Morgunblaðið - 12.09.1989, Síða 25

Morgunblaðið - 12.09.1989, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1989 25 Skipskaðinn á Dóná: Talið að hátt í 160 menn hafi týnt lífí Vín. Reuter. ALLT að 160 menn eru taldir hafa drukknað eða slasast þegar rúm- enska farþegaskipið Mogoshoaja sökk á Dóná á sunnudag eftir árekst- ur við dráttarbát. Romania Libera (Fijáls Rúmenía), hið opinbera málgagn rúmenskra sljórnvalda, greindi frá slysinu í gær en gat þess ekki hve margir hefðu farist eða slasast. Blaðið sagði að 18 manns af • 179 um borð í skipinu hefðu bjargast og að björgunaraðgerðum yrði haldið áfram. Rúmenska samgöngumálaráðu- neytið skýrði embættismönnum í vestrænu sendiráði í Búkarest frá því að engir útlendingar hefðu verið á meðal 169 farþega og 10 manna áhafnar skipsins. Skipið sökk eftir árekstur við búlgarska dráttarbátinn Peter Karaminchev, sem var með hlaðna flutningapramma í eftirdragi. Atvikið varð snemma morguns skammt frá borginni Galati, um 200 km norðaustur af Búkarest í slæmu skyggni, að sögn búlgörsku ríkis- fréttastofunnar BTA. Fréttastofan sagði að slys hefðu orðið á mönnum en gaf ekki upp tölu látinna. Að sögn rúmensku ríkisfréttastofunnar Ager- press, vinnur stjórnskipuð nefnd að rannsókn slyssins. Reagan á batavegi Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti, er nú sem óðast'að jafria sig eftir aðgerð, sem fólst í því, að hleypt var út vatni, sem safhast hafði við heila. Var það rakið til slyss, sem hann varð fyrir þegar hann féll af hestbaki. Hér eru þau hjónin, Reagan og Nancy, að blaða í gegnum póstinn, sem barst á sjúkrahúsið, skeyti og kort frá stuðningsmönnum og vinum með ósk um góðan bata. Eystrasaltsríkin: Stefnt að ein- um markaði Moskvu. Reuter. SOVÉSKU Eystrasaltsríkin Lett- Iand, Eistland og Litháen hafa ákveðið að stofna með sér efha- hagsbandalag með það fyrir aug- um að koma á sameiginlegum markaði 1993. Ákvörðun um samstarf í efna- hagsmálum Eystrasaltsríkjanna var tekin á fundi háttsettra embættis- manna ríkjanna þriggja og leiðtoga Þjóðfylkingar í Panevezys í Litháen sl. föstudagskvöld. Sjá „Míkhaíl Gorbatsjov hefúr sex til tólf mánuði til stefhu“ á bls. 24??? Sovéski umbótasinninn Boris Jeltsín í Bandaríkjunum: Míkhaíl Gorbatsjov hefur sex til tólf mánuði tíl stefiiu Sovétleiðtoginn gagnrýnir harðlínukommúnista og umbótasinna New York, Moskvu. Reutcr. SOVÉSKI umbótasinninn Boris Jeltsín sagði í sjónvarpsviðtali í Banda- ríkjunum í gær að stefha Míkhaíls S. Gorbatsjovs, leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins, yrði að skila raunverulegum árangri á næstu sex til 12 mánuðum því ella yrði Gorbatsjov steypt af stóli í „byltingu að neðan“. Gorbatsjov veittist bæði að harðlínumönnum og róttækum umbótasinnum í sjónvarpsávarpi er hann flutti á laugardag en þá sneri hann aftur til Moskvu úr mánaðarlöngu sumarleyfi. Þann sama dag skýrði útvarpið í Moskvu frá ummælum Jegors Lígatsjovs, helsta leið- toga sovéskra harðlínukommúnista, þess eftiis að Sovétríkin kynnu að liðast í sundur vegna sívaxandi þjóðemisólgu í hinum ýmsu lýðveldum landsins. Boris Jeltsín sagði í viðtali í morg- unþætti bandarísku sjónvarpsstöðv- arinnar ABC að gera mætti ráð fyr- ir gífurlegum erfiðleikum á flestum sviðum sovésks samfélags skilaði umbótastefna Gorbatsjovs ekki ár- angri. Sagði Jeltsín að á endanum yrði gerð „bylting að neðan“. Kvaðst hann telja að Gorbatsjov hefði sex til tólf mánuði til að sýna fram á að umbótastefnan gæti bætt kjör alþýðu manna. Jeltsín kvaðst m.a. ætla að ræða þessi málefni á fundum með bandarískum ráðamönnum. Heim- sókn Jeltsíns hófst á laugardag en hann mun að líkindum dveljast í tíu daga í Bandaríkjunum og hitta fræði- menn og áhrifamikla menn í við- skiptaheiminum að máli. Míkhaíl Gorbatsjov þótti fullur sjálfstrausts er hann ávarpaði sov- ésku þjóðina í sjónvarpi á laugardag en þá sneri hann aftur til Moskvu eftir mánaðarlangt sumarleyfi. Gorb- atsjov hvatti embættismenn til að fylkja liði um umbótastefnuna og sagði að Kommúnistaflokkur Sov- étríkjanna gæti náð fram breytingum á hinum ýmsu sviðum sovésks sam- félags en þróun mála í Sovétríkjunum síðustu mánuðina þykir hafa dregið mjög úr raunverulegum áhrifum flokksins. Umbótasinnuð öfl í flokkn- um þýrftu að stilla saman strengi sína „sem aldrei fyrr“, varpa þyrfti úreltum kennisetningum fyrir róða og flokksmönnum bæri að stilla sér upp við hlið alþýðunnar. Gorbatsjov sakaði bæði harðlínu- kommúnista og umbótasinna um að hafa grafið undan umbótastefnunni og kvað helstu talsmenn beggja fylk- inga hafa ýtt undir ótta meðal al- þýðu manna með gáleysislegum yfir- lýsingum. Rætt hefði verið um að allsheijar upplausnarástand væri yf- irvofandi og að valdarán og jafnvel borgarastytjöld væri í vændum. Virt- ist sem þessum orðum Gorbatsjovs væri ekki síst beint til harðlínu- mannsins Jegors Lígatsjovs sem lýsti yfír því á laugardag að vaxandi þjóð- ernishyggja gæti leitt til þess að Sovétríkin liðuðust í sundur. I síðustu viku hvatti Lígatsjov til þess að grip- ið yrði til aðgerða til að binda enda á þessa þróun. Að undanförnu hafa fjölmiðlar í Sovétríkjunum mjög beint spjótum sínum að fjöldahreyfingum í Eystra- saltsríkjunum. Um síðustu helgi var sambærileg hreyfing stofnuð í Úkr- aínu-lýðveldinu. Á stofnfundi sam- takanna var þess krafist að íbúum Úkraínu yrði fengin sjálfsstjórn á vettvangi efnahagsmála en talsmenn hreyfingarinnar lögðu áherslu á að þeir væru reiðubúnir til að starfa með umbótasinnum innan kommúni- staflokksins. Móðir Teresa á batavegi Kalkútta. DPA. RAJIV Gandhi, forsætisráð- herra Indlands og kona hans Sonia, heimsóttu Móður Ter- esu, sem gekkst undir hjarta- aðgerð á sjúkrahúsi í Kalkúkka á Indlandi sl. laug- ardag. Gangráður var tengdur hjarta Móður Teresu, hinnar 79 ára rómversk kaþólsku nunnu, sem hlaut friðarverð- laun Nóbels fyrir áratug fyrir líknarstarf í fátækrahverfum Kalkútta. Læknar sögðu að Móðir Ter- esa væri á batavegi. Hjartslátt- ur væri eðlilegur, hún hefði ekki lengur hita og líkami henn- ar hafnaði ekki lengur lyfjum. Jóhannes Páll páfi annar sendi Móður Teresu heillaóska- skeyti og sagðist biðja stöðugt fyrir því að hún kæmist aftur til fullrar heilsu. Hún fékk hjartaáfall sl. föstudag. Bretland: Otti kvenna við ofbeldi kannaður St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. EIN AF hveijum tíu konum í Bretlandi vopnast til að veijast kynferðis- árásum að því er fram kemur í könnun, sem birt var á mánudag. í könnuninni voru 1.000 konur spurðar um viðbrögð sín og afstöðu til ofbeldis og ótta við það. Af þeim konum sem bera einhverskonar vopn, hafði fjórðungur vasahníf. Önnur vinsæl vopn voru nálar, lyklar og hárlakksbrúsar. Konur, sem búa í borgum, eru tvöfalt líklegri til að vera vopnaðar, en þær, sem búa í stijálbýli. Minna en fjórðungur aðspurðra sagði að öruggt væri að ferðast í neðanjarðar- lestum um miðjan dag og aðeins 1% taldi það öruggt á kvöldin. í könnuninni kemur einnig fram að ein af hveijum tíu konum hafði orðið fyrir kynferðisárás á síðasta ári, 2% var nauðgað, 3% var reynt að nauðga og 5% höfðu orðið fyrir annars konar kynferðisárásum. Lítið brot þeirra tilkynnti árásirnar til lög- reglunnar. Nærri helmingur kvenn- anna hafði verið snertur eða klipinn og nærri ein af hveijum tíu hafði orðið vitni að ósiðlegu athæfi á al- mannafæri. Nærri allar konurnar töldu það móðgun að klípa í rass og átta af hveijum tíu töldu það óviðeigandi að góna á konur. 3% kunnu vel við að láta flauta á eftir sér en 25% töldu það móðgandi. Meira en níu af hveijum tíu höfðu áhyggjur af því að fara gangandi út á kvöldin. Einungis ein af hveijum tíu var reiðubúin að taka þá áhættu að ganga heim að kvöldi til. Langf- lestar þeirra óttuðust neðanjarðar- stöðvar, strætisvagnastöðvar, stræt- isvagna, göngustíga og leigubíla- stöðvar að kvöldi til. Um 40% þeirra sögðust uggandi um að sækja kvöld- námskeið. Helmingur kvennanna sögðust myndu forðast að fara einar í frí til útlanda og ein af hveijum þremur sagði það sama um Bretland. Þtjár af hveijum fjórum töldu dóma yfir kynferðisglæpamönnum of væga og vildu loka þá inni í að minnsta kosti fimm ár. Margar töldu að fréttir af ofbeldis- verkum á konum ykju á óttann. 36% sögðust verða uggandi um sig er þær læsu um árás á konu. . L istasafn Sigurjóns Ólafssonar ireyttan opnunartfma - 31. maí verður safnið opið 14-17 og öll þriðjudagskvöld íýning Kristjáns Davíðssonar ramlengd til 1. okt. nk. auglýsirt —- Frá 1. sept. um helgar kl kl. 20-22. S hefur verið f Því ekki að taka lífið létt og skella sér í dans? REYKJA VI STEPp B OQo . o TiíS'r' *ns*rni, Kennslustaðir: KR, Frostaskjóli, laugardaga fyrir alla aldurshópa, Kramhúsiö, Sundlaugavegi 34, og Þróttheimar. Þjáltun ífrir keppnlsúmsa op mkmúlB.Í Innritun i sima 611997 ffrá kl. 10-19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.