Morgunblaðið - 13.12.1989, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
49
Mary Lou Retton þá og nú.
unum og fengið umyrðalaust
þriggja ára leyfi til að starfa erlend-
is og lengur til ef hugur þeirra
girndist. Af Leonid er það að frétta,
að hann hamast við að slá í gegn
í poppinu fyrir vestan tjald.
Retton, eða „litli kroppur" eins
og þjálfari hennar um árið kallaði
hana hefur einnig haft ýmislegt
fyrir stafni. Hún hefur á hálfu
fjórða ári síðan hún hætti að keppa,
þénað milljónir fyrir auglýsinga-
mennsku og fyrirlestrahald. Hún
hefur einnig lokið háskólanámi og
er langt komin með framhalsdnám
í markaðs- og kynningarfræðum.
Brúðakaup er á döfinni með vorinu.
Brúðguminn er fyrrverandi knatt-
leiksmaður, tröll að vexti og sterk-
ur, en Retton er með afbrigðum smá
og létt. w
Þær stöllur, Retton og Korbut,
þekktust ekkert fyrir umrædda sýn-
ingarferð. En þær áttu samt sem
áður margt sameiginlegt. Barn-
æska þeirra beggja fór fyrir lítið,
báðar voru teknar í þjálfun þegar
sem börn og þær voru sem vélar
er þær kepptu í íþrótt sinni. Síðan
hefur margt breyst, en engu að
síður áttu þær eitt enn sameigin-
legt, þrána að koma aftur fram og
sýna íþrótt sína.
DÝRAVERND
Brigitte Bardot mátti láta
gelda asna nágrannans
_____________N_____
EINSTÖKBÓK UM MATREIÐSLUI
ÖRBYLGJUOFNI
Franska kvikmyndastjarnan og
forðum kynbomban Brigitte
Bardot hefur helgað líf sitt barát-
tunni fyrir réttindum dýra undan-
farin ár og meðal annars látið
mynda sig með (uppstoppaða) sel-
kópa til að hvetja til banns við kópa-
drápi eins og mörgum er kunnugt.
Bardot er nú komin á sextugsaldur-
inn og hefur árum saman búið i
smábænum St. Tropez á Miðjarðar-
hafsströnd Frakklands. í síðasta
mánuði höfðaði nágranni hennar,
Jean-Pierre Manivet, mál á hendur
Bardot sem hafði látið gelda asna
Manivets að honum og vafalaust
einnig asnanum fornspurðum. Sjálf
á stjarnan ösnu nokkra, forkunnar-
fagra ásýndum, sem vekur óskiptan
áhuga þeira asna sem enn halda
fullum þrótti og óskertum fýsnum.
Asni Manivets reyndi sumsé að
fleka heimasætuna á bæ Bardot.
Stjaman fyrrverandi greip því til
róttækra ráða og Manivet heimtaði
skaðabætur, 24.500 franka eða um
250 þúsund krónur, fyrir hönd asn-
ans sem ber ekki sitt barr lengur.
Dómstóll í St. Tropez hefur nú
kveðið upp þann úrskurð að Mani-
vet skuli sjálfur greiða Bardot
20.000 franka eða rúmlega 200
þúsund krónur í miskabætur fýrir
að reyna að spjalla ösnuna hreinu.
í yfirlýsingu réttarins var Bardot
hælt fyrir dýraverndaráhugann og
Manivet víttur fyrir að „reyna að
kasta rýrð á leikkonuna og málstað-
inn sem hún hefur tekið upp á arma
sína.“ Bardot var ekki viðstödd þeg-
ar úrskurður var kveðinn upp.
Brigitte Bardot á fjölda dýra og hér sést hún með eitt eftirlætið í
fanginu.
Fyrsta útgáfa bókarinnar er
uppseld, önnur prentun er komin í
bókaverslanir og hjá flestum ör-
bylgjuofnaseljendum um allt land.
Bókin er handhæg og auðveld í
notkun.
Nauðsynleg handbók fyrir
alla örbylgjuofna eigendur
sími 91-75444
KARLAMANNAFÖT
Nýir litir, ný snið. Verð kr. 9.900,-
Terylenebuxur, stærðir uppí 128 cm.
Verð kr. 1.995,- til 2.480,-
Sokkar og bindi. Skyrtur, stærðir 39-46.
Úlpur, blússur, peysur, hattar og húfur.
Mikið úrval, gott verð.
Andrés, Skólavörðustíg 22a, s. 18250.
Armbandið sem hefur hvarvetna í Evrópu vakið mikla athygli
er nú fáanlegt á íslandi.
Mondial armbandið er áhrifamikið skart,
fyrir plús- og mínusorku líkamans
Tvær milljónir Evrópubúa nota nú MONDIAL daglega.
NÝSTÁRLEG
VERSLUN
beuRMip
Laugavegi 66,
sími: (91)62 33 36.
Pöntunarsíminn er 626265
Virkni MONDIAL armbandsins felst í pólunum sem eru hlaðnir
6 millivolta spennu, sem talið er að hafi áhrif á plús- og mínus-
orku líkamans í átt til jafnvægis og eykur þannig vellíðan. Fjöldi
fólks hérlendis og erlendis lofar áhrif þess.
Armbandið erfallegt skart bæði fyrir konur og karla. MONDIAL
erframleitt íþremurútlitsgerðum: ífyrsta lagi silfurhúðað, í
öðru lagi silfurhúðað með 18k gullhúðuðum póium og í þriðja
lagi með 18kgullhúð.
MONDIAL armbandið fæst í fimm stærðum: XS/13-14 sm um-
mál, S/15-16sm, M/17-18sm, L/19-20 sm ogXL/21-22 sm.
Taktu eftir málunum sem auðvelda þér að panta réttu stærðina.
Þú tekur enga áhættu með kaupum á MONDIAL gegn póst-
kröfu, því við veitum sjö daga skilafrest fyrir þá sem kaupa
MONDIAL ARMBANDIÐ óséð. Sértu ekki í nágrenni við okkur,
getur þú pantað MONDIALarmbandið í síma (91) 62 62 65 og
viðsendumþérþaðumhæl. -
TILVAUN JÓLAGJÖF!
FÆST ADEINS
HJÁ OKKUR!