Morgunblaðið - 15.06.1989, Side 30
ts
30
G8GI ÍMÚl .51 flUOAQUTMMiq GIQAJaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1989
I
--------------------------
Bandaríkjaforseti kynnir mengunarvamaáætlun;
Loftmengun helm-
inguð fyrir aldamót
Verðfall á olíu fyrirsjáanlegt?
Washington, Vín. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti skýrði frá því á mánudag að ríkis-
stjórn hans hefði á prjónunum yfirgripsmikla áætlun um loftmengun-
arvarnir í Bandaríkjunum. Ekki heftir staðið á viðbrögðum frá um-
hverfisverndarsinnum, sem fagna framtaki forsetans, né heldur frá
talsmönnum olíu- og kolaiðnaðarins, sem telja ómaklega að sér veg-
ið. í tillögum Bush er gert ráð fyrir að dregið verði um helming úr
því magni brennisteinsdíóxíðs og annarra eiturefiia sem sleppa út í
andrúmsloftið á hverju ári fyrir næstu aldamót. Þá verður ýtt undir
þá þróun að „hreinni" orkugjafar komi í stað bensíns.
Tillögurnar ganga meðal annars
út á það að komið verði í veg fyrir
að hátt í 10 milljónir tonna af brenni-
steinsdíóxíði og 2 milljónir tonna af
köfnunarefnum berist út í andrúms-
loftið árlega, einkum í því augnamiði
að draga úr súru regni.
Tillögur Bush vöktu talsverðan
kurr á meðal fulltrúa olíuiðnaðarins
því þær kveða meðal annars á um
að bílaframleiðendum verði gert skylt
að framleiða bíla með vélar sem
brenna öðru eldsneyti en bensíni,
t.a.m. metanóli, jarðgasi eða etanóli,
fyrir markaði í Los Angeles og New
York, sem eru mestu mengunar-
svæði í Bandaríkjunum.
„Hver einasti Bandaríkjamaður á
skilið að anda að sér hreinu lofti,“
sagði Bush á þriðjudag á fjölmennri
útisamkomu í Grand Teton þjóðgarð-
inum í Wyomjng-fylki. „Þegar tor-
tryggni Kalda stríðsins er að renna
sitt skeið og við tekur skilningur á
sameiginlegum hagsmunamálum
gefst okkur einstætt tækifæri til að
vinna saman að umhverfisvernd
hvarvetna í heiminum. . . Beitum
okkur fyrir hreinsun andrúmsloftsins
á tíunda áratugnum," sagði forset-
inn.
Fullvíst þykir að mengunar-
vamaáætlun Bush, nái hún fram að
ganga, muni hafa áhrif til lækkunar
á heimsmarkaðsverði á olíu. Snemma
í þessum mánuði lýsti Nígeríumaður-
inn Rilwanu Lukman, forseti Sam-
taka olíuútflutningsríkja, (OPEC),
Sovétlýðveldið Uzbekístan:
Mimiihlutahópar óttast
ofsóknir öfgamanna
Fjölmiðlar skýra frá grimmdarverkum Úzbeka
Moskvu. Reuter.
HIN ýmsu þjóðabrot í Sovétlýðveldinu Úzbekístan eru tekin að óttast
að hópar öfgamanna beini næst spjótum sínum að þeim, að því er segir
í nýjasta hefti sovéska vikuritsms Moskvuíréttir, sem út kom í gær.
90 manns hafa fallið í átökum Úzbeka og lítils þjóðarbrots meskheta
í lýðveldinu en fréttir sovéskra fjölmiðla í gær þóttu gefa til kynna
að vopnað herlið innanrikisráðuneytisins hefði náð að stöðva blóð-
baðið. Sovéskir fjölmiðlar segja hamfarir illvirkjanna í Úzbekístan enn
óhugnanlegri en grimmileg átök Azera og Armena á síðasta ári.
Fjölmörg þjóðabrot byggja Úz- um sig meðal þeirra 300.000 Krím-
bekístan en hundruð þúsunda manna
voru flutt þangað nauðug á tímum
Jósefs Stalíns. Meskhetar sem eru
af trúflokki sunni-múslima hafa
krafist þess að fá að flyja aftur til
fyrri heimkynna í Sovétlýðveldinu
Georgíu og kveðast hafa verið beitt-
ir ofríki af Úzbekum sem eru af trú-
flokki shíta-múslima. Óeirðarnar
blossuðu upp í Fergana-dalnum fyrir
11 dögum og herma fréttir að 12.000
herliðar sovésku öryggislögreglunn-
ar, KGB, hafi verið sendir til Úz-
bekístan.
tatara og 200.000 Kóreumanna, sem
búi í lýðveldinu'og fluttir hafi verið
þangað samkvæmt sérstakri tilskip-
un stjórnvalda.
Um 15.000 meskhetar hafa þegar
flúið Fergana-dalinn af ótta við frek-
ari ofsóknir. Sovéskir fjölmiðlar hafa
skýrt frá því að hópar Úzbeka hafi
myrt meskheta á hinn hroðalegasta
hátt og limlest lík fórnarlamba sinna.
í viðtali við dagblaðið Líteratúrnaja
Gazeta kvaðst embættismaður í inn-
anríkisráðuneytinu hafa orðið vitni
að blóðugum bardögum Azera og
Armena í borginni Súmgait í Azerba-
ijan í febrúar á síðasta ári, en sagði
að illvirkin sem framin voru þar
væru engan veginn sambærileg við
voðaverkin í Fergana-dalnum.
Reuter
Carlos Menem, tilvonandi forseti Argentínu (t.v.), ásamt ráðherraefii-
um sínum skömmu áður en hann tilkynnti að hann tæki við emb-
ætti forseta 30. júní.
Menem verður forseti Argentínu 30, júní;
Þjóðarsátt og „framleiðslubylting“
Fjallað er um atburðina í nýjasta
hefti vikuritsins Moskvufréttir og
segir í greininni að Rússar, gyðing-
ar, tajíkar og Kóreumenn telji sér
nú ógnað í lýðveldinu. í blaðinu birt-
ist einnig grein eftir þekktan rithöf-
und frá Úzbekístan, Tímor Púlatov,
sem segir að ótti hafi einnig gripið
La Rioja. Reuter.
CARLOS Menem, sem tekur við
embætti Argentínuforseta af Raul
Alfonsin í lok mánaðarins, kvaðst
á þriðjudag ætla að lægja öldum-
ar í stjórnmálum landsins og beita
sér fyrir greiðslufresti og vaxta-
lækkunum vegna erlendra skulda
Argentínumanna. Hann kvaðst
einnig stefiia að „framleiðslubylt-
ingu“ í landinu.
Menem sigraði í forsetakosning-
um sem fram fóru fyrir mánuði í
Argentínu en átti ekki að taka við
embætti fyrr en 10. desember. Raul
Alfonsin, núverandi forseti, tilkynnti
hins vegar á þriðjudag að hann
myndi segja af sér 30. júní vegna
hins slæma efnahagsástands í
landinu. Óðaverðbólga er í landinu
og hefur hún valdið óeirðum í helstu
borgum landsins og dregið úr fram-
leiðslunni.
„Við erum orðin þreytt á sífelldum
átökum í argentískum stjórnmálum.
Þess vegna munum við leitast við
að ná sem víðtækustu sáttum þegar
við tökum við völdum 30. júní,“ sagði
Menem í viðtali við Reuters-frétta-
stofuna. Hann kvaðst ætla að blása
nýju lífi í efnahag landsins með
„framleiðslubyltingu“, þar sem nátt-
úruauðlindir Argentínu yrðu nýttar
til hins ýtrasta. Hann sagðist einnig
ætla að leita eftir hagkvæmum
samningum við erlenda lánadrottna
til að létta á skuldabyrðinni. Erlend-
ar skuldir Argentínumanna nemá
nú um 60 milljörðum dala (4.100
milljörðum ísl. kr.)
RACAHni I NIR K STIINI
THORO hefur svariö þegar gengiö skal frá
steinhúsi. THOROSEAL er sementsefni sem
fyllir og lokar steypunni, en andar án þess að
hleypa vatni í gegn. THOROSEAL varnar
steypuskemmdum og flagnar ekki. THORO-
SEAL er til í mörgum litum.
Þarftu aö eiga viö frágang á múr eöa steypu,
hrauna, pokapússa eða mála? Haföu þá sam-
band við Steinprýöi. Við hjálpum þér.
THOROSEAL - QUICKSEAL —THOROSHEEN
!l steinprýði
Stangarhyl 7, simi: 672777.