Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989
HLAÐBORÐ,
HIÁTUROG
HÖRKUBAIL
Jólahlaöborð kl. 19.
Dansleikur frá kl. 22. Aðgangseyrir 750 kr.
Frítt á dansleik fyrir matargesti.
ÓMAR RAGNARSSON mætir kl. 23 og leysir frá
skopskjóðunni.
HLJÓMSVEITIN EINSDÆMI leikur á fuilum
dampi til kl. 3.
SKOÐANIR OG
SKÁLDLEG TILÞRIF
Bókmenntir
ErlendurJónsson
Bjarni Bjarnason:
ÓTAL KRAFTAVERK. 70 bls.
Augnhvíta. 1989.
Ólafiir Haraldsson: ÞÖGN. Saga.
95 bls. 1989.
»Við byggjum allt upp rangt.«
Þannig hefst síðasti kaflinn í Otal
kraftaverk. Bjarni Bjarnason er
ádeiluhöfundur. Meining hans sýn-
ist vera sú að úr því hið illa sé til
í veröldinni — og meira en svo —
sé eins gott að það láti á sér kræla.
Og hvimleiður er þessi heimur, svo
mikið er víst: »Mönnum líður illa,
sama hvað þeir gera.«
Texti Bjarna er kraftmikill, og
víða er skörulega að orði komist.
Ótal kraftaverk er heimsádeila sem
byggir á lífspekilegum, pólitískum
og sögulegum grunni: »Engan efni-
við hefur iðnaðarsamfélagið fært
okkur sem við getum notað umfram
þann efnivið sem Shakespeare hafði
að moða úr.« Þó sitthvað megi að
þessari bók Bjarna Bjarnasonar
finna — aðallega þó frágangi text-
ans — stendur af henni kaldur og
vekjandi gustur.
Þögn Olafs Haraldssonar inni-
heldur minni íhugun eíi stefnir því
meir í átt til skáldlegra tilþrifa. Að
hætti margra nútímahöfunda rýnir
Ólafur í hið tímalausa andartak og
leitast við að draga upp raunsannar
myndir úr hversdagsleika nútíma
manneskjunnar. Eins og margur
ungur höfundur bregður hann á
leik annað veifið til að sanna að
hann sé hvorki klassískur né gamal-
dags heldur töff og svalur. Annars
er texti hans með köflum kunnáttu-
legur og að mínum dómi skemmti-
legur. Sér í lagi getur Ólafi tekist
að skrifa samtöl sem sum hver eru
nöturlega raunsönn.
Báðar eru bækur þessar offset-
fjölritaðar og láta lítið yfir sér. Eigi
að síður standa þær efnislega á
sporði mörgu sem meira er borið
í. Báðir hafa höfundarnir metnað
til að láta að sér kveða. Eigin útgáf-
ur af þessu tagi eru oft fátækleg-
ar, t.d. sýnast höfundarnir sjaldan
njóta aðstoðar við prófarkalestur.
En þær veita höfundunum á hinn
bóginn frelsi til að segja það sem
þeim býr í bijósti — tæpitungulaust!
Skáldsaga eftir Sig-
ríði Guimlaugsdóttiir
ÚT ER komin skáldsagan,
Lífsþræðir, eftir Sigríði Gunn-
Iaugsdóttur. Þetta er fyrsta bók
höfundar en áður hefúr birst eft-
ir hana smásaga í safninu Hauk-
ur í horni. Sigríður hlaut 1. verð-
laun í skáldsagnasamkeppni
IOGT fyrir þessa sögu.
í kynningu utgefanda segir um
söguefnið: „„Átturnar" voru þær
kallaðar, átta skólasystur á Laugar-
vatni. Samheldinn hópur. Leiðir
skildu eftir stúdentspróf. Hver hélt
í sína átt. Síðan eru liðin tuttugu ár.
Ein úr hópnum býður hinum
heim. Minningar vakna. Ýmislegt
hefur á daga drifið, margt farið
öðruvísi en ætlað var, annað eins
og að var stefnt.
Það er tilhlökkunarefni að hitt-
ast. Samt reynist sumum það sárt.
Lífsþræðir eru stundum einkenni-
lega ofnir.
Höfundur lýsir tilfinningum af
næmleik og dregur upp skýra mynd
af átta konum og ástvinum þeirra.
Sagan er spennandi og einkar vel
sögð.“
Bókin er 190 blaðsíður, prentuð
í Prentsmiðjunni Odda hf. Útgef-
andi er Æskan.
^ Ármúla 29 símar 38640 - 686100
£ ÞORGRÍMSSON & CO
Armstrong LDFTAPLÖTUR
kork □ plast GÓLFFLÍSAR
TJabmaplast EINANGRUN
GLERULL STEINULL
isiendinga
á erindi við alla sem hafa áhuga á
framfórum í atvinnulífi og iðnaði; alla
sem þekkja til gamalla vinnubragða eða
vilja kynnast iðnmenningu okkar.
„Frá eldsmíði til eleksírs" Iðnsaga
Austurlands er fórða bókin í þessu
merka ritsafni. Meðal annars er þar
fallað um Gosdrykkjaverksmiðju
Seyðisfarðar, brjóstsykursverksmiðj-
urnar á Fáskrúðsfrði og Eskifrði,
vöggu btlaviðgerða á Austurlandi,
kynjalyfð Kínalífseleksír ogframleiðslu
þess,fyrstu prentsmiðjuna á Austurlandi
og svo mcetti lengi telja.
Bókin crfróðleg og í henni eru
margar skemmtilegar frásagnir. Hún er
prýddfölda Ijósmynda og þœrsegja líka
sína sögu.
inga ætti að vera til á
hverju heimili og bókin
um Iðnsögu Austurlands á
sérstakt erindi við alla
, _ Hið íslenzka
Austfirðinga. bókmenntafélag
Þingholtsstræti 3, pöntunarsími 21960