Morgunblaðið - 26.04.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRIL 1990
4]
Minning:
Ragnheiður Jóns
dóttir, sölustjóri
Fædd 23. desember 1902
Dáin 16. apríl 1990
Að kvöldi annars páskadags and-
aðist á elliheimilinu Sólvangi í
Hafnarfirði, föðursystir okkar,
Ragnheiður Jónsdóttir, fyrrverandi
sölustjóri á Keflavíkurflugvelli.
Ragnheiður fæddist á Klyppstað
í Loðmundarfirði á Þorláksmessu,
23. desember, 1902. Foreldrar
hennar voru Jón Þorsteinsson,
bóndi og oddviti, og kona hans
Ragnheiður Sigurbjörg ísaksdóttir,
ljósmóðir. Ragnheiður var yngst í
röð sex alsystkina, en syskini henn-
ar voru: Jón (1891-1973), bóndi á
Selstöðum í Seyðisfirði, Guðrún
(1894-1941), gift Eide, húsmóðir í
Reykjavík, Arnbjörg (1895-1980),
húsmóðir í Reykjavík, ísak
(1898-1963), skólastjóri í Reykja-
vík, Sigurður (1900-1989), brúar-
smiður á Sólbakka, Borgarfirði
eystra. Hálfsystkini Ragnheiðar,
samfeðra, voru Þorsteinn
(1875-1953), bóndi í Gilsárteigi í
Eiðaþinghá, og Anna María
(1877-1947), húsmóðir á Seyðis-
firði. Sigurður bróðir Ragnheiðar
lést síðastliðið sumar, og nú, þegar
Ragnheiður er dáin, eru þau systk-
inin öll horfin yfir móðuna mikiu.
Árið 1907 fluttist Ragnheiður
með fjölskyldu sinni að Seljamýri í
Loðmundarfirði, og þar átti hún sín
æsku- og unglingsár við hefðbundin
sveitastörf. Átján ára gömul yfirgaf
Ragnheiður foreldrahúsin og fór
einn vetur í vist til Ágústs Flygen-
ring í Hafnarfirði. Síðan fór hún
til Seyðisfjarðar og var þar við
ýmis störf, t.d. í banka. Kvöldin
notaði hún til náms, m.a. í ensku,
dönsku og vélritun. Á árunum
1925-1926 var hún í vist hjá Schi-
ödt-fjölskyldunni á Akureyri, en fór
svo aftur austur í heimahagana til
1928, þegar hún flutti suður til
Reykjavíkur. Var hún fyrst í vist,
en stundaði síðan ýmis störf, t.d. í
Hattabúðinni en lengst af við skrif-
stofustörf í sælgætisgerðinni
Freyju. Frá því um 1950 til 1969
starfaði hún hjá Ferðaskrifstofu
ríkisins sem sölustjóri í minjagripa-
verslun á Keflavíkurflugvelli. Á
þessum vinnustöðum eignaðist hún
marga góða kunningja, sem hún
minntist oft með ánægju síðar.
Frá því við munum fyrst eftir
okkur var Ragnheiður, eða Rænka
eins og hún var alltaf kölluð, tíður
gestur á heimili foreldra okkar,
enda var hún með afbrigðum
frændrækin og trygglynd, bæði
ættingjum og vinum. Rænka giftist
aldrei og átti ekki börn sjálf. Hún
hafði samt mjög gaman af börnum
og hafði gott lag á þeim. Fylgdist
hún t.d. grannt með hvernig systk-'
inabörnum og börnum þeirra gekk
í námi og starfi.
Rænka var hispurslaus í fram-
komu, hrein og bein, var oft orð-
heppin og snögg í svörum og talaði
enga tæpitungu. Hún var ljóshærð
og gráeyg, frekar smávaxin, en
röskleg og kvik í hreyfingum og
það gustaði af henni hvar sem hún
fór. Rænka var dugnaðarforkur og
útsjónarsöm að bjarga sér í lífinu.
Hún hafði ágætar námsgáfur og
aflaði sér menntunar með sjálfs-
námi eftir vinnudag, en efni hennar
og aðstæður leyfðu ekki frekara
skólanám. Sem sölustjóri á Kefla-
víkurflugvelli naut hún málakunn-
áttu sinnar.
Rænka hafði gaman af því að
■ferðast. Hún fór oft í skíðaferðir
með vinkonum sínum og hjólaði
mikið um landið ein eða með öðrum,
þar til hún keypti sér bíl á sextugs-
aldri. Á efri árum fór hún oft til
útlanda, m.a. í hina frægu ferð með
Baltiku 1966. Árið 1938, þegar
hugtakið ferðagjaldeyrir var ekki
til, fór hún til Þýskalands og ferðað-
ist á eigin vegum, m.a. til Berlínar
og Munchenar. Rænka hafði gaman
af að tala um ferðalögin sín. Nýlega
þegar við rædduni um Þýskalands-
ferðina, kom fram að hún fór í skoð-
unarferðir í nágrenni Berlínar með
þýskum kvennasamtökum. Á þeim
tímum var siður í því landi að
heilsa með þýskri kveðju, og jafn-
vel ætlast til þess að erlendir gestir
gerðu það líka. Aðspurð hvort hún
hefði notað þá kveðju, svaraði
Rænka með þjósti: Uss, ég held nú
síður!
Eins og títt er um aldrað fólk,
voru æskuárin henni minnisstæð.
Þó að hún væri ung þegar hún fór
að heiman, var mesta furða hvað
hún mundi vel eftir örnefnum og
öðrum fróðleik af heimaslóðum í
Loðmundarfirði. Sem dæmi má
nefna atvik sem hún sagði stundum
frá. Það mun hafa verið veturinn
1926-27 að Ragnheiður var heima
hjá foreldrum sínum á Seljamýri.
Jóhannes Kjarval kom þá á bát frá
Seyðisfirði, og var á leið til Borgar-
fjarðar. Hann var þá afskaplega
aðþrengdur fjárhagslega og konan
eftir úti í Danmörku með börnin.
Fjölskyldan á Seljamýri aftók að.
hann færi lengra eins og veðurútlit
var, auk þess sem hann var alls
ekki klæddur til vetrarferða. Var
hann nokkra daga á Seljamýri á
ifteðan konurnar bættu fatakost
hans. Notaði hann tímann til að
teikna myndir af heimilisfólkinu,
m.a. gerði hann þrjár myndir af
Ragnheiði. Eina þeirra gaf hann
Rænku, en aðra, sem hún var hrifn-
ust af, vildi hann ekki láta, sagði
að myndin væri svo kúnstnerísk að
hann ætlaði að eiga hana sjálfur.
Minnisstætt var Ragnheiði að
Kjarval stóð tímunum saman við
gluggann og horfði þögull út á
fjörðinn.
Ragnheiður var mjög músíkölsk
eins og hún átti kyn til. Á æsku-
heimili hennar var til harmóníum
(orgel). Mikið var sungið á heimil-
inu, einkum þegar gestir komu, og
sá Rænka oft um undirleik. Var
stundum endað úti á hlaði með því
að syngja „Vegir skiljast“. Eitt sinn
kom Ingi T. Lárusson tónskáld í
Seljamýri, og heyrði Ragnheiði
spila. Skömmu síðar sendi hann
henni áritað nótnahefti. Þótti Ragn-
heiði vænt um þá gjöf. Eftir að
Ragnheiður hafði eignast fast heim-
ili í Reykjavík, á Fálkagötu 24,
keypti hún sér píanó, og stytti sér
stundir með píanóleik.
Skömmu eftir að Rænka hætti
störfum, veiktist hún af vöðvagigt
og gláku, og dofnaði sjónin þá nokk-
uð. Henni tókst þó að rífa sig upp
úr þeim veikindum og hélt hressi-
leika sínum, andlegum og líkamleg-
um í allmörg ár eftir það. Sem
dæmi má nefna, að um áttrætt
dreif hún sig með vinkonu sinni í
dansskóla Heiðars Ástvaldssonar.
Rænku fannst ekki nógu mikið
„fútt“ í þessu dansnámi, fólkið
væri bara látið róla á öðrum fæti;
hún vildi læra fugladansinn!
Á þessum árum fór Rænka í ferð-
alög, bæði utanlands og innan, m.a.
austur á land til að heimsækja ætt-
ingja og vini. Sumarið 1983 fór hún
til Ungveijalands; upp úr því fór
að bera á ellisjúkdómi, sem lýsti sér
m.a. í gleymni og sinnuleysi. Var
henni fyrst útveguð heimilishjálp,
en þar kom, að hún gat ekki lengur
verið ein heima. í ársbyijun 1985
var Ingibjörg Jóhannsdóttir að
helja rekstur vistheimilis fyrir aldr-
aða á Blesastöðum á Skeiðum, og
varð Ragnheiður fyrsti vistmað-
urinn. Naut hún þar góðrar umönn-
unar. Síðla árs 1988 for Ragnheið-
ur að Sólvangi í Hafnarfirði, þar
sem hún dvaldist við góðan aðbúnað
til æviloka. Þar eins og á Blesastöð-
um líkaði Ragnheiði vistin vel, enda
var það viðtekið svar hjá henni þeg-
ar hún var spurð, að henni líkaði
vel allstaðar þar sem hún hefði sam-
astað. Hún væri þannig gerð.
Af ættingjum Ragnheiðar hafði
Björg systir okkar nánast samband
við hana. Var hún Rænku ómetan-
leg stoð í ellinni.
Með Ragnheiði er gengin merki-
leg kona, góður fulltrúi aldamóta-
kynslóðarinnar, þeirrar kynslóðar
sem hefur upplifað og tekið þátt í
mestu umbyltingu sem átt hefur sér
stað í sögu þjóðarinnar.
Gylfí Isaksson,
Sigurjón Páll Isaksson.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN MARTEINSDÓTTIR
fró Freyju, Neskaupstað,
síðar búsett í Bogahlíð 13, Reykjavik,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 27. apríl kl. 15.00.
Ada Elísabet Benjamínsdóttir, Friðrik Á. Magnússon,
Jón Benjamínsson,
Benjamín Friðriksson,
Baldur Friðriksson,
Magnús Friðriksson,
Ragnheiöur Jónsdóttir,
Guðný M. Kjartansdóttir,
Birna Magnúsdóttir,
Lilja Björnsdóttir,
Bryndís Jónsdóttir,
Steinunn Jónsdóttir
og barnabarnabörn.
Útför,
ÁSGEIRS EINARSSONAR
aðalféhirðis,
Kvisthaga 1,
Reykjavík,
ferfram frá Dómkirkjunni í Reykjavíkföstudaginn 27. apríl kl. 13.30.
Ágústina Ágústz,
Birgir Ásgeirsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Ingibjörg Einarsdóttir,
Ásta Einarsdóttir,
Sveinbjörn Einarsson,
Sigrún Einarsdóttir,
Hróbjartur Einarsson
og barnabörn.
+
Útför móður minnar, tengdamóður og ömmu okkar,
EYVARAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 27. apríl kl. 10.30.
Arndis Þorvaldsdóttir,
Erna Hauksdóttir,
Þorvaldur Hauksson,
Benedikt Hauksson,
Haukur Þór Hauksson,
Hörður Hauksson,
Haukur Benediktsson,
Júlíus Hafstein,
Kolbrún Jónsdóttir,
Guðlaug Sveinsdóttir,
Ásta Möller,
Jóna Jakobsdóttir
og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar, systir, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Meistaravöllum 15,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 27. apríl kl. 15.00.
Kristján Örn Ingibergsson,
Þuríður Ingibergsdóttir,
Þorvaldur Kristjánsson,
tengdabörn og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
EINAR MAGNÚS ÞORSTEINSSON
húsgagnasmiður,
Reynihvammi 33,
Kópavogi,
sem lést þann 14. apríl verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
föstudaginn 27. apríl kl. 15.00.
Heiðrún Helgadóttir,
Anna Einarsdóttir,
Reynir Einarsson,
Ólafía G. Einarsdóttir,
Valgerður H. Einarsdóttir,
Sigríður Þorsteinsdóttir,
Guðrún Þ. Hörgdai
og barnabörn.
Ragnar J. Jónsson,
Laufey Jensdóttir,
Sigurður Sigurðsson,
Hilmar Adólfsson,
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Ástkær unnusti minn, sonur, + bróðir og barnabarn,
MAGNÚS JÓN MAGNÚSSON,
andaðist þann 23. apríl.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 2. maí kl.
13.30.
Guðrún Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Hrönn Héðinsdóttir, Vigfús Elvan Friðriksson,
Héðinn Magnússon, Sæbjörn Elvan Vigfússon,
Hafþór Magnússon, Vigfús Elvan Vigfússon,
Óskar Jacobsen, Hafrún Eivan Vigfúsdóttir, Héðinn Hermóðsson,
Guðrún Magnúsdóttir, Hólmfrfður Jónsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn,
ODDURSKÚLASON
bóndi,
Mörtungu,
er lést 17. apríl, verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju á Síðu
laugardaginn 28. apríl kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.30 árdegis sama dag.
Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna, barnabarna og barnabarna-
barna,
Ásta Ólafsdóttir.
+
Útför eiginmanns míns,
SVEINBJARNAR PÉTURSSONAR
frá Flatey á Breiðafirði,
fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 28. apríl kl. 14.00.
Rútuferð verður frá BSÍ sama dag kl. 9.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á St. Fransiskusskjúkra-
húsið í Stykkishólmi.
Anna Kristín Björnsdóttir.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður og ömmu,
ÞÓRDÍSAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Borgarnesi.
Húbert Ólafsson,
Guðrún Húbertsdóttir, Þorkell Þórðarson,
Dagný Drífa og Þórey Þorkelsdætur.