Morgunblaðið - 14.12.1989, Blaðsíða 37
MORGUNB^ADjD, FIMMTUpAGyfi ljr ,DE$EMftER,1989
UTFAR ARPJONUSTA
OG LIKKISTUSMIÐI I
LÍKKISTUVINNUSTOFA
fcYVIN D/A R ítiÆ
ÁRNASONAK
**•’’
Bannað að tala við
bátafólkið eftir
komuna til Hanoi
„Þarf nokkra daga til að jafina sig,“
segir víetnamskur embættismaður
Hong Kong. Reuter.
FRÉTTAMÖNNUM var í gær bannað að hitta flóttafólkið sem sent
var nauðugt viljugt frá Hong Kong til Hanoi, höfiiðborgar Víetnams,
á þriðjudag. Var fréttamönnum sagt að það þyrfti að fá tíma til að
jafna sig í nokkra daga í Soc San-móttökubúðunum áður en það
gæti rætt við fjölmiðla. Nghiem Xuan Tuc, aðstoðarforstöðumaður
atvinnu- og félagsmálaráðuneytis Víetnams, sagði í gær að ekki
kæmi til mála að Víetnamarnir, 51 að tölu, sem sendir voru heim á
þriðjudag, yrðu látnir sæta refsingu. „Þau gerðu mistök með því að
halda að þau væru að fara á vit fyrirheitna landsins. Svo reyndist
ekki. Þau verða að læra að leggja hart að sér hvar sem þau koma,“
sagði Tuc.
Yfirvöld í bresku nýlendunni
Hong Kong áforma að flytja hóp
af Víetnömum nauðugan til heima-
lands síns í næstu viku til viðbótar
við þá sem farið var með á þriðju-
daginn. Sú ráðstöfun, sem gripið
var til í samráði við bresku stjórn-
ina, hefur vakið sterk viðbrögð og
mótmæli víða um heim.
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, hét því á þriðjudag að
ekki yrðu fleiri Víetnamar fluttir á
brott með valdi fyrr en breska þing-
ið hefði rætt málið og verður það
tekið fyrir n.k. þriðjudag. Háttsett-
ur breskur embættismaður í Hong
Kong sagði í ga^r að þegar hefði
verið tekin ákvörðun um að flytja
innan við 100 Víetnama frá flótta-
mannabúðum í Hong Kong til Hanoi
í næstu viku og yrði það gert eftir
umræðurnar í breska þinginu. Væri
búið að leigja flugvél til þess arna
frá flugfélaginu Cathay Pacific
Tristar. Það er yfirlýst stefna yfir-
valda í Hong Kong að senda alla
Vietnama heim sem ekki geta sýnt
fram á að þeir hafi flúið ofsóknir.
Starfsmenn í flóttamannabúðum í
Hong Kong segja að þar hafi verið
valdir 1.800 Víetnamar sem álitið
er að hafi flúið í von um meiri efna-
leg gæði og verði hluti þeirra send-
ur heim.
Efasemdir hafa verið uppi um
að Bretar hafi gengið nógu vel frá
samningum við Víetnama um að
vel verði farið með bátafólkið þegar
það kemur heim. Leonard Davis,
félagsfræðingur sem býr í Hong
Kong og fylgist náið fneð afdrifum
bátafólksins, segir að breska sendi-
ráðið í Hanoi, sé í engri aðstöðu til
að fylgjast með fólkinu þegar það
kemur heim eins og því hefur verið
falið að gera.
Yfirmaður Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna hefur ekki
stutt aðgerðir Breta en á hans veg-
um hafa 630 Víetnamar snúið heim
frá Hong Kong af fúsum og fijáls-
um vilja.
Um það bil 50.000 víetnamskir
flóttamenn hafa flust til Vestur-
landa og ríkja Suðaustur-Asíu á
þessu ári. I Hong Kong eru um það
bil 56.000 Víetnamar i flótta-
mannabúðum. A ráðstefnu um
bátafólkið í Genf í júní síðastliðnum
hétu vestræn ríki því að taka við
fleiri Víetnömum en hingað til.
Einnig var samþykkt að allir þeir
sem komu til Hong Kong fyrir 1.
mars á þessu ári fengju aðstoð við
að leita nýrra heimkynna en þeir
sem síðar kæmu þyrftu fyrst að
sannfæra yfirvöld um að þeir hefðu
sætt ofsóknum heima fyrir.
p rvTr it, ■-
* ■ -
Reuter
Tvö þúsund Víetnamar í Hei Ling Chau-búðunum í Hong Kong efndu
til mótmæla í gær vegna þess að yfir þeim vofa nauðungarflutning-
ar til Hanoi.
Enska heitid ..six-pack" er halt uin n.yjar dreifinrjar-
umhuðir fyrir Coke jiar sem sex einingar eru hafdar
saman i einni gakkningu. I/erksmidjan Vifilfeil hf. eg
Hagkaup efna nu til hugmyndasamkeppn; þar sem
leitad er eftir íslensku ordi eða ordasambandi i
stadinn fyrir „six-pack ". I boði eru glæsileg verdlaun:
Fyrstu verdlaun eru Arctic Cat Prowler velsledi fra
Bifreidum og Landbunadarvelum að verðmæti
kr. 600.000: önnur verðlaun eru skiði- og skiða-
litbunaður fra Sportvali og þriðiu verðlaun eru 50
Coke iþrottagallar og 50 Coke-iþrottatöskur.
Bækiingur með nánari upplysingum um tilliögun
keppninnar liggur frammi i verslunum Hagkaups i
Kringlunni, / Skeifunni, / Kjörgarði við Laugaveg. við
Eiðistorg á Seltjarnarnesi. a Akureyri og í Njarðvik.
í bæklingnum er einnig að finna þrjár spurniugar, sem
þatttakendur eiga að svara. og þar er auður reitur
undir tillögu þeirra að islensku urði eða orðasambandi
fyrir ..six-pack“. Skilafresfur i hugmynda-
samkeppninni er til 6. januar 1990.
Úrslit verða birt í Morgunblaðinu 11. fcbrúar 1990.
jSSr