Morgunblaðið - 13.12.1989, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 13.12.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989 17 Orlagasaga. Eins og nafnið bendir til er hér á ferð saga um örlög ungs manns, samferðamanns Hann- csar Hafstein o.fl., sem lést aðeins 26 ára gamall á voveiflegan hátt. Hann hét Gísli Guðmundsson og var ættaður vir Húnavatnssýslu, greindur og vel gefinn, góður námsmaður og hvers manns hugljúfi. Það kann enginn skýringu á dauða hans. Þorsteinn Antonsson reynir að varpa Ijósi á líf hans og dauða með mögnuðu ívafi samtíðarat- burða Gísla. Islendingatilvera - byrðin og brosið. Það er ekki fyrir hvern sem er að vera Islendingur og lifa það af. Þaðan af síður að viðurkenna það. í þessari bók fer hinn kunni penni á slíkum kostum, að menn ættu vart að ná af sér brosinu yfir hátíðirnar sem í annan tíma. Bókin, sem þú skalt hafa með þér í boðið, ferðalagið, rúmið eða hvert sem er. Aulabandalagið. Ég þori ekki að kalla þetta gaman- sögu, sem hún óneitanlega er. Hún er miklu meira en það. Hún er gleöileikur í anda Falstaff. En hún er líka grátleg. Þó er ekki ljóst hvað veldur þeirri sorg. Ástandið - mannlífsþættir frá hernámsárunum. Frá- sögn af einum forvitnilegasta þætti hernámsins. Hvað breyttist við hernámið? Var Bretavinnan upp- haf vinnusvika á íslandi? Höfðu þúsund íslenskra kvenna of náin samskipti við hermenn? Voru vændis- hús í Reykjavík? Hvaða sögu segja ástandskonumar sjálfar? Bókin geymir svör við þessum spurningum og mörgum öðrum i lifandi frásögn. SÍMI621720 FORLAGSVERSLUN Á HORNIÞINGHOLTSSTRÆTIS BANKASTRÆTIS Davíð - Nýtt á íslandi. Höfundur fer í saumana á lífi og ferli Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, að honum forspurðum. Hvaðan kemur þessi maður, hvert er erindi hans, hvert er hann kominn og hvert ætlar hann? Þessum og mörgum fleiri spurn- ingum svarar höfundur eftir ítarlega úttckt meðal með- og mótherja. Þetta er frásögn umtalaðrar konu, Hallbjargar, sem hefur ekki látið neitt uppskátt um líf sitt utan sviðsljósanna fyrr en nú. Þetta er saga um gleði og sorg, átök og öfund. Þetta er frásögn fjölhæfrar listakonu, sem var og er einstök í sinni röð. -0XÓGENES it -puNNSGNN ——-—1 Díógcnes (tunnunni. Þessi bók kynnir ungum les- endum undur og ævintýri gamalla goðsagna og fræga viðburói veraldarsögunnar. Hér má lesa um mannætuskrímsli, konung mcð asnaeyru, risa, sem ber himininn á herðum sér, turn, sem náði langlcið- ina til himins - og fleira æsilegt. Við sögu koma stórmenni á borð við Galilei, Newton og Napóleon mikla. Sögurnar eru sagðar i léttum og liprum tón og af þeim má draga ýmsa holla lærdóma. Gullfoss - lífið um borð. Gullfoss var skip gleðinn- ar. Þar lifðu menn í vellystingum, skemmtu sér eftir mætti - gáfu sig ævintýrunum á vald. Þar gerðust ótrúlegir atburðir - jafnvel yfirskilvitlegir. I bókinni segja þjóðkunnir og lítt þekktir fslend- ingar frá kynnum sínum af þessu flaggskipi íslenska flotans. Og fara á kostum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.