Morgunblaðið - 30.05.1989, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAI 1989
fclk f
fréttum
Linda Péturs-
dóttír ásamt
íbúum vist-
heimilisins á
Holtavegi. Tal-
ið frá vinstri
Bergdís Jóns-
dóttir, Þórey
Rut Jóhannes-
dóttir, Kristinn
Sigurður Ás-
geirsson, Þór-
hallur Jónsson
og Sigríður
María Sigur-
geirsdóttir.
UNGFRÚ HEIMUR
Linda heimsækir barnaheimili
Eitt af verkefnum Ungfrú
heims, Lindu Pétursdóttur, er
að heimsækja börn um víða veröld.
Það er lögð áhersla á að fegurðar-
drottningamar heimsæki börn í
þróunarlöndum og veki athygli
fólks á stöðu bama þar.
Nýlega heimsótti Linda vist-
heimilið við Holtaveg þar sem 5
fjölfötluð böm á aldrinum 12-17
ára dveljast að staðaldri. Vistheim-
ilið var opnað á síðasta ári og er
rekið af svæðisstjóm Reykjavíkur.
Ingibjörg Harðardóttir forstöðu-
kona sagði í viðtali við Morgun-
blaðið að Lindu hefði verið vel tek-
ið af bömunum og yrði þeim lengi
í minni. Slíkar heimsóknir vektu
athygli og fengi fólk til að hugsa
um þá sem minna mega sín í þjóð-
félaginu og Linda ynni gott starf
með heimsóknum sínum.
Morgunblaðið/Keith Butcher
Herrarair hér á myndinni eru engir aðrir en söngvarinn Rod Stew-
art, Guðni Bergsson og markvörður Tottenham, Erik Torsvedt.
Þeir sitja hér kampakátir inni á einum frægasta næturklúbbi Lund-
únaborgar, Stringfellows.
ROD STEWART
Langar að heimsækja Island
Rod Stewart er mikill íslandsvin-
ur en hann kom hingað til lands
árið 1985. Nýlega var hann staddur
á Stringfellows, einum þekktasta
næturklúbb Lundúnaborgar, þar sem
hann hitti meðal annars félaga úr
Tottenham, þá Guðna Bergsson og
Erik Torsvedt, markvörð liðsins.
Umræðuefnið á Stringfellows var að
sjálfsögðu fótbolti og Island.
Rod er nýkominn úr hljómleikaferð
um Bandaríkin og kom hann fram í
sjónvarpsþætti þar vestra. Með tilliti
til þess að Rod hefur farið í nánast
hvem krók og kima heimsins var
hann spurður einhvers í þá áttina
hvaða land væri honum minnisstæð-
ast. Hann sagði í þættinum að ísland
væri landið sem hann langaði helst
til þess að heimsækja aftur og halda
þar tónleika.
Þegar hann kom til landsins um
árið var hann viðstaddur krýningu
fegurðardrottningar íslands, Hólm-
fríðar Karlsdóttur. Við brottför varð
eftir stráhattur einn sem verið hefur
vörumerki hans í gegnum árin og
sagði Rod þeim félögum á String-
fellows að hann myndi eflaust koma
einn daginn til íslands í tónleikaferð
— hann myndi nota tækifærið og
sækja hattinn!
Rod er mikill fótboltaunnandi og
í samræðunum þetta kvöld rifjaði
hann upp leik á milli íslands og Skot-
lands árið 1985 sem hann sá hér
uppi á íslandi. Skotar unnu og sagði
hann það mjög ósanngjaman sigur;
íslendingar hefðu átt að vinna þann
leik. Hins vegar er hann mikill aðdá-
andi skoska liðsins og fylgir því
gjaman hvert sem það fer.
Rod Stewart er nú á fömm til
Kanada en hver veit nema hann komi
til íslands á einhverri tónleikaferð
sinni um Evrópu.
HVERVANN?
344.454 kr.
Vinningsröðin 27. maí:
121 -111 -X11 -122
12 réttir = 241.199 kr.
7 voru meö 12 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 34.457,-
11 réttir = 103.255 kr.
193 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 535-.
SELFOSS
Grýlupottahlaupið 20 ára
Undanfarin 20 ár hefur
fijálsíþróttadeild
Ungmennafélags Selfoss
staðið fyrir hlaupi, seinni
hluta vetrar, sem nefnt er
eftir ömefnum á Selfossi
og kallað Grýlupottahlaup.
Hlaupið er rúmlega 800
metrar. Hlaupararnir
hlaupa frá íþróttavellinum
og í kringum svonefnda
grýlupotta sem eru á túni
austan við völlinn. Á hveiju
ári em haldin sex hlaup en
lokaúrslit em reiknuð út
frá samanlögðum tíma eft-
ir fjögur hlaup. Mjög góð
þátttaka hefur alltaf verið
í hlaupinu enda vinsælt af
yngri kynslóðinni. í þessu
hlaupi stíga margir af
bestu íþróttamönnum og
konum staðarins sín fyrstu
keppnisspor.
20 ára afmæli hlaupsins
var í ár og af því tilefni
haldin vegleg verðlauna-
hátíð. í ár hlupu 197 hlaup-
arar einu sinni eða oftar
og 135 luku íjóram hlaup-
um. 1985 luku 144 §ómm
hlaupum en 1973 var met-
þátttaka í einu hlaupi sam-
tals 205 hlauparar. Að
þessu sinni vom það fyrir-
tækin Árvirkinn hf. og
Málningaþjónustan sem
gáfu verðlaunin og bæjar-
stjómin sá um veitingar á
verðlaunahátíðinni.
- Sig. Jóns.
Verðlaunahafar á afmælishátið Grýlupottahlaupsins. MorBunblaðlð/s>gJons