Morgunblaðið - 14.12.1989, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DÉSEMBER 1989
JÖNASSON
9 §1*
BRUÐAN
HANS
Skemmtileg saga fyrir/ fíORdÞÓRS
alla fjölskylduna /Jsr
BRÚÐAN HANS BORGÞÓRS
eftir útvarpsmanninn vinsæla
Jónas Jónasson
Hlýleg kímni einkennir þessa
hugljúfu sögu um Borgþór
smið, ólínu konu hans,
brúðuna Hafþór skipstjóra,
Heiðu litlu, borgarstjóra-
hjónin Jörund og Kolfinnu
og fleiri íbúa í Ljúfalandi.
Fallegar myndir Sigrúnar
Eldjárns falla einkar vel að
sögunni.
VALGA.RÐ
d
L.DUR
AFNHI
UNGLINGAR í
F R U M SKÓ GI
eftir Hrafnhildi Val-
garðsdóttir er sjálf-
stætt framhald verð-
launa- og metsölu-
bókarinnar LEÐUR-
JAKKAR OG SPARI-
SKÓR.- Hvað hefur
_________gerst hjá Lúlla, og
hvaö er hann aö
braska? Hvernig tekur
Nína því? Var Tóta
rænt eða fór hann vilj-
ugur á vit ævintýra? Af
hverju réð Gerður sig
sem ráðskonu í sveit?
Hvernig bregst Örn
við? Hverjar eru
Sonja, Linja og Elísa?
Hver velur hvern? -
Spurningunum er
svarað í spennandi og
fjörlegri frásögn - í
bráðskemmtilegri bók.
{ÆSKANj
L E ÐTrRJ A K KAR«OG«SPARISKÓR»
Baksvipur alvörunnar
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Jón Örn Marinósson: IS-
LENDINGATILVERA. 211 bls.
Tákn. 1989.
Grafalvarlegur hefur Jón Örn
Marinósson flutt pistla sína í ríkis-
fjölmiðlunum. Enginn hlær. Til
þess er ekki heldur ætlast. Þetta
er ekkert grín, engir ódýrir brand-
arar, heldur húmor, ósvikinn íronía
(íslenskan á ekki orð yfir þess
háttar). Og það er allt annar hand-
leggur. Pistlar Jóns hafa notið vin-
sælda að verðleikum. Jón er maður
orðheppinn. Og hann hefur jafnan
brugðið fyrir sjónir þeirri rang-
hverfu alvörunnar sem við þykj-
umst öll vita að sé til en sumum
gengur erfiðlega að koma auga
á, og enn færri koma orðum að.
En það hefur Jóni tekist með
ágætum þótt langorður sé. Best
hafa pistlar hans notið sin í sjón-
varpi þar sem alvörusvipur manns-
ins skapar hið rétta mótvægi við
málefnið sem kafnar þá í skrúðm-
iklum málalengingum eins og vera
ber þar sem vandamál samfélags-
ins eru brotin til mergjar frá svona
sérstæðu sjónarhomi. Til þess
voru refarnir skornir; auðvitað.
Nú hefur fjölmiðlatnaðurinn
gerst rithöfundur, sendir frá sér
stóra bók með miklum texta og
er enn við sama heygarðshornið,
enn að skyggna afstæða spegil-
mynd avörunnar. Og nú, þegar
unnt er að rýna í textann, blasir
enn við sjónum sú orðgnótt og
líkingasjóður sem Jón Örn leggur
í stíl sinn og löngum hefur komið
hlustendum til að leggja lúður við
eyra.
En að lesa þetta allt í einu er
langt um of stór skammtur af svo
Jón Örn Marinósson
góðu. Endurtekningin er versti
óvinur skaupsins; málalengingar
harðasti andstæðingur kímninnar.
Þar að auki er sumt af þessu tengt
dægurmálum sem sannarlega em
fljót að gleymast.
Ef til vill ætlast höfundur til
að þetta sé lesið í smáskömmtum
því þættirnir em settir upp eins
og kaflar í húslestrabók. En jafn-
vel þó því heilræði væri fylgt er
eins vant eftir sem áður: Það er
rödd og svipbrigði höfundar, per-
sóna hans að baki orðunum. Hvor-
ugt megnar hinn dauði bókstafur
að kalla fram í hugskoti lesan-
dans. Þetta verður því eins og
hver önnur langloka; kannski byij-
ar maður að brosa — samanber
orðin á titilsíðu: »byrðin og brosið«
— en endar- á að geispa. Sannast
hér sem oft áður að sams konar
stíll hæfirekki jafnt ræðu og riti.
Sprengingin okkar
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Höfundur: Jon Michelet
Þýðandi: Kristján Jóhann Jóns-
son
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Útgefandi: Iðunn
Þessi bók er gefin út með styrk
frá Norræna þýðingarsjóðnum.
Það var því með eftirvæntingu að
ég tók mér hana í hönd, hér hlaut
að vera mikið í borið. Víst er um
það. Við emm leidd að spegli,
boðið að horfast í augu við okkur
sjálf, þar sem við sjáum mannkyn
dunda við verk, sem kristin sam-
vizka segir, við vitum af, en teljum
fyrir utan okkar eigið heimahlað.
Já, höfundur er óvæginn, leiðir
okkur inná iðutorg svo sálin tekur
að loga.
Hvít fjölskylda er staðsett í
Zambíu. Um iðutorgið leika logar
vítis. Gróa á Leiti er þar á för;
fégræðgin, sem ógnar lífríki jarð-
ar, líka; hrokagikkir valds og auðs
þrælka og mergsjúga meðbræður
sína; skoðanafangar eru á flótta,
fyrir þeim setið, sprengjum ætlað
að tæta fólk, börn og fullorðna,
saklaust fólk á altari hins glmga,
óseðjandi guðs hrokans og heimsk-
unnar.
Jon' Michelet
Höfundur segir þessa sögu lista-
vel, á kíminn, léttan hátt breytir
hann harmi í spennandi sögu, en
eldur logar undir.
Þýðandinn færir söguna í sann-
kölluð spariklæði. Honum var
vandi á höndum, því að það er
erfitt að færa hjartslátt milli þjóða.
Hann lagði sig fram og vann því
frábært verk.
Útgáfan hefir í engu til sparað,
hér er vandvirknin, eins og hún
verður bezt. Þessi bók væri sann-
arlega grundvöllur menntandi
umræðna í kennslustofum. Hafi
allir, er að stóðu, heila þökk fyrir.
BLEKKING ER BEITTASTA \OF\ID
ÖLL ÖKUTÆKIN VERDA AÐ TVEIMUR
OG STJÓRNENDUR ÞEIRRA EIGA TÖLVUTVÍFARA
TÓmSTUnDflHÚSIÐ •: ;
Laugavegi 164-ReyKjavík-S: 21901 .