Morgunblaðið - 12.09.1989, Blaðsíða 17
þá sem eru í fremstu röð, afrek
þeirra og lífsstíll, kveikir gjarnan
neista í brjósti ungra lesenda,
áheyrenda eða áhorfenda. Það er
afreksmönnum líka hvatning að
finna að eftir þeim er tekið. Þetta
er sannleikur sem íþróttafrétta-
mönnum er kunnur. Svo á það bara
að vera sjálfsagður metnaður hjá
íþróttadeildum fjölmiðla að hafa
yfirsýn yfir það sem er að gerast
og geta skýrt frá því.
Arangur íþróttamanna er gjarn-
an lagður á vogarskálar, metinn og
borinn saman við það sem gerist í
öðrum löndum. Oft er þessi saman-
burður miskunnarlaus. Sama er að
segja um fréttaflutninginn og um-
fjöllunina, hún er vegin og metin
af áhugamönnum hverrar íþrótta-
greinar. Það er sem betur fer mik-
ill íþróttaáhugi á íslandi og því af
nógu innlendu efni að taka fyrir
íþróttadeildirnar.
Höfundur er kennari á Selfossi.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1989
17
Þjónustusími banka veitir upp-
lýsingar um stöðu reikninga
ALLIR viðskiptabankarnir bjóða nú viðskiptavinum sínum aðgang að
Þjónustusíma sem veitir upplýsingar um stöðu tékkareikninga og
síðustu 20 færslur allan sólarhringinn.
Er um að ræða sjálfvirkan
símsvara sem les upp stöðu á tékka-
reikningi eins og hún er réttust
hveiju sinni og tilgreinir hvers konar
færslu er um að ræða. Þjónustusím-
inn er beintengdur við tölvu Reikni-
stofu bankanna og veitir því við-
skiptavinum sömu upplýsingar um
stöðu tékkareikninga og hægt er að
fá í afgreiðsludeildum bankanna.
Búnaðurinn er keyptur frá Færeyj-
um en tæknin er dönsk að uppruna.
Vonast viðskiptabankarnir til að
Þjónustusíminn muni draga verulega
úr álagi á starfsfólk afgreiðsludeilda
bankanna.
Reikningseigandi sem vill tengjast
Þjónustusímanum þarf að koma
sjálfur í bankann og velja sér leyni-
númer, sem tryggir að enginn óvið-
komandi fái upplýsingar um reikn-
inginn í gegnum Þjónustusímann.
Hafa hátt í eitt þúsund reikningar
nú þegar tengst Þjónustusímanum
og er þar einkum um að ræða reikn-
inga starfsfólks bankanna sem
tengst hafa símsvaranum til reynslu
og eins með það fyrir augum að
kynnast þjónustunni sem notendur.
TÖLVU-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þar er tölvupappírinn vel geymdur.
^ Múlalundur
Þú svalar lestraiþörf dagsins
ásíöum Moggans! y
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
ARMA
W PLAST
ÁRMÚLA 16 OG 29, S. 38640
Aths. ritstj:
íþróttadeild Morgunblaðsins hef-
ur á árinu fylgst vel með helstu
fijálsíþróttamótum, bæði innan-
lands sem utan, og tekur ekki til
sín ásakanir höfundar um að „hafa
í sumar sofið á verðinum gagnvart
fijálsíþróttum."
Höfundur gerir bikarkeppni FRÍ
að umtalsefni og finnst vanta viðtöl
við íþróttamenn o.fl. Misjafn er
smekkur manna og ekki hægt að
gera öllum til hæfis, en umrædd
keppni var helsta efni átta síðna
íþróttablaðs eftir mótið. Mynd var
á forsíðu með tilvitnun í opnu, þar
sem greint var frá keppninni á sex
dálkum með fimm myndum auk
eins og hálfs úrslitadálks. Engin
met voru sett á mótinu.
Greint var frá landskeppni í tug-
þraut í fimmtudagsblaði (7.9.) með
litmynd af Jóni Arnari Magnús-
syni, efnilegasta tugþrautarmanni
landsins.
Höfundur vitnar í grein Arnar
Eiðssonar og segir ástæðu til að
benda íþróttafréttamönnum á að
fylgjast með spjótkösturunum Sig-
urði og Einari. Fáir ef nokkrir
íslenskir íþróttamenn hafa fengið
eins mikla umijöllun í Morgunblað-
inu á árinu og umræddir afreks-
menn enda full ástæða til, þar sem
þeir hafa staðið í eldlínunni og bor-
ið höfuð og herðar yfir aðra inn-
lenda fijálsíþróttamenn.
Ferðafélagið Útívist hefiir ákveð-
ið að standa fyrir hjólreiðaferð-
um.
\ 't :t '
Útivist á
u
u
3
u
Q.
I
\
hjólum
Ferðafélagið Útivist hefiir
ákveðið að auk fjölbreytni í starf-
semi sinni með því að standa fyr-
ir hjólreiðaferðum.
Þegar búið er að skipuleggja
tvær hjólreiðaferðir, styttri og
lengri ferð á sunnudaginn 17. sept-
ember kiukkan 13.30 frá Árbæjar-
safni, en Árbæjarsafn hefur verið
valið sem aðalbrottfararstaður í
ferðunum.
Reyndir hjólreiðamenn verða far-
arstjórar. Áð verður á ákveðnum
stöðum á leiðinni.
Kynnum í dag og nœstu dagci 1990 árgerðinci af
PEUCEOT 205
Komið og kynnist afeigin raun þessum skemmtilega bíl
sem kosinn hefur verið„BESTI BÍLL í HEIMI“
ár eftir ár.*
ÍlÍjI Verð 3 dyra kr. 565.700.-
m^m\ SM Verð 5 d\ra kr. 589.500.-
'AutoMotorund Sport
Viðurkenningarkort verður veitt
fyrir þátttöku í ferðinni.