Morgunblaðið - 12.09.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1989
7
Aukin ásókn útlendinga
í vinnu við fiskverkun
MIKIL og aukin ásókn útlendinga er nú í störf við fiskvinnslu hjá
Granda hf. í Reykjavík. Þetta kemur fram í nýjasta firéttabréfi fyrir-
tækisins. Þar er rætt um að 78 útlendingar hafi sótt um vinnu þar
undanfarna 12 mánuði. Flestir þeirra eru frá Póllandi, Bretlandi og
Svíþjóð. Fólk þetta er á aldrinum 20-40 ára. Hinsvegar mun enga
vinnu að hafa fyrir þetta fólk enda munu störf í fiskvinnslu ekki
liggja á lausu þar.
Hjá sjávarafurðadeild Sam-
bandsins fengust þær upplýsingar
að þeim bærust 5-10 bréf á mánuði
frá útlendingum sem.sæktu í vinnu
í fiskvinnslu hjá Sambandsfrysti-
húsum. Gunnar Egilsson hjá sjávar-
afurðadeild segir að heldur hafi
dregið úr þessum fyrirspurnum á
síðustu vikum enda sé engin störf
að hafa hjá Sambandsfrystihúsun-
um nú. Forráðamenn þeirra séu
búnir að ráða fólk fyrir veturinn.
í máli Gunnars kemur fram að
flestar fyrirspurnir til Sambandsins
berast frá fólki frá Suður-Afríku.
Svo virtist sem einhvetjir þar í landi
sendu þessu fólki heimilisföng
frystihúsa hérlendis. Einnig væri
nokkuð um að í fyrirspurnum væri
sagt að viðkomandi vissi af þessari
vinnu í gegnum vini og kunningja
sem hefðu starfað hér við sambæri-
leg störf.
í fréttabréfi Granda hf. segir að
reynslan af þessum vinnukrafti sé
yfirleitt góð en þar munu vera starf-
andi nokkrir útlendingar sem bú-
settir eru hérlendis.
Byggingafélagið
Dögun hf.;
Hætt við
áform um
byggingu
íbúðahótels
Byggingafélagið Dögun hf. hefúr
fallið frá hugmyndum um bygg-
ingu íbúðahótels á Hörpulóðinni
svokölluðu við Skúlagötu. Hjört-
ur Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri Dögunar, segir að engin
lánafyrirgreiðsla hafi fengist
vegna byggingarinnar, hvorki
hjá Húsnæðisstofnun ríkisins né
hjá Ferðamálasjóði þó sýnt hefði
verið fram á að brýn þörf væri
á slíkri byggingu.
„Ferðamálasjóður virðist ein-
göngu lána út á hefðbundnar hótel-
byggingar, jafnvel þó sýnt sé að
íbúðahótel og minni gistiheimili séu
vænlegri kostur,“ sagði Hjörtur.
Teikning íbúðahótelsins gerði ráð
fyrir um 80-100 íbúðum á sex til
sjö hæðum og var ætlunin að selja
íbúðirnar fullfrágengnar ýmsum
félögum og samtökum. Hjörtur
sagði að til dæmis hefði verið búið
að kanna undirtektir verkalýðsfé-
laga úti á landi og virtist áhugi
mikill á meðal þeirra. Félögin
myndu síðan sjá um að ráðstafa
sínum eignum og leigja þær út líkt
og hótelhe'rbergi eru rekin. Eigend-
ur íbúðanna hefðu jafnvel getað
leigt stúdentum íbúðirnar yfir vetr-
artímann og yrði byggingin þar
með einskonar blanda af íbúðahót-
eli og stúdentaíbúðum, að sögn
Hjartar.
Dögun hf. hefur i stað íbúðahót-
elsins sótt um byggingaleyfi fyrir
almennar íbúðir á lóðinni og gerir
Hjörtur ráð fyrir 60-70 íbúða íjöl-
býlishúsi á lóðinni. Sú bygging á
eftir að hljóta samþykki Skipulags-
stjórnar Reykjavíkurborgar. Hjört-
ur gerir jafnvel ráð fyrir að íbúðirn-
ar verði hannaðar með aldraða og
fatlaða í huga. íbúðirnar yrðu þar
með seldar á frjálsum markaði og
ættu kaupendur þá rétt á húsnæðis-
málalánum.
Láttu drauminn um luxusferð rætastá jólum
Hefurþig aldrei langað til að reyna eitthvað nýtt, kynnast öðrum heimsálfum og öðruvísi fólki?
UmjólogáramótliggurleiðintilThailands, í 17eða 19dagaógleymanlegalúxusferð.
Lúxus
-allan tímann!
Flogið verður til Kaupmannahafnar,
stigið upp í þægilega breiðþotu SAS og
lent í Bangkok snemma næsta morgun.
Þaðan liggurleiðin til Pattaya
strandarinnar - perlu austursins -
þarsem dvalið verður í 11 næturá
hinu glæsilega Royal Cliffhóteli.
Hér verður boðið upp á skoðunarferðir,
enda afnógu að taka.
Auðvitað geturðu tekið það rólega á
gullinni ströndinni og notið veðursins
eða nýtt hin endalausu tækifæri til
vatnasports, verslunarog
skemmtunar sem þérbjóðast í Pattaya.
fíegian er: Þú hefur það alveg eins og þú
vilt.
Á ævintýraslóðir
í Bangkok
Næst verður snúið til Bangkok þar sem
gist verður í 5 eða 7 nætur á fyrsta flokks
Hóteli, Menam. Boðið verðuruppá
skoðunarferðir til markverðustu hluta
Bangkokborgar og.nágrennis, t.d. á
fljótandi markað, í konungshöllina og í
hof Gullbuddans.
M/SAS
Thailendingar viðræðugóðir kaupmenn,
þannig að hægt er að gera reyfarakaup á
handverki í skartgripa-, list- og
fataiðnaði. Þú getur meira að segja
prúttað um leigubílinn!
Nú er tækifærið til að láta drauminn
rætast: Að heimsækja Asíu. íþessari
lúxusferð hjálpar allt til við að gera þér
hana ógleymanlega - þú lofar þér
örugglega að fara einhverntíma aftur!
Verð í tvíbýli frá kr. 137.800*
Verð í einbyli frá kr. 169.900*
Innifalið í verði er flug,
gisting með morgunverði,
íslensk fararstjórn,
hátíðarkvöldverður á jóla- og nýársdag
og allurakstur í Thailandi.
Brottför: 16. desember.
Heimkoma: 2. og 4. janúar.
Hægt er að frámlengja
dvöl í Singapore.
* Verðskv. gengi og flugverði 8. ágúst 1989.
Veður- og verðlag:
Frábært!
Veður er ákjósanlegt á þessum tíma,
hitastigið 23-30gráður og hægir
Monsúnvindar úr norð-austri.
Verðlag er með ólíkindum lágt og
Samvinnuferdir-Landsýn
Austurstræti 12 • S 91 -69-10-10 • Suðurlandsbraut 18-391 -68-91
Hótel Sögu við Hagatorg • ® 91 -62-22-77 • Akureyri: Skipagötu 14 • S 96-272-00