Morgunblaðið - 13.12.1989, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
7
Söltun er
að ljúka
SÖLTUN síldar er nú að ljúka.
Á mánudagskvöld hafði verið
saltað í 225.000 tunnur af haus-
skorinni og slógdreginni síld,
en það svarar til um 35.000
tonna upp úr sjó. Ólokið er sölt-
un í um 10.000 tunnur sé allt
meðtalið, slök og stórsíld.
Nóg hefur verið af smærri
síldinni út af Hornafirði, en þá
stærri hefur skort.
Síðustu daga hefur fengizt reit-
ingur af stórsíld við Fáskrúðsfjörð
og Berufjörð.
Þijú frystiskip hafa tekið mikið
af þeirri síld, en það eru togarinn
Siglfirðingur, loðnuskipið Jón
Finnsson og fjölveiðiskipið Stafnes
KE.
Mest hefur verið saltað í
Grindavík, 31.900 tunnur á mánu-
dagskvöld. Eskfirðingar höfðu þá
saltað í 30.600 og Hornfirðingar
í 29.500 tunnur.
Borgaryfir-
völd mót-
mæla sölu á
Hótel Borg
„BORGARRÁÐ samþykkti á
sínum tíma að andmæla
kaupum Alþingis á Hótel
Borg og þau andmæli verða
ítrekuð,“ sagði Davíð Odds-
son borgarstjóri, en forsetar
Alþingis hafa á ný, lagt fram
tillögu um að húsnæðisvand-
ræði Alþingis verði leyst
með kaupum á Hótel Borg.
„Borgin vill endilega að
þetta verði hótel en ef að það
gengur ekki þá er svo sem
ekki mikið sem borgin getur
gert,“ sagði Davíð.
„Við teljum það mikilvægt
fyrir miðbæjarmyndina að
þarna verði hótel en það er
vitanlega erfitt að halda áfram
hótelrekstrinum eftir að ríkið
hefur gert eigendunum þetta
gylliboð."
Rannsókn-
um á lífríki
Mývatns
verði hraðað
Á almennum félagsfundi í Veiði-
félagi Laxár, sem nýlega var
haldinn að Ydölum, var sam-
þykkt ályktun þar sem því er
eindregið beint til menntamála-
ráðherra að hann láti hraða
rannsóknum á lífríki Mývatns
svo sem unnt er. Fundarmenn
benda á að með tilkomu rann-
sóknarstöðvarinnar við Mývatn
hafi verið framfylgt sérstakri
rannsóknaráætlun umhverfís
Mývatn og á því, en þeim þykir
skorta á að Laxá frá upptökum
til ósa sé tekinn inn í þá áætlun.
í ályktun fundarins er bent á
að dregist hafi úr hömlu að niður-
stöður úr téðum rannsóknum
lægju fyrir.
Fundarmenn óttast að örlag-
aríkar breytingar eigi sér nú stað
í hinu sérstæða lífríki Laxár og
Mývatns, og brýnt sé að þær séu
raktar til róta svo ljóst verði hvað
valdi þeim.
Orðrétt segir í ályktuninni: „Að
fengnum þeim niðurstöðum mætti
vonandi snúa hinum sýnilegu
breytingum við áður en allt er um
seinan. Þær niðurstöður mundu
og trúlega binda endi á rangsnúna
umræðu um þessi mál og þagga
niður í röddum sjálfskipaðra spá-
manna, sem okkur þykir illt við
að búa.“
Mi
■
arieyi
65.0'7
Vboö'0
sér"
Fjólbreytt landslag, gott veður allan.
arsins hring, vinsamlegir íbúar og
vel uppbyggð ferðamannaþjónusta
'wm
verslun
fyrir alla þá sem vilja stytta skamm-
degið og hvíla sig á hryssingslegri
vetrartíð, skemmta sér og snæða
fjölbreyttan mat, lita hörundið, spila
golf og eiga góða daga á „Hamingju-
eyjunni". íslenskir fararstjórar á
Kanaríeyjum eru Auður og Rebekka.
BEINT DAGFLUG:
. 8/1 . 29/1 . 12/3 . 2/4 . 16/4
Feróaskrifstofurnar og
FLUGLEIDIR
Sími 690300