Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 38
'38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989
æ*. buímm a i /gll/ vq/k ir^A p
ÆfmL m HarW^B %P/\Uv7L / y~)ll
ESPRIT hús
Óskum að ráða afgreiðslustúlku strax. Æski-
legur aldur 18-25 ára.
Umsækjendur komi til viðtals í verslunina
Laugavegi 101.
Kristnesspítali
Sjúkraliðar óskast til starfa nú þegar eða
eftir samkomulagi. Starfsfólki búsettu á Ak-
ureyri er ekið á og af öllum vöktum.
Barnaheimili til staðar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjöri í síma
96-31100.
Kristnesspítali.
Fjármálastjóri
Óskum að ráða í stöðu fjármálastjóra hjá
virtu og öflugu fyrirtæki á fjármagnsmark-
aðnum.
Starfssvið fjármálastjóra: Dagleg fjár-
magnsstýring. Gerð langtíma- og
skammtímaáætlana varðandi fjárfestingar,
rekstur, lánveitingar o.fl. Samningagerð við
erlend og innlend fjármálafyrirtæki. Rekstrar-
yfirlit og innri endurskoðun. Yfirumsjón og
stjórnun bókhaldsvinnslu. Ábyrgð á ársupp-
gjöri og gerð ársreiknings. Úrvinnsla ýmissa
upplýsinga úr bókhaldi og skýrslugerð. Fjár-
málastjóri er ábyrgur gagnvart yfirmanni fyr-
irtækisins.
Við leitum að viðskiptafræðingi eða manni
með aðra haldgóða menntun á viðskipta-
sviði. Reynsla af endurskoðunarstörfum svo
sem uppgjörum og skattskilum æskileg. Við-
komandi þarf að hafa frumkvæði og lifandi
áhuga á fyrirtækjarekstri.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „Fjármálastjóri 390“ eigi síðar en
15. desember nk.
Hagvangur h f
Grensásvegi 13 Reykjavík Sími83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
sr JÓSEFSSPÍTALI
HAFNARFIRÐI
St. Jósefsspítali Hafnarfirði
Lausar stöður
1. Staða hjúkrunarfræðings á skurðdeild.
Um er að ræða hlutastarf, en fullt starf
kemur til greina. Sérmenntun áskilin.
2. Staða hjúkrunarfræðings á lyflækninga-
deild. Um er að ræða hlutastarf, en fullt
starf kemur til greina.
3. Staða röntgentæknis á Röntgendeild.
Um er að ræða hlutastarf, en fullt starf
kemur til greina.
Stöður þessar eru lausar um áramót 1990
eða eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar
veitir hjúkrunarforstjóri, Gunnhildur Sigurð-
ardóttir, í síma 54325.
ST JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Hjúkrunarfræðingar
Hafið þið áhuga á að kynnast fjölbreytni í
hjúkrun lyflækningasjúklinga í heimilislegu
umhverfi og vinna með fólki, sem hefur fag-
lega þróun að leiðarljósi?
Okkur vantar áhugasama hjúkrunarfræðinga
á lyflækningadeild, ganga 2-A (13 rúm) og
1-Á (30 rúm, skipt í tvær einingar). Við bjóð-
um uppá sveigjanlegan vinnutíma og starfs-
aðlögun. Hjúkrunarfræðingar á deildum eiga
fulltrúa í sérgreinahópum spítalans, sem eru
ráðgefandi fyrir sjúklinga með hjarta- og
æðasjúkdóma, smitsjúkdóma, krabbamein
og fleira.
Umsóknarfrestur er til 1. janúar 1990.
Nánari upplýsingar gefa Birna Bergsdóttir,
deildarstjóri 2-A, sími 604318, Ingibjörg Ein-
arsdóttir, deildarstjóri 1-A, sími 604312, og
Rakel Valdimarsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, sími 604300.
4. desember 1989.
Byggingavörudeild Akureyri
Verslunarstjóri
Byggingavörudeild KEA óskar eftir að ráða
verslunarstjóra.
Starfssvið:
★ Verslunarstjóri heyrir undir deildarstjóra
Byggingavörudeildar og annast daglega
stjórnun verslunarinnar í samráði við
hann.
★ Gerir greiðslusamninga við viðskiptavini.
★ Annast innkaup og mótar vöruval.
Leitað er að starfsmanni:
★ Sem getur notfært sér tölvur sem stjórn-
tæki.
★ Hefur reynslu af verslun með bygginga-
vörur.
★ Er með trausta og örugga framkomu,
frumkvæði og getur unnið sjálfstætt.
★ Á auðvelt með að umgangast fólk.
Kunnátta í tungumálum er afar æskileg en
þó ekki skilyrði.
Sölumaður
Byggingavörudeild KEA óskar eftir að ráða
sölumann.
Starfssvið:
★ Hefur umsjón með söluherferðum.
★ Annast tengsl deildarinnar við verktaka.
★ Sér um auglýsingar í fjölmiðlum.
★ Hefur umsjón með vörukynningum í sam-
ráði við verslunarstjóra.
★ Afgreiðir í verslun þegar þess gerist þörf.
Leitað er að starfsmanni:
★ Sem getur unnið sjálfstætt og skipu-
lega.
★ Hefur staðgóða þekkingu á bygginga-
vörum.
★ Á auðvelt með að vinna með fólki.
★ Kann að notfæra sér tölvur í sölustarfi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Umsóknir er tilgreini aldur og mennt-
un, ásamt starfsreynslu, sendist skrifstofu
KEA fyrir 15. desember nk.
Nánari upplýsingar um ofangreind störf
gefur starfsmannastjóri KEA f síma 21400.
Umsókn um starf verslunarsjóra sé merkt:
„Verslunarstjóri", en umsókn um starf sölu-
manns sé merkt: „Sölumaður".
Appelsínurnar eru komnar sætari og safaríkari
Elliðavogi 103 — 104 Reykjavík — Sími 681022