Morgunblaðið - 14.12.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.12.1989, Blaðsíða 43
SlÖlÍGUNKI-AÐfÐ FlMMTUDÁGUá* í 4. ijÉSÉMBER 108^ 43 Umhverfisráðuneyti íyrir þinghlé: Annað keinur ekki til greina - segir Júlíus Sólnes JÚLÍUS Sólnes ráðherra Hag- stofu íslands telur það ekki koma til greina að fresta gildistöku laga um nýtt umhverfisráðuneyti fram yfir þinghlé. Telur hann eðlilegt að þing komi saman í byrjun jan- úar ef þörf þykir til að ganga frá því frumvarpi fyrir þinghlé. Frumvörp ríkisstjórnarinpar um sérstakt umhverfismálaráðuneyti eru enn til fyrstu umræðu hjá neðri deild Alþingis. Áætlað var í gær- kvöldi að klára þá umræðu og senda málið til nefndar og annarrar um- ræðu. Sjálfstæðismenn telja útilok- að að frumvarpið verði að lögum fyrir þinghlé; enn eigi eftir að eiga sér stað tímafrek vinna í nefnd fyrri deildar og þar verði til kallaðir ýmsir aðilar að gefa álit. í samtali við Morgunblaðið sagði Júlíus Sól- nes að óþarflega miklar tafir hefðu orðið á frumvarpinu í meðferð neðri deildar. Frumvarpið hefur verið sjö sinnum á dagskrá en aðeins fjórum sinnum tekið til umræðu. Sjálfstæð- ismenn hafa jafnan krafist þess að Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðherra, og hann væru viðstaddir umræðuna. Júlíus kvað ákveðna mótsögn felast í því að sjálfstæðis- menn krefðust nærveru sinnar; á sama tíma gagnrýndu þeir harka- lega hvernig hann væri titlaður á erlendum vettvangi og að ríkis- stjórnin hefði falið honum verkefni á sviði umhverfismála. Um þá fullyrðingu að sjálfstæðis- menn stæðu fyrir málþófi í þessu máli sagði Júlíus að hann vildi ekki fullyrða að svo væri. Það væri hefð- Fjárveitinganefiid enn að störfum Frumvarpið fer nú í framhalds- athugun í fjárveitinganefnd, sem enn á eftir að fjalla um nokkra stóra útgjaldapósta og væntanlega einnig endurskoðun á tekjuhlið frumvarps- ins, sem fjármálaráðherra hefur boðað. Nefndin á einnig eftir að fara ofan í sauma á 6. grein frumvarps- ins, sem fjallar um fjölda útgjalda- heimilda til ráðherra og ríkisstjórn- ar. Stjórnarliðar skjalda firumvarpið Fjárlagafrumvarpið er í sex höf- uðgreinum. Fyrsta greinin, sem tíundar rekstrarreikning og lána- hreyfingar, var samþykkt með 33 atkvæðum, 25 þingmenn sátu hjá en 5 vóru fjarverandi. Það vekur athygli að 30 þingmenn af 63 sitja hjá eða eru fjarverandi við atkvæða- grejðsluna. Önnur greinin, sem tíundar út- gjöld ráðuneyta, og þriðja greinin, sem rekur tekjuáætlun ríkissjóðs, vóru samþykktar með 32 samhljóða atkvæðum. Þá komu til atkvæða fyrrnefndar 180 breytingartillögur bundið að stjórnarandstaða tæki sér tíma til að ræða um mál sem hún væri alfarið á móti. Hann hefði sjálf- ur verið í svipaðri aðstöðu þegar lög um fiskveiðistjórnun hefði á sínum tíma verið til umræðu; það mál hefði þurft að afgreiða eftir hátíðir. Júlíus kvaðst ekki geta sagt til um það að hvort af afgreiðslu frum- varpa um umhverfisráðuneyti yrði fyrir jólahlé. Aðspurður um það hvort aðrir stjórnarliðar teldu það í lagi að fresta málinu fram yf ir þing- hlé sagðist Júlíus telja það af og frá; málið væri á forgangslista ríkis- stjórnarinnar. Ef ekki tækist að klára máiið fyrir hátíðir ætti hik- laust að klára málið fyrstu dagana í janúar áður en þinghlé hæfist. FJÁRMÁLARÁÐHERRA telur góðar líkur á því að lífeyrissjóð- irnir muni í lok ársins festa kaup fjárveitinganefndar við fjórðu grein frumvarpsins, sem fela í sér u.þ.b. l. 200 m.kr. útgjaldaauka. Þær vóru samþykktar með 32 og upp í 37 atkvæði. Fimmta greinin (B-hluta- fyrirtæki) og 6. greinin (margs kon- ar heimildarákvæði til fjármálaráð- herra og ríkisstjórnar) vóru sam- þykktar með 35 atkvæðum. Sparað í grunnskólum Nafnakall fór fram um þær breyt- ingartillögur fjárveitinganefndar (34. tilllögu til og með 41.) sem fjalla um nokkra lækkun útgjalda til grunnskóla. Já sögðu 37 þing- menn, nei 8 (þingmenn Kvenna- lista), 15 sátu hjá, 3 fjarverandi. Guðrún Agnarsdóttur (SK-Rv) sagði það skoðun kvenna að sparn- aður væri dyggð, en meginmáli skipti að framkvæmd hans væri hyggileg og sanngjörn. Mótatkvæði hér væru táknræn mótmæli gegn þeirri sparnaðarleið ríkisstjórnar- innar sem-hér væri farin. Nýtt ráðuneyti í burðarliðnum? Fjárveiting til nýs ráðuneytis, umhverfisráðuneytis, tæpar 23 m. kr., fór einnig í nafnakall. Já sögðu 35 þingmenn stjórnarliða, nei sögðu 20 þingmenn Sjálfstæðis- Júlíus kvað það algerlega óviðun- andi fyrir ríkisstjórnina ef ekki tæ- kist að afgreiða frumvarpið fyrir þinghlé. ítrekaði hann að þetta hefði ekkert með sína ráðherranafnbót að gera, því sjálfur kvartaði hann ekki, þar sem hann hefði meira en nóg að gera í umhverfismáium, sem og við mótun atvinnustefnu. Hann lét þess einnig getið að hann hefði með höndum endurskipulagningu stjórnarráðsins fyrir hönd ríkis- stjómarinnar og væri von á frum- varpi í næstu viku. Þar verður með- al annars lagt til að fækka ráðuneyt- um úr 13 í 11. Fyrirhugað er að sameina viðskiptaráðuneyti og iðn- aðarráðuneyti og áformað er að ieggja niður félagsmálaráðuneytið með því að flytja verkefni þess til þriggja annarra ráðuneyta. Sam- gönguráðuneyti mun samkvæmt á spariskírteinum ríkissjóðs fyrir um einn milljarð króna. Þetta kom fram í umræðu í neðri deild flokks, hjá sátu 6 þingmenn Kvennalista og 2 þingmenn vóru fjarverandi. Sty rkur til blaðaútgáfu Nafnakall fór fram um liðinn „Styrkir til blaðaútgáfu samkvæmt tillögum stjórnskipaðrar nefndar", 61,8 m.kr. Tillagan var samþykkt með 35 atkvæðum stjórnarþing- manna, gegn 20 atkvæðum þing- manna Sjálfstæðisflokks, 6 þing- menn Kvennalista sátu hjá. Halldór Blöndal (S-Ne) vitnaði til sparnaðarhvatningar fjármála- ráðherra og taldi fara vel á því að skera niður styrki til flokksblaða eins og Alþýðublaðs, Tímans og Þjóðviljans. Kaup á dagblöðum fyrir ríkisstofiiauir Nafnakall var og viðhaft um héimild til handa fjármálaráðherra, þess efnis, „að kaupa dagblöð fyrir stofnanir ríkisins, allt að 250 eintök af hverju blaði umfram það sem veitt er til blaðanna í 4. gr. frum- varpsins". Tillagan var samþykkt með 36 atkvæðum gegn 19, sex sátu hjá, 2 fjarverandi. Eyjólfur Konráð Jónsson (S- Rv) greiddi atkvæði með tillögunni, enda væri eitt að kaupa dagblöð fyrir t.d. sjúkrastofnanir, annað að styrkja blöðin með skattpeningum fólks. Aðrir þingmenn Sjálfstæðis- flokks greiddu atkvæði gegn kaup- unum. Geir H. Haarde (S-Rv) sagði sjálfsagt að ríkisstofnanir keyptu blöð eftir mati stjórnenda, innan rekstrarrammaþeirra, en sérheimild á fjárlögum ætti ekki að koma til. þessum tillögum heita „byggða- og samgönguráðuneyti“, en undir það munu heyra byggðamál, samgöngu- mál og sveitarstjórnarmál. Um gagnrýni þá sem fram hefur komið í þingi á hvernig titil Júlíus hefur hlotið erlendis, sagði hann að þegar því væri iýst að hann hefði með höndum umhverfismál fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, væri því hlutverki umsvifalaust af útlending- um breytt í umhverfisráðherra. Sagði Júlíus að erfitt væri að skýra það út fyrir útlendingum að til þyrfti sérstaka lagasetningu að stofna ráðuneyti, enda væri það svo í flestum löndum að stofnun nýrra ráðuneyta væri nánast ákveðin í stjórnarmyndunarviðræðum. Júlíus vildi þó alls ekki mæla gegn því fyrirkomulagi sem hér væri á þess- um málum því með þessu móti veitti og með þessu myndi aðeins vanta 400 milljónir króna á áætlaða lánsfjáröflun með sölu spariskír- teina. Enn vantar um 600 milljón- ir á áætlaða sölu ríkisvíxla. Onnur umræða um frumvarp til lánsfjárlaga fór fram í neðri deild Alþingis í gær. Páll Pétursson (F/Nv) formaður fjárhags- og við- skiptanefndar mælti fyrir áliti meiri- hluta nefndarinnar, þar sem lagt er til að frumvarpið verði sam- þykkt. Páll gat þess að fram væri komin breytingartillaga frá fjár- málaráðherra þar sem heimiluð væri 250 milljóna lántaka vegna Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Átaldi Páll það hversu seint tillagan væri fram komin. Friðrik Sophusson (S/Rv) mælti fyrir minnihlutaáliti sínu og Matt- híasar Bjarnasonar (S/Vf). Taka þeir ekki afstöðu til frumvarpsins að öðru leyti en því að stuðla að afgreiðslu þess sem fyrst þannig að Byggðastofnun geti nýtt þá 350 milljóna lánsheimild sem í því felist, enda sé frumvarpið einungis viður- kenning á gífurlegum hailarekstri ríkissjóðs. I minnihlutaálitinu er vakin sérstök athygli á minnisblaði frá Halldóri Árnasyni, starfsmanni fjárlaga- og hagsýslustofnunar um lánsfjárþörf og lánsfjáröflun ríkis- sjóðs á yfirstandandi ári. Um innlenda lánsfjárþörf ríkis- sjóðs segir Halldór að hún sé talin vera 11,3 milljarðar á árinu og hafi það ekki breyst nema að því er varð- ar lántöku Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hann bendir hins veg- ar á að ekki liggi ljóst fyrir hversu áætlaðar greiðsluskuldbindingar ríkissjóðs muni hækka mikið í með- förum fjárveitinganefndar. Nánari upplýsingar um lánsfjárþörf ríkis- sjóðs muni koma fram við aðra umræðu um fjáraukalögin. Varðandi lánsfjáröflunina bendir Halldór á að samkvæmt frumvarpi til breytinga á lánsfjárlögum fyrir árið 1989 sé gert ráð fyrir því að brúa lánsfjárþörfina með eftirfar- andi hætti: Sala á spariskírteinum — 6 milljarð- ar. Sala á ríkisvíxlum — 3,8 milljarðar. Önnur lántaka — 1,5 milljarðar. Greinir Halldór frá því að heildar- sala spariskírteina ríkissjóðs þann 6. desember síðastliðinn sé um 4,6 milljarðar. Þann sama dag nam heildarinnlausn eldri skírteina 4,1 milljarði króna. Segir hann erfitt að spá fyrir um heildarsölu um ára- Júlíus Sólnes löggjafinn ákveðið aðhald á aukin umsvif stjórnvalda og þenslu ráðu- neyta. mót og lætur þess getið að lífeyris- sjóðunum hafi verið boðið til kaups spariskírteini fyrir um einn milljarð króna. Nettósala ríkisvíxla var mið- að við 7. desember 3,2 milljarðar króna. Síðan segir Halldór: „Ljóst er að erfitt verður að ná fram þeim áformum um innlenda lánsfjáröflun sem nefnd eru að ofan. Það sem upp á kann að vanta verður fjár- magnað með yfirdrætti hjá Seðla- banka íslands. Samkvæmt lögum um Seðlabanka ber ríkissjóði að gerá upp yfirdráttarskuld sína við bankann eigi síðar en í marslok árið eftir. Miðað við áform ríkissjóðs um innlenda lánsfjáröflun á næsta ári er líklegt að yfirdráttarskuld við Seðiabankann verði gerð upp með erlendri lántöku." í tilefni af þessu bréfi lagði Frið- rik þá fyrirspurn fyrir ráðherra hverjar horfur væru á sölu spari- skírteina til lífeyrissjóðanna fyrir einn milljarð. Þórhildur Þorleifsdóttir (SK/Rv) taldi frumvarpið bera vott um ónákvæmni og vanmat í fjár- málastjórn. „Við kvennalistakonur viljum ekki bera ábyrgð á svo ótraustu reikningshaldi," sagði Þór- hildur, „þess vegna sitjum við hjá.“ Olafúr Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, taldi frumvarpið sýna að fyrir hendi væri í dag traust- ur innlendur lánsfjármarkaður, en að sjálfsögðu væri ekki unnt að segja nákvæmlega fyrir um láns- fjáröflunina. Um kaup lífeyrissjóð- anna á spariskírteinum ríkissjóðs sagði Ólafur að sjóðimir myndu meta það á næstu dögum og kanna hvort einhver betri kjör byðust. „Það er trú mín að lífeyrissjóðirnir muni kaupa í lok ársins," sagði ráðherra. Leiðrétting Á ÞINGSÍÐU blaðsins föstudaginn 8. desember var ranglega vitnað til orða hæstvirts dómsmálaráðherra, Óla Þ. Guðbjartssonar. Höfð voru eftir honum þau ummæli að það væri Alþingis að ákveða um hugs- anlega málshöfðun á hendur öðrum handhöfum forsetavalds en forset- um Hæstaréttar vegna áfengis- kaupa á sérkjörum. Þessi ummæli voru í handriti að ræðu ráðherra, sem blaðamaður hafði undir hönd- um, en komu aldrei fram í þing- ræðu. Morgunblaðið biður dóms- málaráðherra velvirðingar á mis- tökunum. Fjárlagafrumvarp 1990: Útgjöld liækka um 1.200 milljónir Þriðja umræða 19. desember Eitt hundrað og áttatíu breytingartillögur fjárveitinganefndar við sljórnarfrumvarp til fjárlaga 1990 vóru samþykktar í sameinuðu þingi í gær, að lokinni annarri fjárlagaumræðu. Þær fela í sér tæplega 1.200 m.kr. hækkun ríkisútgjalda og samsvarandi vöxt fjárlagahall- ans. Fimm breytingartillögur Samtaka um kvennalista koma til at- kvæða við þriðju umræðu, sem fram fer 19. desember nk., skv. starfsáætlun þingsins. Spariskírteini ríkissjóðs: Líkur á eins milljarðs kaupum lífeyrissjóðanna - segir fjármálaráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.