Morgunblaðið - 30.05.1989, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAI 1989
39
Minning:
Sig’urður G. Elefsen
verkstæðisformaður
Fæddur 1. september 1928
Dáinn 22. maí 1989
í dag verður til moldar borinn
frá Siglufjarðarkirkju Sigurður
Guðberg Elefsen, verkstæðisfor-
maður. Hann andaðist eftir stutta
en stranga sjúkdómslegu í
Landspítalanum þ. 22. maí sl.
Sigurður fæddist í Siglufirði 1.
september 1928 og var því á 61.
aldursári er hann lést. Hann var
sonur hjónanna Óskars Berg Elef-
sen, vélsmiðs og konu hans Sigríð-
ar Halldóru Guðmundsdóttur.
Óskar var norskur að ætt og uppr-
una fæddur 1896 og kom til Siglu-
fjarðar ungur að árum en settist
þar fyrst að 1921. Sigríður var
ættuð frá Stórafjarðarhorni í
Kollafirði á Ströndum. Böm þeirra
hjóna urðu fjögur, en tvö þeirra
létust í bamæsku.
Sgurður ólst upp í foreldrahús-
um í Siglufirði ásamt bróður sínum
Eberg, vatnamælingamanni, sem
býr í Kópavogi. Eins og títt var á
uppvaxtarárum Sigurðar fóra
unglingar snemma að vinna fyrir
sér. Þegar hann var á 15. aldurs-
ári fór hann að vinna á pressulofti
SR 30 verksmiðjunnar í Siglufirði
og vann hann hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisins æ síðan að undanskyld-
um einum vetri.
Sigurður hóf nám í vélvirkjun
1947 á vélaverkstæði SR undir
leiðsögn móðurbróður síns Þórðar
Guðmundssonar pg lauk hann
sveinsprófi í rennismíði 1951. Vet-
urinn 1951-52 starfaði hann með
föður sínum við rekstur vélaverk-
stæðis á Dalvík, en gerðist síðan
starfsmaður vélaverkstæðis SR og
árið 1962 tók hann við af Þórði
móðurbróður sínum sem verkstæð-
isformaður og gegndi hann því
starfi til dauðadags eða í 27 ár.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu em starfsár Sigurðar hjá
SR orðin 46, þegar hann fellur frá
um aldur fram, rúmlega 60 ára
gamall, og sýnir þessi langi starfs-
aldur kannski best tryggð hans við
fyrirtækið. Þessi ár hafa sannar-
lega verið viðburðarík hjá fyrirtæki
eins og SR, sem á allt sitt undir
sjávarafla. Rekturinn hefur gengið
misjafnlega, stundum illa þegar
aflabrestur hefur verið og stundum
vel, þegar vel aflaðist og afurða-
verð vom góð. í slíku umhverfi
reynir oft á þolinmæði og tryggð
starfsmanna við fyrirtækið, en
þessa kosti átti Sigurður í ríkum
mæli. Eftir löng aflaleysistímabil
og peningaleysi til nauðsynlegs
viðhalds á verksmiðjunum reyndi
mikið á starfsmenn vélaverkstæð-
isins þegar kom að því að láta
vélamar snúast á ný. Við slíkar
aðstæður naut útsjónarsemi og
verkkunnátta Sigurðar sér vel.
Nauðsynlegir varahlutir vom oft
ekki til og varð þá að leysa vanda-
málin á annan hátt, sem Sigurði
var einum lagið. Var hann oft ótrú-
lega fljótur að koma með lausn á
vandanum, enda skildi hann að
fyrir öllu var að láta vélarnar snú-
ast og tímin var dýrmætur þgar
þrær vora fullar og verksmiðjan
var stopp vegna vélabilana. Það
var því ekki að ófyrirsynju að
tæknimenn hjá SR höfðu oft að
orði þegar þeir vom að glíma við
margslungin smíðaverkefni og
vissu ekki hvernig best væri að
leysa þau: „Ja, þetta er einmitt
fyrir Sigurð Elefsen."
Sigurður var vel látinn af starfs-
mönnum sínum, sem flestir vora
jafnframt nemendur hans. Hann
var góður kennari og leiðbeinandi
og em það ófáir jámiðnaðarmenn,
sem notið hafa leiðsagnar hans í
vélaverkstæði SR. Hann lagði ekki
aðeins áherslu á að það verk, sem
var verið að vinna væri traust held-
ur líka að handbragðið væri fallegt
og það sjá menn líklega best er
þeir ganga um verksmiðjunar í
Siglufirði, sem endumýjuð var að
stóram hluta 1985.
HólmfríðurM. Guð-
steinsdóttir - Minnii
Fædd 11. ágúst 1914
Dáin 18. maí 1989
Okkur systkinin, barnabörn
Hólmfríðar Maríu Guðsteinsdóttur,
langar í fáeinum orðum að minnast
elsku ömmu okkar sem fór svo
snögglega frá okkur.
Fríða amma eins og við kölluðum
hana fæddist í Reykjavík 11. ágúst
1914. Foreldrar hennar vora þau
Guðrún Jónsdóttir og Guðsteinn
Eyjólfsson. Amma ólst upp við
Laugaveginn í hópi 8 systkina og
var hún elst þeirra. Ung að áram
fór amma til Kaupmannahafnar þar
sem hún stundaði sitt nám. Þar
undi hún sér vel og oft rifjaði hún
upp minningar frá þeim tíma. Fríða
amma og Þorgeir afi, Þorgeir Þórð-
arson, sem látinn er fyrir sex áram,
giftust vorið 1937. Eignuðust þau
þijú börn, Guðbjörgu, Guðrúnu og
Þórð. '
Fyrstu minningar okkar um
ömmu og afa tengjast fímmtudags-
morgnum sem voru skemmtilegustu
dagar vikunnar því þá komu afí og
amma alltaf í heimsókn og ósjaldan
vora þau með eitthvað skemmtilegt
í pokahominu.
Amma var vakandi fyrir um-
hverfi sínu og fylgdist vel með
gangi þjóðmálanna. Alltaf var gam-
an að koma til hennar, hún hafði
góða kímnigáfu og stutt var í hlát-
urinn hjá henni sem smitaði svo út
frá sér. Fríða amma hafði gaman
af því að taka á móti gestum og
aldrei komum við að tómum kofun-
um hjá henni.
Síðustu 13 árin bjó amma á
æskuheimili sínu við Laugaveg 34,
þar sem hún og Eyjólfur bróðir
hennar hafa rekið saman Herra-
fataverslun Guðsteins Eyjólfssonar.
Fríða amma hafði mikla ánægju af
starfí sínu þar.
Nú er elsku amma okkar horfin
af sjónarsviðinu og við kveðjum
hana með sárum söknuði. Minning-
amar um hana geymum við í huga
okkar á meðan við lifum og þökkum
henni allar samverustundimar.
Blessuð sé minning Fríðu ömmu
og Þorgeirs afa.
Þórey, Reynir og Hlín.
Árið 1950 gekk Sigurður að eiga
Ingibjörgu Thorarensen ættaða frá
Reykjafirði á Ströndum. Böm
þeirra era: Sverrir, vélsmiður f.
1950, Laufey, húsmóðir f. 1953,
Óskar, vélsmiður, f. 1956 og El-
var, rennismiður, f. 1958. Þau búa
öll í Siglufirði og synir og tengda-
sonur þeirra hjóna, Þorleifur Hall-
dórsson, vélsmiður, vinna allir á
vélaverkstæði SR og hafa lært þar
iðn sína undir handleiðslu Sigurð-
ar. Þeir era allir smiðir góðir og
era gott dæmi um hvernig hand-
lagni erfist mann fram af manni.
Bamabörn þeirra hjóna era orðin
10.
Sá sem þessar línur skrifar
kynntist Sigurði fyrst fyrir rétt
tæpum 20 áram og hefur haft
náið samstarf við hann síðan. Ég
hef margt af honum lært og ég
sakna góðs vinar. Það var alltaf
notalegt að koma inn í kompuna
til hans á verkstæðinu og ræða
málin og það spillti ekki fyrir um-
ræðunni þegar hann dró út úr
skápnum hjá sér hákarlsbita til að
bjóða upp á.
Starfsmenn SR kveðja í dag
góðan vin og félaga, sem gott var
að leita til ekki síst þegar illa gekk.
Fyrir hönd SR þakka ég vel unnin
störf og tryggðina og ósérhlífnina,
sem hann sýndi fyrirtækinu þau
46 ár sem hans naut við.
Við, samstarfsmenn Sigurðar,
vottum eiginkonu hans Ingibjörgu,
bömum þeirra, tengdabömum og
bamabömum, samúð okkar vegna
hins skyndilega fráfalls ástríks eig-
inmanns, föður og afa.
Jón Reynir Magnússon
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.
s. 77878, 985-29797.
*
Guðmundur Astráður
Magnússon - Minning
Hvað verður fegurra fundið
en friður og rósamt geð,
angur úr huga hrundið,
hjartað glaðvært þar með,
innbyrðis elskan hreina,
með æru í hveijum stað,
heims eftirlætið eina,
eflaust dæmi ég það.
Heilbrigði, hjartans kæti,
hér með samviskan góð,
ástvina eftirlæti,
fyrir utan trega og móð,
frómt líf og farsæll dauði
fylgjast með réttu að,
af hverjum heimsins auði
helst vilda’ ég kjósa það
(Hallgrímur Pétursson)
Guðmundur Ástráður Magnús-
son, eða Ásti eins og allir þekktu
hann hefði orðið 76 ára í dag, en
hann varð undir í baráttu við illvíg-
an sjúkdóm þann 14. apríl síðastlið-
inn. Ásti hefði viljað sjá sumarið
koma því fáir elskuðu sólina og
útivera meir en hann. Því miður
varð honum ekki að ósk sinni en
margir era þeir sólargeislar, sem
speglast hafa af Ásta á okkur, sem
notið höfum nærvera hans í gegn-
um tíðina. Létt skap og einlæg
kæti prýddu lund hans og smitaði
aðra. Skipti ekki máli hvort í hlut
áttu böm eða fullorðnir, allir hrif-
ust af lífsgleði Ásta.'
Vinskapur okkar hjóna og Svövu
og Ásta spannar nær hálfa öld og
era því margar ánægjustundir er
við höfum átt saman, til að mynda
í skemmtilegum ferðalögum Sjálfs-
bjargar, en þar kom hlýtt hugarþel
þeirra hjóna fram í hjálplegu við-
móti og aðstoð við aðra. Einnig eig-
um við góðar minningar af Bústaða-
veginum en vart er hægt að hugsa
sér betri grannaen Svövu ög Ásta.
Við þökkum Ásta fyrir samfylgd-
ina og allar þær ánægjustundir, sem
við höfum átt saman.
Gerða og Bjami
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug, samúðarkort, blóm og kransa,
vegna andláts og jarðarfarar eiginmanns míns, sonar okkar, föður,
tengdaföður og afa,
HELGA ÁRNASONAR,
Hruanbn 116.
Fyrir hönd okkar allra,
Katrfn S. Einarsdóttlr.
t
Þökkum innilega öllum sem vottuðu okkur samúð við andlát og
útför
ÓLAFS HAUKS ÓLAFSSONAR
lœknis
og heiðruðu minningu hans.
Ásdfs Kristjánsdóttir,
Ólafur Haukur Ólafsson, Sigurbjörg H. Gröndal,
Einar Benedikt Ólafsson, Eva Heattner Ólafsson,
Ásdfs Katrfn Ólafsdóttir, Pál O. Borgen,
Sigrfður Edda Ólafsdóttir, Magnús Jón Sigurðsson,
Kristján Már Ólafsson
og barnabörn.
Lokað
Lokað þriðjudaginn 30. maí vegna jarðafarar
HÓLMFRÍÐAR GUÐSTEINSDÓTTUR.
Verslun Guðsteins Eyjólfssonar sf.,
Laugavegi 34.
Eigendur og útgefendur
skuldabréfa:
Vegna mikillar eftirspumar óskum við eftir
góðum skuldabréfum í umboðssölu.
, ffármál eru okHBT fagl
UERÐBRÉFflUIÐSKIPTI
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18 • SÍMI 688568