Morgunblaðið - 26.04.1990, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1990
SKÍÐI / ANDRÉSAR ANDAR LEIKARNIR
Ír
■ LEIKARNIR voru að þessu
sinni hluti af Vetraríþróttahátíð
ÍSÍ, og fengu allir þátttakendur við-
urkenningarskjal frá Vetrarhátí-
ðamefnd.
■ SIGURVEGARAR í 12 ára
flokki, í alpagreinum og göngu,
fengu skíði í aukaverðlaun fyrir
árangur sinn á mótinu.
■ LEIKARNIR voru nú haldnir í
15. skipti. Bæjarstjórn Akureyrar
afhenti Skíðaráði Akureyrar áletr-
aðan^ silfurskjöld í tilefni þess.
■ ÁTTA manns hafa starfað í
Andrésar andar nefndinni, frá því
mótið var fyrst haldið 1976. Þeim
var öllum færð að gjöf forláta bók
frá bæjarsjóði, einstaklingum og
fyrirtækjum á Akureyri, fyrir frá-
bær störf. Björg „Bella“ Finn-
bogadóttir afhenti þeim gripinn.
Áttmenningarnir eru Kristinn G.
Lórenzson, Einar Pálsson, ívar
Sigmundsson, Friðrik Adolfsson,
Magnús Gíslason, Hermann Sig-
tryggsson, Kristinn Steinsson og
Leifúr Tómasson, en hann átti ein-
mitt hugmyndina að leikunum á
sínum tíma.
■ KEPPENDUR að þessu sinni
voru 742, um 150 fleiri en í fyrra.
Kristinn G. Lórenzson, formaður
Andrésar andar nefndarinnar, sagði
ljóst að ekki væri hægt að fjölga
meira á mótinu við núverandi að-
stæður. „Nú verðum við að setjast
niður og skoða hvað hægt er að
gera. Við höfum nánast enga
smugu til að fresta neinu; ekki þeg-
ar mótið stendur yfir í þrjá daga.
En miðað við þennan mikla kepp-
endafjölda tókst allt stórkostlega
vel nú,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skin og skúrir
Ólafur V. Rögnvaldsson frá Siglufirði
sigraði með glæsibrag í stökki 12 ára
á laugardaginn. Hann fór síðan rak-
leiðis í svigkeppnina en varð þar fyrir
því óhappi að fótbrotna. Það skiptust
Jþví á skin og skúrir hjá þessum unga
keppnismanni. En hann verður von-
andi fljótur að ná sér og kominn á
skíði aftur áður en langt um líður.
Morgunblaðíð/Rúnar Þór
Hannes Steindórsson frá Dalvík hampaði gullverðlaunum í svigi 11 ára flokks. Hann fékk besta tímann í báðum ferðum og fékk um hálfrar sekúndu
betri samanlagðan tíma en Arngrímur Amarsson frá Húsavík, sem varð í öðru sæti. Hannesi gekk ekki eins vel í stórsviginu, en þar varð hann í 24. sæti. Hér
rennir hann sér í sviginu, einbeittur á svip.
Fékk betri tíma
en strákamir
Eva Björk Bragadóttir frá Dalvík hafði yfirburði í svigi 11 ára. Hún
var meira að segja með betri tíma en strákarnir, sem kepptu í sömu
braut. „Nú var það?“ sagði hún, og sagðist ekki hafa vitað hvaða tíma
strákarnir hefðu fengið. Hún er ekki óvön því að sigra - vann bæði svig
og stórsvig í fyrra og líka árið þar áður. Eva keppti nú í fjórða sinn á
leikunum. Hún sagði ekki mörg mót hafa farið fram á Dalvík í vetur.
„Mörgum mótum hefur verið frestað af því að veðrið hefur verið svo
vont. Við höfum samt keppt nokkrum sinnum en ég man ekki hvernig
mér gekk.“
Hún sagðist æfa þrisvar í viku. Þjálfarinn sinn héti Björgvin og það
væri mjög gaman á æfingum. Eva er greinilega mjög efnileg skíðakona
og ekki kæmi á óvart þó hún ætti mikið eftir að láta að sér kveða í brekk-
unum á næstu árum. En þegar hún var spurð hvort hún ætlaði sér að
verða skíðadrottning síðar meir brosti Eva bara og svaraði engu. Tíminn
á eftir að leiða það í ljós.
Eva Björk Bragadóttir frá Dalvík
sigraði í svigi 11 ára.
„Örugglega
baragóð
í báðum...“
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir frá
Siglufirði var fyrst til að taka
á móti verðlaunabikar á þessum
Andrésar andar leikum. Hún sigr-
aði í stórsvigi 7 ára — hlaut bestan
tíma í báðum ferðum. Aðalheiður
er nýorðin 8 ára, átti afmæli 3.
janúar. „Það hefur verið mikill snjór
á Siglufirði í vetur og gott að æfa,
kannski snjórinn hafi meira að segja
verið of rnikill," sagði Aðalheiður
og bætti því við að hún hefði verið
dugleg að æfa í vetur.
„Dugleg
íi
Þetta er fyrsti bikarinn sem
ég vinn“ sagði Hildur Jónas-
dóttir, 9 ára frá Seyðisfirði, eftir
að hafa tekið við verðlaunum
sínum fyrir sigur í stórsvigi á
fimmtudaginn, og síðan • bætti
Hildur því við að auðvitað stefndi
hún að því að vinna marga bikara
í framtíðinni.
Hún er nú að keppa í þriðja
skipti á Andrésar andar leikunum.
Hildur sagði að margir krakkar
æfðu skíðaíþróttina á Seyðisfirði.
„Ég hef verið dugleg að æfa í
vetur og keppt á nokkrum mótum.
Bæði heima og svo fór ég til
Neskaupstaðar að keppa. Mér
gekk vel en vann samt ekki.“
Hildur Jónasdóttir.
Vann þrenn gullverðlaun
Jóhann Þórhallsson frá Akureyri
er nýorðinn 10 ára, en hann
vann þrefalt í 9 ára flokki, svig,
stórsvig og stökk. Hann mundi ekki
nákvæmlega hve oft hann hefði
keppt á Andrésar andar leikunum,
„svolítið oft“ sagði hann - en Jó-
hann var með það á hreinu hve oft
hann hefði unnið. „Ég hef fimm
sinnum unnið, með jjessum," sagði
Akureyringurinn og horfði stoltur
á bikarinn glæsilega sem hann hafði
nýlega hampað fyrsta keppnisdag-
inn, eftir að hafa sigrað í stórsvigi.
Tveir bikarar áttu þá eftir að bæt-
ast í safnið. í fyrra vann hann tvöf-
alt í átta ára flokki að eigin sögn,
bæði svig og stórsvig.
Jóhann sagðist fara á skíði næst-
um því á hveijum degi. „Það er
mjög gaman að keppa á Andrésar
andar leikunum. Maður kynnist svo
mörgum." Hann sagðist ekki hafa
gert mikið af þvi að fara í Lundar-
Jóhann Þórhallsson.
skólann til að hitta hina krakkana.
„En þegar ég er búinn að keppa
nokkrum sinnum við sömu stráka
annars staðar frá þekki ég þá
svolítið vel,“ sagði Jóhann og hnýtti
því við að hann væri staðráðinn í
að halda áfram að æfa af kappi -
og halda áfram að vinna.
Það stóð ekki á svarinu þegar
Jóhann var spurður um uppáhalds
skíðamann sinn: „Það var Ingemar
-Stenmark. En nú er hann hættur.
Nú held ég mest upp á annan en
ég man ekki alveg hvað hann heitir
- hann er líka frá Svíþjóð . . .“
Eftir keppnina síðasta daginn,
þegar Jóhann hafði einnig sigrað í
svigi og stökki, spjallaði blaðamað-
ur aftur við hann. „Ég datt í fyrri
ferðinni í sviginu, en var ekkert
hræddur. Stóð bara upp og hélt
áfram. Ég var með þriðja besta
tímann eftir fyrri ferðina og keyrði
svo alveg eins og bijálæðingur í
seinni ferð.“ Það dugði til sigurs.
Jóhann sagðist ekkert æfa stökk.
„Ég stökk ekki lengst, en fékk flest
stig samanlagt."
Hún hefur verið sigursæl í vetur
- sagðist hafa keppt á fjórum mót-
um heima í Siglufirði og hefði unn-
ið þau öll. Aðalheiður vildi ekki
dæma um það hvort hún væri betri
í svigi eða stórsvigi; „Ég er örugg-
lega bara góð í báðum," sagði hún.
Þetta er í fyrsta skipti sem Aðal-
heiður tekur þátt í Andrésar andar
leikunum og þótti henni það „ofsa-
lega gaman" eins og svo mörgum
öðrum viðmælendum blaðsins.
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir
varð fyrst til að taka á móti verðlauna-
bikar á leikunum.