Morgunblaðið - 12.09.1989, Síða 18

Morgunblaðið - 12.09.1989, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1989 ~6ridsskófinn Ný námskeið hefjast 25. og 26. september Boðið er upp á námskeið í byrjenda- og framhaldsflokki Hvert námskeið stendur yfir í 11 kvöld, einu sinni í viku. Kennsla í byrjendaflokki fer fram á mánudögum og er hægt að velja á milli tveggja tíma: (1) 16.00- 19.00 eða (2) 20.00-23.00. í framhaldsflokki er spilað á þriðjudagskvöldum frá kl. 20.00-23.30. Námskeiðin fara fram í húsi Sóknar, Skipholti 50a. Frekari upplýsingar og innritun í síma 27316 milli kl. 15.00 og 18.00 virka daga. SKÓLARITVELAR ÓKEYPIS kennslubók ívélritun fylgir öllum ritvélunum frá okkur. TA GABRIELE 100 stgr: 17.900 afb: 18.975 sjálfvirka feitletrun, undirstrikun, miðjusetning, 120 stafa leiðr.minni, 5.2 kg. v-þýsk, 11 slög é sek. OLYMPIA CARRERA stgr: 17.900 afb: 18.900 sjálfvirk feitletrun, gleiðletur, 24 stafa minni, lóðrétt lína, tölvutengi, 12 slög á sek. SILVER REED EZ 20 stgr: 19.800 afb: 20.988 40 stafa minni, hljóðlát, siriti, hægt að fá 5 gerðir leturhjóla. 11 slög á sek. BROTHER AX-15 stgr: 17.500 afb: 18.500 leiðréttir heila línu, heilt orð, einn staf, sjálfvirk undirstrikun, gleiðletur, miðjustilling. 12 slög á sek. WS4® SENDUM í PÓSTKRÖFU TÖLVULHNO - VERSLUN Laugaveg 116 v/Hlemm s: 621122 Umskipti til hins betra Spjallað við Magneu Einarsdóttur húsvörð í Skúlagarði í Kelduhverfi Fyrir rúmum Qórum árum fluttu hjónin Magnea Einarsdóttir og Bragi Sigurðsson frá Sandgerði á Suðurnesjum að Garði í Keldu- hverfi. Þau seldu hús sitt, keyptu gamalt íbúðarhús og reistu refahús í Garði. I samtali sem blaðamaður Morgunblaðsins átti við Magneu í ágústmánuði sl. sagði Magnea svo frá aðdraganda búferlaflutning- anna. „Dóttir okkar var leiðsögumaður um tíma í Búlgariu. Hún kynntist þá manni úr Kelduhverfi og giftist honum. Við heimsóttum þau oft og lengi og það endaði með því að við fluttum hingað. Þegar þau ungu hjónin byggðu sér nýtt hús, keypt- um við gamla húsið í Garði. Það er reist árið 1929, er vel byggt úr kjörviði, alveg ófúið og við kunnum vel við okkur í því. Við urðum að gefa því nýtt nafn sem smábýli og það heitir nú Heiðarbrún. Við seld- um ágætt einbýlishús sem við áttum í Sandgerði og notuðum andvirðið m.a. til þess að koma upp tveimur refahúsum. Við fengum okkur vélar og fórum á námskeið á Hvanneyri til þess að læra skinnaverkun. Það stóð á endum að þegar við höfðum lokið þessu og komið upp seinna húsinu þá hrapaði verð á skinna- mörkuðum það langt niður að ekki borgaði sig að fá dýr í húsið. Við vorum mest með 90 blárefslæður en erum nú aðeins með 25 blárefs- læður í öðru húsinu. Við sjáum samt ekki eftir að hafa lagt út í þetta æfintýri. Maður- inn minn var vélstjóri á bátum lengst af og orðinn harla þreyttur á þeirri vinnu. Hér nyrðra kunnum við vel við okkur og dettur ekki hug að snúa tii baka. Það hefur að ýmsu leyti skipt til hins betra fyrir okkur, ekki hvað síst er stressið minna og veðrið betra. Til einang- runar finnum við ekki. Skilyrði til útvarpshiustunar mættu þó vera betri. Rás tvö næst hér t.d. ekki nema að hafa útvarpið í sérstakri stöðu og láta loftnetið snerta sér- stakan skáp í eldhúshorninu. Þann- ig er það víða hér í sveitinni. Rás 2 næst ekki nema að hafa útvarpið í einhverju sérstöku herbergi í sér- stakri stöðu. Með rás eitt og ríkis- sjónvarpið er hins vegar oftast allt í lagi. Eg er fædd og uppalin í Sand- gerði og hélt að ég myndi finna mikið fyrir þessum umskipta, en sú hefur sem sagt ekki orðið raunin. Yngri dóttir okkar kom með okkur hingað, hún tók nýlega stúdents- próf á Akureyri, mannsefnið hennar er úr Mývatnssveit. Sonur okkar kom með okkur líka, hann er nú trúlofaður stúlku úr næstu sveit. Ég og krakkarnir höfum farið suður í heimsókn á fornár slóðir en maður- inn minn kann svo vel við sig hér að hann fer varla út á Húsavík nema til þess að sækja fóður fyrir refina. Við erum því ánægð með þessi umskipti og alls ekki illa stödd miðað við marga sem fóru út í refa- rækt. Við erum svo heppin að skulda ekki stórfé eins og sumir af þeim sem hófu refarækt fyrir fáeinum árum.“ Skömmu eftir að Magnea og Bragi fluttu norður í Kelduhverfi gerðist Magnea húsvörður við hið 30 ára gamla félagsheimili, Skúla- garð í Kelduhverfi. „Mér líkar þetta starf vel,“ segir Magnea. „Á vet- urna er hér skóli, það voru hér fjór- tán nemendur í fyrra. Þetta var áður fyrr heimavistarskóli en í fýrra voru börnin keyrð í og úr skóla. Það gekk bærilega. Meirihluti for- elda vildi hafa þennan hátt á. Þau Magnea stendur þarna á milli útvarps í réttstöðu og stóru pönnunnar. \fauDm? Kennslustaðir: Auðbrekka 17, Kópavogi og „Hallarsel“ við Þarabakka 3 í Mjódd. Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska, standard og gömlu dansana. Einnig barnadansa fyrir yngstu kynslóðina. Laugardagskennsla á báðum stöðum. Einkatímar eftir samkomulagi. Innritun og upplýsingar dagana 1.-12. september kl. 10 - 19 í síma: 64 1111. Kennsluönnin er 15 vikur og hefst fimmtudaginn 14. september og lýkur með jólaballi. FID Betri kennsla - betri árangur. \£F\ Samkort Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar Morgunblaðið/Hrafnkell A. Jónsson Valdimar Aðalsteinsson skipstjóri með Hörpu RE 342 í baksýn. Eskifjörður: Hörpu fagnað við kom- una til heimahafnar Eskifirði. Eskfírðingar flögguðu á mánudaginn 4. september þegar nótaskipið Harpa RE 342 kom til heimahafhar. Harpa, sem kemur í stað Eskfirð- Valdimar Aðalsteinsson skipstjóri ings SU 9 sem sökk á Héraðsflóa í á Hörpunni sagðist myndi leggja að fyrrasumar, er 307 lestir og ber 620 mestu upp hjá Síldarverksmiðjum tonn af loðnu. ríkisins, hann sagðist að mestu tilbú- Harpan hefur einn og hálfan ' inn að hefja veiðar og menn biðu loðnukvóta, tæp 19 þúsund tonn, en þess með óþreyju að einhver loðna Hörpunni fylgdi hálfur kvóti, auk fyndist. þess fær skipið þann kvóta sem Esk- - HAJ firðingur hafði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.