Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 51
MORGUNBLA'ÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5: DESEMBER 1989
51
læga samúð. Blessuð sé minning
hans.
Birgir Möller
í dag er til moldar borinn vinur
minn og fyrrverandi yfirmaður,
Kaaber eins og hann var jafnan
kallaður meðal okkar starfsmann-
anna hjá Sigurplasti hf. Af þeim
átján árum sem ég hef starfað sem
sendibílstjóri hef ég ekið fyrir Sig-
urplast í tólf ár. Allan þann tíma
stjórnaði Kaaber því fyrirtæki og
var raunar búinn að gera það í nær
þijátíu ár, áður en hann lét af fram-
kvæmdastjórastarfinu á haustmán-
uðum 1988. Kaaber hélt þó áfram
störfum hjá Sigurplasti eftir það
og allt til dauðadags.
Þessar fáu og fátæklegu línur
eru til að koma því á framfæri að
ég hef aldrei á ævi minni kynnst
öðrum eins öðlingi sem yfirmanni.
Hann var framúrskarandi heiðar-
legur í öllum samskiptum sínum við
mig sem aðra. Iiann var einn af
þeim mönnum sem stóð við allt sem
hann sagði og ætlaðist til hins sama
af öðrum. Orð hans stóðu og það
þurfti engar undirskriftir eða samn-
inga þegar hann átti í hlut.
Þegar ég byijaði að aka út fyrir
Sigurplast samdist okkur svo um,
að ég rukkaði inn fyrir mína vinnu
á mánudögum. Það brást aldrei að
Kaaber var tilbúinn með greiðsluna
og hann lagði jafnvel lykkju á leið
sína til að spyija mig hvort ég hefði
ekki reikninginn tilbúinn. Kaaber
hafði það fyrir sið að fara heim til
sín í hádegismat, en hann gerði sér
sérstaka ferð af skrifstofunni niður
á lagerinn til að leita mig uppi áður
en hann fór í matinn. Svona áreið-
anleika hef ég aldrei kynnst áður.
Ég mundi gjarnan vilja segja
miklu meira um þennan látna heið-
ursmann en ég læt þetta nægja.
Ég minnist hans með þakklæti og
söknuði. Ég votta eiginkonu hans,
börnum og nánustu ættingjum mína
innilegustu samúð.
Kristinn J. Sölvason
í dag er til moldar borinn félagi
okkar og samstarfsmaður, Knud
Kaaber fyrrverandi framkvæmda-
stjóri. Hér í Sigurplasti hf. og víða
annars staðar notaði hann nafnið
Kaaber, líklega vegna þess, eins og
hann orðaði það sjálfur, að það virt-
ust vera jafn margar útgáfur af
nafninu Knud, og viðmælendur voru
margir og því best að halda sig við
. nafnið Kaaber.
Kaaber var framkvæmdastjóri
Sigurplasts frá4rinu 1964 og var
alla tíð vel liðinn bæði af samstarfs-
mönnum, viðskiptavinum svo og
öllum þeim erlendu aðilum sem
hann kynntist í gegn um starf sitt.
Sumum hveijum kynntist hann vel
og skapaði sterk vináttubönd. Það
lýsir því vel að viðskiptaaðilar sem
komu hingað til lands til að heim-
sækja Sigurplast og önnur íslensk
fyrirtæki í plastiðnaði höfðu gjarn-
an mest samneyti við Kaaber á
meðan á veru þeirra stóð enda
Kaaber heimsmaður.
Við munum seint gleyma Kaaber
vegna perisónunnar sem hann hafði
að geyma. Þótt hann væri mjög
ábyrgðarfullur og alvarlegur þá
hafði hann að geyma sérlega
skemmtilega og góða kímnigáfu.
Hann sá hið spaugilega í daglegu
lífi og gerði grín að sjálfum sér ef
því var að skipta.
Þeir sem kynntust Kaaber fundu
fljótt hversu ríka áherslu hann lagði
á heiðarleika og að „rétt væri rétt“.
Allt sem hann tók sér fyrir hendur
framkvæmdi hann af ýtrustu ná-
kvæmni, jafnvel svo mikilli að okk-
ur samstarfsmönnum hans fannst
stundum nóg um. I dag njótum við
sem eftir stöndum góðs af ná-
kvæmni hans og höfum lært af
henni og búum að því í framtíðinni.
Kaaber var maður sem var ekki
fyrir illdeilur við nokkurn mann og
forðaðist þær. Reyndi jafnan að
finna sanngjörnustu lausnina
hveiju sinni öll þau ár sem hann
stjórnaði Sigurplasti hf.
Fyrir okkur í Sigurplasti hf. er
fráfall Kaaber mikill missir en við
þökkum samfylgdina.
Við vottum Jónínu konu hans,
börnum og aðstandendum öllum
okkar dýpstu samúð.
Starfsfólk Sigurplasts hf.
+ ELIN MARGRÉT JÓSEPSDÓTTIR verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 7. desember kl. 15.00. Fyrir hönd systkinanna, Gestur Geirsson, Sigurjón Árnason. + Maðurinn minn og faðir okkar, KNUD A. KAABER, Hæðargarði 7, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag, kl. 13.30. Jónína Ásgeirsdóttir, Guðrún Elín Kaaber, Ásgeir Kaaber, Eva Kaaber, Kári Kaaber, Birgir Kaaber.
t Innilegar þakkir til allra er sýndu samúð og vinarhug við andlát og jarðarför MATTHILDAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði. Systkini hinnar látnu og aðrir aðstandendur.
Lokað Fyrirtæki okkar, Sigurplast hf., er lokað í dag þriðjudaginn 5. desember vegna jarðarfarar Knuds Kaaber, fyrrverandi framkvæmdastjóra. Sigurplast.
eins 0
a íoiu
KEA hangikjötið er meðhöndlað samkvæmt
norðlenskri hefð af færustu kjötiðnaðar-
mönnum. KEA hangikjötið, bragðgott
og ilmandi eins og jpið viljið hafa það
— á jólum!
hafa það
SSfl
K.
K.
V