Morgunblaðið - 26.04.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRIL 1990
35
Stórsýning Sunnlendinga:
Ferskur blær úr suðri
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Siggu-Brúnka vakti almenna athygli á sýningunni fyrir góð til-
þrif og myndarskap. Knapi er Sigurður Sæmundsson.
_________Hestar____________
Valdimar Kristinsson
SUNNLENSKIR hestamenn og
hrossaræktendur mættu með
mikinn flota gæðinga og sýndu
listir sínar á þremur sýningum
í Reiðhöllinni fyrir páska. Voru
þarna sýndir kunnir gæðingar
og kynbótahross.
Þrátt fyrir erfiða tíð og slæmt
reiðfæri virðast Sunnlendingar
vera komnir með hross sín í gott
form. Meðal þess sem sýnt var
voru afkvæmi stóðhestsins Þokka
1048 frá Garði sem er að geta
sér gott orð sem reiðhestafaðir.
Þrátt fyrir að Þokki sé ekki hátt
dæmdur sem einstaklingur virðist
ljóst að hann gefur afbragðsgóð
reiðhross og sennilega má með
réttu kalla hann kynbótahest.
Væri hver hrossaræktandi full-
sæmdur af því að hafa hryssu
eins og Söndru frá Hala í stóði
sínu, en hún og gæðingurinn Fáni
frá Hala voru áberandi best af-
kvæma Þokka sem þarna komu
fram. En þó að þessi afkvæma-
sýning vekti eftirtekt var það
hryssusýningin sem var ijómi sýn-
ingarinnar með þær Siggu-
Brúnku undan Gusti 923 frá
Sauðárkróki og Sælu undan
Ófeigi 882 í broddi fylkingar.
Vöktu þessar hryssur hvað mesta
athygli enda báðar stórglæsilegar
og bráðflinkar og þá sér í lagi
Siggu-Brúnka.
Þá voru sýnd afkvæmi undan
Mána 949 frá Ketilsstöðum en sú
sýning var frekar fátækleg, að-
eins þrjú hross. Þar var í sér-
flokki gæðingurinn Muni frá Ket-
ilsstöðum. Hefði óneitanleg mátt
sýna fleiri hross með svo vel
þekktum og margsýndum stóð-
hesti sem Máni er.
Af gæðingum sem þarna komu
fram má ætla að Sunnlendingar
komi sterkir til leiks á landsmótið
í sumar. Þá voru sýnd hross frá
nokkrum bæjum á Suðurlandi og
hefði þar í sumum tilfellum verið
betur heima setið en af stað far-
ið. í heildina var þetta skemmtileg
sýning, en bar þess þó greinileg
merki að ekki hefur verið mikið
æft fyrir hana.
__________Brids_____________
Amór Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
Sveit Karls Hermannssonar sigraði
í meistaramóti Bridsfélags Suðurnesja
í sveitakeppni eftir horkukeppni við
sveit GS. Níu sveitir tóku þátt í keppn-
inni en spilaðir voru 32 spila leikir.
Með Karli spiluðu Jóhannes Sigurðsson,
Birkir Jónsson, Þórður Kristjánsson og
Arnór Ragnarsson.
Röð efstu sveita og skor:
Karl Hermannsson 181
Sveit G.S. 179
Guðmundur Þórðarson 163
Grethe íversen 159
Karl Karlsson 122
Sl. mánudag var spilaður eins kvölds
tvímenningur. Aðeins var spilað í einum
10 para riðli.
Urslit:
Þórður Kristjánsson —
Arnór Ragnarsson 134
Gísli ísleifsson —
Kjatrtan Ólason 120
Eiríkur Ellertsson —
Heiðar Agnarsson 117
Arnar Arngrímsson —
Sigurður Steindórsson 117
A mánudaginn kemur hefst tveggja
kvölda vortvímenningur. Spilað er í
Golfskálanum í Leiru og hefst keppni
•klukkan 20.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Bridsdeild Sjálfsbjargar bauð Brids-
klúbbi hjóna til keppni laugardaginn
7. apríl og var spilað á 6 borðum.
Hjónaklúbburinn sigraði nokkuð örugg-
lega með 113 stigum gegn 67. Ónefnd-
ur velunnari deildarinnar gaf farand-
bikar til þessarar keppni en stefnt er
að því að hún verði árleg.
Nýlega lauk 26 einstaklinga ein-
menningi með sigri Karls Péturssonar
sem hlaut alls 229 stig. Karl og Rúnar
Hauksson háðu hörkukeppni um efsta
sætið. Rúnar hlaut 226 stig.
Næstu einstaklingar:
Sigríður Sigurðardóttir 216
KarlKarlsson 213
GunnarGuðmundsson 212
Lokakeppni vetrarins verður tveggja
kvölda tvímenningur sem hefst 23.
apríl á sama stað og sama tíma.
Bridsfélag Breiðholts
Þriðjudaginn 10. apríl var spilað eins
kvölds tvímenningur.
Röð efstu para varð þessi:
Baldur Bjartmarsson —
Leifur Jóhannesson 244
Júlíus Sigurðsson —
V aldimar Elíasson 231
Jóhann Stefánsson —
' GuðmundurBaldursson 231
Sigfús Skúlason —
Bjöm Svavarsson 229
Bridsfélag HornaQarðar
Sýslutvímenningur Bridsfélags
Hornafjarðar var spilaður helgina 31.
mars til 1. apríl sl. á Hótel Höfn. 24
pör spiluðu 88 spil eftir Mitchell. Efstu
sætin skipuðu:
Skeggi Ragnarsson — Magnús Jónasson
/Landsbanki íslands 2065
Ragnar Björnsson — Ingvar Þórðarson
/Eskey hf.
Björn Gíslason — Sigfinnur Gunnarsson
/VÍS
Guðbrandur Jóhannsson — Gunnar P.
Halldórsson/Samvinnubankinn
Árni Stefánsson — Jón Sveinsson
/Verkalýðsfélagið Jökull
Ami Hannesson — Gestur Halldórsson
/Hótel Höfn.
Ofangreind fyrirtæki styrktu mótið.
Aðaltvímenningi bridsfélagsins lauk
svo 8. apríl sl.
Ami Stefánsson —
JónSveinsson 1934
Guðmundur/Gunnlaugur —
Gestur Halldórsson 1830
Birgir Bjömsson/Jóhann/
Jón G. Gunnarsson 1816
Magnús Jónasson —
Skeggi Ragnarsson 1784
Ingvar Þórðarson —
Ragnar Bjömsson 1707
Svava Gunnarsdóttir —
Gísli Gunnarsson 1702
Firmakeppni verður spiluð 22. apríl
nk. og er einmenningur.
Bridsfélag Kvenna
Nú er þremur kvöldum af fimm
lokið í hraðsveitakeppninni og er
staða efstu sveita þannig:
Sv. Öldu Hansen 1447
Sv. Sigrúnar Pétursdóttur 1413
Sv. Soffíu Theodórsdóttur 1407
Sv. Vénýar Viðarsdóttur 1395
Sv. Maríu Ásmundsdóttur 1344
íslandsmótið í tvímenningi
1990 — Undankeppni
Undankeppni íslandsmótsins í
tvímenningi verður spiluð í Gerðu-
bergi helgina 28.-29. apríl. Spilaðar
verða 3 lotur, tvær á laugardaginn
- kl. 13 og kl.19,30 og á sunnudag
kl. 11. Keppnisstjóri í undankeppn-
inni og úrslitum verður Jakob Krist-
insson <jg reiknimeistari Kristján
Hauksson. Skráning í keppnina er
hafín og skráð verður í síma Brids-
sambandsins, 689360. Keppnis-
gjald á par verður kr. 7.500. Menn
eru beðnir að skrá sig tímanlega.
1%,/ Viðtalstími borgarfulltrúa k/ % Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík f
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum í vetur frá kl. 10-12. vff Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum. Allir borgarbúar velkomnir. Jmr m Laugardaginn 28. apríl verða til viðtals Júlíus Hafstein, formaður íþrótta ráðs Reykjavíkur, umhverfismálaráðs, ferðamálanefndar og í stjórn C og Guðmundur Hallvarðsson, formaður hafnarstjórnar. - og tómstunda lagvistar barna
( H S é w w w v: J:'i 'ii-rj 'uf.ioj:
3
i
=3
Z
z
5
5
rs
Q
Z
oc
TÖLVU-
MÖPPUR
/rá Múlalundi...
.. þar er tölvupappírinn vel geymdur.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
SIEMENS
WV 2760
Margra ára sigurganga á íslandi!
Þessi góða og hagkvaema þvottavél hefur
sannað ágæti sitt svo að um munar. Það stað-
festa þúsundir ánægðra notenda um allt land.
• Mörg þvottakerfi. • Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval. • Vinduhraði 600 og 800
sn./mín. • íslenskir leiðarvísar.
Staðgreiðsluverð: 6o.900,-
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Sfcrmerkjum
ölglös
jjm^
Höfðabakki 9
Sérmerkjum ölglös
meö skemmtilegum
teikningum eða eftir
ykkartillögum!
Reykjavík s. 685411