Morgunblaðið - 14.12.1989, Síða 33
UNGLXNGAR GEGN
HLJÓMLEIKAR
LAUGARDALSHÖLL
FOS.l5.DES. KL. 2.2:00
MIOAVERÐ 1500 KR.
+ lamarnir
siðan skein sol
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA:
SKÍFAN ■ GEISLI • GRAMMIÐ
STFINAR AUSTURSTRÆTI 22
MOKGUNBLAEMÐ 'FhMMTUDAGUR' 1'4. 'I>ESEMBBÍU 1989'
Kammersveit Reykjavíkur á æfingu í Áskirkju.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Kammersveit Reykjavíkur:
Jólatónleikar í Askirkju
HINIR árlegu jólatónleikar
Kammersveitar _ Reykjavíkur
verða haldnir í Áskirkju næst-
komandi sunnudag, 17. desem-
ber, og heQast þeir kl. 17.
Á efnisskrá jólatónleikanna að
þessu sinni eru tvíleikskonsertar
fyrir blásturshljóðfæri frá barokk-
og klassíska tímanum: Konsert
fyrir tvö horn eftir A. Vivaldi,
konsert fyrir tvö fagott eftir J.
Wanhal, konsert fyrir tvær flautur
eftir J. J. Quantz og konsert eftir
fyrir tvö óbó eftir T. Albinoni.
Einleikarar verða: Joseph Ogni-
bene og Emil FViðfinnsson á horn,
Hafsteinn Guðmundsson og
Rúnar H. Vilbergsson á fagott,
Martial Nardeau og Guðrún S.
Birgisdóttir á flautur og Kristján
Þ. Stephensen og Daði Kolbeins-
son á óbó. Með í öllum verkunum
leikur 12 manna strengjasveit.
Þessi tónskáld vo.ru öll mjög
afkastamikil og fræg um Evrópu
á sínum tíma og liggur eftir þau
mikill fjöldi verka, þó Vivaldi sé
þeirra þekktastur er í dag. Vivaldi
og Albinoni voru samtímamenn,
báðir fæddust þeir og störfuðu í
Feneyjum sem tónskáld og hljóð-
færaleikarar. Quantz var víð-
frægur flautuleikari og starfaði
hann við hirð Friðriks mikla Prús-
sakonungs. Wanhal var fæddur í
Bóhemíu (nú Tékkóslóvakíu)
1739 en hann starfaði mest í
Vínarborg og mun hafa þekkt og
unnið með Mozart og Haydn.
Fiskvinnslan:
Söluskattur ekki endurgreiddur
Sjávarútvegsráðherra hefur
ákveðið að fella niður að svo
stöddu endurgreiðslu söluskatts
til fiskvinnslufyrirtækja vegna
útflutnings í desember. Endur-
greiðslan er felld niður vega
óvissu um fjármögnum endur-
greiðslu vegna uppsöfnunar sölu-
skatts.
Endurgreiðsla söluskatts til
frystingar hefur til þessa verið fjár-
mögnuð með láni og er gert ráð
fyrir að greiðsla þess falli á ríkis-
sjóð.
Endurgreiðsla uppsafnaðs sölu-
skatts í nóvember verður 1% til
söltunar, síldarsöltunar, herzlu, lifr-
arlýsisvinnslu og útflutnings á
ísvörðum og kældum flökum. Fryst-
ing og rækjuvinnsla fá 2% af tekjum
og hörpudisksvinnsla 2,5%.
„Ákvörðun um frekari endur-
greiðslu verður tekin í upphafi
næsta árs, en líkur benda til að
lækka þurfi endurgreiðsluhlutföllin,
þar sem óvissa ríkir um aukafjár-
veitingar til endurgreiðslu uppsafn-
aðs söluskatts," segir í frétt frá
ráðuneytinu.
Þrjátíu hafa sótt um að
leika í Hvíta víkingnum
GÓÐ viðbrögð hafa orðið við auglýsingu Hrafns Gunnlaugssonar eftir
ungu fólki til að leika í framhaldsmyndaflokknum Hvíti víkingurinn.
Þegar hafa borist um 30 umsóki
þann 15. desember.
Auglýst var eftir stúlku sem getur
leikið 15-16 ára höfðingjadóttur og
tveimur piltum sem geta íeikið 15-17
ára hálfbræður. Auk þess var tekið
fram að ýmis fleiri hlutverk væru í
myndinni fyrir fólk á þessum aldri.
Hrafn sagði að hér væri um að
ræða geysilega stór og erf ið hlutverk
sem krefjast mikil úthalds af hálfu
leikaranna. Hann segir að þeir þurfi
að geta komið til skila því gífurlega
hugrekki sem einkennir oft ungt fólk.
Hvíti víkingurinn fjalli nefnilega um
ungt fólk sem þekkir ekki hræðslu
og sér dauðann í órafjarlægð. Leikar-
arnir verði að geta gefið áhorfendum
tilfinningu fyrir þessari n^iklu orku
og bjartsýni æskunnar.
Auglýsingin mun birtast á hinum
Norðurlöndunum, en hann sagðist
vona að sem flestir leikaranna verði
íslenskir.
, en umsoknarfrestur rennur ut
„Ég hvet alla til að sækja um því
maður veit aldrei fyrirfram hver er
rétta manneskjan í hlutverkin," sagði
Hrafn. „Það er svo skrítið að bestu
leikarar sem maður kynnist eru oft
mjög feimnir og óframfærnir dags
daglega, en þegar þeir bytja að leika
er eins og þeir skipti um ham.
Þeir sem veljast í hlutverkin verða
að takast á við feiknarlega erfitt og
krefjandi starf. í öðrum hlutverkum,
t.d. foreldra ungmennanna, verða
valdir stórleikarar frá Skandinavíu.
En hverjir það verða ræðst mikið af
því hveijir leika ungmennin því við
ætlum að reyna að hafa börn og
foreldra í myndinni sem líkust svo
myndin verði trúverðugri," sagði
Hrafn.
Æfingar hefjast í mars. Upptakan
hefst í maí og lýkur síðla næsta
haust.
SÆTAFERÐIR FRÁ:
Borgarnesi, Akranesi, Garði, Sandgerði, Keflavík, Njarðvík, Vogum, Grindavík, Hvolsvelli, Hellu, Stokkseyri, Eyrarbakka, Selfoss, Hveragerði og Þorlókshöfn.
SKRÁNING OG ALLAR PREKARI UPPLÝSINGAR í SIMUM 91-12040 GRAMM
Einmuna tíðarfar á Ströndmn
Djúpuvík.
SÍÐUSTU vikurnar hafa verið
með eindæmum góðar hvað
verðurfar varðar hér í Árnes-
hreppi. Lítillega hefúr snjóað í
haust en allan snjó tekið upp
svo sumarfærð er á öllum veg-
um.
íbúar Árneshrepps kunna vel
að meta blíðuna enda vanari því
að lokast innan hreppamarka
vegna snjóa í marga mánuði á
hvetjum vetri. Nú getur fólk
brugðið sér bæjarleið eða jafnvel
til jólainnkaupa án þess að eiga á
hættu að „lokast úti“ og komast
ekki heim aftur.
Fé bænda gengur að miklu leyti
úti ennþá þó komið sé fram í des-
ember og kemur það sér vel þar
sem heyfengur bænda var hér með
minna móti í sumar vegna mikilla
snjóalaga frá síðasta vetri. Ekki
var hægt að bera á tún fyrr en í
bytjun júlí og sprettutími því stutt-
ur.
Síðasti vetur var sérlega snjó-
þungur og umhleypingasamur hér
eins og víðar á landinu. Heyra
má að hinir svartsýnu eru famir
að sjá líkt mynstur veðurfars nú
og í fyrra og spá jafnvel öðrum
álíka vetri.
ES