Morgunblaðið - 14.12.1989, Page 12
Ol_________ P8(!f fiWm&m -l‘t H'JDAOÍJTMMri Qia^IBWiDffÓM
12 MÖRGUNBLAÐlÐ FlMMTUDAGUR' 137 UESEMBER raw----
Staðreyndin um vaxta-
hækkun húsnæðislána
eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
Þjóðinni eru gefnar villandi upp-
lýsingar um ákvörðun ríkisstjórnar-
innar um vaxtahækkun húsnæðis-
lána og margir kasta þar steinum
úr glerhúsi. Því er ástæða til að
draga fram staðreyndir málsins.
Ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar sl. vor
Alþingi fékk upplýsingar þegar
sl. vor um þá ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að vextir af húsnæðislánum
Byggingarsjóðs ríkisins myndu
hækka undir lok þessa árs.
Ríkisstjómin stefndi að því að
vaxtamunur af teknum lánum hjá
lífeyrissjóðnum og útlánum Bygg-
ingarsjóðs ríkisins yrði 0,5%-l%.
Þrátt fyrir 1% hækkun nú á lánum
Byggingarsjóðs ríkisins er vaxta-
mismunur 2-2'A% og greiðslur
vegna þess úr ríkissjóði á næsta
ári um 700 m.kr.
Jafnframt ákvað ríkisstjórnin þá
að vextir af þegar teknum lánum
myndu ekki hækka þegar vaxta-
hækkunin kæmi til framkvæmda.
Engin andmælti þeirri ákvörðun á
Alþingi sl. vor.
Raunvextir 2-3%
Vaxtahækkunina fær fólk með
brúttó heimilistekjur undir 160-170
þús. kr. bætta að fullu með vaxta-
bótum.
Óbreyttir vextir í almenna kerf-
inu hefði þýtt að áfram greiði ríkis-
sjóður á kostnað skattgreiðenda
niður jafn mikla vexti fyrir hálauna-
manninn og láglaunamanninn.
Vaxtabótakerfið er aftur á móti
jöfnunarkerfi til hagsbóta fyrir fólk
með lágar og miðlungstekjur en
raunvextir þeirra ef þeir nýta sér
húsbréfakerfið eru að jafnaði 2-3%.
Dæmi:
I.
Árstekjur fjölskyldu 1,5 m.kr.
Kaupir 6 m.kr. eign.
Fær húsbréf fyrir 4. m.kr.
Vaxtagjöld 260 þús. Vaxtabætur
170 þús.
Vaxtagjöld sem lántakandi greið-
ir, 90 þús.
Kaunvextir verða því 2,8%.
Fjöiskyldan fær vaxtabætur nán-
ast allan iánstímann eða í 25 ár.
II.
Árstekjur fjölskyldu 4 m.kr.
Kaupir 11 m.kr. eign.
Fær húsbréf fyrir 8. m.kr.
Vaxtagjöld 520 þús. Vaxtabætur
173 þús.
Vaxtagjöld sem lántakandi greið-
ir, 347 þús.
Raunvextir verða því 4,4%.
Vaxtabætur falia niður eftir 10
ár. Eftir það greiðast 6,75% raun-
vextir.
Staðreyndin er einnig sú að óeðli-
legt er að bera saman 3,5% vexti
í almenna húsnæðislánakerfinu og
5,75% í húsbréfakerfinu. í hús-
bréfakerfinu er lánað allt að 8
millj. vegna kaupa á eldri íbúðum
en í almenna kerfinu 2,9 millj, Stór-
an hluta kaupverðs þarf fólk að
brúa með dýrum skammtímalánum
í bönkum og lífeyrissjóðslánum með
7-9% vöxtum. Meðalvextir heildar-
skulda vegna húsnæðiskaupa und-
anfarin ár hafa því verið 6-7% en
ekki 3,5%.
Krafan um vaxtabætur
Um margt hafa umræðurnar á
Alþingi og utan þess verið sé^kenni-
legar í ljósi aðdraganda þessa máls.
MBM— --
HITASTILLT
MORATERM blöndunar-
tæki með sjálfvirkri hita-
stillingu og öryggis-
hnapp, sem takmarkar
hitastig við 38 C.
Mora sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást íbyggingavöruverslunum.
^ meiri ánægja^
Staðreyndin er sú að allt frá því
undirrituð settist í stól félagsmála-
ráðherra fyrir 2 /■> ári, bæði í ríkis-
stjórn Þorsteins Pálssonar og ríkis-
stjórn Steingríms Hermannssonar,
hafa sleitulaust komið fram kröfur
um að vextir yrðu hækkaðir af
húsnæðislánum.
Allan þennan tíma taldi ég rétt
að standa gegn því, þar til nýtt
húsnæðiskerfi yrði tekið upp með
nýju vaxtafyrirkomulagi (vaxtabót-
um) til að fólk með lágar og miðl-
ungstekjur þyrfti ekki að bera
vaxtahækkunina.
Nú er ákvörðunin gagnrýnd af
ýmsum sem talað hafa lengi fyrir
vaxtahækkun, og ábyrðinni varpað
á félagsmálaráðherra.^
Fullyrðingar um að ákvörðun
ríkisstjórnarinnar gangi gegn lög-
um er út í hött, og ber þeim lögfræð-
ingum sem um málið hafa fjallað
saman um það.
Opinbera sjálfir sína
eigin hræsni
Þeir sjálfstæðismenn og fram-
sóknarmenn sem nú gagnrýna
þessa ákvörðun, stóðu sjálfir 1984
að vaxtahækkun á húsnæðisláni
með nákvæmlega sama hætti og
nú er gert. Ákvörðun var tekin 12.
júlí 1984 um að vextir_ skyldu
hækka úr 2,25% í 3,5%. Átti hún
einnig að gilda um- þegar tekin lán
sem veitt voru 12 dögum áður eða
frá 1. júlí jafnvel þó þau skuldabréf
bæru ákvæði um 2,25% vexti. Þeir
sem höfðu skilað inn sínum gögnum
og biðu einungis útgreiðslu iánanna
þurftu einni að bera þessa vaxta-
hækkun. Samkvæmt lögfræðilegu
áiiti sem þá lá fyrir, var einnig
hægt að láta þessa ákvörðun gilda
á tekin lán frá 1980-1984. íhalds-
og framsóknarmenn sem nú gagn-
rýna þessa ákvörðun ríkisstjórnar-
innar og gera kröfu um að vaxta-
breytingin verði framkvæmd á öll
þegar tekin lán og vaxtaprósentan
verði þá eitthvað lægri, höfðu tæki-
færi tii að gera slíkt hið sama í
júií 1984, þegar þeir hækkuðu vexti
um ekki 1% eins og nú heldur
1,25%. Þeir gerðu það ekki. Hvar
var þá staðfestan um að eitt skyldi
yfir alla ganga? Nú er sambærileg
ákvörðun og þeir tóku 1984 kölluð
svívirðileg af þessum sömu mönn-
ÖRN OG Örlygur hafa gefið út
í fjórða skipti á íslensku fjöl-
fræðihandbókina Heimsmetabók
Guinness. Heimsmetabókin er
rúmar 400 blaðsíður og skiptist
í ellefu kafla sem bera heitin
Undur jarðar, Heimur og geim-
ur, Lífheimurinn, Vísindi og
tækni, Mannvirki, Samgöngur,
Heimur viðskiptanna, Afrek og
þrautir, Menning og listir, Lönd
og þjóðlíf og Iþróttir.
í bókina hefur verið bætt íslensku
efni, íslensk met og sérkenni en
Jóhanna Sigurðardóttir
„íhalds- og framsóknar-
menn sem nú gagnrýna
þessa ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar o g gera
kröfu um að vaxta-
breytingin verði fram-
kvæmd á öll þegar tek-
in lán og vaxtaprósent-
an verði þá eitthvað
lægri, höfðu tækifæri til
að gera slíkt hið sama
í júlí 1984, þegar þeir
hækkuðu vexti um ekki
1% eins og nú heldur
1,25%. Þeir gerðu það
ekki. Hvar var þá stað-
festan um að eitt skyldi
yfir alla ganga?“
um. Slík er hræsnin. Þeir segja eitt
og framkvæma annað.
Það hlýtur að vera athyglisvert
fyrir þann stóra hóp fólks sem tók
lán frát.d. 1. júlí 1984-8. desember
1989 að þeir sem nú gagnrýna ríkis-
stjórnina gera kröfur um að vaxta-
hækkun nú nái einnig til þeirra. ^
Ég skorast ekki undan að axla
ábyrgð og taka gagnrýni á mín
verk sem ráðherra, en mér er hrein-
lega farið að ofbjóða tvískinnungur-
inn sem settur er á svið í þessu
máli og mörgum öðrum til að villa
um fyrir fólki. En svona er víst
pólitík.
Höfundur er félagsmálaráðherra.
slíki efni var fellt niður úr síðustu
útgáfu sem kom út árið 1977. í
bókinni er fjöldi mynda bæði inn-
lendar og erlendar.
Ritstjóri Heimsmetabókar
Guinness í Bretlandi er Robert
McFarlan en ritstjóri íslensku út-
gáfunnar er Helgi Magnússon,
bókavörður. Ritstjóri íslenska efnis-
ins er séra Kristján Björnsson.
Heimsmetabók Guinness er
filmusett og umbrotin hjá Korpus
hf., en prentuð hjá Prentstofu G.
Benediktssonar. Arnarfell batt bók-
ina.
Þrjár nýjar frá Björk:
í heimsókn hjá Hönnu
Kötturinn Branda
Litla rauða hænan
komu allar út í haust í fyrsta sinn. Þær eru í bóka-
flokknum Skemmtilegu smábarnabækurnar, sem
eru hinar vinsælustu fyrir lítil börn er fyrirfinnast
á bókamarkaðinum, enda valdar og íslenskaðar
af hinum færustu skólamönnum og prentaðar í
mörgum litum. Nokkrar þeirra hafa komið út í
áratugi og eru þó alltaf sem nýjar.
Fást í öllum bókaverslunum og heita:
1. Bláa kannan 12. Leikföngin hans Bangsa
2. Græni hatturinn 13. Dísa litla
3. Benni og Bára 14. Dýrin og maturinn þeirra
4. Stubbur 15. Kalli segir frá
5. Tralli 16. Geiturnar þrjár
6. Stúfur 17. Gettu hver ég er
7. Láki 18. Dýrin á bænum
8. Bangsi litli 19. Tommi er stór strákur
9. Svarta kisa 20. Kötturinn Branda
10. Kata 21. í heimsókn hjá Hönnu
11. Skoppa 22. Litla rauða hænan
Falleoar - Vandaðar - ðdýrar
Aðrar bækur fyrir börn:
Husiö mitt, Mídas konungur,
Nýju fötin keisarans, Tóta tætubuska.
Bókaútgáfan Björk
Heimsmetabók Guinness
með íslensku viðbótarefiii
ovaðastaðahrossiIN
uppruni og saga
Qrundvallarrit um íslenska hrossarækt
ANDERS HANSEN
rekur ættir og sögu
þessa frábæra
hrossakyns.
Margir af kunnustu
stóðhestum landsins
fá sérstaka umfjöllun.
Ómissandi rit í
bókasafn hestamannsins
Antlers Haasen
SvADASfAMl
upfimnl og
ÍSAFOLD