Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989
11
Að rogast um
draumaheima
Bækur
Berglind Gunnarsdóttir
Jón Stefánsson: Úr þotuhreyflum
guða
Eigin útgáfa 1989.
Þetta er önnur bók höfundar og
skiptist í fjóra tölusetta kafla. Sum
ljóðanna eru meiri prósaljóð en önn-
ur, stundum verða mörkin nokkuð
óljós. í upphafi fyrsta Ijóðs, Slitur
úr gömlum formála, er þessi yfirlýs-
ing: „Ég hef ekkert/ að segja/ en
...“ og gefur tilefni til að spyrja:
er Jón ef til vill í hópi þeirra ungu
manna sem hafa að leiðarljósi
lífsleiðann fræga, illræmda uppgjöf
tímans? En tæpast er það svo ein-
^11540
Glæsil. fullbúnar íbúöir:
Til sölu 2ja-5 herb. íb. vel staðsettar í
Hafnarfirði. Einnig 2ja-7 herb. íb. v/Veg-
hús í Grafarvogi. íb. skilast fullfrág.
haustið 1990. Mögul. á bílsk. Byggað-
ili: Byggðaverk, getur lánað allt að 40%
af kaupverði til 4 ára.
í Suðurhlíöum Kóp.: 2ja og
3ja herb. íb. við Trönuhj. Afh. tilb. u.
trév. í sept. nk. Fallegt útsýni. Byggað-
ili getur lánað 1,5 millj. til 4ra ára.
Fagrihjalli: Skemmtil. 170fm parh.
á tveimur hæðum ásamt 30 fm bflsk.
Afh. fokh. að innan, tilb. að utan, strax.
Vesturbrún: 264 fm tvfl. parh. á
byggstigi. Áhv. 1,8 millj. byggsj.
Bauganes: 190 fm efri sérh. í
fjórbhúsi. íb. afh. fokh. innan, tilb. að
utan. Áhv. 4,1 millj. byggsj.
Einbýlis og raöhús
Krosshamrar: 75 fm fallegt einl.
parh. 3 svefnherb. Sökklar að gróður-
húsi. Áhv. 2,4 mlllj. byggsj. Verð
7,1-7,3 millj.
Valhúsabraut: 175 fm mjög
gott tvfl. einbhús. 5 svefnherb. 73 fm
bílsk. m/3ja fasa rafm. Fallegur garður.
Hjallaland: 200 fm raðh. á pöllum.
4 svefnherb. 20 fm bílsk. Skipti æskil.
á 3ja-4ra herb. íb. í Fossvogi eða nágr.
Heiðarsel: Fallegt 216 fm tvíl.
timbureinbh. 5 svefnh. Fallegar innr.
Parket. 25 fm bílsk.
4ra og 5 herb.
Álfheimar: Góð 100 fm íb. á 1.
hæð. 3 svefnh. Verð 6,0 millj.
Kópavogur: Mjög góð 4ra herb.
íb. á 1. hæð í lyftuh. Stæði í bílhýsi!
Flókagata: 90 fm góð íb. á efstu
hæð í fjórbh. 2 svefnherb. Verð 7,0 millj.
Hraunbær: Góð 120 fm íb. á 3.
hæð. 4 svefnherb. Verð 7,5 millj.
Vesturberg: Góð 100 fm íb. á
4. hæð (3. hæð). 3 svefnh. Glæsil. út-
sýni. Laus fljótl.
Bólstaðarhlið: Mjög góð 115fm
?b. á 4. hæð. 3 svefnherb. Mikið áhv.
Bræðraborgarstígur: Mjög
góð 115 fm íb. á 1. hæð. Saml. stofur,
3 svefnherb. Sérhiti. Suðaustursv. Verð
6,5 millj.
Framnesvegur: Falleg110fm
íb. á 1. hæð. Saml. stofur, 3 svefnherb.
Parket. Þvottah. og búr innaf eldh.
Verð 6,9 millj.
Stóragerði: 100 fm góð íb. á 3.
hæð. 3 svefnherb. Ákv. sala.
3ja herb.
Rauðás: 105 fm íb. á tveimur hæð-
um. Laus. Áhv. 3,1 millj. byggsj.
Vesturgata: Góð 82 fm íb. á 4.
hæð í lyftuh. Saml. stofur, 2 svefnherb.
íb. er nálægt þjónustumiðstöð. Glæsil.
útsýni yfir höfnina.
Eskihiíð: 100 fm mikið endurn.íb.
á 2. hæð ásamt herb. í risi með að-
gangi að snyrtingu og herb. í kj.
Þverbrekka: Mjög góö 3ja herb.
íb. á 1. hæð. 2 svefnherb. Verð 4,8 millj.
Laugavegur: 3ja herb. töluvert
endurn. íb. á 2. hæð. Laus strax.
Hagst. grkjör í boði.
2ja herb.
Skólavörðustfgur: Mjög góö
rúml. 50 fm stúdíóíb. sem er öll end-
urn. Parket. Suðursv. Verð 3,0 mlllj.
Njálsgata: Góð 2ja-3ja herb. íb. á
1. hæð m. sérinng. Verð 3,2 mlllj.
Kóngsbakki: Mjög góð 65 fm ib.
á 3. hæð. Þvottaherb. innaf eldh. Hús
og sameign nýendurn. Verð 4,4 m.
Ránargata: Nýl. endurn. 45 fm
einstaklfb. í kj. Laus. Verð 2,5 millj.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
Óðinsgötu 4
11540 - 21700
Jón Guðmundsson sölustj.,
Leó E. Löve lögfr.,
Olafur Stefánsson viðskiptafr.
falt enda kemur í ljós seinna í ljóðinu
að skáldið er gætt ofurvaldi guð-
anna, er sjálft svolítill guð:
ég bryð kletta
svo vindsamt auparáð konunnar
feyki ekki blóðinu úr farvegi sínum
ég er með handtökuheimild á eilífðina
geri dauðann að sendisveini
og á stefnumót við vindinn...
ég hef ekkert að segja en
verður stundum hugsað til þín
sem hefur fundið tilgang lífsins
og átt við fituvandamál að stríða...
Hvort skyldi þá vera skárra að
dvelja í goðkynjaðri einsemd háloft-
anna eða meðal hinna lágu í mannfé-
laginu þar sem hið hversdagslega
rennur saman í eitt og ekkert rís upp
úr formleysi tilverunnar? Það er
nokkuð augljóst af þessum ljóðum
og samt heldur skáldið kvíðafullt
„inn í mannvana þögnina/ í leit að
orðum“ eins og segir í ljóðinu Eftir
miðnætti 1. Enda eins víst að guðinn
sé á röngu róli.
Þessi formlausa þoka virðist án enda
nema ððru hvoru óvænt
grillir í hvðss gráleit form
brotin óreglulega af bláleitum geislum
síðan líkt og hikandi staðnæmst
við sjoppudyr þar sem unglingar
velta kynhvötinni á milli sín
og bíða eftir bílprófi kannski...
(Steinn verður fjall)
Og samt freistar að takast á við
þetta allt og þetta ekkert, sem ekki
er eins og sýnist. Því þegar inn í
kjamann er komið verður ekki að-
greint það sem virðist þó vera and-
_ stæðan hrein.
Jóhann Sipijónsson
með einsemd þúsunda nátta
í aupm
sest hann á móti mér dustar tímann af öxlum
og réttir mér bikar fullan af sorg
Sorg
sem er mín gleði
Skáldið verður að samneyta hinu
jarðbundna til að vera sjálft maður
en sækir af eðlislægri nauðsyn ein-
hvers konar fegurð eða fyllingu inn
í draumaheima - og líka gleymsku
- eins og sýnt er fram á í þessum
ljóðum. Það dreymir „svarta fegurð
himinsins" og sér jafnvel sjálft sig í
draumi (hvar annars staðar?) „eins
og mann sem stendur ógreinilegur í
tímanum og segist eiga landið“.
Og samt verður enginn skátd af
því að flýja manninn í sjálfum sér
og samfélaginu hvað sem öllum tál-
sýnum líður; þessi tvö verða að fylgj-
Jón Stefánsson
ast að þrátt fyrir sambúðarraunir.
Þess vegna er of einfalt og klisju-
kennt að segja eins og gert er í kafla
II: „ég þekki alltaf færri og færri
menn/ enda hef ég lengi haft á þeim
illan bifur.“ I bókinni er visst flæði
en stöku meitlaðri ljóð finnast í
bland, þetta knappa form sem tjáir
eina hugsun, eina kennd, og stendur
af sér allar tískur. Ljóðið um Jóhann
Siguq'ónsson og draumþyngsl þykja
mér góð og kallast raunar á í dálítið
rómantískri upphafningu sinni.
Það er víða kraftur í ljóðum Jóns
og líka húmor sem léttir alvöruna
undir niðri, gefur ævintýrinu byr
þrátt fyrir ágengni hversdagsleikans.
Ljóðin eru missterk en oftast
gripandi. Kannski vaknar spuming
um hnitmiðun; orð þurfa ekki síður
að vera vel valin í mælskum ljóðum
en knöppum. Orðin „vindsamur" og
„i!lorðaður“ fannst mér dálítið dular-
full. Aftur á móti „þungvot ský“
bæði myndrænt og skáldlegt. Annars
er ágætur heildarsvipur á bókinni.
Það hvílir ýmislegt á skáldinu þótt
það segist hafa „ekkert að segja“.
Enda ugglaust háð. Nema megi skilja
orðin þannig að skáldskapur nái ekki
lengur eyrum manna, enda hafi þeir
þá að fullu skilið á milli gleði sinnar
og sorgar. Að lokum þetta draum-
kennda ljóð sem er býsna vel gert:
Saga af manni
Dreymi stundum svarta fegurð himinsins og
logandi hendur sólarinnar að þurrka mann
hafið af yfirborði jarðar áður en dagurinn
lokast inní frostkaldri nótt
Dreymi stundum gepum ljóshvirfil
borgarinnar
himinn sem er dyr eða sjónhverfing ofar
tindóttum pllum sem smjúp gepum
þunpot
skýin og fugl að hverfa inní hnykluð
klettabeltin meðan biekfylling tímans færir
fjöllin til og líf mitt líður hjá eins og
tilvíljunarkennt handtak
Dreymi stundum mann sem stendur
ópeiniiepr
í tímanum og segist eiga landið
Kammersveit Reykjavíkur.
Schubert í Áskirkju
Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Kammersveit Reykjavíkur hélt
óvenjulega tónleika í Áskirkju sl.
laugardag, þar sem flutt var að-
eins eitt verk, Oktett, op. 166,
eftir Franz Schubert. Kammer-
sveit Reykjavíkur skipa Rut Ing-
ólfsdóttir, 1. fiðla, Paul Zukofsky,
2. fiðla, Sarah Buckley, lágfiðla,
Bryndís Gylfadóttir, celló, Richard
Korn, kontrabassa, Sigurður Ingi
Snorrason, klarinett, Rúnar Vil-
bergsson, fagott og Joseph Ogni-
bene, horn. -
Algengt er að bera oktettinn
og septett Bethovens, op. 20, sam-
an en sá samanburður nær aðeins
til kaflaskipunar, því innihald
verkanna er mjög ólíkt, þrátt fyr-
ir að heildarsvipur beggja beri
mjög glögg einkenni þeirrar
skemmtitónlistar, sem „díverti-
mento“ voru á tímum höfund-
anna. Léttleiki einkennir því
fyrstu þætti verksins, sérstaklega
skersóið, sem er glaðlegt og það
er ekki fyrr en í síðasta kaflanum
þar sem undiralda tilfinninganna
þyngist.
Það er eins og fyrri daginn, þar
sem Paul Zukofsky leggur hönd
að verki, vinna allir vel og svo
var einnig í þetta sinn og ekki
nóg með það, heldur náði hann
að hrífa samflytjendur með sér í
hrynskörpum, blæbrigðaríkum og
tilfínningaþrungnum leik, eins og
t.d. í inngangi síðasta kaflans og
ekki síst í sérkennilegum til-
brigðaþætti, sem sagnfræðingar
telja þó lakasta þátt verksins,
nema þá helst 6. tilbrigðið, þar
sem minna ber á „akróbatísku"
skrauti en í hinum tilbrigðunum.
Aðrir kaflar verksins voru ekki
síður vel leiknir og tónleikarnir í
heild mjög góðir og það eina sem
klaga má yfir er hversu sjaldan
gefur að heyra slík verk sem okt-
ettinn, því ekki vantar áhuga
hlustenda, ef mark er takandi á
aðsókn, en fullt hús var á tónleik-
unum.
Tónleikarnir voru helgaðir
minningu Péturs Þorvaldssonar,
cellóleikara, en hann var einn af
stofnendum Kammersveitar
Reykjavíkur. Pétur var traustur
og góður tónlistarmaður og er
mikill missir í slíkum manni, á
besta starfsaldri, þá menn fara
að njóta þess að hafa unnið vel.
itarar
itarar
ítarar
ítarar
ítarar
ítarar
ítarar
ítarar
itarax"
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
prentarar
| | i
Tölvuprentarar í úrvali!
VICTOR, MANNESMANN TALLY og fl, gerðír
Verð frá kr, 19.800,- stgr.
EinarJ. Skúlasonhf.
Grensásvegi 10, sími 686933