Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ
VtÐSKBn/AlVlNNULÍF
nl i/ t '1'/M Mö
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989
Tölvur
Þriðjungur ríkis-
stofiiana hefur skipt
um tölvutegund
MEIRIHLUTI ríkisstofnana sem tekið hafa einmenningstölvur í notk-
un á undanfornum árum hefur ekki látið gera úttekt á rekstrinum
til að meta þörfina fyrir tölvurnar. Rúmlega þriðjungur stofnananna
hefúr skipt um tölvutegund á þeim stutta tíma sem einmenningstölv-
ur hafa verið í ríkisstofhunum. Þetta kemur fram í grein Atla Arason-
ar rekstrarráðgjafa í Skýrr-fréttum þar sem hann gerir grein fyrir
helstu niðurstöðum könnunar á undirbúningi og framkvæmd tölvu-
væðingar með einmenningstölvum í opinberum stofnunum.
í könnuninni kom fram að um
helmingur starfsmanna á hefð-
bundnum ríkisstofnunum hefur
einkatölvu á skrifborði sínu. Hefur
það hlutfall tvöfaldast á þremur
árum. Telur Atli líklegt að árið
1992 verði 70% starfsmanna á hefð-
bundnum ríkisstofnunum með tölv-
ur á eigin borði.
Ástæðan fyrir því að þriðjungur
þeirra 33 stofnana sem könnunin
náði til hafa skipt um tölvutegund
telur Atli að sé vegna þess sem
■ hann kallar hina síðari og betur
undirbúnu tölvuvæðingu sem flest-
ar ríkisstofnanir virðist þurfa að
fara í gegnum til þess að ná ár-
angri með tölvuvæðingunni.
Atli segir að undirbúningi starfs-
manna með þjálfun og kennslu,
áður en ráðist var í tölvuvæðing-
una, virist um margt hafa verið
ábótavant og það sé oft skýringin
þegar illa hefur tekist til. Einnig
sé lítið sem ekkert hugsað um end-
urmenntun starfsmanna.
Enn ein niðurstaða könnunarinn-
ar er sú að einmenningstölvuvæð-
ingin hafi haft í för með sér mikinn
vinnusparnað og um leið aukin af-
köst starfsmanna. En hún hefði
hins vegar ekki leitt til fækkunar
starfsfólks.
NYTT HUSNÆÐI — Kaupþing hf. flutti þann 13. nóvember sl. í eigið húsnæði í Kringlunni 5.
Húsnæðið er alls um 1150 fermetrar að stærð en þar af eru 260 fermetrar í útleigu. Verðbréfamiðlun og
ráðgjöf fer fram á jarðhæð þar sem Kaupþing deilir afgreiðslusal með Sjóvá — Almennum tryggingum hf.
og SPRQN. en á 6. hæð hússins er kröfukaupadeild, fjárvarsla, varsla verðbréfasjóða, innheimtudeild og
útgáfa Vísbendingar. Að sögn Andreu Rafnar, markaðsstjóra Kaupþings, skapast aukin hagkvæmni í rekstri
fyrirtækisins í nýja húsnæðinu jafnframt því sem unnt verður að bæta þjónustu við viðskiptavini en starfsem-
in hefur verið á tveimur stöðum sl. tvö ár. Þá verður aukið við þjónustuna með því að bjóða viðskiptavinum
gerð greiðsluyfirlita og verðbréfavörslu. Á myndinni er hluti starfsfólks Kaupþings í hinu nýja húsnæði.
Verslun
Ekki húist við sam-
drætti íjólatréssölu
REIKNA má með að rúmlega 30 þúsund jólatré verði til sölu um
þessi jól. Um 15.000 jólatré verða til sölu hjá Skógrækt rikisins og
Landgræðslunni, sem eru stærstir í jólatréssölu yfir landið. Þar af
eru um 5.000 innflutt tré frá Danmörku, að því er Kristinn Skærings-
son hjá Skógræktinni segir. Aðrir stórir aðilar eru Alaska, Blómav-
al og íyálparsveit skáta. Einnig eru nokkrir aðrir aðilar s.s. íþrótta-
félög, Lionskiúbbar, sem selja jólatré. Innflutt tré eru í meirihluta.
M..U1.I.I.I.III.J
Nýtt kerfi mælir
kostnað af
farsímanotkun
HUGTAK hf. hefúr sett á markað nýtt kerfi, Venus, sem gerir kleift
að sundurliða kostnað vegna notkunar farsíma um borð í fiskiskip-
um. Farsímar hafa orðið algengir í fiskiskipaflotanum á undanfornum
árum. Til að reikna út kostnað við notkun þeirra hefúr þurft að
flokka símtöl niður á skipverja eftir reikningum Pósts og síma eða
láta þá skrá símtöl í þar til gerða bók. Þetta hefúr krafist töluverðr-
ar fyrirhafhar sem að mestu ætti að vera úr sögunni með Venus.
Kristinn segir að íslensku jóla-
trén séu ræktuð víðast hvar af
landinu og sjái hvert umdæmi um
sitt svæði, nema Skógrækt ríkisins
í Reykjavík þjóni Vestfjörðum og
Vestmannaeyjum. Innlendu trén
eru aðallega rauðgreni og stafa-
fura. Normansþinur er fluttur inn
frá Danmörku, en Danir hafa sér-
hæft sig í ræktun jólattjáa og selja
tré m.a. til Noregs, Þýskalands,
Ítalíu og fleiri Evrópulanda.
Kristinn kvaðst ekki reikna með
minni jólatréssölu í ár, þrátt fyrir
Mímisbrunnur gefur möguleika á
frekari hagnýtingu tii úrvinnslu
gagna við rekstur fiskiðnaðarfyrir-
tækja eins og t.d. ákvarðanalíkön,
tölvustýrða framleiðslu, samskipti á
milli fyrirtækja, s.s. frystihúsa og
sölusamtaka o.fl.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna
segja að með samvinnu IBM og
RT-Tölvutækni fari IBM á íslandi
inn á nýjar brautir við hugbúnaðar-
gerð. Húnbúnaðurinn sé sameign
samdrátt í þjóðfélaginu. „Þetta er
svo sjálfsagður hlutur, að fólk lætur
jólatréð ganga fyrir öðru,“ sagði
hann. „Og það er ekki svo mikill
verðmunur á tijánum eftir stærð,
að það skipti verulegu máli.“
Hjá Blómavali fengust þær upp-
lýsingar að verð á Normansþin verði
á bilinu 1.300—3.700, þ.e. frá ein-
um upp í tvo metra. íslensku trén
eru að byija að koma í verslanirn-
ar. Blómaval býður einnig þá nýj-
ung í ár að setja gervisnjó á trén
og er greitt fyrir það aukalega.
fyrírtækjanna og auk þátttöku við
gerð kerfisins veiti IBM aðgang að
sölukerfi sínu um allan heim.
Kerfið sem hér um ræðir er sam-
hæfður gagnagrunnur fyrir rekstr-
arbókhald fyrirtækjanna ásamt
tengingu við skráningarbúnað í
framleiðslu og einnig við úrvinnslu-
kerfi s.s. fjárhagsbókhald o.fl. Er
kerfið byggt á AS/400 tölvu ásamt
PS/2 og PC tölvum, sem tengdar
eru við móðurtölvuna á IBM Tóka-
JOLATRE -■ Tveirþriðju
hlutar jólatijánna sem verða til
sölu hjá Skógrækt ríkisins eru
íslensk.
neti, sem er hraðvirkt nærnet. Not-
aður er OS/400 gagnagrunnur og
Synon/2 hönnunarhugbúnaður. Að
því er forsvarsmenn fyrirtækjanna
segja er það hugbúnaður, sem vald-
Tvö útgerðarfyrirtæki hafa þeg-
ar tekið þennan búnað í notkun,
Hvalur hf. og útgerð Jóns Finnsson-
ar RE-506. Kerfíð hefur gengið
áfallalaust og tekur nú aðeins hálfa
klukkustund að reikna út kostnað
eftir hveija veiðiferð samkvæmt
upplýsingum frá Hugtaki hf.
Kerfið er uppbyggt á þann hátt
að við farsímann er tengd svokölluð
ið hefur byltingu við hugbúnaðar-
gerð, gert hana hraðvirkari og leitt
af sér betri hugbúnað sem veldur
iægri viðhaldskostnaði og stuðlar
að langlífi búnaðarinins.
safnstöð og kortalesari en auk þess
þurfa notendur að hafa aðgang að
einmenningstölvu. Við upphaf sjó-
ferðar, eftir að gengið hefur verið
frá áhafnaskrá, eru upplýsingar
skráðar inn á safnstöð um hveijir
megi nota farsímann. Þeim sem
veitt er tilskilið leyfi er afhent kort
sem er svipað að stærð og banka-
kort. Á kortin er prentað nafn fyrir-
tækis, nafn skipveija og einkennis-
númer sem tengir skipverjann við
símtöl. Kortinu er síðan stungið í
kortalesarann þegar hringt er og
kannar safnstöðin þá hvort kortið
sé löglegt. Safnstöðin skráir síðan
upplýsingar af kortinu og geymir
upplýsingar um notandann, númer
sem hringt er í, dagsetningu, tíma
og lengd símtals. Að lokinni veiði-
ferð sækir tölvan upplýsingar úr
safnstöðinni og vinnur úr þeim
þannig að hún tengir símtöl við
notendur og reiknar út kostnað
samkvæmt gildandi gjaldskrá. Að
lokum er prentaður út listi yfir val-
ið tímabil til yfirfærslu í launabók-
hald. Einnig er hægt að prenta út
ítarlegan lista fyrir sérhvern far-
símanotanda þar sem öll símtöl eru
tíunduð.
Búnaðurinn þolir straumrof þar
sem safnstöðir. hefur innbyggða
rafhlöðu sem heldur uppi spennu á
gagnageymslu í fleiri daga ef þörf
krefur.
Leiðrétting
Misheyrn olli því að farið var rangt
með föðurnafn Eyjólfs í E.E.-hús-
gögnum og verðandi tæknilegan
framkvæmdastjóra Axis-húsgagna
hf. í viðskiptablaði sl. fimmtudag.
Hann er Eðvaldsson en ekki Eð-
varðsson, eins og þar sagði.
Sjávarútvegur
Nýr hugbúnaður
fyrir fiskiðnað-
arfyrirtæki
NÝLEGA var undirritað samkomulag milli Haraldar Böðvarssonar
og Co. á Akranesi, IBM á Islandi og RT-Tölvutækni hf. um fyrstu
uppsetningu á Mímisbrunni, sem er hugbúnaður fyrir fiskiðnaðarfyr-
irtæki, sem IBM og RT-Tölvutækni hafa unnið að. Forsvarsmenn
fyrirtækjanna segja, að_ Danir hafi sýnt Mímisbrunni mikinn áhuga
og megi vænta þess að útflutningur á íslensku hugviti geti þróast
upp úr þessari samvinnu.