Morgunblaðið - 26.04.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1990
Söfhun vegna
landgræðslu-
skógaátaks
VERIÐ er að undirbúa heirasóknir
á öll heimili landsins þeim tilgangi
að leita eftir stuðningi við Land-
græðsluskógaátak 1990, en seldar
verða grænar greinar sem kosta
500 kr. stykkið. Söfnunin er til að
standa undir kostnaði við mesta
átak í landgræðslu og skógrækt
frá upphafi vegar hér á landi.
Margir hópar leggja þessu máli
lið, og má þar nefna félaga í Kiwan-
i_s, Lions og Rotary, Ungmennafélagi
íslands, skógræktarfélögum, skáta-
félögum og íþróttafélögum.
Forsvarsmenn átaksins segjast
vonast til þess að hvert heimili lands-
ins kaupi að minnsta kosti eina
græna grein.
p
SH, SÍF og Sjáv-
arafiirðadeildin
Rætt um að
gera fyrirtæk-
in að hluta-
félögum
UMRÆÐUR hafa verið um að
gera Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, Samband íslenskra fisk-
framleiðenda og Sjávarafurða-
deild Sambandsins að hlutafélög-
um. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hafa einnig átt sér stað
einhverjar óformlegar viðræður
milli fyrirtækjanna um að taka
upp formlegt samstarf, en það er
þó talið flókið að koma því á að
óbreyttu félagsformi þeirra.
Á aðalfundi SH sem hefst' í dag
verða samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins ræddar hugmyndir að
gera fyrirtækið að hlutafélagi, en
umræður munu hafa átt sér stað um
nokkurt skeið innan SH um það hvort
hagur væri af því að breyta félags-
formi fyrirtækisins.
Innan sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins hefur undanfarið verið
starfandi nefnd til að kanna mögu-
leika á stofnun hlutafélags, og mun
vera samstaða í nefndinni um að sá
kostur væri æskilegur. Var þetta
meðal annars rætt á fundi Sjávaraf-
urðadeildar Sambandsins í gær.
Vegna skuldastöðu Sambandsins
mun þetta þó vera talið erfitt fram-
kvæmdar, þar sem óljóst sé hvaða
skuldir. það félag þyrfti að taka með
sér svo bankastofnanir samþykktu
stofnun þess.
Morgunblaðið/Hannes Ingi
Togarinn Þórhallur Daníelsson strandaður á Faxaskeri í innsigling-
unni að Hornafirði. Lóðsbátnum hvolfdi er hann reyndi að koma
togaranum á flot og á myndinni sjást þrír menn sem um borð voru
í bátnum á kili hans. Á innfelldu myndinni sjást mennirnir á kili
bátsins, en þar biðu þeir í 15-20 mínútur áður en trillan Drífa bjarg-
aði þeim.
Höfii í Hornafirði:
Þrjú strönd á sama stað
á sama sólarhringmim
TVEIR bátar strönduðu í gær-
kvöldi á Faxaskeri í innsigling-
unni í Hornafirði. Fyrr um morg-
uninn sökk lóðsbáturinn Bjöm-
inn þegar hann reyndi að draga
togarann Þórhall Daníelsson á
flot en togarinn strandaði á Faxa-
skeri seint í fyrrakvöld. Mann-
björg varð í öllum ströndunum,
togarinn komst á flot um miðjan
dag í gær en bátarnir tveir sátu
enn fastir þegar Morgunblaðið
fór í prentun. Skipin eru í eigu
útgerðarfyrirtækisins Borgeyjar
að lóðsbátnum undanskildum.
Báturinn Lyngey SF strandaði
um kl. 18 í gær og stundarfjórð-
ungi síðar var Hrísey SF komin að
strandstað til björgunarstarfa en
ekki vildi betur til en að báturinn
festist skammt frá kinnungi Lyng-
eyjar. Búist var við að bátamir
næðust út á árdegisflóðinu.
Tveir skipveijar af togaranum
Þórhalli Daníelssyni, sem strandaði
á Faxaskeri sem er neðansjávar í
innsiglingunni í Hornafirði, voru á
dekki lóðsbátsins Bjömsins þegar
bátnum hvolfdi skyndilega. Skip-
stjóri bátsins var í stýrishúsinu þeg-
ar óhappið varð og gekk honum
verst að komast frá borði.
„Ég get ekki útskýrt hvernig
þetta átti sér stað,“ sagði Torfi
Friðfinnsson, skipstjóri á lóðsbátn-
um. „Bátnum hefur hvolft áður og
hafði víst ekki verið stöðugleika-
mældur.“ Torfi var inni í stýrishús-
inu þegar bátnum hvolfdi. Hann
sagðist ekki hafa verið lengi í sjón-
um, altént hefði hann ekki þurft
að draga andann á leiðinni upp. Á
kilinum biðu mennirnir í 15-20
mínútur áður en trillan Drífa bjarg-
aði þeim um borð.
Lóðsbáturinn, sem kom til
Hornafjarðar fyrir tveimur mánuð-
um, hafði ekki verið stöðugleika-
prófaður. Bátnum hvolfdi í Hafnar-
fjarðarhöfn á síðasta ári og fórst
þá einn maður. í febrúar síðastliðn-
Safiiaðarfólk Fríkirkjunnar greiðir ekki fyrir aukaverk:
Laun presta þjóðkírkjunnar
fyrir aukaverk bundin lögum
- segir Guðmundur Þorsteinsson, dómprófastur
„SAMKVÆMT lögum þiggja prestar þjóðkirkjunnar laun frá ríkinu
og þeir hafa ávallt fengið greitt sérstaklega fyrir svokölluð auka-
verk. Það þyrfti því mikla kerfisbreytingu ef taka ætti upp sama
háttinn og í Fríkirkjunni, að aukverk verði safnaðarfólki að kostnað-
arlausu,“ sagði Guðmundur Þorsteinsson, dómprófastur, í samtali
‘við Morgunblaðið. Valgeir Ástráðsson, formaður Prestafélags ís-
lands, sagðist ekki geta ímyndað sér að fólk sæi sér fjárhagslegan
ávinning af því að flytja sig í annan söfnuð, enda væri ekki um svo
háar upphæðir að ræða.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu á sunnudag ákvað aðal-
fundur Fríkirkjunnar fyrir skömmu
að safnaðarfólk þyrfti ekki framar
að greiða fyrir vinnu prests, organ-
ista og kirkjuvarðar við aukaverk.
Þetta á við um skím, fermingu,
hjónavígslu, kistulagningu og
greftrun. Laun þessara starfs-
manna, sem söfnuðurinn greiðir
þeim, hækka á móti. Talið er að
þessi breyting feli í sér um 400-500
þúsunda króna útgjaldaauka fyrir
söfnuðinn, en þá er miðað við að
athafnir verði um fjórðungi fleiri
en þær hafa verið undanfarin ár.
í greinargerð um breytinguna seg-
ir, að vonast sé til að þetta fyrir-
komulag laði fleiri nýja einstakl-
inga að söfnuðinum og auki tekjur
hans sem því nemur.
Guðmundur Þorsteinsson, dóm-
prófastur, sagði að ekki væri hægt,
að líkja þessari breýtingu hjá
Fríkirkjunni við þjóðkirkjuna.
Fríkirkjusöfnuðurinn væri rekinn
fyrir sóknargjöld og væri í sjálfs-
vald sett hvernig þeim væri ráð-
stafað. „Skipting launa presta þjóð-
kirkjunnar, í föst laun frá ríírinu
og sérstakar greiðslur fyrir auka-
verk, hefur verið lengi í lögum,“
sagði hann. „Ef prestar ættu að
fara að afsala sér þessu launafyrir-
komulagi þá þarf að líta á þá kosti
aðra sem bjóðast. Það eru ýmsir
með efasemdir um að ríkið hækk-
aði laun presta sem næmi tekju-
missi þeirra, ef hætt yrði að greiða
fyrir aukaverkin. Söfnuðir hefðu
ekki bolmagn til að taka þessa
breytingu á sig, því það kæmi nið-
ur á safnaðarstarfinu, til dæmis
ýmiss . konar féjagslegri .þjónustu
kirkjunnar."
Dómprófastur sagði að ekki
væri um svo háar upphæðir að
ræða fyrir aukaverk presta að þær
gætu skipt sköpum fyrir fjölskyld-
ur. „Þetta er fyrst og fremst spum-
ing um kjaramál presta og mér
þykir ekki ólíklegt að föstum laun-
um hafi verið haldið niðri einmitt
vegna þessara tekna. Þær eru að
vísu misháar. Hæstar eru þær í
fjölmennustu söfnuðunum, en þar
er starfið einnig umfangsmeira."
Valgeir Ástráðsson, formaður
Prestafélags íslands, sagði að hann
teldi það mjög sérstætt að vonast
væri eftir fjölgun í Fríkirkjusöfnuð-
inum vegna þessara breytinga. „Ég
get ekki ímyndað mér að fólk sjái
sér fjárhagslegan ávinning af því
að flytja sig í annan söfnuð, enda
er ekki um svo háar upphæðir að
ræða,*1 sagóí hann.
um fórst lóðsbátur Homfírðinga í
aftakaveðri.
Togarinn Þórhallur Daníelsson
komst á flot skömmu eftir að lóðs-
bátnum hvolfdi og hélt til hafnar
þar sem löndun úr honum hófst.
Hafði hann þá verið strandaður í
tólf tíma en hann virtist ekki vera
mikið skemmdur.
í gærkvöldi var reynt að bjarga
lóðsbátnum af hafsbotni þar sem
hann maraði hálfur í kafi.
Sturlaugur Þorsteinsson, oddviti
á Höfn, sagði að bæjarstjórnin hefði
haldið fund í gær og þar hefði ver-
ið rætt um nauðsynlegar aðgerðir
til að tryggja öryggi sæfarenda.
Sagði hann að verið væri að leita
að nýjum dráttarbát til kaups eða
leigu en taldi víst að Bjöminn yrði
ekki notaður áfram.
Skákmótið í Gausdal:
Margeir með-
al efstu nianna
MARGEIR Pétursson er efstur á
skákmótinu í Gausdal í Noregi
með 2 vinninga ásamt fieiri skák-
mönnum að loknum tveimur uro-
ferðum. Auk Margeirs tefla fjórir
aðrir íslenskir skákmenn á mót-
inu.
Karl Þorsteins og Snorri Bergsson
eru með l'A vinning og líklegt er
að Lárus Bergsson bætist í hópinn.
Hann er með heldur lakari stöðu í
biðskák en heldur að líkindum jafn-
tefli. Tómas Bjömsson ermeð 1 vinn-
ing.
Margeir vann í gær Oliver Reeh,
alþjóðlegan meistara frá Vestur-
Þýskalandi, Karl vann sænska stór-
meistarann Lars Karlsson frá
Svíþjóð.
45 skákmenn taka þátt í mótinu
í Gausdal, þar af 5 stórmeistarar og
15 alþjóðlegir meistarar.