Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 49
eeei 5ia!iw,a23a huo'agut/iiíI'T GiaAjanuoíiöM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989
49
Minning:
Sigríður Guðmunds-
dóttir, Bakkafírði
Ég vil með nokkrum orðum minn-
ast frænku minnar, Sigríðar Guð-
mundsdóttur, sem lést 28. nóvem-
ber sl. langt fyrir aldur fram, eftir
heils árs harða baráttu við illvígan
sjúkdóm.
Sigríður fæddist í Kolsholtshelli
í Villingahóltshreppi, Árnessýslu,
24. júlí 1929, yngst af 6 börnum
hjónanna Guðmundar Kristins Sig-
uijónssonar og Mörtu Brynjólfs-
dóttur er þar bjuggu. Systkini
Sigríðar eru: Jóhann bóndi í Kols-
holtshelli, kvæntur Gyðu Oddsdótt-
ur og eiga þau 4 börn. Guðríður
oddviti og fyrrv. skólastjóri í
Skeggjastaðahreppi, Norður-Múla-
sýslu, móðir undirritaðrar, gift
Sigmari I. Torfasyni fyrrv. prófasti
á Skeggjastöðum og eiga þau 6
börn. Kristín húsfreyja og starfs-
maður Pósts og síma á Selfossi, sem
lést fyrir tveimur árum, gift Sigur-
geiri Gunnarssyni og áttu þau 4
börn. Siguijón pípulagningameist-
ari í Reykjavík, kvæntur Svanfríði
Jónasdóttur og eiga þau 4 börn.
Brynjólfur bóndi á Galtastöðum í
Gaulveijabæjat'hrepp kvæntur
Arndísi Erlingsdóttur og eiga þau
2 syni. Það er því orðinn stór frænd-
garður, sem kominn er út af þeim
hjónum í Kolsholtshelli.
Ég man fyrst eftir Siggu frænku
eins og við kölluðum hana fyrir
réttum 40 árum, þegar ég fór 5 ára
gömul með foreldrum mínum og
yngri systur til Reykjavíkur og
austur í Flóa til afa og ömmu í
Helli. Hún var þá enn í föðurhúsum
og hjálpaði hún okkur systrum við
ýmislegt meðan mamma dvaldi á
sjúkrahúsi. Þegar við héldum heim
var síðan afráðið, að Sigga kæmi
með okkur austur á Bakkafjörð og
yrði um veturinn til að hjálpa móð-
ur minni. Við vorum þá orðnar fjór-
ar systurnar og nóg að starfa á
stóru sveitaheimili. Ferðin var að
sjálfsögðu farin með strandferða-
skipi og óvissa um ferðalokin, hvort
veðrið yrði nú svo vont að skipið
færi fraihhjá, hvort við yrðum höluð
í körfu niður í uppskipunarbátinn
eða þyrftum að klöngrast niður
blautan og hálan kaðalstigann.
Dvöl Sigríðar á Bakkafirði var
þó lengri en áætlað var. Vorið eftir
20. maí 1950 giftist hún eftirlifandi
eiginmanni sínum, Pétri Árnasyni
bifreiðastjóra og síðar rafstöðvar-
stjóra í Bergholti, og hafa þau búið
þar síðan. Fyrst í Bergholti í lítilli
íbúð, sem Pétur byggði við hús for-
eldra sinna, þeirra Árna Friðriks-
sonar og Petrínu Pétursdóttur. Fyr-
ir 10 árum reistu þau sér nýtt og
fallegt hús á Brekkustíg 1 á Bakka-
firði og hafa búið þar síðan.
Pétur er mjög íjölhæfur og laginn
maður, hann er listasmiður og vann
einnig við þá iðn, auk þess er hann
organisti við Skeggjastaðakirkju og
hefur verið það um áratuga skeið.
Þau hjón voru mjög samhent um
alla hluti, vinmörg og gestrisin svo
að af bar. Sigríður móðursystir mín
var mikilvirk og dugleg húsmóðir
og veitti gestum sínum af rausn
og myndarskap. Hún gekk vasklega
að hveiju því verki, er hún tók sér
fyrir hendur og lék allt í höndum
hennar, hvort sem um var að ræða
matreiðslu, sauma eða handavinnu.
Hún vílaði ekki fyrir sér að vaka
fram á nætur meðan drengirnir
hennar voru litlir, ef þurfti að ljúka
því að sauma fat eða baka fyrir
jólin. Hennar störf voru framanaf
inni á heimilinu, en síðustu árin
vann hún einnig við skrifstofustörf
hjá fiskverkunarstöðinni Útveri hf.
á Bakkafirði.
Sá vaskleiki sem einkenndi verk
Sigríðar einkenndi einnig fram-
göngu hennar. Hún var hreinskiptin
og lét í ljós skoðanir sínar umbúða-
laust, var gædd miklu líkamlegu
og andlegu atgervi og hélt því til
hinstu stundar.
Þau hjón áttu barnaláni að fagna,
eignuðust 6 mannvænlega og dug-
lega syni, en þeir eru: Árni Berg-
mann, rafvirkjameistari á Akureyri,
kvæntur Oddnýju Hjaltadóttur og
eiga þau 3 börn. Kristinn, fram-
kvæmdastjóri á Bakkafirði og þing-
maður, kvæntur Hrefnu Högna-
dóttur og eiga þau 2 börn. Bjart-
mar, framkvæmdastjóri í Grimsby,
sambýliskona hans er Aðalheiður
Björnsdóttir og eiga þau 3 börn.
Baldur viðskiptafræðingur í
Reykjavík, sambýliskona hans er
Salóme Viggósdóttir og eiga þau
einn son. Brynjar sjúkranuddari í
Grindvík, sambýliskona hans er
Svanhildur Káradóttir. Yngstur er
Ómar, stúdent sl. vor, unnusta hans
er Sigrún Guðmundsdóttir.
Við systkinin eigum margar góð-
ar minningar frá uppvaxtarárunum
tengdar Siggu og fjölskyldu henn-
ar, sem voru okkar einu ættingjar
austur þar. Milli þeirra systra móð-
ur minnar og hennar var náið sam-
band alla tíð. Það leið held ég sjald-
an sú jólahátíð að allur hópurinn
færi ekki í boð til Siggu og Péturs
og þau kæmu til okkar. Eftir að
við fórum að heiman var heimsókn-
inni austur á Bakkafjörð ekki lokið
fyrr en búið var að koma til þeirra.
Fyrir allar liðnu samverustundir
viljum við þakka að leiðarlokum.
Við vottum Pétri, sonum hans,
tengdadætrum og barnabörnum
okkar innilegustu samúð og biðjum
góðan Guð að blessa minningu
Sigríðar frænku okkar.
Fyrir hönd systkinanna frá
Skeggjastöðum.
Jóhanna I. Sigmarsdóttir
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGIBJÖRG INGIMUNDARDÓTTIR,
Gullteig 12,
sem lést í Borgarspítalanum að morgni 26. nóvember verður jarð-
sungin miðvikudaginn 6. desember kl. 13.30 frá Laugarneskirkju.
Sigurður Sveinbjörnsson,
Sveinbjörg Sigurðardóttir,
Guðmundur Sigurðsson,
Karl F. Sigurðsson, Svala B. Jónsdóttir,
Kristín Þormar,
Andrea Þormar,
Ólafur Þormar,
Sveinbjörn Þormar,
barnabarnabörn.
LANDSLIÐSKAPPAR
í LANDSBANKANUM
og allir vita verður
haldið hér á landi
árið 1995. Nú stendur yfir samkeppni um hönnun
merkis fyrir keppnina. Lands-
banki íslands, heldur af því
tilefni sýningu á eldri HM-
merkjum í aðalbanka Lands-
bankans, Austurstræti 11,
dagana 6. til 8. desember.
í tilefni af því að allt
íslenska landsliðið í handbolta kemur nú saman,
í fyrsta sinn eftir sigurinn frækilega í Frakklandi
í febrúar síðastliðnum, verður „pressuleikur“ í
Laugardalshöll á miðvikudco kvöldið kl. 20:00.
Á miðvikudaginn
kl. 14-15, ætla Kristján
Arason og Alfreð Gíslason
að heilsa upp á viðskipta-
vini Landsbankans í aðal-
banka og gefa eiginhand-
aráritanir!
Ágætu landsmenn! Sýnum HSÍ stuðning í verki
og greiðum heimsenda happdrættismiða.
Með baráttukveðjum frá HSÍ
- landsliði allra landsmanna.
L
Lapdsbanki
fslands
Banki allra landsmanna