Morgunblaðið - 30.05.1989, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989
30
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra:
Fiskveiðistj órnun til langs
tíma er helsta markmiðið
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stúdentar úr Verkmenntaskólanum á Akureyri settu upp hvítu koll-
ana á laugardag, en þá útskrifaði Baldvin Bjamason skólameistari
61 stúdent, en alls vom 129 útskrifaðir af ýmsum sviðum skólans
þann dag. Óskar Ægir Benediktsson mælti fyrir hönd nýstúdenta,
en hann fékk viðurkenningu fyrir góða kunnáttu í íslensku.
Verkmenntaskólinn á Akureyri:
129 nemendur útskrifaðir
af ýmsum sviðum skólans
FISKVEIÐISTJÓRNUN og end-
j urskoðun fiskveiðistefhunnnar
var nokkuð til umræðu á fundi
Utvegsmannafélags Norðurlands
sem haldinn var í gær. Á fimdin-
um héldu Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra og Krist-
ján Ragnarsson formaður LÍÚ
erindi, en einnig kom á fimdinn
Ami Kolbeinsson ráðuneytis-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu.
Fækkun fiskiskipa, úreldingar-
sjóður og stjórnun með útflutn-
ingi fersks fisks í gámum bar
einnig nokkuð á góma á firndin-
um. Þá var einnig rætt um sér-
stakan upplýsingabanka þar sem
safiiað yrði saman og miðlað út
upplýsingum um fisksölur innan-
lands og utan og jafhvel einnig
um sölur á veiðiheimildum.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra gerði fískveiðistjóm-
un að umtalsefni í ræðu sinni á
fundinu og sagði menn meira sam-
mála nú en áður þar um. Hann
sagði helsta verkefni á sviði útvegs
á næstunni að koma sér saman um
fiskveiðistjórnun til langs tíma og
með hvaða hætti standa ætti að
úreldingu skipa. Hægt væri að veiða
þann afla sem til úthlutunar er með
mun minni flota en nú sækir miðin.
Þá sagði hann einnig samstöðu um
að veiðiheimildir væru bundnar
ákveðnum aðilum og að þær væm
meira framseljanlegar en nú er.
Ráðherra sagði menn einnig nokkuð
sammála um að sóknarmarkið verði
lagt af.
Halldór sagðist vona að fmmvarp
um úreldingarsjóð yrði lögfest á
þingi í haust, það væri mikils um
vert að geta keypt upp óhagkvæm
og úrelt skip. „Það mæla öll rök
með því að úreldingarsjóður verið
stofnaður og þessi sjóður verður að
hafa möguleika á því að selja veiði-
heimilir í tiltölulega stuttan tíma
til að hægt sé að fjármagna hann,“
sagði ráðherra.
Slæma afkomu bátaflotans sagði
Halldór ekki verða leysta með aukn-
um veiðiheimildum, heldur yrði
fyrst og fremst að hagræða í flotan-
um í heild. Við hefðum ekki efni á
stærri flota en hann er í dag, en á
undanförnum þremur til ijómm
ámm hefði hann stækkað um of.
Kristján Ragnarsson formaður
LIÚ ræddi einnig um fískveiðistefn-
una og sagði þau viðhorf ríkjandi
að fijálsar fiskveiðar væm liðin tíð,
veiðar yrðu áfram bundnar leyfum.
Þá sagði hann að til bóta yrði ef
sóknarmarkskerfið yrði lagt af,
aflamarkskerfið væri kerfi framtíð-
arinnar. Hann sagði meirihluta
hagsmunaaðila sjávarútvegsins
vera hlynnta því að veiðiheimildir
væm bundnar fiskiskipum, að
framsalsheimildir yrðu gefnar
frjálsari og smábátar sæti almenn-
um reglum, en væm ekki bundnir
sérheimildum eins og nú er. Hins
vegar væri ekki vilji fyrir því að
taka upp gjaldtöku fyrir veiðileyfi.
„Ég held að með slíkum breyt-
ingu megi ná verulegum samdrætti
í flotanum, sem við verðum að við-
urkenna að er alltof stór og endur-
spegla þær miklu takmarkanir sem
settar era á hvert veiðiskip," sagði
Kristján og bætti við að hann væri
sammála ráðherra um að æskilegt
væri að beita úreldingarsjóði í þessu
sambandi.
Verkmenntaskólinn á Akur-
eyri útskrifaði 129 nemendur á
laugardaginn. Flestir útskrifuð-
ust af tæknisviði eða 57, 33 af
viðskiptasviði, 15 af hússljórn-
arsviði og 12 af uppeldissviði.
Af heilbrigðissviði útskrifuðust
8 og 4 úr öldungadeild, en skól-
inn útskrifaði í fyrsta sinn stúd-
enta af hússtjórnarsviði og úr
öldungadeild á þessu vori.
Á síðasta skólaári vom 921
nemandi í dagskóla í byijun haust-
annar og hafa nemendur aldrei
verið fleiri. í öldungadeild vom 156
nemar, 87 stunduðu nám í fullorð-
insfræðslu og 168 á ýmsum nám-
skeiðum. Þá stunduðu 16 sjúkralið-
ar sem lokið höfðu prófi samkvæmt
eldri reglugerð nám við skólann á
haustönn. Kennarar við skólann
vom 92, þar af 56 í fullu starfi.
Baldvin Bjarnason skólameistari
sagði að ef allt færi fram sem
horfði myndi endurmenntun og
fullorðinsfræðsla verða sífellt
ríkari þáttur í starfi skólans. í
ræðu sinni við skólaslitin ræddi
Baldvin m.a. um hvemig bygg-
ingaframkvæmdum við skólann
miðaði. Hann ræddi einnig fé-
lagslíf, íþróttir og útivist, en þessir
þættir hefðu sett svip sinn á skóla-
starfið. Þá gerði hann grein fyrir
gjöfum sem skólanum hafa borist
í vetur, en þær væra fjölmargar
og góðar.
Stúdentar sem útskrifuðust frá
VMA voru 61, sjúkraliðar 5, 7 sjó-
kokkar, einn bakari og einn matar-
tæknir og 2 blikksmiðir. Hár-
greiðslu luku 3 nemar og einn
hárskurði, 6 húsasmíði og 2 kjö-
tiðn. Einn lauk námi í pípulögnum,
14 raflögnum, 6 í stálskipasmíði
og einn í stálvirkjasmíði. Vélvirkj-
un luku 5 og 6 útskrifuðust sem
vélaverðir. 2. stigi vélstjórnar luku
3 og 4 3. stigi vélstjórnar.
Uppsalaætt
50. ættarmótið verður haldið að Laugaborg 1 .-2. júlí.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir 10. júní innan
hvers ættleggs.
Mætum öll.
Ættarráð.
Tónlistar- og
tónmenntakennarar
Næsta skólaár eru lausar til umsóknar:
Hálf staða við almenna tónmenntakennslu á grunn-
skólastigi í Glerárskóla, Akureyri.
Starf við forskólakennslu og möguleikar á hljóðfæra-
kennslu á vegum Tónlistarskólans á Akureyri. Sú
kennsla færi að mestu fram í Glerárskóla.
Gert er ráð fyrir að sami kennari geti kennt að hluta
hjá grunnskólanum og að hluta hjá Tónlistarskólanum.
Nánari upplýsingar gefa:
Skólastjóri Glerárskóla, sími 96-21395
Skólastjóri Tónlistarskólans, sími 96-21460
Skólafulltrúi Akureyrarbæjar, sími 96-27245.
Skólafulltrúi Akureyrarbæjar.
Skrifstofutækj akynning
Kynnum margar nýjungar á sviði skrifstofutækja
á Hótel KEA í dag, þriðjudaginn 30. maí og
miðvikudaginn 31. maí nk. frá kl. 10.00 til 16.00.
Komið og kynnist Simul-colour, tvílita ljósritun,
Olympia ritvinnsluvélum, Frama frímerkingar-
vélum, EBA pappírstæturum ásamt ýmsum öðr-
um tækjum, sem verða til sýnis.
■Bókabúðin EddaH I // i/iadam
■■■ Hafnarstræti 100 Akureyrí Simi 24334 ■■■ fe % %
SÍÐUMÚLA14 • SÍMI8 30 22.
,__■»
Sltlflj ouglýsingar
Þjónusta
Hilmar Foss
lögg. skjalaþ. og dómt.
Hafnarstræti 11,
símar 14824 og 621464.
f ÉLAGSLÍF
Aðalfundur
Aðalfundur skíðadeildar KR
verður haldinn miðvikudaginn
31. maí kl. 20.30 i félagsheimili
KR við Frostaskjól.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundar-
störf.
Stjórnin.
SKRR
Uppskeruhátið Skiðaráðs
Reykjavíkur verður haldin i kvöld
30. maí kl. 20.30 í Framheimilinu
við Safamýri.
Reykjavikurmeistarar, sigurveg-
arar í firmakeppni SKRR og ann-
að skíðaáhugafólk er velkomið.
Vinsamlega mætið með kökur i
góða kökuveislu.
Skíðaráð Reykjavíkur.
Útivist
Miðvikudagur 31. maí kl. 20
Reykjavíkurganga Útivistar
1989
Brottför er með rútu frá Grófar-
torgi (milli Vesturgötu 2 og 4)
kl. 20 og frá BSÍ, bensínsölu, kl.
20.10. Ekið verðurað Fossvogs-
skóla og gengiö um Fossvogs-
dalfnn í Skógræktarstöðina og
áð þar, en síðan haldið meðfram
Fossvogi í Öskjuhlíð og aðal
áningarstaðurinn er kl. 21.30 við
Beneventum. Gestir koma i
gönguna og fræða um skóg-
rækt, sögu o.fl. Ekkert þátttöku-
gjald. Notið tækifærið og kynn-
ist Útivistargönguterð. Létt
ganga. Þetta er síðasta ferðin í
ferðasyrpunni um Bláfjallaleið-
ina. Allirvelkomnir. Ferðaáætlun
Útivistar 1989 verður afhent í
ferðinni. Gerist Útivistarfélagar.
Árgjaldið er 1.900,- kr. Eldri árs-
rit á tilboðsverði til 1. júlí.
Sjáumst.
Útivist, feröafélag.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 Ofl 19533.
Helgarferðir í júní:
2.-4. júní: Þórsmörk - gist í
Skagfjörðsskála/Langadal.
9.-11. júní: Þórsmörk - gist í
Skagfjörðsskála/Langadal.
16.-18. júní: Þórsmörk - gist i
Skagfjörðsskála/Langadal.
16.-18. júní: Mýrdalur - Heiðar-
dalur - Dyrhóley - Reynishverfi.
Gist í svefnpokaplássi. Göngu-
ferðir - bátsferð.
23.-25. júní: Þórsmörk - Gist í
Skagfjörðsskála/Langadal.
30.-2. júlí: DALIR - gengin gömul
þjóðleið. Hvammur - Fagridalur.
30. júní-2. júlf: Öræfajökull. Gist
á Hofi í svefnpokaplássi.
30. júní-2. júli': Ingólshöfði. Gist
í svefnpokaplássi á Hofi.
Sumarleyfisferðir í júlí:
1. 24.-29. júní (6 dagar): Vest-
firðir.
Ekið til Þingeyrar í Dýrafirði og
gist þar í þrjár nætur. Farnar
skoðunarferðir m.a. gengið frá
Höfn, um Svalvoga og Siéttanes
milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar.
Næstu tvær nætur gist í
Breiðuvík og m.a. gengiö á
Látrabjarg.
2. 28.-1. júli (4 dagar); Ferð um
Breiðafjarðareyjar.
Gist í svefnpokaplássi í Stykkis-
hólmi. Siglt með Hafrúnu um
eyjarnar vestan Stykkishólms, í
mynni Hvammsfjarðar og einnig
til Vestureyja.
Árbók F.l. 1989 fjallar um
Breiðafjarðareyjar og er einn af
höfundum hennar, Arni Björns-
son, fararstjóri í ferðinni.
Ath: Breytt dagsetning frá
prentaðri áætlun 1989.
Fólk getur komið í rúturnar
v/kirkjugarðinn í Hafnarfirði.
Upplýsingar um ferðirnar og far-
miðasala er á skrifstofunni,
Öldugötu.
Ferðafélag (slands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Gönguferðir um Noreg
ísumar
1. 7.-16. júlí: Hardangervidda
Sex daga gönguferð (hringferð)
um Hardangervidda. Gengið um
heiðarlandslag (sléttlendi) milli
sæluhúsa. Stysta dagleiðin er 4
klst. og sú lengsta 7 klst.
2. 11.-21. ágúst: Jotunheimen
Gengið mili sæluhúsa þvert yfir
Jotunheimen. Stórbrotið lands-
lag. Dagleiðir 4-6 klst. Nokkur
sæti laus.
Gert er ráð fyrir skoðunarferðum
frá áningarstöðum. Matur inni-
falinn í verði. Gangið með félög-
um okkar i Norska ferðafélaginu.
Ferðumst um Noreg eins og
Norðmenn með fararstjórum
sem miðla af drjúgri reynslu og
þekkingu á staðháttum.
Upplýsingar um nánari tilhögun
ferðanna á skrifstofu F.Í., Öldu-
götu 3.
Tilkynnið þátttöku fyrir 1. júlf.
Ferðafélag íslands.