Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989
/
Eitt atriði vill oft gleymast þegar sparifé er
ávaxtað, en það er eignarskatturinn. Við
fyrstu sýn eru raunvextir hærri á verðbréfum
öðrum en spariskírteinum ríkissjóðs. En spari-
skírteinin eru eignarskattsfrjáls að því marki
sem eignir eru umfram skuldir og þegar búið
er að leggja eignarskatt á raunávöxtun annarra
verðbréfa kemur annað í ljós. Avöxtun
spariskírteina verður þá oft hærri en
ávöxtun annarra verðbréfa, sem þó eru
áhættumeiri. Taflan hér fyrir neðan sýnir
dæmi um slíkt. Það er nefnilega tvennt ólíkt,
vextir fyrir skatt og vextir eftir skatt.
Raunávöxtun helstu markaðsverðbréfa fyrir og
eftir eignarskatt
Raunávöxtun Dæmi um
fyrir eignarskatt útreiknaða raun-
í nóvember ávöxtun m.v.
1989" efsta eignarskatts-
Spariskírteini þrep, 2,95%"
ríkissjóðs3):
Ný spariskírteini 6,0% • 6,0%
Eldri spariskírteini 6,1% 6,1%
Bankabréf:
Landsbankinn 7,0% 3,8%
Iðnaðarbankinn 7,5% 4,3%
Verðbréfasjóðir4):
Kjarabréf 8,3% 5,1%
Markbréf 8,1% 4,9%
J Tekjubréf 9,4% 6,1%
Skyndibréf 6,9% 3,7%
Einingabréf 1 9,0% 5,8%
Einingabréf 3 9,7% 6,5%
Skammtímabréf 7,3% 4,1%
Sjóðsbréf 1 9,2% 6,0%
Sjóðsbréf 2 10,4% 7,1%
Sjóðsbréf 3 7,8% 4,6%
Sjóðsbréf 4 9,7% 6,5%
1) Heimildir: Peningasíða Morgunblaðsins, Verðbréfaviðskipti Landsbankans og
Verðbréfamarkaður Iðnaðarbankans h.f.
2) Eignarskattur hjá fólki utan atvinnurekstrar er reiknaður áf hreinni eign í
árslok (eignum umfram skuldir). Ef hrein eign er
a) Undir 2.500 þús. kr. hjá einstaklingi greiðist enginn eignarskattur.
b) 2.500.000-4.250.000 kr. hjá einstaklingi greiðist 1,2% eignarskattur.
c) 4.250.000—7.000.000 kr. hjá einstaklingi greiðist 1,45% eignarskattur.
d) Yfir 7.000.000 kr. hjá einstaklingi greiðist 2,95% eignarskattur.
Framangreindar tölur eru fyrir árið 1988. Tölur fyrir árið 1989 liggja ekki fyrir.
3) í öllum dæmum um spariskírteini er miðað við útreiknaða raunávöxtun spari-
skírteinaeignar sem er umfram skuldir hjá fólki utan atvinnurekstrar.
4) M.v. ársávöxtun síðustu 6 mánuði, enda geta verðbréfasjóðir ekki lofað
ákveðnum vöxtum fyrirfram.
skírteini
pp á eignar-
skattsfrelsi
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS