Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
278. tbl. 77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tékkóslóvakía:
Hóta nýju alls-
herjarverkfalli
Prag. Reuter.
RÚMLEGA 250.000 Tékkar söfnuðust saman á Wenceslas-torgi í Prag
í gær til að krefjast lýðræðisumbóta og mótmæla því hversu marga
kommúnista Ladislav Adamec forsætisráðherra hefur skipað í nýja
ríkisstjórn sína. Mótmælendurnir kröfðust þess einnig að harðlínu-
menn yrði sviptir embættum sínum og herlögreglusveitir leystar upp.
Helstu samtök andófsmanna,
Vettvangur borgaranna, krefjast
þess einnig að kosningar fari fram
þegar næsta sumar. Verkalýðsleið-
toginn Igor Pleskot sagði á mót-
mælafundinum að verkamenn ættu
að búa sig undir allsherjarverkfall á
Danmörk:
Samið um
flárlög
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaösins.
mánudag tæki Ademec ekki sér-
fræðinga, sem njóta stuðnings Vett-
vangs borgaranna, inn í stjórnina.
Forsætisráðherrann skipaði á sunnu-
dag fyrstu ráðherrana, sem ekki eru
í kommúnistaflokknum, frá því Var-
sjárbandalagið réðst inn í landið árið
1968. Ráðherrar kommúnistaflokks-
ins hafa þó bæði tögl og hagldir í
stjórninni, eru 16 af 21.
Umbótasinnar utan kommúnista-
flokksins hafa krafist þess að Gustaf
Husak segi af sér sem forseti lands-
ins og hann kvaðst á sunnudag ekki
leggja áherslu á að halda embætt-
inu. Talið er að Alexander Dubcek
komi ekki lengur til greina sem for-
seti og eru hagfræðingurinn Valtr
Komarek og leikritaskáldið Vaclav
Havel taldir líklegir í embættið.
Reuter
Ungur tékkneskur hermaður myndar sigurmerki með fingrunum og syngur tékkneska þjóðsönginn
ásamt hundruðum þúsunda manna, sem söfnuðust saman á Wenceslas-torgi í Prag í gær til að krefjast
stjórnmálaumbóta. Fjölmennið á fundinum er talið sýna að enginn bilbugur sé á andófsöflum í landinu.
Þáttaskil í mótmælaðgerðum Austur-Þjóðverja:
Yfir 200.000 krefiast sam-
einingar við V-Þýskaland
Austur-Berlín, Brussel, Moskvu. Reuter og Daily Telegraph.
Borgaraflokkarnir sex á
danska þjóðþinginu hafa komist
að samkomulagi um fjárlög fyrir
1990. Er þar með lokið því
kreppuástandi sem ríkt hefur í
dönskum sfjórnmálum um
margra mánaða skeið.
Að samkomulaginu stóðu ríkis-
stjórnarflokkarnir annars vegar;
íhaldsflokkurinn, Venstre og Rad-
íkalir, og hins vegar Miðdemó-
kratar, Kristilegi þjóðarflokkurinn
og Framfaraflokkurinn. Það var
stuðningur Framfaraflokksins sem
úrslitum réð um að samkomulagið
komst í höfn.
Fjárlagaupphæðin var skorin nið-
ur um þrjá milljarða danskra króna
(um 27 milljarða ísl. kr.), auk þess
átta milljarða niðurskurðar sem
fyrir var í fjárlagafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar. Mestur verður niður-
skurðurinn í opinbera geiranum,
5.000 stöðugildi verða lögð niður,
einkum í skattheimtunni.
AUSTUR-þýski kommúnista-
fiokkurinn skoraði í gærkvöldi á
ríkisstjórn landsins að hvetja
þjóðina til að sýna stillingu og
taka ekki lögin í eigin hendur.
Mikil heift ríkir meðal almennings
vegna hrikalegrar spillingar
ráðamanna sem skýrt hefur verið
frá í fjölmiðlum landsins. Á þriðja
hundrað þúsund manns kröfðust
sameiningar þýsku ríkjanna á úti-
fiindi i Leipzig í gær og að aust-
ur-þýski kommúnistaflokkurinn
yrði leystur upp.
Eftir fundinn reyndu mörg þúsund
manns að komast inn í aðalstöðvar
öryggislögreglunnar í borginni til að
ná í skjöl er þeir telja geta sannað
spillingu flokksbroddanna. Liðs-
mönnum úr hreyfingum andófs-
manna, sem óttast að skjölin týnist,
tókst þó að vama flestum inngöngu.
Lögregla hélt sig fjarri atburðunum.
Á fundinum á Karl Marx-torginu í
Leipzig hrópaði mannfjöldinn kröfur
um sameiningu þýsku ríkjanna og
nokkrir fundarmanna veifuðu fána
Vestur-Þýskalands. Gífurleg fagn-
aðarlæti brutust út er einn ræðu-
manna krafðist þess að kommúnista-
flokkurinn yrði lagður niður. „Við
erum ekki að biðja um að skipt verði
um menn í stjórnmálaráðinu. Við
viljum að flokkurinn allur verði leyst-
ur upp,“ sagði hann við þrumandi
fögnuð viðstaddra. Á risastórum
borða stóð einfaldlega: „Sameining,"
og á öðrum „Aðeins Kohl getur
bjargað okkur.“ Fjölmennir fundir
voru einnig í Erfurt, Schwerin og
fleiri borgum þar sem krafist var
sameiningar.
Sovéska fréttastofan TASS sagði
í gær að Moskvustjórnin væri tilbúin
til viðræðna um hugsanlega samein-
ingu þýsku ríkjanna. George Bush
Bandaríkjaforseti lýsti því yfir á
fundi með leiðtogum ríkja Atlants-
hafsbandalagsins í Brussel í gær,
að óþarft væri að reyna að hraða
sameiningu þýsku ríkjanna og fleiri
leiðtogar tóku í sama streng.
Öll miðstjóm og stjórnmálaráð
austur-þýska kommúnistaflokksins
sagði af sér á sunnudag vegna kröfu
almennings um að fyrrverandi vald-
hafar fái makleg málagjöld. 25
manna nefnd umbótasinna í flokkn-
um stjómar til bráðabirgða og á
Hans Modrow forsætisráðherra sæti
í henni. Á neyðarfundi flokksins um
helgina var samþykkt að reka Erich
Honecker, fyrrum flokksleiðtoga, og
helstu samverkamenn hans úr
flokknum og jafnframt að hefja
málsókn á hendur þeim fyrir spill-
ingu.
Sjá ennfremur: „Kommúnista-
flokkur í upplausn... “ á bls 26.
George Bush greinir frá niðurstöðum Möltufiindarins:
Brottför Bandaríkjahers
undir Evrópubúum komin
Sovétríkin fordæma innrásina í Tékkóslóvakíu 1968
Brussel. Moskvu. Reuter og Daily Telegraph.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti gerði grein fyrir fiindi sínum
með Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta á leiðtogafimdi Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) í Brussel í gær. Sagðist Bush vera til við-
ræðu um meiri niðurskurð hefðbundins herafla Bandaríkjanna og
kjarnorkuvígbúnaðar en hingað til en fullvissaði evrópska banda-
menn sína um að bandarískur her yrði í Evrópu jafh lengi og þeir
kærðu sig um. I Moskvu greindi Gorbatsjov bandamönnum sínum
frá árangri Möltufundarins. Leiðtogar Varsjárbandalagsríkjanna
fordæmdu í gær „tilefiiislausa" innrás Sovétríkjanna og bandalags-
ríkja þeirra í Tékkóslóvakíu árið 1968. Er þetta í fyrsta skipti sem
sovésk stjórnvöld fordæma innrásina með svo formlegum hætti.
„Eg lýsti því yfir að Bandaríkin
yrðu mikilvægt herveldi í Evrópu
jafn lengi og bandamenn okkar
óskuðu þess,“ sagði Bush á frétta-
mannafundi í Brussel. Það kom á
óvart að Bush tjáði sig opinskátt
um framtíð Evrópubandalagsins
(EB) á leiðtogafundinum. „Ég tel
að atburðir samtímans krefjist
þess að ríkin tólf samlagist enn
frekar og að þau verki þannig sem
hvati á umbætur í Austur-Evr-
ópu,“ sagði Bush. Margaret Thatc-
her, forsætisráðherra Bretlands,
sem lagst hefur gegn því að Bret-
land afsali sér forráðum mála sinna
í hendur EB, var greinilega undr-
andi og sagði hugmyndir Bush svo
viðamiklar að ekki væri hægt að
bregðast við þeim þegar í stað.
Leiðtogafundur NATO í gær
stóð í fimm tíma. Fyrir íslands
hönd sátu fundinn Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra og
Reuter
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, heilsar
Brian Mulroney, forsætisráð-
herra Kanada. George Bush
Bandaríkjaforseti fylgist með.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra. I ræðu sinni sagði
Steingrímur m.a. að það ylli íslend-
ingum vonbrigðum að afvopnun á
höfunum skyldi ekki vera á dag-
skrá hjá NATO.
Sjá fréttir á bls. 28-29.