Morgunblaðið - 30.05.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989
35
í bernsku. Hún lærði ung að árum
að vera ákveðin og stóð fast við
sínar skoðanir og tókst á við lífið
eftir því. Uppgjöf eða sjálfsvorkunn
voru henni ekki að skapi.
Ég minnist þess þegar móðir mín
sagði okkur systkinunum sögur frá
bernsku sinni í Hrísey. Þegar afa
fannst ástæða til að taka í iurginn
á einhveijum úr krakkaskaranum
var refsingin jafnan að loka viðkom-
andi inni á „kontor“, sem svo var
kallaður, og dúsa þar, eða biðjast
fyrirgefningar ella. Fjóla tók sem
fyrri daginn örlögum sínum af
æðruleysi og sat út vistina, frekar
en að biðjast vægðar. Þannig var
hún, vol og víl var ekki að hennar
skapi.
Pjölskyldan hafði þann sið í
seinni tíð að koma saman einu sinni
á ári og vera saman daglangt. Á
þessum ætíarmótum var Pjóla
einna ötulust við að koma fólkinu
saman og efla fjölskylduböndin.
Mér finnst sem ég heyri hláturinn
hennar innilega, sem var svo sér-
stakur, þegar ég hugsa til baka.
Þegar hún virti fyrir sér yngstu
kynslóðina og lifði sig inn í þeirra
hugarheim. En þannig var hún, kom
auga á svo margt sem fram hjá
öðrum fór. Hún hafði þann hæfi-
leika, að sjá það smáa og sérstæða
í lífinu, sem gefur því raunverulegt
gildi.
Nú hefur elsku frænka kvatt
okkur í bili og við sitjum hnípin
eftir. Laugardagsmorgunkaffið sem
ég var alltaf á leiðinni í, verður
ekki drukkið hérna megin að
minnsta kosti. Líf hennar var sann-
arlega okkur sem eftir lifum til eft-
irbreytni, hvarvetna skildi hún gott
eftir sig og minningarnar eru bjart-
ar og fagrar. Margur saknar nú
vinar og mikilvægur hlekkur er slit-
inn úr fjölskylduböndum. Þetta ót-
ímanlega áfall ætti einmitt að verða
til þess að þrýsta okkur enn meira
saman, slíkt væri áreiðanlega henni
að skapi.
Elsku Kári og Kristján, þið hafið
misst mest, megi algóður guð
styrkja ykkur á erfiðum stundum
og megi minningin um jafn mæta
og göfuga konu og Fjóla var, gefa
ykkur styrk.
Sigurveig Hauksdóttir
í dag, þriðjudaginn 30. maí, verð-
ur til moldar borin föðursystir mín,
Pjóla Brynjólfsdóttir frá Hrísey.
Hún lést laugardaginn 20. maí í
Landspítalanum eftir stutta en erf-
iða-sjúkdómslegu. Mig langar til
að minnast hennar hér með nokkr-
um fátæklegum orðum.
Á svona sorgarstundum þegar
minningarnar sækja á er eins og
renni upp fyrir manni hvað það er
undarlegt með okkar mannanna
börn á jörðu hér að við gerum okk-
ur kannski ekki grein fyrir því hvað
við getum lært hvert af öðru fyrr
en leiðir skiljast og kannski er það
hluti af skóla lífsins. Af Fjólu mátti
svo sannarlega margt læra. En nú
þegar ég rita þessar línur er mér
efst í huga þakklæti og ekki síst
fyrir hönd barna minna að þau
skyldu verða þeirrar gæfu aðnjót-
andi að kynnast mannkostum
frænku sinnar, enda er hennar sárt
saknað. Pjóla var á margan hátt
einstök, hafði yndi af börnum og
var þess vegna í miklu uppáhaldi
hjá smáfólkinu í fjölskyldunni. Er
safnast var saman af éinhveiju til-
efni var hennar ævinlega beðið með
eftirvæntingu og þegar Pjóla var
mætt fór hún gjarnan afsíðis með
börnin og hófst þá gamanið. Farið
var í skollaleik sem þótti alveg
ómissandi, spilað á spil eða farið í
aðra leiki. Því hún hafði ávallt
nægan tíma fyrir bömin og þau
kunnu svo sannarlega vel að meta
það. Fjóla skilur eftir einlægar og
góðar minningar um skemmtilegar
samvemstundir.
Aðalsmerki Fjólu fannst mér vera
trygglyndi og velvilji og þeim þætti
hennar fengu ég og fjölskylda mín
vel að kynnast. Aldrei brást það
að ef henni var gerður greiði, gefin
uppskrift, eða eitthvað sem ekki var
orð á gerandi, leið aldrei langur tími
þangað til Fjóla hringdi til að þakka
fyrir sig eða jafnvel bara til að
þakka fyrir síðast.
Fáa hef ég séð gædda þeirri ein-
stöku vandvirkni og natni sem ein-
kenndi hana alla tíð. Það virtist
allt leika í höndunum á henni og
það var ósjaldan sem hún rétti börn-
unum peysu sem hún hafði pijónað.
Oft undraðist ég hvernig henni
tókst að hafa smákökurnar svona
fínar, allar jafnstórar og eins á lit-
inn. Öll þessi atvik úr fortíðinni
undirstrika vandvirkni og gleði
Fjólu í starfi. Hún var mjög áhuga-
söm að halda ættinni saman og að
yngra fólkið í fjölskyldunni fengi
að kynnast og átti hún dijúgan
þátt í því að haldin hafa verið ættar-
mót árlega í seinni tíð. Nú að leiðar-
lokum vil ég með þessum fáu orð-
uðm kveðja elskulega frænku mína
og bið henni guðsblessunar til
handa í nýjum heimkynnum. Eigin-
manni, fóstursyni, unnustu hans og
systkinum svo og öðrum ættingjum
votta ég samúð okkar.
Blessuð sé minning Fjólu Brynj-
ólfsdóttur.
Sigurveig Sigtryggsdóttir
og flölskylda.
Talaðu við
okkur um
ofna
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 8589
Talaðu við
okkur um
eldhústæki
SUNDABORG 1 S. 6885 88 -6885 89
Talaðu við
okkur um
þvottavélar
SUNDABORG 1 S. 6885 88 -6885 89
iDE -hurðimar frá Bústofni með fræstum
„fullningum" prýða heimilið og gefa því virðu-
legan blæ. Þær fást gegnheilar eða með
„frönskum" gluggum, sem hleypa birtu á milli
herbergja. Frönsku hurðirnar eru einnig fram-
leiddar tvöfaldar.
Hurðirnarfaravel í nýtízku húsakynnum sem
og til endurnýjunar í eldri húsum. Þær eru því
hvarvetna aðlaðandi og hagnýt lausn.
Arkitektar og iðnaðarmenn hafa lokið lofs-
orði á hurðirnar fyrir vandaða smíði.
Tré er lifandi efni, sem rakastig loftsins hefur
áhrif á. IDÉ-hurðirnar eru hannaðar og smiðað-
ar til að þola 70% sveifluaukningu á rakastigi.
• Hurðarfleki samlímdurog karmurúrmassívri
furu eða greni með innfræstum spjöldum.
• Allir karmar m/þéttilista
• Allar hurðir fulljárnaðar með sterkum, sér-
smíðuðum lömum.
• Allar breiddir fáanlegar af ýmsum gerðum.
• Verðið er vitaskuld hagstætt eins og á öllu
öðru hjá BÚSTOFNI.
—
Biðjið um bækling.