Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989
57
VELAAKANDI
SVARiR í SÍMA
691282KL. 10-12
FRÁ NÁNUDEGI
TIL FCSTUDAGS
„ H vexb e.r 'eg.. -48 ? þetter i' fyrsto.
skipti sem ieJC efiir Þi/Í oÍS hnén
á mér ðnúcL. öfugt l"
Hávaði á skemmtistöðum
Til Velvakanda.
Ástæða mín til þessara skrifa
er sú að nýlega fór ég á ball. Þeg-
ar inn á ballið var komið var eins
og maður rækist á vegg. Hávaðinn
var slíkur að undirritaður hefur
sjaldan kynnst öðru eins. Ungir
jafnt sem aldnir fara á skemmti-
staði til að sjást, hittast og tala
saman, en hávaðinn gerir þá
ánægju að engu. Fjöldi fólks heftir
beðið plötusnúðana að lækka í
tækjunum, en þeir hafa ekki hlust-
að á það.
Mjög algengt er að plötusnúðar
séu ungir að árum. Mér sýnist
þeirra helsta regla vera að spila
tónlistina sem hæst, en leiði hug-
ann ekki að því, að ef þeir fara
yfir vissan hljóðstyrkleika þá valdi
þeir skaða á heyminni, sem ekki
er bætanlegur nema með heymar-
tækjum (sem tveggja mánaða bið
er eftir nú í dag). Svo ég tali nú
ekki um fólk sem sækir skemmti-
staði um hveija helgi. Slíkt fólk er
í mikilli hættu.
Ætla stjómendur skemmtistaða
að segja mér að þeir geti fylgst
með ungu kynslóðinni verða að
heymleysingjum án þess að hafa
samviskubit. Ef svo er þá ætti fólk
sem fer út að skemmta sér að
hugsa sig tvisvar um áður en það
heimsækir þann skemmtistað.
Nú þarf fólk, ungir sem aldnir,
að láta í sér heyra og rísa upp og
mótmæla þessu áður en það er um
seinan.
Tvítugur dansunnandi
Þessir hringdu .. .
Ákeyrsla
Ekið var aftaná Hondu kl. 7 að
morgni hinn 22. nóvember við
Sunnubraut 46 í Keflavík. Var það
rauður bíll sem tjóninu olli en öku-
maðurinn ók hið snarasta á brott
Sjónarvottar em vinsamlegast
beðnir að gefa sig fram við lög-
reglu eða hringja í síma 92-11189
og 92-2141.
Þakkir
Vistfólk á Dalbraut 27 hafði
samband og vildi koma eftirfarandi
pistli á framfæri.
Við viljum þakka lögreglunni í
Reykjavík innilega fyrir ánægju-
stundir sem þið veittuð okkur mið-
vikudaginn 29. nóvember. Þá
heimsótti lögreglan þjónustuíbúðir
aldraðra, sýndi fræðslumynd, bauð
í bíltúr um bæinn og að lokum var
vistfólkinu boðið í kaffi á lögreglu-
stöðinni. Þökkum fyrir alúðlega
framkomu. Með kæmm kveðjum
og blessunar óskum.
Gullhringnr
Gullhringur með plötu, sem
merkt er með stafnum „0“, tapað-
ist á leið frá Borgarspítala að
Hlemmi eða þaðan á leið í Skeif-
una og í Furagerði. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 680447.
Lyklakippa
Lyklakippa með silfurbúnum
mánasteinum með einum Subam
bíllykli tapaðist hinn 22. nóvember
í námunda við Hlemm eða á leið
niður Laugaveg. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í síma
605500.
Víkverji
Víkveija lízt illa á þær hugmynd-
ir, sem fram hafa komið að
breyta áhorfendasal Þjóðleikhúss-
ins. Þessi salur er einstaklega fal-
legur og hefur yfír sér klassískt
svipmót. Þjóðin hefur sótt. sýningar
í þessu húsi í fjóra áratugi og líkað
vel. Það er ýmislegt að í Þjóðleik-
húsinu en það er ekki þessum sal
að kenna.
I mörgum nágrannalöndum okk-
ar eru gamlar byggingar, þar sem
bæði em rekin leikhús og óperu-
hús. Engum hefur dottið í hug að
breyta áhorfendasölum þessara
húsa, þótt þau séu mörg hver frá
síðustu öld. Engum hefur t.d. kom-
ið til hugar að breyta áhorfendasöl-
um Vínarópemnnar, Scalaóperunn-
ar eða Parísaróperunnar, þótt færa
megi rök að því, að þeim væri
hægt að koma í nútímalegra horf.
Þessi ópemhús, sem hér em nefnd
em hluti af menningararfleifð þess-
ara þjóða, sem þær vilja varðveita.
Þjóðleikhúsið og þá ekki sízt
áhorfendasalur þess er orðinn hluti
af menningararfleifð okkar íslend-
inga. Það er óskiljanlegt, að nokkr-
skrifar
um skuli detta í hug að breyta þess-
um kjama hússins, þótt vafalaust
megi bæta aðstöðu starfsmanna að
tjaldabaki. Margir aðilar utan Þjóð-
leikhússins hafa látið í Ijósi efasemd-
ir um þessar fyrirætlanir. Hvað
veldur því, að menn bindast ekki
samtökum um að vemda Þjóðleik-
húsið og áhorfendasal þess gegn
þeim skemmdarverkum, sem þar
era fyrirhuguð? Hvar er nú Arki-
tektafélag Islands? Hvar era nú hin-
ir svonefhdu “menningarvitar“? Og
hvar er nú Alþingi Islendinga?
Ætlar það að leggja til fjármuni i
þessa vitleysu?
xxx
Garðar Cortes er orðinn mjög
sterkur óperasöngvari. Hann
hefur bersýnilega mágnazt mjög í
list sinni á nokkmm árum. Þetta
kemur berlega í ljós á sýningu ís-
lenzku óperannar á Toscu, sem
staðið heftir að undanfömu. Garðar
ber þessa sýningu uppi af glæsibrag
og er ánægjulegt að sjá þennan
mikla athafnamann á menningar-
sviðinu ná svona miklum árangii á
sviði óperunnar.
xxx
Markaðsmál hafa verið töluvert
i sviðsljósinu síðustu vikur í
tilefiii af veitingu sérstakra mark-
aðsverðlauna. Af því tilefni var orð
á því haft við Víkveija, að við íslend-
ingar hefðum ekki sýnt nægilega
ræktarsemi minningu þeirra manna,
sem unnu þrekvirki í markaðsmál-
um okkar, þegar við vomm að ná
fótfestu á Bandaríkjamarkaði fyrir
mörgum áratugum með útflutningi
á frystum físki þangað.
Þar var fremstur i flokki Jón
Gunnarsson, þáverandi forystumað-
ur Sölumiðstöðvar hraðfrystihú-
sanna, sem var einn helzti fram-
heiji á þessu sviði. Það er alveg
rétt hjá viðmælanda Víkveija, að
það á að halda á lofti verkum þeiira
framheija, sem lögðu, með ótrúleg-
um árangri í markaðsmálum,
gmndvöllinn að þeim lífskjömm,
sem þjóðin býr við í dag.
Ást er ...
... aðgefa honum með
sér.
TM Rea U.S. Pat OH.—ail rig.Tts reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Sérðu ekki maður, þín er
beðið?
Ekki í skólann? Ertu vit-
laus. Eg er hér með nestis-
bitann, dreiigur!
HÖGNI HREKKVÍSI