Morgunblaðið - 14.12.1989, Side 58
58’
M0RGÚí4bLA!)ÍD 1 FiMMfUWAtíÚfc 14:' DESEMBER 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Ljóniö
Hið dæmigerða Ljón (23. júlí -
23. ágúst) er skapmikið og
viljasterkt og fellur vel að vera
í miðju atburðarásarinnar og
umhverfis síns. Það á til að
sækjast fullmikið eftir athygli
og fara fyrir þá sök í taugam-
ar á sumum, þó öðrum falli vei
við það líf sem athafnasemi
þess skapar. Það sem flestum
fínnst jákvætt við Ljónið er
hlýja þess og ástúðleiki. Mörg
þeirra hafa til dæmis þann sið
að fagna vinum sínum af hjart-
næmum innileika: „Nei, ert þú
hér. Gaman að sjá þig,“ og
oftar en ekki fylgir þessum
orðum stórt bros og hlýtt faðm-
lag.
Stolt
Ljónið er stolt og vili vera mikil-
vægt í umhverfi sínu. Það vill
skipta máli í augum annarra.
Það jákvæða við þetta er að
það á erfítt með að slá af sann-
færingu sinni, svíkja hugsjónir
sínar eða haga sér á þann hátt
sem gerir það lítið í augum
annarra. Mörg Ljón reyna þvi
að gæta virðingar sinnar, þó
önnur séu það einlæg að þau
fela fátt fyrir öðrum og geta
ekki þóst annað en það sem
þau eru. Það er því helst Ljón-
ið sem er ánægt með sjálft sig
og stöðu sína í lífinu, sem sýn-
ir virðulegri hlið merkisins, en
hið óánægða Ljón sýnir
óánægjuna, eða dregur sig ein-
faldlega í hlé. Ef Ljónið er ekki
aðalmaðurinn þá fer það ein-
faldlega annað.
Einlœgni
Einlægni er eitt sterkasta ein-
kenni Ljónsins. Það segir satt
og kann ekki að ljúga. Ein-
lægni, hreinskilni og heiðarleiki
eru meðal aðalsmerkja þess og
birtist þessi eiginleiki óháð
umhverfinu eða því sem kemur
sér vel eða illa fyrir Ljónið. Það
segir því oft ýmislegt sem því
fínnst að þurfi að koma fram,
burtséð frá afleiðingum þeirra
orða. Ljónið þarf því oft að
sleikja sár sem einlæg hegðun
þess skapar.
Festa
Þegar Ljónið hefur einu sinni
ge rt upp hug sinn og tekið
ákvörðun er það fast fyrir og
þijóskt. Það skiptir ekki svo
auðveldlega um skoðun, heldur
þijóskast áfram fram í rauðan
dauðann. Þessi festa er einn
af styrkleikum Ljónsins, en það
þarf að gæta þess að hún verði
ekki að veikleika, leiði til stöðn-
unar og þess að það neitar að
hlusta á sjónarmið annarra og
breyta til þegar út í óefni er
komið. Trú á eigin skoðanir
ásamt stórhug leiðir oft til þess
að Ljónið reisir sér hurðarás
um öxl og tekur á meiru en
það fær ráðið við. Á hinn bóg-
inn ganga stóru áform Ljónsins
oft upp. Þau lyfta því oft grett-
istaki.
/ Hégómi?
I sambandi við nýjar og stórar
áætlanir ætti Ljónið að íhuga
hvort það sé raunverulegur vilji
þess og löngun sem ýtir því út
í stórverkin, eða kannski egóið
og sú hugsun að það verði stór
kall og hljóti aðdáun annarra
ef það tekur sér ákveðið og
stórt verk fyrir hendur. Þetta
er nefnt hér því Ljónið þarf að
varast að vera leiksoppur eigin
hégómagimi, og takast á við
verkefni sem eru of stór og það
hvort þarf né raunverulega vill
takast á við.
Stórt hjarta
Það sem kannski einkennir
Ljónið er ekki síst styrkleiki
hjartastöðvarinnar. Ljónið hef-
ur stórt hjarta og það talar oft
með hjartanu. Það vill öðrum
vel. Einlægni þess birtist oft á
bamalegan hátt, í bestu merk-
ingu þess orðs. Ljónið er elds-
merki og þarf því líf, athafna-
semi og hressleika í umhverfi
sitt. Það er kraftmikið og
ákveðið, en þarf eigi að síður
að taka sér góðar pásur á milli
verka. Því fellur því ágætlega
að flatmaga í sólinni og hafa
það náðugt...............
BRENDA STARR
UÓSKA
SMAFOLK
IV/E CUANGEP MV
MINR 5IR..LET‘5
HOT eiVE CHARLE5
THE OL' BEAN BALL
OKAV.MARCIE.
IFI HITMIM,
IT'LL 3E M
accipent..
Ég hef skipt um skoðun. Við skulum
ekki hrekkja Kalla.
Allt í lagi, Magga, ef ég hitti hann
verður það fyrir slysni.
Þetta var slys, Kalli!
Þetta var slys, Kalli!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Brids á margt sameiginlegt
með getraunum — „ekki bara
heppni". Það er hæpið að nokkur
reyndur tippari myndi spá Liver-
pool ósigri á heimavelli gegn
þriðju deildar liði. Þó gæti Liver-
pool tapað. En það er á móti
líkunum. Þannig er það oft í
brids. Líkumar eru meiri á því
að útistandandi drottning sé eitt
af fimm spilum en eitt af tveim-
ur. En það er ekki öruggt að svo
sé.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ D8
♦ ÁG
♦ K62
♦ ÁKD975
Austur
.. *Á104
II Y865432
♦ D84
♦ 3
Suður
♦ KG5
¥KD10
♦ Á10973
♦ 102
Vestur Norður Austur Suður
— 1 lauf Pass 3 grönd
Pass 6 grönd Pass Pass
Pass
Utspil: spaðatvistur, þriðja
eða fimmta hæsta.
Fremur hryssingslegar sagn-
ir, en ágæt niðurstaða. Austur
tekur fyrsta slaginn á spaðaás
og spilar tíunni til baka. Margir
myndu einfaldlega spila laufinu
beint af augum strax í upphafi
og sætta sig við einn niður, eft-
ir að hafa bölvað legunni í sand
og ösku. En í sjálfu sér liggur
ekkert á.
Ekki sakar að kanna leguna
í hinum litunum fyrst. Spila
lauftíu yfir á ás og taka svo
hliðarslagina. Það vekur sér-
staka athygli að vestur á aðeins
tvö hjörtu. Þegar að úrslita-
ákvörðuninni kemur hefur sagn-
hafi ýmislegt við að styðjast.
Vestur á sennilega 5-lit í spaða,
2 hjörtu og 2-3 tígla. Hann hef-
ur því byijað með 3-4 lauf. Sem
út af fyrir sig réttlætir svíning-
una fyrir gosann.
Ovissuþátturinn er fyrst og
fremst tíguldrottningin. Hvor
mótheijanna á hana? Það hefði
hjálpað til að spila tígultíunni
fyrst með blindum. Vestur lætur
auðvitað lítið með Gx, en gerir
hann það með DGx? Síður, að
minnsta kosti.
Vestur
♦ 97632
♦ 97
♦ G5
♦ G864
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Búdapest í
sumár kom þetta endatafl upp í
skák alþjóðlegu meistaranna
Joszef Horvath, (2.510), Ung-
verjalandi, sem hafði hvítt ogótli
leik, og Johan Van Mil (2.370),
Hollandi.
46. Rxf7! (Miklu sterkara en 46.
Hc4? - Hxd6, 47. Hxd6 - Hbl+,
48. Kf2 - Hbl, 49. Hc7 - Hb3
og líklegasta niðurstaðan er jafn-
tefli) 46. - Hxd4, 47. Re5+! -
Rxe5, 48. b8=D og hvítur vann
auðveldlega á liðsmuninum.