Morgunblaðið - 14.12.1989, Blaðsíða 18
18
M0RÖUNBI.AD1D FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1989
Áróðursrit um
landhelg’isdeilur
_________Bækur____________
Björn Bjarnason
LANDHELGISMÁLIÐ - það
sem gerðist bak við tjöldin
Höfundur: Lúðvík Jósepsson.
Útgefandi: Mál og menning,
1989.
333 blaðsíður, ljósmyndir, kort.
Lúðvík Jósepsson var um árabil
í fremstu röð alþýðubandalags-
manna. Hann var kjörinn á Alþingi
1942 fyrir Sameiningarflokk alþýðu
— Sósíalistaflokkinn og var pólitískt
valdasetur hans á Neskaupstað, þar
sem kommúnistar hafa löngum haft
tögl og hagldir í bæjar- og atvinnu-
málum. Lúðvík sat á þingi til 1979.
Hann varð tvisvar ráðherra og
gegndi í bæði skiptin sömu embætt-
um, var sjávar- og viðskiptaráð-
herra í vinstri stjórnunum 1956 til
1958 og 1971 til 1974. Báðarhöfðu
þessar ríkisstjórnir á stefnuskrá
sinni að loka varnarstöðinni á
Keflavíkurflugvelli ep féllu frá þeim
áformum, svo sem kunnugt er. Þá
beittu þær sér fyrir útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar í 12 sjómílur 1.
september 1956 og 50 sjómílur 1.
september 1972. Var það Lúðvík
Jósepsson sem stóð að þessum út-
færslum sem sjávarútvegsráðherra.
Hefur hann nú ritað bók um þennan
þátt í stjórnmálastarfi sínu og ræð-
ir að auki um útfærslu landhelginn-
ar í 4 mílur 1952 og í 200 sjómílur
1975.
Mér finnst rangt að gefa lesanda
til kynna í bókarheiti, að Lúðvík
fjalli um það sem gerðist á bak við
tjöldin í þessum endurminningum
sínum. Ég varð hvergi var við neitt
sem byggðist á öðru en opnum
heimildum, fyrir utan örfá skipti
þegar Lúðvík segist vitna í punkta,
sem hann hefur skrifað hjá sér,
þegar atburðir voru að gerast. Því
miður vantar allt í bókina sem ger-
ir hana að ótvíræðri heimild um
annað en einkaskoðanir Lúðvíks.
Hvergi er getið heimilda með þeim
hætti að standist fræðilegar kröfur.
Höfundur gerir ekki minnstu tilraun
til að leyfa sjónarmiðum andstæð-
inga sinna að njóta sín, vitni hann
í þá er það yfirleitt gert í því skyni
að gera lítið úr skoðunum þeirra
eða sýna fram á að þeir hafi verið
með „undanslátt" en hann staðið
fast á rétti þjóðarinnar. Séu þeir
sammála Lúðvík eða orð þeirra
geta orðið honum með einum eða
öðrum hætti til framdráttar er ekki
hnýtt í þá.
Fyrir utan einstaka andstæðinga
sína í stjómmálum er honum sér-
staklega uppsigað við Morgunblað-
ið, einkum vegna deilnanna sem
urðu við útfærsluna í 50 mílur.
Þegar hann ræðir um blaðið er
ógjörningur að átta sig á því, hvort
hann er að gagnrýna það fyrir að
segja fréttir af atburðum, sem hon-
um þóttu óþægilegir, eða fyrir að
birta greinar eftir andstæðinga
hans eða fyrir skoðanir sem blaðið
hafði í ritstjórnardálkum sínum. Til
marks um þennan losarabrag á frá-
sögn Lúðvíks má vitna í þessi orð
hans í kafla sem heitir: Morgun-
blaðið-herðir sóknina gegn mér, og
snýst um skrif blaðsins eftir út-
færsluna í 50 sjómílur. Þar segir
Lúðvík: „Skrif Morgunblaðsins á
þessum tíma voru hreint ótrúleg
þar sem við áttum í alvarlegri
milliríkjadeilu. Morgunblaðið lét sig
hafa það í lok októbermánaðar,
þegar átökin við Breta stóðu sem
hæst að segja í einni ofsóknargrein
sinni um mig: „Lúðvík kreistir enn
einn auðmýkingardropann úr Olafi
Jóhannessyni forsætisráðherra. “
Ég var sá voðalegi og svarti mað-
ur, sem Morgunblaðið átti í stríði
við en ekki Bretar. Blaðið endurtók
dag eftir dag „að auðvelt væri að
ná samningum við Breta, aðeins ef
vilji væri fyrir hendi“ og allt átti
Jólahlað-
borð í
Skrúði og
Súlnasal
DAGANA fram til jóla verð-
ur framreitt jólahlaðborð í
veitingasalnum Skrúði á
Hótel Sögu í hádeginu og á
kvöldin. Boðið verður upp
á úrval rétta sem eru vin-
sælir um jólahátíðina. Má
þar nefna síldarrétti, hangi-
kjöt, grísasteik, ýmsa kalda
og heita kjötrétti auk hlað-
borðs girnilegra eftirrétta.
Feðgarnir Jónas Dag-
bjartsson og Jónas Þórir leika
jólatónlist í Skrúði öll kvöld
fram til jóla.
Laugardaginn 16. nóvem-
ber verður jólahlaðborð í
Súlnasal frá kl. 19. Á eftir
kvöldverði kemur Ómar
Ragnarsson og skemmtir
gestum, en síðan spilar hljóm-
sveitin Einsdæmi fyrir dansi
til kl. 3. Verð á kvöldverði og
skemmtuninni er kr. 1.900.
■ AÐ VENTU TÓNLEIKAR-
Kórskóli, sem starfað hefur undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur og
Estherar Helgu Pálmadóttur í
haust, heldur aðventutónleika í
Kópavogskirkju fimmtudaginn 14.
desember og Seljakirkju 15. desem-
ber. Báðir tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30. Á tónleikunum
kemur' einnig fram strengjasveit
undir stjórn Sigurbjarnar Bern-
harðssonar, svo og söngkonurnar
Elsa Waage og Esther Helga
Guðmundsdóttir. Stjórnendur tón-
leikanna verða Guðmundur Gils-
son og Margrét Pálmadóttir.
Kórskóli heldur aðventutónleika
í Kópavogskirkju og Seljakirkju
í Breiðholti.
■ KÓFAVOGUR- Kveikt verður
á jólatré við Kópavogskirkju sunnu-
daginn 17. desember klukkan 16.
Sendifulltrúi Svía kveikir á trénu
en það er gjöf frá bænum Norrköp-
ing í Svíþjóð, sem er vinabær Kópa-
vogs. Forseti bæjarstjórnar Kópa-
vogs flytur ávarp, skólahljómsveit
Kópavogs spilar, skólakórar syngja
og jólasveinn kemur> í heimsókn.
■ KÓPAVOGSKIRKJA- Tón-
listarskóli Kópavogs heldur jóla-
tónleika laugardaginn 16. desember
og hefjast þeir klukkan 14. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Jólatilboð
Húsasmiðjunnar
Peugeot borvél
kr. 5.653,-
Makita slípirokkur
kr. 12.950,-
Expressó kaítivél
kr. 5.963,
í verslun Húsasmiðjunnar fást nytsamar
jólagjafír við allra hæfí og á jólamarkaði
á 2. hæð er mikið úrval skrauts og
gjafavara. í Húsasmiðjunni fæst
einnig allur húsbúnaður og
heimUistæki, öll áhöld og efni
sem þarf til að fegra og prýða
heimilið fyrir jólin.
Kryddhilla.
kr. 2.804,-
,iífíAóaóml
Útvarp/kassettutæki
kr. 5.800,-
Piparkökuhús
kr. 717,-
SKÚTUVOG116 SÍMI 687700