Morgunblaðið - 12.09.1989, Qupperneq 42
íífÖRÖtíKMÁBfÉí- ÞSMÐJtíöAGURI tiíi 9EPIEMBER)lHaa
Minning:
Aðalsteinn Halldórs-
son frá Litlu -Skógmn
Fæddur 16. júní 1907
Dáinn 30. ágúst 1989
í dag kveðjum við Aðalstein
hinstu kveðju eftir langa samfylgd.
Aðalsteinn fæddist Borgfirðingur
og kenndi sig við hann alla tíð.
Hann var elstur átta systkina og
fór fljótt að hjálpa til eins og hin
systkinin sem öll komust upp nema
ein systir, er lést barn að aldri.
Aðalsteinn hóf sína skólagöngu
heima í héraði, fyrst bamaskóla svo
Hvítárbakkaskóla og lauk svo Sam-
vinnuskólaprófi í Reykjavík vorið
1928. Sama vor réðst hann tii Toll-
gæslunnar í Reykjavík og starfaði
hjá henni í 45 ár. 11. maí 1929
kvæntist hann skólasystur sinni frá
Hvítárbakka, Steinunni Þórarins-
dóttur frá Jjórvík í Hjaltastaðaþing-
há N-Múlasýslu, fædd 14. mars
1905, dájn 2. ágúst 1980. Þeirra
dætur voru þijár: Erla fædd 13.
júlí 1929, gift Snorra Bjamasyni,
búsett á Blönduósi, þeirra böm em
fimm: Sturla, Guðrún, Aðalsteinn,
Bjami og Steinunn; Aslaug fædd
28. júní 1934, gift Steinari Friðjóns-
syni, þeirra böm eru þijú: Hrafn-
hildur, Friðjón og Ólafur, öll búsett
í Reykjavík. Fyrir hjónaband átti
Áslaug Aðalstein Rúnar Emilsson,
sem alinn var upp hjá afa sínum
og ömmu, nú búsettur í Banda-
ríkjunum. Brynhildur fædd 15. júní
1944, gift Ólafi Siguijónssyni, þau
eiga þijú börn: Siguijón, Steinar
og Margrét, öll búsett í Reykjavík.
Nú þegar þessi mætu hjón em
bæði horfin okkur yfir móðuna
miklu þá finnum við tengdasynir
þeirra hvöt hjá okkur til að minn-
ast þeirra með nokkmm orðum.
Þeim elsta okkar er falið það hlut-
verk að stýra pennanum, en hann
kvæntist elstu dótturinni árið 1948
og hefur því verið tengdur fjölskyld-
unni í meira en 40 ár. Hinir komu
svo inn í réttri aldursröð.
Ég tel mér óhætt að fullyrða að
við dæturnar og tengdasynimir sé-
um einhuga um það að það hafi
verið okkar allra gæfa að líf okkar
skipaðist á þann veg sem það hefur
gert, því við höfum alla tíð haldið
saman eins og góður systkinahóp-
ur. Heimili þeirra Aðalsteins og
Steinunnar var eins og þau gerðust
best á fyrri hluta aldarinnar, verka-
skiptingin var þannig að hlutverk
húsbændanna var að afla heimilinu
tekna og eftir bestu getu að sjá til
þess að ekki væri skortur á brýn-
ustu lífsnauðsynjum og var það
ekki auðvelt á ámm kreppu og fá-
tæktar og fór það eftir ýmsu hvem-
ig til tókst. Áðalsteinn veitti sínu
heimili mikið öryggi með því að
vera í fastri stöðu. Hlutverk hús-
mæðranna var ekki síður vanda-
samt og þeim mun erfiðara efitr
því sem bömin vom fleiri og ver
gekk með öflun aðfanga. Fyrst og
síðast var umhyggjan um velferð
barnanna. Það þurfti að búa þau
undir lífið, koma þeim til manns,
eins og svo var kallað.
Húsmæður þeirra tíma, sem
raunar er ekki langt að baki, völs-
uðu ekki á milli stórverslana með
fullar hendur fjár, að maður tali
nú ekki um krítarkortin og gröms-
uðu í ótakmörkuðu vömúrvali og
töldu sig eiga rétt á öliu. Nei, að-
ferðin var önnur og ábyrgari. Þær
þurftu að nýta þá litlu peninga sem
bændur þeirra öfluðu til matar-
kaupa og skjólfatnaðar. Maturinn
var samt hollur og góður þó ekki
væri keyptur í myndskreyttum
umbúðum. Hafragrautur og heima-
gert slátur, nýr fiskur sem bátasjó-
menn komu með beint úr róðri og
seldur úr handvögnum úti við eða
í fiskbúðir sem víða vom. Kjötmat
var alltaf reynt að hafa á sunnudög-
um og helst einu sinni í miðri viku
og allur matur lagaður heima. Föt-
in vom ekki öll keypt tilbúin í búð-
um og síðan hent þegar fór að sjá
á þeim. Nei og aftur nei, sumar
konur fengu saumakonur sem fóra
á milli heimila og saumuðu fyrir
fólk, en flestar saumuðu sjálfar og
Steinunn var ein af þeim og saum-
aði einnig fyrir aðra. Þegar fötin
fóm að slitna var þeim sprett í
sundur, efninu snúið við og þá
gjaman notað af eldri börnunum á
þau yngri. Þetta var kallað að venda
flíkum.
Það er mikill misskilningur að
segja að þetta fólk hafi verið
ómenntað þó það hafi ekki hlotið
langa skólagöngu. Fólk var yfirleitt
yel að sér bæði til munns og handa.
Það var töluvert lesið, bæði sögur
og ljóð og fróðleikur og gott hand-
verk var alltaf mikils metið. Það
vom miklu oftar mæðurnar sem
kenndu bömunum að lesa og draga
til stafs. Það vom mæðurnar sem
innrættu börnunum góða hegðan,
sannsögli og heiðarleika. Þær
gengu sjálfar á undan með góðu
fordæmi. Þær vom hinn trausti
veggur sem stóð gegn allri lausung
og spillingu.
Steinunn tengdamóðir okkar var
glæsileg kona í útliti og allri gerð.
Hún var mjög vel verki farin hvort
heldur var um hannyrðir eða matar-
gerð að fást. Þau hjón Steinunn og
Aðalsteinn vom bæði ákaflega
gestrisin. Þau vom höfðingjar heim
að sækja. Það má segja að hjá þeim
hafi verið stöðugur gestagangur.
Ymist vom það vinir og kunningjar
sem litu inn snöggvast, eða ættingj-
ar og vinir úr átthagabyggðum
þeirra sem komu til lengri og
skemmri dvalar.
Aðalsteinn ólst upp hjá foreldmm
sínum í Litlu-Skógum í Borgarfirði.
Litlu-Skógar liggja að jörðunum
Stóm-Skógum og Munaðarnesi.
Þetta svæði er eitt hið fegursta í
hinu tignarlega héraði. Þar hafa
nú verið reist ijöldamörg sumarhús
þar sem þéttbýlisbúar dveljast í
sumarleyfum sér til andlegrar og
líkamlegrar uppbyggingar og til
þess að komast í samband við landið
sitt. Það er ekki skrítið þó fólk sem
elst upp í slíkum stað, þyki vænt
um æskustöðvamar. Eftir dvölina
á Hvítárbakka fór Aðalsteinn til
Reykjavíkur og settist þar í Sam-
vinnuskólann. Hann stundaði því
nám hjá hugsjónamanninum Jónasi
frá Hriflu sem án efa hefur haft
mikil áhrif á hann. Hann kynntist
eldhuganum Ólafi Friðrikssyni.
Hann sá og heyrði hann flytja sínar
egghvössu ræður. Þessir menn ollu
miklum straumhvörfum í íslensku
þjóðlífi. Þeir hvöttu bændur og
verkafólk til að standa saman og
vinna saman að bættum kjömm og
t
Eiginmaður minn,
STEFÁN BRYNJÓLFSSON,
Seljabraut 42,
lést laugardaginn 9. september.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hildur Sigurðardóttir.
t
Móðir mín,
SIGURBJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR,
Norðurgötum i Mýrdal,
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi 8. september.
Jarðarför auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna,
Sæmundur Hjaltason.
t
Ástkær móðir okkar tengdamóðir, systir og amma,
ELÍN ÓLAFSDÓTTIR DREYER,
lést í sjúkrahúsi í New York sunnudaginn 3. september.
Bálför hefur farið fram.
Halldóra Árnadóttir, Pétur Hauksson,
Linda Dreyer Hochbaum, Charles Hochbaum,
Sigri'ður Ólafsdóttir,
Adda Barrows, John Barrows
og barnabörn.
Viljír þú minnasf látins vinar,
samstarfsmanns eða ættingja og votta aðstand-
endum samúó, bendum við þér á minningarkort
SVFI. Vió sendum einnig minningakort til útlanda
sé þess óskað, á dönsku, énsku eóa þýsku.
Gjaldið er jnnheimt með gírá.
Slysavarnarfélag Islands, sími (91) 27000.
t
Maðurinn minn,
GÍSLI JÓHANNSSON
garðyrkjumaður,
Friðrikshúsi,
Hjalteyri,
andaðist í Borgarspítalanum laugardag-
inn 9. september.
Minningarathöfn fer fram í Fossvogs-
kirkju föstudaginn 15. september kl.
10.30.
Jarðsett verður á Möðruvöllum í Hörg-
árdal og verður sú athöfn auglýst síðar.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim
sem vildu minnast hins látna, er vin-
samlega bent á Krabbameinsfélagið.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Gyða Antoníusardóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
STEFANÍA INGIBJÖRG ÞORLEIFSDÓTTIR,
Sigtúni 39,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju, miðvikudaginn 13. septem-
ber kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á
Hjartavernd. ,
Sigríður Þórðardóttir, Björgvin Vilmundsson,
Svala Þórðardóttir, Gísli Sveinsson,
Sjöfn Þórðardóttir, Árni J. Sigurðsson
og barnabörn.
t
Systir okkar og mágkona,
SVAVA SIGURÐARDÓTTIR,
Reykjahlíð,
verður jarðsungin frá Reykjahlíðarkirkju miðvikudaginn 13. sept-
ember kl. 14.00.
Þuríður Sigurðardóttir,
Guðrún Sigurðardóttir,
Jón Bjartmann Sigurðsson,
Laufey Sigurðardóttir, Þorbergur Magnússon,
Baldur Sigurðsson, Helga Finnsdóttir.
betra mannlífi. Það var mikil vakn-
ing í þjóðlífinu. Skáldin ortu hvatn-
ingarljóð til þjóðarinnar og vöktu
fólk til meðvitundar um fegurð
landsins og gæði þess, og um jöfn-
uð og bræðralag. Ungur maður of-
an úr Borgarfirði hreifst af öllu
þessu og vildi vera þátttakandi.
Hann skipaði sér í raðir jafnaðar-
manna og hugsjón þeirra hefur
hann verið trúr alla tíð og alltaf
unnið mikið fyrir Alþýðuflokkinn.
Hann var í framboði fyrir hann og
ferðaðist mikið um Borgarfjarðar-
og Mýrasýslu og Vestur-Húna-
vatnssýslu og kynntist þar fólki og
kynnti sínar hugsjónir. Aðalsteinn
gaf út tvær ljóðabækur á sínum
yngri árum. Vorgróður og Rauðar
rósir. Þriðja bókin sem hann kallar
Gerviblóm er enn í handriti. Aðal-
steinn vann allan sinn starfsferil
hjá tollgæslunni. Síðan sneri hann
sér að ættfræðinni sem var hans
áhugamál. Vann hann ásamt Araa
Gíslasyni og Guðmundi Illugasyni
að því að taka saman Borgfirskar
æviskrár. Eins og fram hefur kom-
ið var Aðalsteinn alla tíð mikill
áhugamaður um stjórnmál. Hann
átti sína drauma um fegurra og
betra mannlíf.
Við skulum vona að úr sínum
nýju heimkynnum eigi hann eftir
að sjá þá drauma rætast. Við biðjum
Guð að blessa minningu okkar ást-
kæm tengdaforeldra og hafi þau
þökk fyrir allt sem við af þeim þáð-
um.
Tengdasynir
í dag verður jarðsettur Aðal-
steinn Halldórsson fyrrverandi
deildarsfjóri við Tollgæsluna í
Reykjavík.
Aðalsteinn hóf störf við tollgæsl-
una vorið 1928 og starfaði aðallega
í þeirri deild hennar er sinnir tollaf-
greiðslu flugvéla og skipa. í far-
sælu starfi Aðalsteins við viðkvæm
og oft vandasöm verkefni í þágu
tollgæslunnar komu mannkostir
hans vel fram.
Aðalsteinn var snemma virkur í
félagsmálum tollvarða. Hann var
meðal stofnenda Tollvarðafélags
Islands og gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir félagið á starfsferli
sínum, m.a. fjómm sinnum kjörinn
formaður félagsins. Aðalsteinn
starfaði jafnframt að félagsmálum
opinberra starfsmanna og sat um
tíma í stjórn Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja.
Aðalsteinn var áhugasamur um
ættfræði og önnur þjóðleg fræði.
Hann skráði ásamt Ára Gíslasyni
og Guðmundi Illugasyni ritverkið
Borgfirskar æviskrár, sem er mikið
verk í mörgum bindum og byijað
var að gefa út fyrir um tuttugu
ámm. Þegar Aðalsteinn lét af störf-
um haustið 1972 helgaði hann sig
hugðarefnum sínum og fræðistörf-
um.
Aðalsteinn var hagmæltur og
kvæði eftir hann hafa verið gefin út.
Með Aðalsteini er fallinn frá mik-
ilhæfur og virtur forystumaður toll-
varða um áratuga skeið. Um leið
og Tollvarðafélag íslands vottar
honum virðingu sína sendir það
aðstandendum hans dýpstu samúð-
arkveðjur.
Tollvarðafélag íslands
Blómostofa
FriÖfimts
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opíð öllkvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.