Morgunblaðið - 14.12.1989, Page 76
SAGA CLASS
Ferðafrelsi
FLUGLEIDIR
ttgmiÞIfltfeffe
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
DAGAR
TIL JÓLA
VSÍ vill að stjórnvöld ógildi endurskoðunarákvæði samningsins
BANDALAG háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna fær á næsta ári að
minnsta kosti 7% launahækkun, samkvæmt kjarasamning-i BHMR og
rikisins. Laun BHMR hækka um 1,5% þann 1. janúar, 1,5% 1. maí og
um minnst einn launaflokk þann 1. júlí. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins telur Þjóðhagsstofhun að samningurinn feli í sér ekki minni
launahækkun en 7% á árinu 1990 fyrir félaga í BHMR.
Stjórnvöld á hinn bóginn telja að
ekkert liggi fyrir um það að launa-
flokkahækkunin þann 1. júlí nk.
komi til framkvæmda og úr því fáist
ekki skorið fyrr en samanburði á
kjörum félaga í BHMR og háskóla-
menntaðra manna á almenna vinnu-
markaðnum er lokið, en slík könnun
eru nú í vinnslu hjá Gallup á íslandi.
„Ég benti á það á aðalfundi Sam-
taka íslenskra fiskvinnslustöðva í
haust að ef nást ættu vitrænir kjara-
samningar, þá væri þetta ákvæði í
sgmningunum við BHMR um launa-
flokkahækkun, að loknum saman-
burði við almenna markaðinn, hrein
tímasprengja," sagði Einar Oddur
Kristjánsson, formaður VSÍ, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Ég sagði einnig að ef stjóm-
völdum væri það kappsmál að vit-
rænir samningar næðust, þá skyldu
þau hafa það sem sitt fyrsta verk
að taka þessa tímasprengju úr sam-
bandi,“ sagði Einar Oddur.
Kjarasamningur BHMR er til árs-
ins 1994. Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, vildi ekkert um
málið segja er Morgunblaðið ræddi
við hann í gær, né um það hvort
hann teldi að BHMR-samningurinn
gæfi vísbendingu um hvaða lág-
maitkslaunahækkun BSRB og ASÍ
gætu sætt sig við.
mínnsta kostí 7% næsta ár
Jólamynd úr Sandvíkurhreppi
Morgunblaoio/KAX
Börnin í fjósglugganum á bænum Hreiðurborg í Sandvíkurhreppi í Arnessýslu bíða greinilega spennt eftir jólunum og ekki er annað að sjá
en kettlingurinn og hundurinn séu í góðum félagsskap.
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar ört:
Búist við áframhaldandi hækk-
unum og jaftivel verðsprengingu
Mjög- alvarlegt mál fyrir útgerðina segir Kristján Ragnarsson
OLIUVERÐ fer um þessar mundir ört hækkandi á heimsmarkaði og
er tonnið af gasolíu nú skráð á 212 dollara, en við síðustu verðákvörð-
un hér á landi var meðalverð birgða í landinu 186 dollarar. Búist er
við áframhaldandi verðhækkunum, jafhvel svo að kalla megi „verð-
sprengingu á endanum," eins og talsmaður eins olíufélaganna orðaði
það. Þá hafa orðið truflanir á afgreiðslu bensíns og gasolíu til íslands
frá Sovétríkjunum.
Helstu ástæður þessara verð-
hækkana nú eru mikill innflutningur
Bandaríkjamanna, kuldi í allri Evr-
ópu og samstaða ÓPEC-ríkjanna um
að halda framleiðslukvótum og þar
með háu verði. Innflutningur Banda-
ríkjamanna er talinn valda mestu
um verðhækkanirnar, hins vegar
fengust ekki skýringar á því, hvers
vegna hann hefur aukist undanfarið.
„Þetta er mjög íþyngjandi fyrir
okkur öll og mjög alvarlegt mál fyr-
ir útgerðina," sagði Kristján Ragn-
arsson framkvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna í
gærkvöldi. Hann kvaðst ekki enn
hafa upplýsingar um hvort orðið
væri hagstæðara fyrir íslensk skip
að kaupa olíu hér heima heldur en
erlendis.
Fyrir tveimur mánuðum var með-
alverð birgða hér á landi 165 dollar-
ar, í byijun mánaðarins 186 dollarar
og þá voru um 43 þúsund tonn af
gasolíu til í birgðum. Nú er verðið
212 dollarar og fer hækkandi.
Hækkun olíuverðs hefur bein áhrif
á kjör sjómanna, þar sem hluta-
skipti skerðast við hækkun. Kristján
segir að við verðlagninguna fyrir
tveimur mánuðum hafi áhrifin á
Nýir skattar
á bíla nema
900 millj. kr.
AUKNAR tekjur ríkissjóðs vegna
hækkunar bensíngjalds 2. desem-
ber síðastliðinn og vegna hækkun-
ar kílógjalds í 5,20 krónur nema
tæpum 900 milljónum króna á
næsta ári. Fjármálaráðuneytið
áætlar að hækkun kílógjaldsins
skili 600 milljónum króna og að
gjaldið í heild skili 1.290 milljón-
um.
Sé gert ráð fyrir 10% vísitölu-
hækkun á kílógjaldið síðari hluta
næsta árs og reiknað samkvæmt
áætlaðri meðalþyngd bíla, gætu tekj-
ur ríkissjóðs orðið 1.800 milljónir
af kílógjaldi.
í virðisaukaskattskerfi verða bif-
reiðatryggingar skattlausar, en þær
bera söluskatt nú. Af þeim sökum
léttast álögur á bifreiðaeigendur um
rúmar 600 milljónir króna á næsta
árs verðlagi. A móti því koma hinir
nýju skattar, 890 milljónir.
Heildartekjur ríkissjóðs af bílum
og rekstri þeirra þetta ár eru áætlað-
ar um 12,5 milljarðar króna. Til
vegamála fara 3,2 milljarðar, eða
25,6%. Miðað við áætlanir fjárlaga
og verðlagshækkanir fer hlutfall það
lækkandi, sem rennur til vegamála
á næsta ári.
Sjá fréttaskýringu á miðopnu.
hlutaskiptin verið 1% og um síðustu
mánaðamót 2%. „Það hefur enginn
spáð fyrir um verðhækkun á olíu
núna,“ segir hann. „Það er kannski
eins og venjulega, að ef menn spá
ekki, þá hækki verðið, og ef þeir spá
því, þá gerist það ekki. Menn sjá
þetta víst aldrei fyrir að minnsta
kosti."
Undanfarið hafa orðið truflanir á
afgreiðslu bensíns og gasolíu frá
Sovétrikjunum. Afgreiðslu farma
hefur seinkað og því eru birgðir í
landinu minni en alla jafnan.
Barnungir peru-
þjófar gripnir;
Fjaðurhníf-
ur tekinn af
8 ára dreng
LÖGREGLAN í Hafharfírði
hefur haft uppi á nokkrum
drengjum, sem hafa játað
stuld á ljósaperum úr jóla-
skreytingum, meðal annars
af jólatrénu í miðbæ Hafnar-
fjarðar.
Tveir þessara drengja eru að-
eins átta ára. Unglingar stóðu
þá að verki á þriðjudag, þar sem
þeir voru að stela perum úr jóla-
skreytingu. Unglingarnir héldu
drengjunum og kölluðu til lög-
reglu. í ljós kom, að annar þess-
ara átta ára drengja var með
fjaðurhníf með 12 sentimetra
blaði í vasanum. Lögreglan
kvaðst ekki þekkja önnur dæmi
þess, að svo ungt barn gengi
með jafn hættulegt vopn á sér.
Laun BHMR hækka um að