Morgunblaðið - 06.10.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
21
Stykkishólmur:
Skólinn og stúkurn
ar tekin til starfa
Stykkishólmi.
SKOLINN okkar hóf starfsemi
þegar viðfangsefnið ,er flókið og
sérstakt. Oft vann Ragnar í sam-
starfi við Sigrúnu konu sína, sem
sá um listskreytingar guðshússins,
þ. á m. glugga, myndir og hökla.
Eftirminnilegustu kirkjur Ragnars
eru að áliti undirritaðs Mosfells-
kirkja, afar falleg og stílhrein lítil
sveitarkirkja, og Grindavíkurkirkja.
Einnig átti Ragnar drjúgan þátt í
Kópavogskirkju, sem hann teiknaði
ásamt Herði heitnum Bjarnasyni
fyrrverandi Húsameistara ríkisins.
Ragnar átti mörg áhugamál, sem
hann sinnti töluvert, og bar þar
hæst taflmennskuna. Skáklistin átti
hug Ragnars öll hans fullorðinsár.
Hann var þátttakandi í taflmótum
og skákklúbbum um árabil og eign-
aðist þar marga vini og félaga, sem
hittust reglulega til að sinna áhuga-
máli sínu í góðum félagsskap. Is-
iensk stjórnmálastarfsemi var einn-
ig ofarlega í huga Ragnars. Ragnar
fylgdist vel með viðburðum í dægur-
þrasi íslensku stjórnmálaflokkanna
og var ávallt dyggur stuðningsmað-
ur Alþýðuflokksins eins og hann
átti kyn til. Tel ég Ragnar hafa
verið traustasta stuðningsmann
Alþýðuflokksins sem um getur.
Aldrei fór svo, að áliti hans, að
flokkurinn gerði mistök, ólíkt hinum
flokkunum sem tókst í sífellu að
hafa ranga stefnu og slæmar lausn-
ir, nema þegar hittist svo vel á að
þeir voru sammála Alþýðuflokkn-
um. Slíkt var trygglyndi Ragnars
við flokkinn, en sá góði eiginleiki
hans átti einnig sterkan þátt í af-
stöðu Ragnars til manna og mál-
efna yfirleitt. Ragnar skaut oft inn
fróðleiksmolum um flokkinn í miðj-
um rökræðum um dagleg málefni.
„Veist hvaða flokkur kom á al-
mannatryggingakerfi á Islandi".
Þetta geri hann til að undirstrika
enn frekar ágæti málstaðarins með
því að vitna í afrekssögu Alþýðu-
flokksins.
Kynni mín af Ragnari hófust í
byijun sjöunda áratugarins þegar
ég kynntist Sigurborgu dóttur hans.
Ragnar var félagslyndur og hafði
gaman af umræðum um dægur-
mál. Tengdasonurinn lærði fljótt,
að ekki dugði að hafa aðra skoðun
en flokksstefnu Alþýðuflokksins og
því fækkaði umræðum um stjórn-
mál, en það sakaði ekki því unnt
var að ræða um önnur málefni.
Ragnar var athugull maður á hegð-
un annarra og átti auðvelt með að
herma eftir fólki, bæði talanda og
látbragði. Var oft gaman að hlusta
á hann lýsa á skoplegan hátt við-
skiptum sínum við fólk í daglegu
lífi og hlusta á hann segja sögur.
Sögurnar kryddaði Ragnar með
næmri kímnigáfu og lék aðstand-
endur sögusviðsins á sannfærandi
hátt. Frásagnarlist Ragnars naut
sín enn betur í rituðu máli eins og
komst að eftir að við Sigurborg
fluttum frá Islandi fyrir um það bil
10 árum. Sendibréf Ragnars voru
með þeim ánægjulegustu sem okkur
bárust. Falleg rithönd, skemmtileg-
ur ritstíll og spaugilegar frásagnir
gerðu þessi bréf að eftirminnilegri
lesningu.
Þegar litið er yfir ævi og starf
Ragnars verður varla annað sagt
CIEKEL
KAFFI
3 TEG, SANTOS • KÓLOMBÍA • KÓLOMBÍA/KENÝA
en að hann hafi átt ánægjuiegan
lífsferil, ef frá eru skilin síðustu
æviárin. Skömmu fyrir sextugsald-
ur fór Ragnr að kenna illkynja sjúk-
dóms sem lék hann grátt. Hlaut
hann árangursríka en erfiða sjúk-
dómsmeðferð og náði sæmilegri
heilsu, þótt hann næði ekki aftur
fullu starfsþreki eftir álag sjúkdóms
og meðferðar. Um svipað leyti slitu
þau Ragnar og Sigrún samvistum
og varð það honum erfið raun, þótt
hann kvartaði ekki. Það bætti ekki
úr skák að einkadóttirin og barna-
börnin bjuggu erlendis og ekki gafst
tækifæri að hittast nema einu sinni
á ári eða svo. Ragnar hafði mikla
ánægju af því að taka á móti dóttur-
sonunum, þegar þeir komu til Is-
lands á sumrin og aka þeim í sveit-
ina. Vegna fjarlægðar kom Ragnar
ekki oft að heimsækja okkur til
Bandaríkjanna, en þegar hann kom
naut hann dvalarinnar vel, tók með
sér penslana sína og málaði fallegar
vatnslitamyndir af mótífum, sem
finnast ekki á Islandi. Ragnar var
fyrirferðarlítill og ánægjulegur
gestur, sem gerði litlar kröfur til
húsráðenda, en naut félagsskapar-
ins og þess litla sem veitt var með
mestu ánægju. Við Sigurborg
hvQttum hann ákaft til að koma í
heimsókn til Washington með
haustinu, en hann tók lítt undir
það, enda hefur hann sjálfsagt ver-
ið farinn að finna fyrir þrekleysi
vegna þess sjúkdóms, sem endan-
lega hafði yfirhöndina í glímu lífs
og dauða.
Jarðarför Ragnars fer fram frá
Grindavíkurkirkju, byggingu sem
er hans eigið hugverk. Ragnar
Emilsson var öðru fremur kirkju-
hönnuður og munu hans fallegu
guðshúsabyggingar halda minn-
ingu hans á lofti um ókomin ár.
Washington, 2, október,
Stefán Karlsson.
sína eins og undanfarin ár á
venjulegum tíma. Alls eru nem-
endur í vetur 290, í grunnskóla-
deild eru 240, en við framhalds-
nám 50. Skólastjóri er Lúðvíg
Halldórsson og yfirkennari Gun-
ar Svanlaugsson.
Sama og engar breytingar urðu,
en þær hafa mjög litlar orðið síðast-
liðin ár, að sögn skólastjóra. Kenn-
arar eru alls 21. Þá eru stúkurnar,
barnastúkan Björk, nr. 94 og ungl-
ingastúkan Helgafell nr. 249, einn-
ig að hefja starfsemi sína og í gegn-
um árin hefir skólinn og kennaralið-
ið verið þeirra trausti bakhjarl og
stutt starfsemina frá öndverðu. Er
það mikill munur enda markmið
allra að bæta þjóðlífið.
40 ára fermingarbörn og eins 15
ára fermingarbörn komu saman hér
til að minnast liðinna daga og heilsa
upp á gamla og góða skólann og
frændur og vini. Þannig mót færast
nú í aukana og er það vel._
- Árni.