Morgunblaðið - 13.12.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
17
Orlagasaga. Eins og nafnið bendir til er hér á ferð
saga um örlög ungs manns, samferðamanns Hann-
csar Hafstein o.fl., sem lést aðeins 26 ára gamall
á voveiflegan hátt. Hann hét Gísli Guðmundsson
og var ættaður vir Húnavatnssýslu, greindur og
vel gefinn, góður námsmaður og hvers manns
hugljúfi. Það kann enginn skýringu á dauða hans.
Þorsteinn Antonsson reynir að varpa Ijósi á líf
hans og dauða með mögnuðu ívafi samtíðarat-
burða Gísla.
Islendingatilvera - byrðin og brosið. Það er ekki
fyrir hvern sem er að vera Islendingur og lifa það
af. Þaðan af síður að viðurkenna það. í þessari bók
fer hinn kunni penni á slíkum kostum, að menn
ættu vart að ná af sér brosinu yfir hátíðirnar sem
í annan tíma. Bókin, sem þú skalt hafa með þér í
boðið, ferðalagið, rúmið eða hvert sem er.
Aulabandalagið. Ég þori ekki að kalla þetta gaman-
sögu, sem hún óneitanlega er. Hún er miklu meira
en það. Hún er gleöileikur í anda Falstaff. En hún
er líka grátleg. Þó er ekki ljóst hvað veldur þeirri
sorg.
Ástandið - mannlífsþættir frá hernámsárunum. Frá-
sögn af einum forvitnilegasta þætti hernámsins.
Hvað breyttist við hernámið? Var Bretavinnan upp-
haf vinnusvika á íslandi? Höfðu þúsund íslenskra
kvenna of náin samskipti við hermenn? Voru vændis-
hús í Reykjavík? Hvaða sögu segja ástandskonumar
sjálfar? Bókin geymir svör við þessum spurningum
og mörgum öðrum i lifandi frásögn.
SÍMI621720
FORLAGSVERSLUN
Á HORNIÞINGHOLTSSTRÆTIS
BANKASTRÆTIS
Davíð - Nýtt á íslandi. Höfundur fer í saumana
á lífi og ferli Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, að
honum forspurðum. Hvaðan kemur þessi maður,
hvert er erindi hans, hvert er hann kominn og
hvert ætlar hann? Þessum og mörgum fleiri spurn-
ingum svarar höfundur eftir ítarlega úttckt meðal
með- og mótherja.
Þetta er frásögn umtalaðrar konu, Hallbjargar, sem
hefur ekki látið neitt uppskátt um líf sitt utan
sviðsljósanna fyrr en nú. Þetta er saga um gleði
og sorg, átök og öfund. Þetta er frásögn fjölhæfrar
listakonu, sem var og er einstök í sinni röð.
-0XÓGENES
it -puNNSGNN
——-—1
Díógcnes (tunnunni. Þessi bók kynnir ungum les-
endum undur og ævintýri gamalla goðsagna og
fræga viðburói veraldarsögunnar. Hér má lesa um
mannætuskrímsli, konung mcð asnaeyru, risa, sem
ber himininn á herðum sér, turn, sem náði langlcið-
ina til himins - og fleira æsilegt. Við sögu koma
stórmenni á borð við Galilei, Newton og Napóleon
mikla. Sögurnar eru sagðar i léttum og liprum tón
og af þeim má draga ýmsa holla lærdóma.
Gullfoss - lífið um borð. Gullfoss var skip gleðinn-
ar. Þar lifðu menn í vellystingum, skemmtu sér
eftir mætti - gáfu sig ævintýrunum á vald. Þar
gerðust ótrúlegir atburðir - jafnvel yfirskilvitlegir.
I bókinni segja þjóðkunnir og lítt þekktir fslend-
ingar frá kynnum sínum af þessu flaggskipi
íslenska flotans. Og fara á kostum.