Morgunblaðið - 06.10.1990, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
STIÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl)
Vertu samvinnufús. Eyddu ekki
of miklu í afþreyingu. Þú ert á
réttri leið í viðskiptum. Þraut-
seigja borgar sig ævinlega.
Naut
(20. apríl - 20. mai")
Stattu við öll loforð sem þú hefur
gefið fjölskyldu þinni. Þú nærð
umtalsverðum árangri í starfi
þínu í dag. Mættu maka þínum
á miðri ieið.
Tviburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Þú ert í skapi til að leita þér af-
þreyingar í dag og rómantíkin
verður með í spilinu. Þú hefur
ánægju af að taka þátt i íþrótt-
um. Mundu að hafa bókhaldið i
lagi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >“$8
Nú er tilvalið að byija á byijun-
inni heima fyrir. Þú eyðir ef til
vill of miklu ef þú ferð út að
skemmta þér, en það er nauðsyn-
legt fyrir þig að blanda geði við
fólk.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Farðu aðeins troðnar slóðir í við-
skiptum í dag. Gleyptu ekki yfir
of miklu, heldur treystu stöðu
þína. Þiggðu heimboð sem þér
berst.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Dugnaður þinn opnar þér dyr í
viðskiptum og efnahagshorfurnar
batna hjá þér. Ferðalag og heim-
sókn á gamalkunnan stað veita
þér ánægju.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Vinir þínir úr skemmtanalífinu
freista þin svo að þú eyðir um
efni fram. Þú færð áhuga á skap-
andi verkefni. í dag er tilvalið
fyrir þig að ferðast og sinna
fnstundamálunum.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þróunin á bak við tjöldin kemur
sér vel fyrir þig fjárhagslega í
dag. Reyndu að verða við óskum
maka þíns núna. Vertu hógvær-
arí og samvinnufúsari.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Innsæi þitt aflar þér fjárhagsiegs
ávínnings í dag. Einhleypt fólk
kynnist rómantíkinni. Notfærðu
þér uppiagt tækifæri til vina-
funda.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér er ekkert að vanbúnaði með
að byija á nýju verkefni og taka
mikilvæga ákvörðun í viðskipt-
um. Einhver vina þinna er öfund-
sjúkur. í dag skaltu sinna róm-
antíkinni og hugðarefnum þínum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú lýkur við einhver verkefni
heima fyrir í dag, en þú notar
einnig tækifærið og ferð í úti-
vistarferð með Qölskyldunni.
Andinn kemur yfir skapandi ein-
staklinga.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) !£*
Þú byijar á rólegu nótunum í
dag, en sækir í þig veðrið í sam-
bandi við eitthvað sem þú þarft
að sinna heima fyrir. Þú átt
ánægjulega stund með giimlum
vinum. Kvöldið verður sérlega
ánægjulegt og óvenjulegt.
AFMÆLISBARNIÐ yrði góður
félagsráðgjafi. Það á auðvelt með
að umgangast fólk, þó að innra
með þvi leynist einfari. Það er
gætt sköipu innsæi sem það ætti
að læra að treysta. Það hefur
mikinn áhuga á menningarmál-
um og kynni að laðast að ritstörf-
um eða annarri listsköpun.
Kennsla, sálfræði og lögfræði
gætu einnig orðið áhugasvið þess.
Heimílið er því mikiivægt lífs-
akkeri.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Amarson
Suður er sagnhafi í 3 grönd-
um og fær út tígulsexu, fjórða
hæsta.
Vestur gefur, enginn á hættu.
Norður
♦ ÁK
V 1083
♦ 54
♦ KD9873
Suður
♦ G7643
♦ Á65
♦ ÁG9
♦ Á2
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Austur lætur kónginn og suð-
ur drepur strax. Taktu við.
Spilið kom upp í Butler-
keppninni í Ástralíu og meðal-
skor reyndist vera 100 í AV
fyrir 3 grönd, einn niður. Dick
Cummings þótti það heldur klént.
hjá löndum sínum, því spilið má
vinna með því að slá einn var-
nagla í öðram slag — spila litlu
laufi!
Norður
♦ ÁK
♦ 1083
♦ 54
♦ KD9873
Vestur
♦ D952
VG94
♦ D10762
♦ G
Austur
♦ 108
♦ KD72
♦ K83
♦ 10654
Suður
♦ G7643
♦ Á65
♦ ÁG9
♦ Á2
Þegar gosinn birtist er óhætt
að dúkka og halda austri þar
með út úr spilinu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á hraðmóti í Prag í haust sem
Stórmeistarasambandið gekkst
fyrir kom þessi staða upp í skák
hinna frægu stórmeistara Nigel
Short (2.615), sem hafði hvítt og
átti leik, og Jan Timman (2.660).
38. Rxd5+! - exd5, 39. Dg5+ -
Ke6, 40. De3+?? (Hér þurfti ekki
að leita langt yfir skammt. Eftir
40. Bxf7 getur svartur gefist upp,
því hann verður drottningu undir
eftir 40. - Kxf7, 41. Dh5+).
40. Rde5, 41. Bg4+ - Kd6, 42.
dxe5 — Kc7 og Timman náði að
bjarga skákinni í jafntefli. Það
réði úrslitum á mótinu. 1. Timman
4 v., 2. Short 3‘A v., 3. Ftacnik
3 v., 4. Kavalek 2 v., 5. Hort l'A
v., 6. Smejkal 1 v. Þátttaka Tékk-
anna sem áður vora landflótta,
þeirra Kavaleks og Hort, er tákn-
ræn fyrir betri tlma í austurhluta
Evrópu. Mótið var haidið vegna
stjórnarfundar sambandsins í
Prag og hápunkturinn var létt
skák sem Havel, forseti Tékkósló-
vakíu, og Bessel Kok, ' fram-
kvæmdastjóri stórmeistarasam-
bandsins tefldu. Henni lauk með
öruggum sigri Havels.