óvart hve andstaðan var
mikil við framboð Lúkjanovs.
Andrej Sakharov, einn kunnasti
andófsmaður í Sovétríkjunum um
árabil, krafðist skýringa á þætti
Lúkjanovs í nýlegri löggjöf um an-
dóf gegpi ríkinu og beitingu her-
valds gegn fjöldafundum en Lúkj-
anov er formaður laganefndar
stjórnmálaráðsins. Gennadíj Filsh-
in, þingmaður frá Síberíu, vakti
athygli á því að Lúkjanov bæri sem
lykilmaður í forsætisnefnd fulltrúa-
þingsins ábyrgð á lélegu skipulagi
og slælegum undirbúningi þing-
haldsins.
Eins og áður segir var Lúkjanov
kosinn varaforseti í gær án mót-
framboðs. Valdsvið varaforsetans
Grænlendinga á ís-
lensk og dönsk skip
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
FÉLAGAR í samtökum græn-
lenskra skipverja, KAIP, ætla
að leggja fram þá kröfú að
grænlenskir yfirmenn á togur-
um grænlensku landsstjórnar-
innar verði fleiri og að minnsta
kosti fjórðungur skipveija á
íslenskum og færeyskum bát-
um, sem veiða úr grænlenska
loðnukvótanum, verði Græn-
lendingar.
Nefnd, sem félagar í KAIP eiga
sæti í ásamt Kaj Egede sjávarút-
vegsmálaráðherra í grænlensku
landsstjórninni, mun fylgja því
eftir að fleiri yfirmenn á skipum
grænlensku landsstjórnarinnar
verði Grænlendingar.
er illa skilgreint í nýju stjómar-
skránni og raunveruleg staða hans
ræðst af því hversu Gorbatsjov upp-
fyllir þau loforð sín að færa völdin
úr höndum flokksins yfir til ríki-
skerfísins. Lúkjanov er náinn sam-
starfsmaður Gorbatsjovs og voru
þeir samtímis í lögfræði við
Moskvuháskóla á sjötta áratugnum.
Reyndar upplýsti Roj Medvedev,
einn af fáum róttækum umbóta-
sinnum sem náðu kjöri til Æðsta
ráðsins, að Lúkjanov hefði verið
yfirmaður Gorbatsjovs í ungliða-
hreyfingunni Komsomol á sjötta
áratugnum. Lúkjanov hefur verið
félagi í kommúnistaflokknum frá
árinu 1955. Hann var á sínum tíma
skrifstofustjóri Æðsta ráðsins og
yfirmaður ríkisendurskoðunar Sov-
étríkjanna. Hann komst í miðstjórn
flokksins árið 1985 og tveimur
árum síðar varð hann einn af ritur-
um miðstjómarinnar. I haust tók
hann sæti í stjómmálaráðinu ásamt
öðrum tiltölulega ungum fylgis-
mönnum Gorbatsjovs en ráðið fer
með æðstu völd í Sovétríkjunum.
En kosningin gekk ekki orðalaust
fyrir sig í gærmorgun. Telman
Gdlíjan, þingmaður Moskvubúa sem
lét af starfi saksóknara nýlega
vegna opinberrar gagnrýni, krafðist
þess að Lúkjanov, sem hefur haft
stjórnkerfismál á sinni könnu, gerði
grein fyrir afstöðu sinni til síaukinn-
ar skipulagðrar glæpastarfsemi í
Sovétríkjunum. Gdlíjan notaði einn-
Anatólíj Lúkjanov.
ig tækifærið og endurtók fyrri ásak-
anir sínar þess efnis að yfirvöld
hefðu látið leyniþjónustuna KGB
stöðva rannsókn, sem staðið hefur
í sex ár, á spillingu í flokknum.
Félagi hans, Nikolaj ívanov, þing-
maður frá Leníngrad, tók undir
þessar ásakanir en hann olli miklu
ijaðrafoki fyrr í mánuðinum með
því að gera heyrinkunnugt að Jegor
Lígatjsov hefði verið tekinn fyrir í
rannsókninni á spillingu valdahafa.
Aðrir komu Lúkjanov til varnar
og lögðu áherslu á mikla reynslu
hans og bentu á að sem frambjóð-
andi Gorbatsjovs ætti hann skilið
að hljóta stuðning fulltrúaþingsins.
Frambjóðandinn sjálfur virtist fara
hjá sér þegar ræður sumra þing-
manna frá Mið-Asíu breyttust í lof-
rullur, sem voru eins og afturgöng-
ur mitt í hinu gagnrýna andrúms-
lofti sem ríkt hefur á þinginu.
ab-mjólk
styrkir stöðu
þíns innri
mannsi
Lestu textann á umbúð-
unum og sjáðu hvað
stendur á bak við a og b.
ab-mjólk er kalk- og prótein
rík eins og aðrar mjólkur-
afurðir og kjörin sem
morgunverður eða skyndi-
máltíð, í hádegi eða að
kvöldi, þá ýmist með
blöndu af korni og
ávöxtum eða ávaxtasafa.
ab-mjólk -
morgunverður
sem stendur
með þér!