Morgunblaðið - 30.05.1989, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPIIAIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989
29
Morgunblaðið/Þorkell
IÐNAÐUR — Trausti Eiríksson framkvæmdastjóri Trausts-
verksmiðju h.f. (t.v.) og Guðmundur Konráð Rafnsson sölustjóri fyrir-
tækisins.
Hagnaður Olíufélagsins hf.
og dótturfélaga 100 m.kr.
HAGNAÐUR af rekstri Olíufé-
lagsins hf. á árinu 1988 varð á
árinu 1988 64,6 milljónir króna
eftir skatta sem námu samtals
61,5 milljónum. Að meðtöldum
rekstri dótturfélaga Olíufélags-
ins, Keilis hf., Húsafells hf., Olíu-
stöðvarinnar í Hvalfirði hf. og
Olíustöðvarinnar í Haftiarfirði hf.
nam hagnaður eftir skatta rúm-
um 100 milljónum króna.
Samkvæmt efnahagsreikningi
félagsins nam eigið fé þess í árslok
1988 samtals 1.898,9 milljónum
króna en eigið fé í árslok 1987 var
1.590,7 milljónir. Hafði eigið fé því
hækkað um 308,1 milljón eða
19,37%. Eigið fé Olíufélagsins og
dótturfélaga nam í árslok 2.169,1
milljón að meðtöldu hlutafé sem
nam 302,8 milljónum en frátöldu
hlutafé Olíufélagsins í dótturfélög-
um að íjárhæð 265,4 milljónum og
eigin hlutabréfum að fjárhæð 50,8
milljónum.
A árinu störfuðu að meðaltali 280
starfsmenn hjá félaginu miðað við
heilsársstörf og námu launagreiðsl-
ur og tengd störf 408,1 milljón.
Markaðshlutdeild Olíufélagsins var
á árinu 1988 44,56% og jókst lítil-
lega frá árinu áður þegar hún var
44,28%. Á aðalfundi félagsins var
samþykkt að greiða hluthöfum 10%
arð.
Marks & Spencer-
menn ánægðir
- auka viðskipti sín við Rækjuvinnsluna
Hagnaður Sparisjóðs
Bolungavíkur 6,9 m.kr.
HAGNAÐUR af rekstri Spari-
sjóðs Bolungavíkur nam rúmum
6,9 milljónum króna á síðastliðnu
ári. Rekstrartekjur voru samtals
131,8 miHjónir, rekstrargjöld
115,6 milljónir og reiknaðir
telqu- og eignarskattar 9,3 millj-
ónir. í árslok voru innlán spari-
sjóðsins 387,8 milljónir og höfðu
aukist um 26,8%. Útlán voru
395,2 miHjónir í árslok og jukust
um 37,6%.
í árslok var eigið fé sparisjóðsins
118,8 milljónir eða 21,8% af niður-
stöðutölu efnahagsreiknings og
lækkaði á árinu um 0,6%. Eigið fé
samkvæmt lögum um viðskipta-
banka og sparisjóði var 37,4% og
hafði lækkað árinu um 2,2%. Bók-
fært virði fasteigna og búnaðar sem
hlutfall af eigin fé er 21,3%. í stjórn
Sparisjóðs Bolungavíkur sitja Guð-
finnur Einarsson, formaður, Bene-
dikt Bjamason og Valdimar L.
Gíslason. Sparisjóðsstjóri er Sólberg
Jónsson.
Gjaldþrot norskra fyrirtækja
ollu gjaldþroti Trausts hf.
- segir framkvæmdastjóri Trausts-verksmiðju hf.
Skagaströnd.
RÆKJUVINNSLAN hf. á Skagaströnd hefur á undanförnum tveimur
árum selt umtalsvert magn af rælgu til breska verslunarfyrirtækisins
Marks & Spencer. Hafa þessi viðskipti töluverða þýðingu fyrir Rækju-
vinnsluna þar sem M&S borgar gott verð fyrir rækjuna.
Nú fyrir skömmu komu 3 fulltrúar
frá M&S í heimsókn í Rækjuvinnsl-
una til viðræðna og eftirlits, en M&S
gerir miklar kröfur til þeirra fram-
leiðslufyrirtækja sem þeir skipta við.
Til dæmis er gæðaeftirlitið svo
strangt að á klukkutíma fresti eru
tekin sýni af framleiðslu Rækju-
vinnslunnar víðs vegar á vinnsluferl-
inu, niðurstöðurnar skráðar á skýrsl-
ur sem M&S-menn fá síðan í hendur.
Innkaupastjóri M&S sagði er hann
ávarpaði starfsfólk Rækjuvinnslunn-
ar að þeir hjá M&S teldu Rækju-
vinnsluna vera eitt af tveimur til
þremur bestu fyrirtækjum í sinni
grein í Evrópu. Sagði hann að hús-
næði, búnaður og vinnubrögð væru
til fyrirmyndar og nefndi sem dæmi
að á þessum tveimur árum sem við-
skiptin hafa staðið hefði aldrei fund-
ist galli í framleiðslunni, eiida hyggst
M&S nú auka viðskipti sín við fyrir-
tækið. Með M&S-mönnum í för
var Ingimundur Konráðsson aðaleig-
andi Marfangs hf., sem hefur séð
um útflutning á rækjunni til M&S
fyrir Rækjuvinnsluna. Afhenti hann
við þetta tæifæri starfsfólki Rækju-
vinnslunnar viðurkenningarskjöld
fyrir vandaða framleiðslu. Sigurður
Bjarnason veitti skildinum viðtöku.
- Ó.B.
„TRAUST HF. varð gjaldþrota
vegna gjaldþrota norskra við-
skiptavina fyrirtækisins,“ sagði
Trausti Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Trausts-verksmiðju hf., á
blaðamannafimdi sem hann boð-
aði til fyrir skömmu. Hann sagði
að Traust hf. hefði selt norskum
fyrirtælgum stórar hörpudisk-
verksmiðjur en fyrirtækin hefðu
orðið gjaldþrota vegna verðfalls
á hörpudiski vorið 1987 og ekki
greitt Trausti hf. fyrir uppsetn-
ingu á verksmiðjunum. Traust
hf. hefði því tapað 20 til 25 millj-
ónum króna og verið lýst gjald-
þrota 7. desember siðastliðinn.
Þá hefðu skuldir fyrirtækisins
verið 190 milljónir króna en eign-
ir 150 mil(jónir króna.
Trausti Eiríksson sagði að Lands-
bankinn hefði keypt eignir Trausts
hf. á nauðungaruppboði. Hann
sagði að Traust-verksmiðja hf. hefði
frá síðastliðnum áramótum fram-
leitt tækjabúnað sem Traust hf.
hefði áður framleitt fyrir sjávarút-
veginn. „Fjöldamörg einkaleyfi og
tækniþekking, sem framleiðsla
Trausts hf. byggði á, er persónuleg
eign mín,“ sagði Trausti. Hann
sagði að Traust-verksmiðja hf. hefði
framleitt fyrir 40 til 50 milljónir
króna frá áramótum en Traust hf.
hefði framleitt fyrir 110 milljónir
króna árið 1988 og 170 milljónir
króna árið 1987.
Trausti sagði að hann hefði
stofnað Traust hf. fyrir 10 árum
og hann hefði átt 70% hlutaljár í
því fyrirtæki. Hann sagði að hluta-
fé Trausts-verksmiðju hefði verið
aukið úr einni milljón króna i 13
milljónir króna um síðustu áramót.
„Ég á 35% í Trausti-verksmiðju hf.
en um 30% af hlutafé fyrirtækisins
eru í eigu útlendinga," sagði
Trausti. Hann sagði að nú ynnu 27
manns hjá Trausti-verksmiðju hf.
en um 60 manns hefðu verið í vinnu
hjá Trausti hf. vorið 1987.
GARÐASTAL
Á þök og veggi
= HEÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
Smurstöoin okkar er í alfaraleiö viö Laugaveginn
Viö þjónustum allar tegundir fólksbíla, jeppa
og flestar geröir sendibíla.
Mjög stuttur biötími. — Þrautþjálfaöir fagmenn.
Snyrtileg veitingastofa. — Smávöruverslun meö
ymsan aukabúnaö og hreinlætisvörur fyrir bílinn
ALUR EiGA LEIÐ UM LAUGAVEGiNN
■ -
HEKLAHF
Laugavegi 170-174 Sími 695500-695670