Morgunblaðið - 14.12.1989, Blaðsíða 69
Ö9
ELLI KERLING
Vinsæl þrítug - óvinsæl sextug?
Þessi föngulega kona heitir
Linda Lusardi og síðustu árin
hefur hún sýnt meira og minna
beran kroppinn á blaðsíðu þijú
bresku síðdegisblaðanna. Aragrúi
Breta þekkir hana á götu, hún
getur vart snúið sér við án þess
að einhver beri kennsl á hana og
vilji ræða málin, bera henni bónorð
eða hreppa eiginhandaráritun.
Fyrir skömmu tók hún þátt i léttu
sprelli, leyfði einum snjallasta
förðunarmeistara Breta, Cristop-
her Tucker, að farða sig. Bókstaf-
lega breyta sér í sextuga konu.
Síðan rölti hún um götur Lundúna
daglangt og kannaði viðbrögð
fólks.
„Jafnvel góðvinir mínir þekktu
mig ekki og reyndu að eyða talinu
er ég yrti á þá. Leigubílstjóri einn
stjakaði mér út úr bíl sínum með
þeim orðum að hann mætti ekki
vera að því að aka mér. Og fleira
mætti telja. Ef fólk gaf mér á
annað borð gaum þá var það helst
til þess að koma einhveiju nei-
kvæðu á framfæri. Ekki hlakka
ég til að eldast eftir þessa
reynslu," sagði þokkadísin er hún
var búin að sópa framan úr sér
farðanum.
á
\\
£
Jj m
6 ■ m/ ;; M
kT w/ ^
ttf;
f'AíSS^br
q ’i . -Æ
(í 'W il..
w
***
SHMit
i,.
Hin þrítuga Linda og hin sextuga Linda. 30 ár eru langur tími á
mannsævi.
in
Norðmtmnsþinur er jóla-
tréð sem ekki fellir bnrrið.
Shakira sýnir sitthvað af fram-
leiðslu sinni.
SKARTGRIPIR
Shakira
Cain slær
í gegn
Shakira Cain, hin 41 árs gamla
eiginkona leikarans Michael Ca-
in hefur nú haslað sér völl sem eftir-
sóttur hönnuður tískuskartgripa. Það
eru tvö ár síðan hún kynnti fyrstu
„línuna“ sína og eftirspurnin hefur
vaxið jafnt og þétt. Shakira er ættuð
frá Guyana. Þegar hún skoðaði list-
munasýningu í New York fyrir þrem-
ur árum, þar sem indverskir munir
voru til sýnis, hreifst hún mjög. „Það
var og er í tísku að skartgripir séu
þjóðlegir og áberandi, ég vildi þv! slá
til og reyna þetta,“ segir Shakira.
í fyrstu voru skartgripir Shakiru
einungis til sýnis og sölu í Harrods
í Lundúnum, en nú hefur hróður
hennar borist víða og sölustaðir eru
ýmsir og má nefna Bergdorf/Good-
man og Nieman/Mareus. Gripimir
eru handunnir í Jaipur á Indlandi og
verkstjóri þar er Sunita Pitamber,
gömul vinkona Shakiru.
Sjálf þykir Shakira Cain afar
glæsileg og geðþekk kona. Michael
Cain sá hana fyrir tilviljun í sjón-
varpsauglýsingu árið 1971 og heill-
aðist svo gersamlega að hann eirði
hvergi fyrr en hann hafði haft upp
á henni. Þá fór hann að stíga í væng-
in við hana með þeim árangri að þau
eiga nú að baki 16 ára farsælt hjóna-
band. Cain segir leit sína að Shakiru
um árið hafa verið það markverðasta
og snjallasta sem hann hafi gert í
lífinu. Rithöfundurinn Jacki Collins
er ein besta vinkona Shakiru. Hún
segir um hina fyrrum ungfrú Guy-
ana, að glæsileiki hennar hafi ekkert
með ríkidæmi hennar að gera, glæsi-
leikinn sé allur frá hjartanu kominn.
Hún búi yfir ótrúlegri hugar- og
sálarró, áorki fádæma miklu án þess
að af henni gusti. Og hún sé eins
mikill vinur vina sinna og hægt er
að láta sig dreyma um. „Svo kann
hún alltaf allar helstu kjaftasögurn-
ar“, bætir ungfrú Collins við.
Landsbyggðnþjénustn
Sendum jólatré hvert ó
land sem er.
Jólatrén okkar eru
óvenjufalleg í ór.
Komió í jólaskóginn og
veljió jólatré vió bestu
aóstæöur.
Sjón er sögu ríkari. Ævintýraheimur fyrir börn á öllum aldri.
Opiö ffrá kl. 9-22 til jóla