Morgunblaðið - 14.12.1989, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1989
9
Vissir þú
að spariskírteini
ríkissjóðs
eru ekki alltaf
eignarskattsfrj áls?
Eigir þú spariskírteini ríkissjóðs
greiðir eignarskatt en skuldar
jafnframt eitthvað,
þá er einungis sá hluti
spariskírteinanna, sem er
umfram skuldir þínar,
eignarskattsfrjáls.
Dæmi:
Hjón nokkur eiga íbúð, bíl og
spariskírteini ríkissjóðs upp á
Þar af eru spariskírteini upp á 1,0 millj. kr.
Þau skulda
Byggingarsjóði ríkisins
Hrein eign þeirra er því -
Skattleysismörk hjóna í ár verða líklega
Eignarskattur reiknast því af
10,0 millj. kr.
1.5 millj. kr.
8.5 millj. kr.
5,8 millj. kr.
2,7 millj. kr.
Væru spariskírteini ríkissjóds alltaf eignar-
skattsfrjáls, ætti því að draga 1 milljón króna
spariskírteinaeignina frá, þannig að eignar-
skattur yrði reiknaður af 1,7 milljón kr. í stað
2,7 milljón kr.
En til þess að svo sé unnt, þá mega hjónin
ekki skulda neitt. Þar sem skuldirnar eru
hærri en spariskírteinaeignin,
ÞÁ ERU SPARISKÍRTEININ ÞEIRRA
EKKIEIGNARSKATTSFRJÁLS,
HELDUR REIKNAST FULLUR
SKATTUR Á ÞAU.
Allar upplýsingar um eignarskatt gefa
ráðgjafar K\ÚPÞíNGS HF. í síma 68 90 80.
Sölugengi verðbréfa
14. desember 1989
EININGABRÉF 1........4.486
EININGABRÉF 2........2.470
EININGABRÉF 3........2.956
LÍFEYRISBRÉF.........2.255
SKAMMTÍMABRÉF .......1.533
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, 103 Reykjavík, sítni 91-689080
Bókaverðlaun
og breyttirtímar
I Staksteinum í dag er staldrað við tvö mál.
Annars vegar er vitnað í breska vikuritið The
Economist og frétt þess um furðulegan at-
burð, þegar bókaverðlaunum var úthlutað í
New York. Þa er vitnað í grein eftir Ingemar
Dörfer í Svenska Dagbladet um viðbrögð
sænskra menningarmanna við því sem er að
gerast í Austur-Evrópu. Hvort tveggja er
umhugsunarefni fyrir okkur hér á þessum
síðustu verðlauna- og umbrotatímum.
Lasekki
bækurnar
í The Economist, sem
dagsettur er 9. desem-
ber, er bent á, að í Nati-
onal Book Awards í
Bandaríkjunum felist
mesti heiður, sem rithöf-
undum þar sé sýndur,
auk þess sem verðlaunin
séu hin leiðinlegustu sem
um geti. Um árabil hafí
verið brýn þörf fyrir op-
inbert rifrildi til að vekja
áhuga almennings á
verðlaununum. Nú hafi
loksins verið stofiiað til
þess.
Robert Heilbroner,
sem var formaður dóm-
nefndarinnar, sem valdi
bókina From Beirut to
Jerusalem eftir Thomas
Friedman til verðlauna
að þessu siimi sem besta
heimildaverkið, mátti
þola hróp og köll þegar
hami játaði það hrein-
skilnislega í ræðu þegar
verðlaunin vom afhent í
New York 29. nóvember
sl., að hann hefði lesið
fæstar af bókunum 190,
sem voru tilnefndar til
verðlaunanna. Benjamin
DeMott, formaður dóm-
nefiidarinnar sem fjallaði
um skáldverk, kynti
verulega undir þegar
liann flutti ræðu sína.
Hami tók sérstaklega
fram, að í sinni nefiid
hefðu menn lesið hverja
einustu þeirra 138 bóka
sem tilnefiidar vom ofan
í kjöliim, áður en þeir
ákváðu að veita John
Casey verðlaunin fyrir
bókina Spartina, sem
snýst um fiskisjómann á
Nýja-Englandi og bát
hans.
Heilbroner, sem hefúr
ritað 15 bækur, þ.á m.
metsölubókina The
Wordiy Philosophers,
segist ekkert hafa orðið
var við öll þessi læti.
Honum sé hvort eð er
alveg sama um þau.
Hann sé alls ekki latur.
Hami hafi eytt að
mhmsta kosti 10 mínút-
um í að fletta í gegnum
hveija bók, litið á fyrstu
og siðustu síðuniar,
kápukynningu og efiiis-
yfirlit, áður en hann ein-
beitti sér að þeim 20 til
30 bókum, sem haim og
liinir dómnefiidarmenn-
imir Qórir töldu mestu
skipta.
Hami segir, að þetta
hafi verið mjög kiefj-
andi. „Ég vann myrkr-
anna á milli,“ bætir haim
við. Hins vegar myndi
hann aldrei taka að sér
aftur að vera i slíkri dóm-
nefiid. Það væri næstum
ógerlegt að meta ævisög-
ur til jafns við ferðabæk-
ur og sagnfræði og benda
siðan á besta höfundinn.
Heilbroner fær ekki mik-
ið fyrir sinn snúð, aðeins
125.000 krónur fyrir
dómarastörfín og þann
skattaafslátt sem haim
fær fyrir að gefa bækum-
ar 190 til almennings-
bókasafhs. Verðlaunaha-
famir fengu hvor um sig
620.000 krónur. Það em
hins vegar hreinir smá-
munir í samanburði við
31 milljónar króna verð-
launin, sem Ted Tumer,
eigandi CNN og fleiri
sjónvarpsstöðva, hefur
boðið. Hvemig geta
menn unnið til þeirra?
„Skrifið aðeins skáldsögu
sem stuðlar best að lausn
heimsvandamála, og
gætið þess vandlega að
fyrstu og síðustu blað-
síðumar séu góðar,“ seg-
ir The Economist að lok-
um.
Furðuleg við-
brögð
í Svíþjóð hafa vinstri-
sinnar leitast við að túlka
atburðina í Austur-Evr-
ópu á sérkennilegan hátt
eins Ingemar Dörfer, sér-
fræðingur í öryggismál-
um, reifar nýlega í grein
í Svenska Dagbladet
Hann segir, að Ame
Ruth hafi á menmngar-
síðu Dagens Nyheter
(DN) reynt að gefa les-
endum blaðsins vísbend-
ingu um, hvemig þeir
eigi að hugsa um at-
burðina fyrir austan tjald
og komist þannig að orði:
„Haustið 1983 gengu
nokkrar milljónir hug-
sjónamanna út á götur í
Haag, Róm og Frankfúrt
og annars staðar í vest-
rænum borgum og mót-
mæltu áætlunum um að
setja upp nýjar kjam-
orkuflaugar og stýri-
flaugar." Telur Ruth
þetta sambærilegt við
það, sem nú er að gerast
í Leipzig og Prag, þegar
fólkið rís upp gegn
sljómum kommúnista.
Dörfer bendir á, að Ruth
þegi um það, að stjómir
Vesturlanda hafi, þrátt
fyrir andmæli hugsjóna-
mannaima á götunum,
komið eldflaugunum fyr-
ir. Einmitt þess vegna
hafi verið samið um núll-
lausnina svonefiidu og
upprætingu allra meðal-
drægra eldflauga. Til
þess megi einnig rekja
að Gorbatsjov ákvað að
létta tökin á ríkjunum i
Austur-Evrópu.
I grein sinni gagnrýnir
Ingemar Dörfer einnig
þá, sem hann telur leggja
alltof inikla áherslu á
samstarfið iiman Frí-
verslunarbandalags Evr-
ópu (EFTA) i stað samt-
arfs Evrópubandalags-
rílyanna. Telur hami
EFTA gervi-verslunar-
samband, þar sem menn
eigi álíka mikið almennt
sameigúilegt og sjómað-
ur frá Islandi og banka-
stjóri í Ziirich. Og hann
segir:
„A meðan danska
ríkisstjómin fjallar stöð-
ugt um breytingar í Evr-
ópu, í NATO og EB, í
Vínarviðræðunum um
fækkun vei\julegs herafla
(CFE) og trúnaðarsam-
tölum um START-við-
ræðumar, er Svíum vísað
til Sameinuðu þjóðanna,
EFTA, Norðurlandaráðs
og Alþjóðasambands sós-
íalista. Þá er ekki auð-
velt að fylgjast með þvi
sem er að gerast.“
Þannig dcila menn í
Svíþjóð á sama tima og
því er haldið að okkur,
að lieimurinn snúist um
„frumkvæði" Islands um
afvopnun á höfunum,
sem ekki er á dagskrá
ncma i ræðum Gorb-
atsjovs. En að sögn
Washington Post telja
ýmsir bandarískir emb-
ættismenn, að þetta sé í
þeim ræðum vegna þess
að Gorbatsjov vilji mark-
visst æsa talsmenn af-
vopnunar á höfunum inn-
an NATO upp, svo að
þeir knýi fram breytingu
á afstöðu Bæularíkja-
sljómar. Og í New York
Times segir: „Iceland has
been the most aggressive
member of this camp“,
Islcndingar liafii verið
fi-ekastir í flokki þeirra,
sem vilja að Bandarikja-
menn breyti um stefnu
að skapi Gorbatsjovs.
SIEMENS
Litlu raftœkin frá SIEMENS gleðja
augað og eru afbragðs jólagjafir!
Ikaffivélar
hrærivélar
brauðristar
vöfflujárn
strokjárn
|| handþeytarar
eggjaseyðar
djúpsteikingarpottar
hraðsuðukönnur
dósahnífar
áleggshnífar
kornkvarnir
,yaclette“-tæki
veggklukkur
vekjararklukkur
rakatæki
bílryksugur
handryksugur
blástursofnar
hitapúðar
hitateppi o.m.fl.
Lítiö inn til okkar og skoöiö vönduð tœki.
Munið umboösmenn okkar víös vegar um landið!