Morgunblaðið - 11.05.1990, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.05.1990, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990 Evrópustefiiunefíid Alþingis skilar áfangaskýrslu: Full samtaða um að veiðiheim- ildir til EB komi ekki til greina FULL samstaða er í Evrópustefnunefiid Alþingis um að ekki komi til greina að veita Evrópubandalagsríkjum veiðiheimildir í fiskveiðilög- sögu íslands í skiptum fyrir tollaívilnanir. Sjö nefhdarmenn af níu telja rétt að ganga til formlegra samningaviðræðna við EB með öðrum EFTA ríkjum um evrópskt efhahagssvæði en nefndin er sammála um að sýna verði fyllstu gætni, varðandi hugsanlegar sameiginlegar stofii- anir á sviði Iöggjafarvalds, eftirlits- og dómsvalds, sem að undanförnu hafa verið til umræðu í þeim viðræðum. Evrópustefnunefnd hefur nú skil- að áfangaskýrslu til Alþingis. Þetta er nefnd 9 þingmanna allra þing- flokka sem var var kjörin á Alþingi árið 1988 og átti að taka til sér- stakrar athugunar þá þróun sem fyrir dyrum stæði í Evrópu, einkan- lega með tilliti til ákvörðunar Evr- ópubandalagsins um sameiginlegan innri markað. Nefndin átti að skila skýrslu fyrir 1. apríl 1989, en Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður og formaður nefndarinnar sagði við Morgunblaðið að á þessum tíma hefðu orðið slíkar breytingar í málefnum Evrópu að nefndin hefði varla náð að fylgjast með frá degi til dags. Það hefði því veríð óeðlilegt annað en áður sett tímaáætlun hefði ruglast, og í stað þess að skila heildarskýrslu um störf sín valdi nefndin þann kost að skipta verkefninu í áfanga. Eyjólfur sagði að í haust hefði verið ákveðið að leggja fram áfanga- skýrslu og þar sem leitast væri við að fá fram sameiginleg sjónarmið innan nefndarinnar. Þetta hefði tek- ist og í mörgum meginatriðum hefði náðst samstaða innan nefndarinnar, sem væri væri nærri einsdæmi innan þjóðþinga EFTA-ríkjaanna. En auð- vitað hefðu sjónarmið nefnarmanna verið ólík í öðrum atriðum og því hefðu allir nefndarmenn einnig skil- að séráliti sem birt er í skýrslunni. Aðild að EB ekki á dagskrá í sameiginlegu áliti nefndarinnar segir fyrst, að enginn íslensku stjómmálaflokkanna 'hafi á stefnu- skrá sinni aðild að Evrópubandalag- inu. Sumir orði það þannig í stefnu- yfirlýsingum að aðild sé ekki á dag- skrá en aðrir að aðild komi ekki til greina. Nefnin er sammála um að Island skuli áfram taka þátt í samstarfi um fríverslun innan EFTA og að fríverslun taki einnig,til EB eins og EFTA-ríkin hafi hvert um sig leitast við að tryggja með tvíhliða viðræð- um. Ekki er samstaða í nefndinni um að taka eigi þátt í samningum um myndun sameiginlegs evrópsks efnahagssvæðis á þeim grandvelli sem nú liggur fyrir. Meiri hluti nefndarinnar, fulltrúar Alþýðu- flokks, Borgaraflokks, Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks, telur rétt að ganga til formlegra samn- ingaviðræðna með öðram EFTA- ríkjum, en fulltrúar Alþýðubanda- lags og Kvennalista telja fyrirliggj- andi samningsgrundvöll um EES óaðgengilegan. Allir íslensku stjórnmálaflokkarn- VEÐUR 1/EÐURHORFUR í DAG, 11. MAÍ YFIRLIT í GÆR: Skammt austur af Hvarfi á Grænlandi er 988 mb. lægð sem þokast norð-austur. Lægðarbylgja um 500 km suð-suð- vestur af Reykjanesi hreyfist norð-norö-austur. SPÁ: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Þokuloft og sumsstaðar súld við suðaustur- og austurströndina og þar svalt í veðri en þurrt og víða léttskýjað og 7-12 stiga hiti í öðrum landshlutum. Sem sagt blíðu sjóveður þennan lokadaginn. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Hæg suðaustlæg átt. Dálítil súld á Suðausturlandi og við austurströndina, þokuloft á annesjum norðanlands og svalt í veðri. Þurrt og víða bjart veður með 7-12 stiga hita í öðrum landshlutum. TÁKN: Heiðskírt /, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður \n / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 11 alskýjað Reykjavík 6 úrkoma igrennd Bergen 11 þokumóða Helsinki 15 skýjað Kaupmannahöfn 19 léttskýjað Narssarssuaq +2 skýjað Nuuk +5 snjókoma Osló 19 léttskýjað Stokkhólmur 24 hálfskýjað Þórshöfn 7 alskýjað Algarve 21 léttskýjað Amsterdam 15 alskýjað Barcelona 21 skýjað Berlín 23 skýjað Chicago 4 rigning Feneyjar 22 þokumóða Frankfurt 22 léttskýjað Glasgow 9 rigning Hamborg 20 skýjað Las Palmas vantar London 12 skýjað LosAngeles 14 skýjað Lúxemborg 12 rignir Madrid 20 léttskýjað Malaga 17 rigning Mallorca 17 alskýjað Montreal 14 léttskýjað New York 28 rigning Orlando 29 alskýjað París 17 skýjað Róm 20 þokumóða Vín 21 iéttskýjað Washington 27 skýjað Winnipeg 8 léttskýjað ir hafa lýst því yfir að ekki komi til greina að veita EB veiðiheimildir í fiskveiðilögsögu íslendinga í skipt- um fyrir tollalækkanir, og er full samstaða umþetta í nefndinni. Telur nefndin að Islendingar hafi bæði sögulegan og lagalegan rétt til að krefjast þess að fullt tillit sé tekið til séraðstæðna þjóðarinnar, og er í þvi sambandi vísað til 71. greinar hafréttarsáttmálans, sem kveður á um réttindi þeirra ríkja sem hafa yfirgnæfandi efnahagslegra hags- muna að gæta af fiskveiðum. „Við hvorki getum né viljum flétta íslensk fiskveiðimálefni inn í sameiginlega fiskveiðistefnu Evrópubandalags- ins,“ segir orðrétt í skýrslunni. Nefnin telur síðan að sýna verði fyllstu gætni, varðandi husanlegar sameiginlegar stofnanir á sviði lög- gjafarvalds, eftirlits- og dómsvalds, sem að undanförnu hafa verið til umræðu í könnunar og undirbúning- sviðræðum á vegum EFTA og EB vegna hugmynda um évrópskt efna- hagssvæði. Samþjóðlegt vald kann að styrkja sjálfstæðið Allir fulltrúar í nefndinni skiluðu síðan séráliti. Ásgeir Hannes Eiríks- son fulltrúi Borgaraflokksins taldi að uppfræða ætti þjóðina og leggja svo útslit úr viðræðum EFTA og EB undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Eiður Guðnason fulltrúi Alþýðu- flokksins bendir á, að aðild íslands að evrópsku efnahagssvæði muni fela í sér víðtækar alþjóðlegar skuld- bindingar sem óhjákvæmilega tak- marki svigrúm til óháðra ákvarðana. í þessu sambandi sé rétt að spyija þeirrar spurningar hvoirt ekki sér tímabært að endurmeta inntak og merkingu hugtaka eins og efnahags- legs sjálfstæðis og yfirþjóðlegs valds. Á vissum sviðum efnahags- mála kunni samþjóðlegt vald að styrkja sjálfstæði þjóðarinnar. Eiður segir Alþýðuflokkinn telja, að íslendingar eigi hiklaust að taka fullan þátt í sameiningarþróuninni, sem nú eigi sér stað í Evrópu. íslend- ingar eigi þar mikilla hagsmuna að gæta, þar sem langstærstur hluti utanríkisviðskipta þjóðarinnar sé við Evrópuríki, og með því að taka þátt í stærri efnahagsheild í Evrópu sé unnt að skapa öllum almenningi betri lífskjör, þjóðarbúinu aukinn hagvöxt og efnahagslegan stöðug- leika. Eihliða ákvörðun um frelsi í peningamálum Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Eyjólfur Konráð Jónsson, Guðmund- ur H. Garðarsson og Ragnhildur Helgadóttir segjast fagna þeirri samstöðu sem náðist í nefndinni. Þau segjast vera í hópi þeirra sem vilji ganga til formlegra samninga- viðræðna með öðrum EFTA-ríkjum, um evrópskt efnahagssvæði, en sam- hliða verði nú þegar óskað eftir við- ræðum við EB um viðauka við bókun 6 til leiðréttinga vegna breyttra að- stæðna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að hvergi verði hvikað frá þeirri stefnu sem ríki EB viðurkenndu með bókun 6 frá 1972, að íslendingar eigi einir réttindin til fiskveiða innan 200 mílna efnahags- lögsögunnar. Eignaraðild útlendinga að fiskveiði og fiskverkunarfyrir- tækjum verði áfram óheimil. Sjálfstæðismennirnir segja að ís- lendingar eigi að taka upp fullt fijálsræði í peningamálum í sam- vinnu við aðrar Evrópuþjóðir í um- ræðum um evrópskt efnahagssvæði, eða einhliðá, þannig að gjaldeyris- verslun verði algerlega fijáls. Greitt verði fyrir erlendri fjárfestingu og fjármagnsflutningum til iðnvæðing- ar og þjónustustarfa. Þá leggja sjálfstæðismennirnir til að samstarf innan GATT verði auk- ið, enda Ijóst, að sú stefna sé þar ríkjandi að fiskveiðar innan 200 mílna í stað tollfríðinda sé ekki talin umræðuhæf í þeim samtökum. Grundvöllur EES óaðg’engilegur Hjörleifur Guttormsson fulltrúi Alþýðubandalagsins segir í sínu áliti, að Island eigi nánast um tvær leiðir að velja í samnkptum við umheim- inn. Annars vegar að tengjast Evr- ópubandalaginu í gegnum evrópskt efnahagssvæði eða með beinum hætti innan tíðar, eða að haalda óháðri stöðu gagnvart efnahags- bandalögum, en leita sem hagstæð- ástra samninga við slík bandalög í Evrópu, Norður-Ameríku, Austur- Asíu og víðar. Hjörleifur telur að velja eigi síðari kostinn. Hann segir að grundvöllur við- ræðna um evrópskt efnahagssvæði sé óaðgengilegur fyrir íslendinga. Hann telur að það sé að leita langt yfir skammt að ætla að tengjast efnahagssvæði til að komast í kall- færi við EB um eðlileg, tollfijáls við- skipti með sjávarafurðir. Þess í stáð eigi að knýja á um leiðréttingu á viðskiptum við EB í beinum milliliða- lausum viðskiptum. Hjörleifur varar við því, að með því að tengjast evópsku efnahags- svæði blasi við valdaafsal til yfirþjóð- legra stofnana sem sé í andstöðu við stjómarská íslands. Þá séu líkur á að fjótlega eftir að ísland verði aðili að evópsku efnahagssvæði muni erlendir aðilar ná tangarhaldi á sjávarútvegi og gætu innan skamms orðið ráðandi í fiskvinnslu og fiskveiðum. Þá telur Hjörleifur með ólíkindum að ekki hafi verið settir skýrir fyrir- varar af íslands hálfu varðandi samningaviðræður um þjónustu og fjármagnssvið. Hann telur að með því að aflétta hömlum af fjármagns- hreyfingum gæti, að því er Island varðar, orðið verulegt útstreymi á fjármagni úr landi. Hætta á einangrun Kristín Einarsdóttir fulltrúi Kvennalistans segir að Kvennalisti telji aðild íslands að EB ekki koma til greina. Aðild að evópsku efna- hagssvæði þýði aðlögun að EB og með. því væra íslendingar að afsála sér stóram hluta sjálfstæðis síns. Þá myndi þátttaka þvinga íslenskt atvinnulíf til vaxandi einhæfni til að svara þörfum evópumarkaðar og ísland einangrist í útjaðri svæðisins. Allar líkur séu á að slík aðild leiði til þess að íslendingar nái ekki að reisa skorður við útflutningi á hálf- unnum og óunnum fiski, sparifé streymi frá landinu og erlendir fjár- festingaraðilar sjái sér hag í því að fjárfesta í undirstöðugreinum í íslensku atvinnulífi og nái varanleg- um ítökum. Þá telur Kristín að í þeim samn- ingum, sem ríkisstjórnin fyrirhugi með þátttöku í viðræðum EFTA við EB, verði meginhagsmunum íslands vikið til hliðar; þar hafi ekki verið sett fram skilyrði um að verslun með sjávarafurðir sé forgangsmál og því eigi ísland ekki samleið með öðram EFTA-ríkjum í samningum þar sem sjónarmið varðandi sjávarafurðir muni mæta afgangi Útilokað að afsala rétti Páll Pétursson fulltrúi Framsókn- arflokksins segir að framsóknar- menn telji útilokað að ísland sæki um aðild að EB, þar sem íslendingar geti aldrei afsalað sér rétti til að taka sjálfir nauðsynlegar ákvarðanir til að styrkja afkomu og sjálfstæði. Páll segir að framsóknarmenn voni að farsællega takist að mynda evópskt efnahagssvæði þar sem Is- lendingar geti orðið þátttakendur, þjóðinni til hagsbóta. Ef hins vegar viðræður EFTA og EB beri ekki við- unandi árangur eigi íslendingar að reyna að stofna til beinna viðræðna við EB um bætta viðskiptasamninga. Vettvangur til að rífast á Evrópustefnunefnd hefur nú látið gefa út sjö rit um ísland og Evrópu og auk þess leitað eftir upplýsingum frá fjölda manna. Eyjólfur Konráð Jónsson segir að störf nefndarinnar Tiafi haft mjög mikla þýðingu fyrir störf á Alþingi, með því að miðla alþingismönnum upplýsingum, og að starf hennar geti orðið til að fræða almenning um stöðu íslands gagnvart Evrópu. „Þessi nefnd hefur þó ekki hvað síst haft þá þýðingu, að stjórnmála- flokkarnir hafa haft vettvang til að rífast á og það höfum við gert ós- part. Það hefur því verið gaman að reyna að sætta sjónarmið og komast að sameiginlegri niðurstöðu. Og nú vitum við nefndarmennirnir ná- kvæmlega hvar hvert okkar stendur, og ég held að við munum treysta hvert öðru héðan í frá,“ sagði Eyjólf- ur Konráð Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.