Morgunblaðið - 26.04.1990, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1990
11
„Fram allir verkamenn“
_________Leiklist____________
Bolli Gústavsson
í Laufási
Leikfélag Akureyrar:
Fátækt fólk.
Leikgerð eftir endurminninga-
bókum Tryggva Emilssonar.
Fátækt fólk og Baráttan um
brauðið.
Leikstjórn: Þráinn Karlsson.
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Tónlist og áhrifshljóð: Páll
Þorgrímur Þorgrímsson.
Sú venja hefur um all langt skeið
verið við lýði í leikhúsheimi íslend-
inga, að breyta viðamiklum skáld-
verkum í leikrit. Sennilega má
rekja þann sið aftur til Guðmundar
Kambans, sem sendi frá sér þá
mikiu sögulegu skáldsögu Skálholt
um og eftir árið 1930 og samdi
jafnframt leikritið f Skálholti (Pá
Skálholt, 1934), þar sem hann
dregur saman meginefni skáldsög-
unnar og býr í leikbúning með
góðum árangri. Sem kunnugt er
var Kamban vel menntaður og
reyndur leikhúsmaður og hafði lagt
stund á leikritun allt frá árinu
1914. Halldór Laxness hafði og
snemma fengist við leikritagerð,
skrifaði Straumrof sem út kom
1934, en smíðaði síðan leikrit úr
hinu mikla skáldverki sínu íslands-
klukkunni árið 1950 og var það
eitt af þremur fyrstu verkefnum
Þjóðleikhússins. Síðan hefur sá
háttur, að breyta miklum skáldsög-
um í leikhúsverk, færst mjög í
aukana og á það ekki síst við um
sögur Halldórs Laxness. Satt að
segja hefur misjafnlega til tekist
og minnir ósjaldan á bútasaum, en
um það skal ekki fjölyrt hér. Sýn-
ist óneitanlega vænlegra fyrir
skáld, að sækja kveikjuna í smá-
sögu eða jafnvel ljóð. Orstutt þjóð-
saga varð Davíð Stefánssyni efni
í sígilt leikrit. Ljóst er að leikrit
lýtur yfirleitt öðrum lögmálum en
skáldsaga og raunar ennþá síður
ástæða til að velja þennan kost nú,
þegar kvikmyndagerð er komin til
skjalanna í samfélagi okkar. Kvik-
myndun hentar betur til þess að
koma til skila efni viðamikilla
skáldsagna. Hitt er þó ljóst, að það
verður að teljast nokkur undanláts-
semi, þegar ekki er gert ráð fyrir
að menn lesi lengur sér til ánægju,
uppbyggingar og til þess að þroska
hugsun og fijótt ímyndunarafl.
Þessi formáli að umfjöllun um leik-
gerð ævisögu Tryggva Emilssonar
er ekki skrifaður með það í huga,
að gera lítið úr verki Böðvars Guð-
mundssonar. Eg hygg að fáum
hafi tekist öllu betur að vinna leik-
rit úr jafn veigamiklu ritverki, sem
auk þess nýtur skilnings og innlif-
unar leikstjórans, Þráins Karlsson-
ar, og leikmyndahönnuðarins Sig-
urjóns Jóhannssonar. Böðvar rekur
ekki sögu Tryggva, notar jafnvel
ekki nöfn persóna, heldur tekst
honum að móta áhrifamikla mynd
af upphafi verkalýðsbaráttu á
Norðurlandi. Bernskusaga
Tryggva er þannig rituð, að hún
verður vart endursögð á leiksviði.
Því er það einungis veikur endu-
rómur og stijál ljósbrot þeirrar
áhrifamiklu sögu, sem er inngang-
ur sýningarinnar og verður vonandi
til þess, að þeir sem ekki hafa les-
ið Fátækt fólk, geri það nú.
Árni Tryggason leikur lausa-
mann og sögumann, sem segir
drengnum (Tryggva Emilssyni),
hvað hans bíði í óræðri framtíð.
Ingvar Gíslason leikur smaladreng-
inn af einlægni og skýrleika. Þeir
mynda vel gerða og þekka umgerð
um meginflöt þeirrar myndar, sem
nefna má Baráttuna um brauðið.
Já, myndar — það er ærin ástæða
til þess að prísa þá sviðsmynd, sem
Siguijón Jóhannsson hefur búið
þessu verki. Þar fer saman mikil
hugkvæmni, ósvikin kunnátta,
næmur skilningur og kunnugleiki
á því umhverfi, sem var vettvangur
þessara norðlensku verkamanna,
sem vöknuðu til vitundar um að
sú dapurlega kúgun, sem þeir
bjuggu við, var ekki grundvölluð á
óijúfanlegu lögmáli og áttuðu sig
á því, að gegn arðráni og fátækt
urðu þeir að rísa og beijast. Öll
þessi atriði, í Krossanesi, á Torfu-
nefsbryggju og á Höpnerstorfu, eru
með afbrigðum snjöll, leikstjóran-
um tekst afbragðsvel að tengja þau
saman á snurðulausan hátt. Hópur
manna, sem að líkindum hefur aldr-
ei á svið komið, lætur vel að stjórn
og sviðsbreytingar verða í hugum
áhorfenda eins og hluti af striti
þessara manna í salti og við tunnu-
burð. Og þá er beiting ljósa veiga-
mikill þáttur, sem Ingvar Björnsson
stýrir af öryggi, svo skin og skugg-
ar færast til á nákvæman hátt svo
aldrei skeikar. Um frammistöðu
leikara verður ekki fjallað í löngu
máli. Hér er fremur hægt að segja
að sýningin mótist af öguðum sam-
leik, en tilþrifum einstaklinga. Þeir,
sem fara með veigameiri hlutverk,
gæta þeirra vel, lúta styrkri stjóm
Þráins Karlssonar og standa fast
við hlið þeirra leikmanna í listinni
sem kallaðir eru úr ýmsum áttum
til þessarar athyglisverðu sýningar.
62-42-50
BRAGAGATA - 2JA
Mjög falleg kjíb. ca 50 fm. Allt nýtt lagn-
ir, gluggar, eldh., bað og gólfefni. Sér-
inng. Áhv. 2,3 millj. Verð 4 millj.
DUNHAGI - 2JA
Nýuppgerð íb. á jarðh. Sérinng.
Nýtt parket. Nýtt eldh. Nýtt bað-
herb. Nýjar hurðir. Laus strax.
Verð 3,9 miilj.
MÁVAHLÍÐ - RIS
Stórglæsil. 3ja herb. íb., mikið
endurn. á eftirsóttum stað. Verð
5,3 millj.
AUSTURBRÚN - 3JA
Falleg björt ca 80 fm á jarðh. Parket á
öllum herb. stórt eldh. Nýtt baðherb.
Stórt hjónaherb. Sérinng. Verð 5,7 millj.
EYJABAKKI - 4RA
Falleg endaíb. á 3. hæð. Gott
útsýni. Suðvestursv. V. 6,0 m.
KÓNGSBAKKI - 4RA
Mjög falleg 92 fm íb. á efstu hæð. Suð-
ursv. Sérþvottaherb. og búr. Stórir
gluggar í suður. Áhv. 3,2 millj. V. 6,3 m.
ÖLDUGATA - 4RA
Stórglæsil. nýstandsett íb. á 1.
hæð. Nýtt eldh. Nýtt bað. Stórt
hjónaherb. Saml. stofur. For-
stofu/húsbóndaherb. Fallegt
parket á allri íb. Stórt kjherb.
Fallegur bákgarður. V. 7,9 m.
HAGAMELUR - 5 HERB.
Mjög góð ca 117 fm íb. á 2. hæð. Stórt
eldh. m. borðkróki. Stórt flísal. bað.
Saml. stofur. Suðursv. Forstherb. Ein-
staklega virðul. eign. Verð 8,5 millj.
BREKKULÆKUR - SÉRH.
Mjög falleg 5 herb. efri sérh. 3 svefn-
herb. 2 stofur. Þvottah. og búr innaf
eldh. Tvennar svalir. Stór og góður
bílsk.
TJARNARBÓL- SELTJN.
Mjög góð 5-6 herb. ca 135 fm íb. á
3. hæð. 4 rúmg. svefnherb. með skáp-
um, parketi, stofa, borðst. Stórt eldhús
og búr. Mikil og nýstandsett sameign.
ÁLFALAND - RAÐH.
Stórglæsil. 180 fm. 4 svefnh. „Hobby"-
herb. Sjónvhol. Eldh. m. sérsmíðuðum
innr. Búr og þvottah. Stór stofa og suð-
ursv. Áhv. 2,0 millj. Verð 14,5 millj.
ÁSGARÐUR - RAÐH.
Vel staðsett 110 fm raðhús, tvær hæð-
ir og kj. Nýtt þak. Áhv. 1,5 millj. Verð
6,7 millj.
HELGUBR. - RAÐH.
Glæsil. fullbúið raðh. á 3 hæðum. Innb.
bílsk. Rúmg. sér íb. í kj. Allt fullfrágeng-
ið úti sem inni. Mjög vönduð eign.
Eignaskipti mögul.
KAMBASEL - RAÐH.
Glæsil. endaraðhús á tveimur hæðum.
Á efri hæð er stór stofa, herb., bað og
mjög rúmgott eldhús með borðkrók. Á
neðri hæð eru 3 svefnherb., þvottahús
og baö. Innb. bílsk. Mögul. á að innr.
sjónvarpsherb. í risi.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA?
Borgartúnl 31,105 Rvfc., s. 624250.
Lögfr.: Pétur Mr Sigur Asson hdl.,
BIRTUSKIL
________Myndlist______________
Bragi Ásgeirsson
Það má til sanns vegar færa að
það sé birtan sem Bragi Hannesson
er stöðugt að glíma við í málverkum
sínum.
Og birtan _er ekkert handfast og
staðbundið á íslandi heldur er undir-
orpin stöðugum breytingum eftir því
hveiju sinni, hvernig á veðurguðun-
um liggur.
í eðli sínu er birtan því óhlutlæg
og því ekki að undra, að Bragi freist-
ist til þess að reyna að höndla bein
áhrif hennar, er svo er komið, en þá
verða málverk hans eðliléga líkust
ljóðrænni tjáningu á hughrifum frá
sköpunarverkinu.
Það er greinilegt á sýningu Braga
í listhúsinu Borg þessa dagana, að
hann stendur á einhverskonar kross-
götum í myndlist sinni, því að hann
hefur ekki áður haft jafn mikla til-
hneigingu til að vinna í sértækum
atriðum á myndfletinum.
Bragi endurskapar það sem hann
málar, fer meira eftir áhrifunum sem
hann verður fyrir af landslagi og
húsum í landslagi, en að hann kapp-
kosti að draga upp nákvæma mynd
af því sem hann hefur í sjónmáli
hveiju sinni.
Kannski er Bragi að leitast við að
ná fram meira af þeirri persónulegu
lifun, sem hann verður fyrir and-
spænis myndefni sínu á dúka sína,
en þá má minna á orð Matisse, sem
sagði eitt sinn, að maður ætti aldrei
að reyna að vera persónulegur, því
að ef til vill væri snefill af persónu-
leika í manni, kæmi hann fram fyrr
eða síðar.
Þetta eru heilmikil sannindi, og
margur hefur brennt sig á því að
leita of mikið inn í sig, og þá kemur
að því að menn trúi, að þetta sé
persónulegt, sem maður gerir, þótt
það sé einmitt sótt til annarra. En
það er einmitt að leita út frá sér, sem
færir mann nær persónuleika sínum
og þannig studdist persónulegasti
myndlistarmaður aldarinnar alltaf
við aðra listamenn, er hann vann
myndir sínar. Picasso var alltaf að
Haust, olía 1989.
Atvinnutekjur
Söluturn í eigin húsnæði til sölu. Húsnæðið er
einnig leigt undir aðra starfsemi. Skapið ykkur
atvinnu um leið og inn koma leigutekjur. Laust
strax.
il
SUÐURVERI
SI'MAR 82040 OG 84755) REYNIR ÞORGRÍMSSON.
grúska í bókum og fortíðinni, á með-
an hann vann málverk sín, og slíkir
jöfrar eru hreint ekkert að fela það,
því að kjarninn í þessu er, að athöfn-
in að skapa er að umskapa það, sem
aðrir hafa gert.
Einhvem veginn leggst það í mig,
að Bragi hefði gott af því að grúska
dálítið beint í list annarra, t.d. nokk-
urra ólíkra málara og víkka þannig
tæknisvið sitt alveg ósjálfrátt. Allir
málarar eru í mótun til síðasta dags,
séu þeir ekki staðnaðir, og málara-
listin er lík skólabekk, sem maður
situr í allt lífíð.
Þetta er víst orðinn dálítið undar-
legur listdómur, en ég hef víst skrif-
að um allar sýningar nafna míns til
þessa og þessi er nokkuð keimlík
þeim fyrri.
En ég finn eins og nýjan kraft og
geijun í myndum eins og „Haust“
(1), „Baula“ (22) og „PIanta“ (24),
sem virka eins og boðberar einhvers,
sem er að þróast með gerandanum
og hann vill ná fram, og á því vildi
ég vekja sérstaka athygli. Auk þess
eru veigamestu myndirnar á sýning-
unni einmitt þær, þar sem hann fæ-
rist mest í fang, svo sem „Á Þingvöll-
um“ (8) og „Armót“ (26).
Honda 90
Civic
Shuttle 4WD
116 hestöfl
Verð frn 1180 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIRALLA.
H HONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
Grípandi
málning
á grípandi
verði
Síðumúla 15, sími 84533