Morgunblaðið - 14.12.1989, Blaðsíða 74
M.OKGUNBLAÐJÐ IÞROTTIR FIMMTODAGUK tl..DESi:,\UJKK J-J89
74
KNATTSPYRNA / VESTUR ÞÝSKALAND
Ásgeir Sigurvinsson sendir Arie Haan tóninn:
Kyngi þessum
vinnubrögðum
ekki lengur
ÁSGEIR Sigurvinsson gagn-
rýndi í gær Arie Haan, þjálfara
Stuttgart, harðlega, vegna
leiks félagsins gegn Werder
Bremen í vestur þýsku bikar-
keppninni ífyrrakvöld.
Bremen sigraði mjög örugglega
í leiknum, 3:0, og átti lið
Stuttgart aldrei möguléika. „Þetta
var vægast sagt hörmulegt," sagði
Ásgeir í samtali við Morgunblaðið
í gær. Hann var ekki í byijunarliði
Stuttgart en kom inn á í hálfleik,
þegar Bremen hafði skorað öll
mörkin. Mikið er skrifað um það í
v-þýskum blöðum í gær að Ásgeir
hafi ekki byijað inni á og furða
blaðamenn sig mikið á því. Þegar
Morgunblaðið ræddi við Ásgeir
hafði hann nýlega lokið samtali við
blaðamann Bild, þar sem hann
sagðist hafa látið „allt flakka,“ ein-
sog hann orðaði það sjálfur.
Ber ekki vott um skynsemi
„Mér gekk sjálfum ágætlega í
leiknum gegn Mannheim um helg-
ina, þrátt fyrir að við stöpuðum
2:1. Haan sagði mér svo daginn
fyrir leikinn gegn Bremen að ég
yrði í byijunarliðinu, en þegar kom
að töflufundinum fyrir leikinn var
uppstillingin orðin önnur, og hann
hafði ekkert talað við mig í milli-
tíðinni. Mér finnst þessi vinnubrögð
ekki bera vott um skynsemi — ég
skil þetta ekki,“ sagði Ásgeir.
Haan setti ungan leikmann í
stöðu Ásgeirs vinstra megin, en sá
réð einfaldlega ekki við hlutverk
sitt. „Vinstri vængurinn var galop-
inn alveg frá byijun, og leikmenn
Bremen léku strákinn sundur og
saman. Taktík okkar gekk alls upp,
en Arie Haan virtist vera eini mað-
urinn á vellinum sem sá það ekki.
Hann virðist ekki vera í jafnvægi
þessa dagana,“ sagði Ásgeir.
Hvað á þetta að þýða?
Þegar blásið var til leikhlés kom
aðstoðarþjálfarinn til Ásgeirs og
sagði honum að fara að hita upp —
hann ætti að byija inni á í síðari
hálfleik. „Ég kallaði þá strax í
Haan, sem var að labba inn, og lét
hann heyra það. Spurði hvað þetta
ætti eiginlega að þýða; hvort ég
væri allt í einu orðinn sá maður sem
ætti a_ð fara inn á og bjarga málun-
um. Ég sagðist ekki skilja þessa
ráðstöfun hans; að ég teldi væn-
legra að setja varnarmann inn á til
að reyna að kom í veg fyrir enn
meiri niðurlægingu en allt stefndi
í. En hann var ekki á sama máli —
sagði mér að ég ætti að fara í mína
stöðu, leika á miðjunni fyrir aftan
framheijana tvo! Hann virðist ekki
einu sinni vita hvar ég er vanur að
leika á vellinum. Enda færði ég
mig út á vinstri vænginn um leið
og leikurinn byijaði eftir hlé, reyndi
að halda boltanum og loka svæðun-
um þar.“
Kyngi þessu ekki lengur
Það vakti mikla athygli í 'V-
Þýskalandi í haust hvernig Ásgeir
tók því að vera settur úr liðinu.
Hann tók því þegjandi og greip
síðan tækifærið þegar það gafst á
ný, og lék frábærlega allt þar til
að hann meiddist fyrir all nokkru.
„Maður er búinn að kyngja þesu
allt of lengi — ég geri það ekki leng-
ur nema fá einhveijar almennilegar
skýringar á því hvað þjálfarinn er
að hugsa," sagði Ásgeir í gær.
Þegar hann var spurður hvort
sæti Haan sem þjálfara væri farið
að hitna, sagðist Ásgeir ekki geta
sagt um það, en bætti við: „Þetta
getur þó ekki gengið svona lengur."
Síðasti leikur Stuttgart í deildinni
fyrir jólafrí verður á heimavelli
gegn Hamburger SV á laugardag-
inn. „Það verður spennandi að sjá
hvort maður fær að spila. Haan
hefur lýst þvf yfir að hann muni
ekki stilla [Maurizio] Gaudino,
[Argentínumanninum] Basualdo og
mér upp saman í liðinu framar.
Einhver okkar verður því að víkja,
en miðað við frammistöðu í síðustu
leikjum myndi ég halda að ég væri
fyrsti maður inn. Það kemur svo í
ljós hvort þjálfarinn stendur við
þessa yfirlýsingu," sagði Ásgeir
Sigurvinson.
Ásgeir Sigurvinsson með knöttinn í leik með Stuttgart. Hann er ekki
ánægður með gang mála þessa dagana.
ÍÞRÖmR
FOLK
■ PETERReid, sem leikið hefur
með QPR síðustu 10 mánuði, hefur
gengið til liðs við Manchester City
og mun leika sinn fyrsta leik með
■■IM liðinu gegn Everton
FráBob á Goodison Park á
Hennessy sunnudaginn. Reid
ÍEnglandi lék áður með Ever-
ton undir stjórn
Howards Kendall, sem tók við
stjórninni hjá City á mánudaginn.
Reid, sem er 31 árs, gerði þriggja
ára samning við City. Hann fékk
fijálsa sölu frá QPR.
■ HOWARD Kendnll hefur fal-
ast eftir Alan Harper frá Sheffi-
eld Wednesday. Harper var hjá
Everton er Kendall var með liðið
og þekkir því vel til hans. Félögin
hafa samþykkt félagaskiptin og er
talið að Harper skrifi undir hjá
Manchester City í dag.
UPERRY Suckling, varamark-
vörður Crystal Palace, hefur verið
lánaður til QPR í einn mánuð.
Ástæðan er sú að báðir markverðir
QPR eru meiddir. Suckling er
einna frægastur fyrir það að hafa
fengi á sig 16 mörk á aðeins níu
dögum fyrr í vetur. Þess má geta
að einn þessara leikja var gegn
Liverpool e.r Crystal Palace fékk
á sig níu mörk.
■ GUÐMUNDUR Torfason leik-
ur væntanlega við hliðina á
Paraguaymanni á næstunni. Félag
hans, St Mirren, hefur áhuga á að
fá Villebar frá Paraguay og er
nú verið að vinna í því að fá atvinnu-
leyfi fyrir hann. Villebar hefur æft
með skoska liðinu í tvær vikur.
KORFUKNATTLEIKUR
ísland burst-
aði lið Kýpur
Anna María Sveinsdóttir, lands-
liðskona úr Keflavík, var stigahæst í
leik íslands og Kýpur.
Islenska kvennalandsliðið í körfu-
knattleik sigraði stöllur sínar frá
Kýpur, 73:56, í fyrsta leik sínum í
8-landa keppninni í Luxemborg í
gær. ísenska liðið hafi 9 stiga for-
skot í leikhléi, 34:25.
ísland lék síðast gegn Kýpur á
Smáþjóðaleikunum á Kýpur í maí
og sigraði þá með tíu stiga mun
en gerði betur í gær. Lið Kýpur
byijaði vel og sjíoraði þijár fyrstu
körfurnar, en síðan tók Islenska liði
við sér og hafði undirtökin sem eft-
ir var og jók muninn jafnt og þétt.
Anna María Sveinsdóttir úr ÍBK
var stigahæst í liði Islands með 17
stig. Linda Stefánsdóttir kom næst
með 13 og Björk Hafsteinsdóttir
og Lilja Björnsdóttir gerðu 1,
Herdís Gunnarsdóttir 7, María Jó-
hannsdóttir 6, Vanda Sigurðardótt-
ir 4 og Vigdís Þórisdóttir eitt.
ísland leikur í A-riðli ásamt Kýp-
ur, Austurríki og Wales. í B-riðli
leika Luxemborg, írland, Malta og
Gíbraltar.
FRJALSIÞROTTIR
Skarphéðinn setti
þrjú strákamet
Skarphéðinn Ingason setti
þijú strákamet á hinu árlega
unglingamóti í fijálsíþróttum inn-
anhúss sem fram fór í íþróttahús-
inu að Laugum um síðustu helgi.
Mikil gróska er í unglingastarfinu
hjá HSÞ.
Skarphéðinn sem keppti í flokki
11 til 12 ára, náði þeim góða ár-
angri að setja strákamet í þremur
greinum, langstökki og þrístökki
án atrennu og í hástökki og sigr-
aði í öllum þeim greinum sem
keppt var í. Hann stökk 2,55
metra í langstökki, 7,26 metra í
þrístökki og vippaði sér yfir 1,63
metra í hástökki.
Að baki þessu dugmikla ungl-
ingastarfi hjá HSÞ standa þeir
Gunnar Jóhannesson, sem er
framkvæmdastjóri HSÞ og Unnar
Vilhjálmsson, þjálfari.
P.D.
Ufórn
FOLK
■ V-ÞÝSKALAND sigraði
Svíþjóð í úrslitaleik í B-heimsmeist-
arakeppni kvenna í handknattleik,
20:18, í Danmörku á sunnudaginn.
A-þýsku stúlkurnar urðu I 3. sæti
eftir að hafa unnið þær rúmensku,
25:23.
MAC MÍLANÓ kom til Japan í
gær og mun leika þar við Medellin
frá Kolombíu um titilinn besta fé-
lagslið heims í Tokyo á sunnudag.
Leikmenn ítalska liðsins fóru beint
á æfingu eftir 12 tíma flug til
Tokyo frá Mílanó á Ítalíu. AC
Mílanó mun feista þess að ná þriðja
alþjóða titlinum á þessu ári, en liði
er Evrópumeistari og vann síðan
Barcelona í „Super Cup“ á dögun-
um. Keppnin um besta félagslið
heims fer árlega fram í Tokyo og
eigst þar við Evrópumeistarnir og
Suður-Amferíkumeistararnir. AC
Mílanó hefur einu sinni unnið þessa
keppni, árið 1969 með því að vinna
Independienté frá Argentínu.
■ ROY Wegerle, sem hefur mest-
an áhuga á að leika með Banda-
ríkjamönnum í úrslitakeppni HM
í knattspyrnu, hefur fengið óform-
legt tilboð um að leika með Eng-
lendingum. „Ef hann hefur áhuga
á að leika fyrir hönd Englands, læt
ég hann vera með í næsta b-lands-
Ieik,“ sagði Bobby Robson, lands-
liðsþjálfari. „Ég veit að Banda-
ríkjamenn vilja fá hann, en hvað
framtíð hefur hann með þeim, sem
knattspyrnumaður?“ spurðu þjálf-
arinn.